Morgunblaðið - 03.06.1965, Qupperneq 16
16
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtudagur 3. júní 1965
Útgefandi:
Framkvæmdas tj óri:
Ritstjórar:
Ritstj órnarf ulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
RAÐSTEFNA UM
ATVINNUMÁL
NORÐLENDINGA
Þér eruð mann-
kyninu leiiarljós
— sagði Einstein í bréfi til Gandhis
London, 31. maí AP. —
• í LONDON hafa verið
birt bréf, sem fyrir 34 árum
fóru milli þeirra Alberts Ein-
steins og Gandhis, sjálfstæðis
heju Indverja. Lýsti Einstein
þar fylgi við þá stefnu Gandh
is, að forast valdbeitingu í
sjálfstæðisbaráttu Indverja og
Gandhi svaraði, að stuðningur
hans væri sér mikilsverð
huggun og aflgjafi.
Bréf þessi voru birt í tíma-
ritinu „Indian Weekly“, sem
gefið er út á ensku fyrir Ind-
verja búsetta í Bretlandi. „í
bréfi, sem Einstein skrifaði í
október 1031 sagði m.a., „Þér
hafið í starfi yðar sýnt, að
við getum náð settu marki án
valdbeitingar. Við getum sigr-
að þá, sem grípa til ofbeldis
með því að forðast það sjálfir.
Fordæmi ýðar mun verða m.a.
mannkyninu leiðariljós í við-
leitni þess til að binda enda
á deilur og átök, sem leitt
hafa af ofbeldi og yfirgangi,
— til þess að vinna að sam-
hjálp *og alþjóðlegri sam-
vinnu um að tryggja frið í
heiminum. Um leið og ég
lýsti yfir stuðningi mínum
við yður, leyfi ég mér að láta
í ljós aðdáun mína á yður og
þá von að fá ein'hvern tíma
að hitta yður að máli.“
Nokkrum dögum sfðar svar-
aði Gandhi, sem þá var stadd-
ur í Englandi — en Einstein
var um þessar mundir enn.þá
búsettur í Þýzkalandi — „Mér
þótti mjög vænt um að fá
þetta fallega bréf frá yður.
Og mér er það mikil huggun
og uppörvun, a'ð starf mitt
skuli jákvætt að yðar dómi.
Vissulega vildi ég, að við gæt
um hitzt!“
Ekki er til þess vitað, að
þeim Einstein og Gandhi hafi
nokkurn tíma orðið að þeirri
von að hittast að máli.
Gandhi
Aloert Einstein, hinn heims
kunni eðlis- og stærðfræðing-
ur var alla tíð mikill friðar-
Einstein
sinni, en yfirgangur riazis-
mans varð til þess, að hann
snerist á sveif með Banda-
mönnum í heimsstyrjöldinni
síðari og átti hugmyndina að
smíði kjarnorkusprengjunnar.
Var Einstein Þýzkur Gyðing-
ur, tæddur árið 1879 í Wúrtt-
emberg, en fluttist fimmtán
ára að aldri til Sviss og dvald
ist þar lengi. Var hann frá
1909 prófessor í eðlisfræði við
háskólann í Zurieh, starfaði
um eins árs skeið í Prag en
sneri þaðan aftur til Sviss.
Árið 1914 var hann beðinn að
koma heim til Þýzkalands og
taka við stöðu forstöðumanns
Káiser Wilhelms-stafnunar-
innar. Hann flúði land sitt
undan ofríki Nazista og sett-
ist að í Bandaríkjunum. Banda
rískur ríkisborgari varð hann
1940. Einstein lézt í Princeton
í New Jersey í apríl árið 1955,
en Gandhi var, sem kunnugt
er, myrtur í Indlandi í janúar
mánuði árið 1948.
Enginn árangur á ráð-
herrafundi Arabaríkjanna
l^ulltrúar frá 5 kaupstöðum
og 8 stærri kauptúnum á
Norðurlandi komu saman til
ráðstefnu um atvinnumál
þessa landsfjórðungs, og
gerðu ýmsar ályktanir, sem
miða að því að bæta atvinnu-
ástandið nyrðra.
Magnús Jónsson, fjármála-
ráðherra, gat þess í ávarpi á
ráðstefnunni, að ríkisstjórn-
in undirbyggi nú stofnun
framkvæmdasjóðs strjálbýlis-
ins, og var því fagnað af fund
armönnum.
Framkvæmdasjóður strjál-
býlisins mun verða mikil
lyftistöng fyrir atvinnulíf-
ið úti um land, ef rétt verð-
ur á málum haldið, og þess
vegna er tímabært að ræða
skipulag þess sjóðs, en lög-
gjöf um hann verður væntan-
lega sett á næsta Alþingi.
