Morgunblaðið - 03.06.1965, Side 10
10
MORGU NBLAÐIÐ
FJmmtudagur 3. júní 1965
Gert að veiði í Fiskivötnum. Nú standa vonir tii að veiðifélag verði stofnað um vatnasvæð-
ið í sumar, og opnast þá möguleikar á að félagið selji stangaveiðimönnum veiðileyfi í vötn-
unum. Þetta eru mörgum ánægjuleg tíðindi.
Áhugi á fiskirækt hefir
aukist stórkostlega
Rætt við veiðimálastjora í upphafi veiðitímabiis
MBL. átti í gær viðtal við
Þór Guðjónsson, veiðimála-
stjóra, um ýmisiegt varðandi
veiðimál hérlendis í tilefni
þess að laxveiðitíminn er nú
hafinn í nokkrum ám, og fer
senn i hönd í öðrum.
— Laxveiðitíminn hófst 20.
maí sl. í Hvítá í Borgarfirði
sagði veiðimálastjóri. Veiði-
menn við Hvítá eru jafnan
fyrstir til veiðanna. Neta-
menn í ánni urðu lítið varir
fyrstu dagana, en í lok sl.
viku fór veiði að giæðast, og
þannig fékk einn bóndi 9 laxa
í net sl. föstudag og voru
þeir 8-12 pund að stærð.
— Hvítá hefur verið lítil
að undanförnu og er sömu
sögu að segja um flestar ár
landsins. Þær hafa verið vatns
litlar þar til í rigningum síð-
ustu daga. Vatnsforðabúrið er
heldur lítið í ár, sáralítill
snjór í fjöllum, þannig að allt
útlit er fyrir að vatnslítið
verði í flestum ám í sumar,
ef ekki gerir úrkomu að ráði.
Svipað ástand var í fyrra, en
þá vildi svo vel til að tölu-
verða úrkomu gerði víða
þannig að um það leyti að
laxinn gekk, yar ágætt vatn
í ánum um vestanvert landið.
— Nú er stangaveiðitíminn
einnig hafinn í nokkrum ám,
þ.e.a.s. frá 1. júní, og á næstu
þremur vikum hefst hann í
öllum laxám landsins. Veiði-
tíminn fyrir lax í hverri ein-
stakri á er þrír mánuðir, þann
ig að veiði í þeim ám, sem
opna 1. júní, líkt og Laxá í
Kjós, Norðurá og Miðfjarðar-
á, lýkur 31. ágúst. Veiði í öðr-
um ám hefst síðar og lýkur
þá einnig síðar. Veiði á vatna
svæði Hvítár og Ölfusár hefst
þannig ekki fyrr en 21. júní og
lýkur 20 september.
— >á er rétt að geta þess að
daglegur veiðitími í hverri á
er 12 stundir á stöng. Hefst
veiði yfirleitt kl. 7 eða 8 á
morgnana og stendur til kl. 9
eða 10 á kvöldin, með hléi yfir
miðjan dagin. Nokkuð er
tímaskiptingin breytileg eftir
ám, en aldrei má þó veiða
meira en 12 tíma á dag.
— Hvernig eru veiðihorfur
í sumar?
— Það er erfitt að hafa
nokkra spádóma uppi um það.
En þó tel ég að líkur séu á
meðalári og jafnvel betra, en
eins og fyrr segir er illmögu-
legt að geta sér til um það.
— Hinsvegar er áhugi fyrir
veiðum sívaxandi og ef nokk-
uð má marka veiðileyfin í
laxánum í sumar, er áhuig-
inn aldrei meiri en einmitt
nú. Þær ár, sem verið hafa í
leigu í nokkur ár, en voru end
urleigðar í vetur, hafa allar
hækkað töluvert í verði og
sumar mjög mikið. Þannig
rúmlega þrefaldaðist leigan á
Víðidalsá, er um hana var
samið í vetur. í dýrustu án-
um mun stöngin kosta 3,000-
3,500 krónur á dag á bezta
veiðitíma.
— Þá hefur áhugi manna
fyrir ræktun ánna og vatna
farið stórkostlega vaxandi á
seinni árum. Sem dæmi má
nefna að fjölmörg veiðifélög
hafa verið stofnuð um ár og
vötn, þar sem engin félög
voru fyrir áður. Tilgangurinn
er að sjálfsögðu að fá betri
nýtingu út úr viðkomandi
vatnasvæðum. í fyrra voru
stofnuð eða unnið að stofn-
un 9 veiðifélaga, og allt útlit
er fyrir að álíka mikið verði
um veiðifélagsstofnanir í ár.
Stærstu veiðifélögin, sem
stofnuð voru í fyrra, voru
Veiðifélag Fljótsdalshéraðs
um Lagarfljótssvæðið og
Veiðifélag Skaftár í Skafta-
fellssýslu. f námunda við
Reykjavík var stofnað félaig
um Elliðavatn og ár þær, sem
í það renna.