Enginn efi er á því, að fram
kvæmdasjóður strjálbýlisins
mun koma að mestum notum,
ef honum verður að verulegu
leyti ætlað það hlutverk að
stuðla að því að upp rísi öfl-
ug einkafyrirtæki og félags-
fyrirtæki í strjálbýlinu, sem
síðan standi á eigin fótum og
laði bæði fólk og fjármagn að
þeim stöðum, þar sem þau
hafa starfrækslu sína.
Ráðstefnur á borð við þá,
sem Norðlendingar hafa hald-
ið, eru vafalaust til verulegs
gagns, en sjálfsagt næst þó
ekki sá árangur, sem að er
stefnt, öðruvísi en með því
að koma fastri skipan á starf-
semi þá, sem miðar að því að
bæta atvinnuástandið í hin-
um einstöku landshlutum. Og
við gerð þjóðhagsáætlunar
þarf ekki einungis að hugsa
um þróun atvinnugreinanna
almennt, heldur líka staðsetn-
ingu fyrirtækjanna og þróun
atvinnulífs í hverjum einstök-
um landshluta.
Líklegast til árangurs virð-
ist það vera að koma upp
fastri nefnd eða ráði í hverj-
um landshluta. Ættu þar ekki
einungis að eiga sæti pólitísk-
ir fulltrúar, heldur líka at-
hafnamenn og fulltrúar meg-
in atvinnugreinanna. Sjálf-
sagt þyrfti þetta ráð að hafa
fastan aðsetursstað, skrif-
stofu og dugmikinn fram-
kvæmdastjóra, sem stöðugt
ynni að upplýsingasöfnun og
hefði tengsl við atvinnurek-
endur, fylgdist með hug-
myndum, sem uppi eru um
stofnun nýrra atvinnufyrir-
tækja, og gerði tillögur um
fyrirgreiðslu, sem gæti orkað
því, að slík fyrirtæki risu úti
um land, fremur en í Reykja-
vík eða nágrenni.
Auðvitað væri nokkur
kostnaður samfara því að
halda uppi slíkum skrifstof-
um, en þó væru laun eins
duglegs manns og kostnaður
við skrifstofu hans aðeins lít-
ið brot af því, sem allir eru
sammála um að verja þurfi
til þess að styrkja atvinnulíf-
ið úti um land.
Hér er ekki um að ræða
neinar fastmótaðar tillögur í
þessu efni, heldur einungis
ábendingar, sem menn þurfa
að hugleiða, áður en löggjöf
verður sett um framkvæmda
sjóð strjálbýlisins, því að
vissulega er mikið í húfi að
vel takist um framkvæmdir
og hið mikla fjármagn, sem
hugmyndin er að verja til að
styrkja atvinnulífið í hinum
dreifðu byggðum, komi að til-
ætluðum notum, en fari ekki
til bráðabirgðastyrkja, sem
að engu haldi koma til fram-
búðar.
RÚBLAN
Tf’ins og greint hefur verið
frá hér í blaðinu, var ný-
lega skýrt frá því opinber-
lega, að í einu Suður-Amer-
íkuríkja hefðu þrír útlending
ar verið handteknir, og á
þeim hefði fundizt hvorki
meira né minna en 330 þús-
und bandarískir dollarar, allt
í 100 dollara seðlum. Þessir
menn reyndust vera sendi-
menn heimskommúnismans,
og fjármagn það, sem þeir
höfðu meðferðis, var ætlað til
að kosta undirróðurs- og áróð
ursstarfsemi í þessu ríki.
Auðvitað er þetta ekkert
einsdæmi, heldur einmitt eitt
af ótal mörgum dæmum um
vinnubrögð kommúnista. —
Starfsemi þeirra í frjálsum
löndum er hvarvetna kostuð
af erlendu fé, og kommúnista
foringjar eru þannig í bók-
staflegri merkingu málaliðar
erlends valds. Það er ekki úr
vegi að rifja þessar staðreynd
ir upp nú, þegar kommúnist-
ar hér á landi segjast enn einu
sinni vera í miklum peninga-
vandræðum. Það segja þeir
venjulega einu sinni eða tvisv
ar á ári. Síðan gufa peninga-
vandræði þeirra skyndilega
upp og þeir hafa nóg fé undir
höndum. Þeir segjast að vísu
hafa fengið milljónir frá fá-
tækum verkamönnum, en
enginn heilvita maður trúir
því.
íslenzkur almenningur ger-
ir sér líka glögga grein fyrir
því, hvaðan kommúnista-
flokkurinn hér á landi hefur
sína peninga, enda kom það
af sjálfu sér að stórhýsi það,
sem kommúnistar hafa reist
við Laugaveg, hlaut nafnið
Rúblan, og enginn nefnir það
hús öðru nafni.
En hvernig skyldi nú
standa á því, að Rússar — og
raunar Kínverjar líka —
kosta starfsemi stjórnmála-
flokka í öðrum löndum? —
Skyldi það vera af hjarta-
gæzku og til þess að auðvelda
þessum flokkum að vinna að
hagsmunamálum sinnar þjóð-
ar? Sá, sem þeirri spurningu
svaraði játandi, væri meira
en lítið skrítinn.
Auðvitað gera kommúnista-
ríkin þetta í eiginhagsmuna-
skyni. Þau gera það til þess
að eignast fimmtu herdeildir
víða um lönd, sem vinna eiga
að því að lama lýðræðisríkin
og styrkja aðstöðu kommún-
istaríkjanna á alþjóðavett-
vangi.
Þetta þurfa menn ætíð að
hafa hugfast og gleyma því
ekki að kommúnistar eru alls
staðar eins og munu hlýða
hinum austrænu yfirboður-
um sínum í einu og öllu, þótt
þeir þykist oft á tíðum vera
þjóðhollir.
Kairó, 31. maí (NTB-AP)
ENGAN árangur er að sjá af
fimm da& fundi forsætisráðherra
Arabaríkjanna tólf, sem lauk í
Kairó á sunnudag. Þetta er ann-
ar ráðherrafundur Arabarikj-
anna á þessu ári og fjallaði nær
einvörðungu um sameiginlegar
aðgerðir ríkjanna gegn Israel.
Fundurinn samþykkti 20 leynileg
ar ályktanir varðandi aðkallandi
málefni en vísaði öðrum til fund-
ar forseta Arabarikjanna, sem
haldinn verður í Casablanca 13.
september nk.
Túnis sat ekki þennan fund og
var eina Arabaríkið sem átti þar
ekki fulltrúa. Engu að síður kom
það mjög við sögu fundarins og
var m.a. talið ein þriiggja á-
stæðna fyrir því hversu lítið
gagn varð að fundinum. Önnur
ástæða sem tilgreind var var
stríðið í Jemen og sú þriðja, sem
var sú er mestu máli skipti, var
sögð skortur á gagnkvæmu trún-
aðartrausti milli ríkjanna.
Fregnir herma, að fundurinn
hafi ekki tekið til meðferðar
stríðið í Jemen, þrátt fyrir mikla
umleitan forsætisráðherfa lands-
ins, Muhammad Ahmed Nomans,
sem vonaði að með viðræðum
myndi ef til vill takast a ðbinda
endi á borgarastyrjöldina, sem
staðið hefur í Jemen í tvö og
hálft ár. Ekki var heldur fjallað
um mál Túnis eða Bourgiba
forseta, sem í fyrra mánuði
ieystu deilumál sín við
fsrael með samningum. Leiðtogi
samtaka þeirra er berjast fyrir
því að Palestína verði aftur ara-
bískt land, Ahmed Shukairy,
gekk tárfellandi af fundi og sagði
af sér í mótmælaskyni við af-
stöðu fundarmanna til tillögu
Bourgiba. Vildi Shukairy gera
Túnis brottrækt úr samtökum
Arabaríkj anna og áfelldist fund-
armenn fyrir slælegar undirtekt
ír við þá tillögu sína.
Þá eru Sýrlendingar sagðir lít-
ið hrifnir af áformum þeim sem
uppi eru um að veita vatninu
úr ánni Jórdan aðra leið, svo ekki
nýtist áveituframkvæmdir fsraels
manna og eins segjast þeir larug-
eygir eftir aðgerðum hinnar
stofnuðu yfirstjómar sameigin-
legra hervarna Arabaríkjanna.
Nokkur Arabaríkjanna létu I
ljósi andúð á framkvæmdum Jór-
dana við ána Jórdan og heimt-
uðu að fyrst yrði tryggilega frá
því gengið, að þau myndu varin,
ef ísrael hyggði á hefndir. Lítið
gekk líka saman með Egyptum
á fundinum og nágrannaríkjun-
um í Norður-Afríku.
Framkvæmdastjóri samtaka
Arabaríkjanna, Abdel Khalek
kvað fundinn hafa samþykkt
ýmsar ráðstafanir um sameigin-
legar aðgerðir gegn ísrael og for
seti ráðstefnunnar, Zakaria
Mohieddine, varaforseti Arabiska
sanvbandslýðveldisins, taldi ráð-
stefnuna hafa verið hina gagn-
legustu.