— Á þessu ári er verið að
undirbúa veiðifélag um Fiski
vötn, sem mörgum munu
þykja góðar fréttir. (Sjá frétt
á baksíðu).
— Þá má nefna annað at-
riði, sem Ijóslega sýnir hinn
stóraukna áhuga á fiskirækt,
en það eru byggingar fisk-
vega. Undanfarin ár hefur
verið gerður að meðaltali
einn laxastigi eða fiskvegur
annað hvert ár, en í fyrra brá
svo við að unnið var að gerð
fiskivega á sex stöðum, og út-
lit er fyrir að unnið verði að
slíkum framkvæmdum á fjór-
um eða fimm stöðum í sumar.
Er þetta gleðilegt merki um
hinn mikla og almenna áhuga
fyrir fiskrækt í landinu.
— í fyrra ólu átta aðilar
upp lax og silung í landinu,
auk þess sem fjórir eða fimm
Þór Guðjónsson
til viðbótar voru með klak.
Nú er mikill áhugi víða í
héruðum að koma upp stór-
um fiskeldistöðvum fyrir hér-
uðin, og er unnið að undir-
búningi þess máls víða.
— Hvað um Kollafjarðar-
stöðina?
— Það er langt til lokið að
reisa stöðina í því formi, sem
henni er nú ætlað og klak og
eldi er þar í fullum gangi.
Þessa daigana eru gönguseiði
að synda út úr stöðinni í sjó
fram, en þau koma væntan-
lega til baka eftir eitt og tvö
ár.
— í eldisstöðinni við Elliða-
ár, sem er eign Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, var stigið
merkt spor í fyrra. Hafizt vair
þá handa um að byggja eldis-
hús að sænskri fyrirmynd og
er verið að leggja síðustu
hönd á það verk. Fiskeldi er
hinsvegar hafið þar fyrir
nokkru, og fyrir hálfum mán-
uði var sleppt um 1000 göngu-
seiðum í Elliðaárnar frá stöð-
inni, svo sem skýrt var frá í
Mbl. þá. Þá var frá þriðju
eldisstöðinni sleppt töluverðu
magni af gönguseiðum í vor.
— Hvað um starfsemi Yeiði
málastofnunarinnar í sumar?
— Hinn mjög svo aukni
áhugi og starfsemi á sviði
veiðimála hefur leitt af sér
mjög aukið annríki fyrir Veiði
málastofnunina, en starfskraft
ar hennar og starfsfé hafa
hinsvegar ekki aukizt að sama
skapi. Hefur því ekki verið
hægt að greiða fyrir mönn-
um eins og æskilegt hefði ver-
ið, en vonandi verður bætt úr
þessu ástandi á næstunni.
— Vegna hinna miklu anna
við daglega afgreiðslu, höfum
við haft mjög lítinn tíma til
að sinna rannsóknarstörfum,
sem þó eru ein veigamesta
undirstaða þess, að eðlileg þró
un veiðimála geti átt sér stað
hérlendis. Við höfum verið að
merkja með uggaklippingum
þann fisk ,sem sleppt hefur
verið frá eldistöðvunum í vor,
Og nú stendur yfir veiði og
merking lax- og sjóbirtings-
seiða, sem ganga um þessar
mundir til sjávar úr Úlfarsá
(Korpu). Þetta er 18. sumar-
ið, sem slíkar merkingar fara
þar fram.
— Rétt er að benda á, að
merkingar eru mjög mikil-
vægar í þeirri viðleitni að
komast að raun um að hve
miklu gagni sleppingar á seið
um koma. Verður því aldrei
of mikil áherzla á það lögð
að veiðimenn taki vel eftir
því, hvort allir uggar séu á
fiskum þeim, sem þeir veiða,
og ef einhverja vantar, að þeir
geri Veiðimálastofnuninni að-
vart, og veiti henni upplýsing
a rum veiðistað, veiðitíma,
hvaða fisktegund sé um að
ræða, og loks væri æskilegt
að fá hreistursýnishorn af
fiskinum.
— Þá höfum við einnig
merkt hoplax og sjóbirting
með sérstökum merkjum,
þannig að tvenns ber að gæta.
Getur hvorttveggja til komið
að fiskurinn sé uggaklipptur
eða í honum sé merki.
— Þörfin fyrir rannsóknim
ar er mikil og það verður að
veita meira fé til þeirra en nú
er gert. Aðkallandi er t.d. að
telja gönguseiðin úr nokkrum
ám og síðan fullorðna fiskinn
sem gengur, til þess að fá ná-
kvæmar upplýsingar um stærð
stofnsins í ánni, og hve mikið
má veiða af honum án þess
að á hann gangi.
— Þá má að lokum nefna
að nauðsynlegt er að geta
fylgzt nákvæmlega með því,
sem nú er að gerast í fisk-
ræktar- og fiskeldismálum úti
í heimi til þess að geta hag-
nýtt sér þær aðferðir hér eins
fljótt og hægt er. Allt kostar
þetta fé, en Ijóst er að það
verður naumast metið til fjár
að veiðimál landsins séu í
góðu lagi, sagði veiðimála-
stjóri að lokum.
Samsöngur Karla-
kórs Keflavíkur
ÞAÐ er gleðilega undravert að
Karlakór Keflavíkur skuli vera
til og með vaxandi glæsibrag
hverju sinni, sem hann lætur
til sín heyra, þvi þar eru menn
úr öllum stéttum, sem vinna
langan vinnudag og fórna kvöld-
um sínum og oft vinnu til æf-
inga. Nú hefur karlakórnum
bæzt liðsauki, sem eru 24 ungar
stúlkur og húsmæður, sem einnig
eru störfum hlaðnar, til að
mynda hinn fjölmenna samkór,
sem nú kom fram í fyrsta skipti.
Dugnaði og festu söngstjórans,
Herberts Hriberschek Ágústsson
ar, er þar vafalaust mikið að
Iþakka.
Söngskráin var að þessu sinni
mjög vel valin. í fyrrihlutanum ,
sem karlakórinn söng einn, voru
eingöngu lög eftir íslenzka höf-
unda. Einsöngvarar kórsins voru
með ágætum. Sveinn Pálsson
hefur fallega hljómþýða rödd.
Hann söng „Nú andar suðrið“
af skilningi og tilfinningu að því
er virðist á hinn eina rétta hátt,
með góðri aðstoð kórsins. —
Haukur Þórðarson hefur mikla
og fallega rödd og er í stöðugri
framför. Eldri og þekktari kórar
væru vel sæmdir af honum sem
einsöngvara, Það fer ekki hjá
því að raddþjálfun V. Dementz
setur sinn svip á og hefur borið
góðan árangur, bæði fyrir kór-
inn í heild og einsöngvarana.
Síðari hluti söngskrár var
, fluttur af blandaða kórnum og
hófst á syrpu af lögum frá
Norðurlöndunum sex, í útsetn-
ingu söngstjórans. Það er vafa-
laust rétt, mússik-málið er al-
þjóðlegt og er skilið jafnt í
Kína og á íslandi, en þó hefur
hver þjóð sinn sérstaka blæ yfir
söng sínum, sem kann að vera
erfitt að ná utan landsteina
heimalands, en þó hefði verið
skemmtilegt að heyra og finna
mismunandi blæ í tónfalli í tón-
falli Norðurlandanna í þessari
syrpu, sem blandaði kórinn
flutti að öðru leyti afburða vel.
Á eftir syrpunni voru lög úr
óperettunni „Keisarasonurinn“
eftir Lehar, með einsöng Hauks
Þórðarsonar. Kom þar sérstak-
lega vel fram hnitmiðuð sam-
stilling kórsins; sama má segja
um kórinn úr óperettunum „I
Lombardi“ etfir Verdi. Sam-
söngnum lauk með amerískri
sönglagasyrpu í útsetningu
Hriberschek, sem að vissu leyti
reyndi á þolrif kórsins, er hann
stóðst fyllilega.
Ragnheiður Skúiadóttir aðstoð
aði með traustum og fáguðum
undirleik, sem hvergi brást og
Hriberschek er hinn öruggi leið
togi og allir þræðir liggja um
hendur hans.
Það er vissulega mikill menn-
ingarauki fyrir Keflavíkurbæ að
eiga þennan ágæta kór, sem ber
hróður Keflavíkur um víða vegú
og er kórnum þakkað hans mikla
og óeigingjarna starf og óskast
allra heilla í gframtíðinni.
— hsj —
Gróður að koma
til vestra
ísafirði, 2. júní.
MAÍMÁNUÐUR var óvenjuþurr
á norðanverðum Vestfjörðum og
mátti heita að varla kæmi dropi
úr lofti. Framan af mánuðinum
var fremur kalt í veðri, en sól-
far mikið og hlýnaði, er á leið.
Sauðburður hefur yfirleitt alls
staðar gengið mjög vel, en þó
farið hægt. Fram undir mánaóa-
mót fór gróðri mjög lítið fram,
en síðustu dagana hefur rignt
nokkuð og hefur gras tekið mjög
að grænka og úthagi að koma
til. Gróður er þó enn óvenju
skamrnt á veg kominn. — H.T.
Fiskibátar til sölu
Seljum og leigjum fiskibáta
af öllum stærðum. Útvegum
hagkvæma greiðsluskilmála.
SKIPA- OG
VERÐBRÉFA-
SALAN
SKIPA-
LEIGA ,
VESTURGOTU 5
Talið við okkur um kaup og
sölu fiskiskipa.
Sími 13339.