Morgunblaðið - 03.06.1965, Qupperneq 21
f Fimmtudagur 3. júní 1965
MORGUNBLAÐIÐ
21
Hlufabréf Eimskips í
Elugfélagi íslands
f MORGUNBLAÐINU í dag er
birt viðtal við Loft Bjarnason út-
gerðarmann: „Á Eimskip að selja
hlutabréf sín í Flugfélaginu?“
en Loftur átti sæti í stjórn Eim-
skips sl. ár, svo sem kunnugt er.
Tilraunir Loftleiða til að leggja
undir sig Flugfélagið hafa þegar
vakið andúð flestra heiðarlegra
manna, og þá ekki sízt það bragð
þeirra að hindra, í bili a.m.k., að
starfsfólk Flugfélagsins gæti
eignast helming hlutabréfa Eim-
skipafélagsins í Flugfélaginu,
með því að bjóða Eimskipafélag-
inu fimmtánfalt verð fyrir hluta-
bréfin á lokastigi samninga Flug
félagsins við Eimskipafélagið um
kaup hlutabréfanna fyrir starfs-
fólk sitt, fyrir tífalt verð.
Ég mun ekki að sinni ræða
þetta mál 1 heild, en þar sem
Loftur Bjarnason hefir nú lýst
Tryggvi Marteinsson, matreiðslumaður á Hvoli.
Hvoll bœtir þjónustuna
við ferðafólkið
HVOLSVELLI — Framkvæmda-1 Runólfssón okkur að Hvoll gæti
stjóri Félagsheimilisins Hvols ájtfckið á móti stórum ferðahópum,
Hvolsvelli, Markús Runólfsson,' allt að 300 manns oig einnig séð
Ibauð fréttariturum dagblaðanna
á Hvolsvelli ásamt húsnefndinni
til kvöldverðar 2.8. þ.m. í tilefni
af breyttu fyrirkomulagi á
rekstri veitingahússins.
. Nýlega var ráðinn ungur og
jnjög fær matreiðslumaður,
Tryggvi Marteinsson að nafni.
Tryggvi nam matreiðslu í Dan-
mörku ,en tók próf hér heima
íyrir skömmu. Trýggvi er mörg-
ium íslendingum góðkunnur ,m.a.
fyrir störf sín í 4 sumur í Bif-
röst í Borgarfirði. Og einnig var
hann í hálft annað ár á flagg-
skipi íslands, Gullfossi.
Hvoll hyggst bæta mjög þjón-
tistu sína við ferðafólk. T.d. verð
ur hægt að fá heitan mat alla
daga frá kl. 8—11.30 e.h. Þá verð j
ur til reiðu smurt brauð með!
allskonar áleggi. Þá tjáði Markús ’
Auðséð er af framangreindu
að Hvoll hefur hug á að þjónust
an við gesti hússins verði sem
bezt og takist það, sem ég er
ekki í neinum vafa um, þá er vel.
— Otto EyfjörS.
viðhorfi sínu til málsins, og ýms-
um atriðum í sambandi við af-
greiðslu þess, langar mig að
leggja fyrir hann nokkrar spurn-
ingar.
í viðtalinu segir Loftur:
„Með bréfi dagsettu 13. janúar,
bauð meirihluti stjórnar Eim-
skipafélagsins Flugfélaginu að
kaupa 800 þúsund krónur af
hlutafénu fyrir 8 milljónir, en ég
vildi selja félaginu bréfin öll, en
þau eru 1559 þúsund krónur að
nafnverði. Þessu tilboði var ekki
svarað fyrr en með bréfi dag-
settu 29. apríl, og ekki tekið fyr-
ir í stjórn Eimskipafélagsins fyrr
en 7. maí. Þá hafði komið tilboð
frá Loftleiðum um að kaupa bréf
in á fimmtánföldu verði, og gat
ekki komið til greina frá hags
munasjónarmiði Eimskipafélags-
ins að selja bréfin á miklu lægra
verði til tilboð lá fyrir um.“ —
(Leturbr. mín).
Spurningar mínar eru þessar:
1) Hvenær var stjórnarfundur
Eimskipafélagsins, sem hald-
inn var 7. maí, boðaður?
2) Var stjórnarmönnum kunn-
gert í fundarboði, munnlega
eða skriflega, að tilboð Flug-
félagsins um kaup hluta-
Eimskips í Flugfélaginu, yrði
tekið fyrir á fundinum?
3) Hvenær er tilboð Loftleiða
um kaup hlutabréfanna fyríi
fimmtánfallt verð dagsett?
4) Með hvaða hætti barst stjór*
Eimskips þetta tilboð Loft-
leiða og hvenær?
Barst það í pósti — eða var
var það lagt fram á fundl
stjórnarinnar 7. maí og þá af
hverjum?
Með tilliti til þess, sem Morg-
unblaðið hefir eftir Lofti, þ.e.a.s.:
„Ég mundi ekki vera að segja frá
því sem gerðist á stjórnarfund-
um Eimskipafélagsins, nema
vegna þess að frá því hefur verið
skýrt meira og minna í blöðum,
og því rétt að skýra málið I
heild“, vænti ég þess að hann sjái
sér fært að svara framangreind-
um spurningum minum.
Að öðru leyti vil ég þakka
Lofti vinsamleg ummæli hans i
garð Flugféalgsins.
Reykjavík, 1. júní 1965.
Öm Ó. Johnson.
S^mánnadagur
á Akranesi
Akranesi, 31. maí: —
SJÓMANNADAGURINN var há
tíðlegur haldinn hé'r. Kl. 10 hófst
skrúðganga frá höfninni. Þá
höfðu fánar blakt við hún í tvær
stundir á hverju skipi. Gengið
var um aðalgötur með lúðrasveit
í fararbroddi og hlýtt sjómanna
messu hjá sóknarprestinum kl.
H.
Á eftir var Hallfreður Guð-
mundsson, fyrrverandi hafnsögu
maður heiðraður í kirkjunni. Kl.
13.30 fluttu fulltrúar sjómanna
og útvegsmanna ávörp á íþrótta-
vellinum. Lúðrasveit lék og
keppt var í knattspyrnu. t
Kl. 16 var björgunarsýning við
höfnina og kappróður milli skips
hafna og fyrirtækja. Um kvöldið
voru dansleikir í Hótel Akranesi
og Félagsheimilinu Rein. Sam-
sæti var Hallfreði Guðmundssyni
haldið um kvöldið og í hófinu
afhent skjal með svofelldri áletr
un: Sjómannadagsráð færir þér
hugheilar þakkir fyrir frábær
störf í þágu sjómannadagsins á
Akranesi allt frá því dagurinn
fyrst var hátíðlegur haldinn.
Heiðursskjalinu fylgdi gjöf, silf
urbúinn stafur, áletraður úr íb-
enviði.
Allur ágóði af sjómannadegin
um hér rennur til að byggja
dvalarheimili aldraðra sjómanna.
Konur höfðu kaffisölu á mörg-
um stöðum til að auka ágóðann.
Á laugardaginn var þreytt
stakkasund og fleiri sund ■ í
Bjarnarlaug. — Oddur.
Framreiðslustúlkurnar Þuríður Guðmundsdóttir
Bjarnadóttir. .
um veizlur, en þá þarf að panta
með viku fyrirvara.
Markús sýndi gestunum síðan
nýja ver'zlun, sem Hvoll hefur
opnað og er þar að fá allt sem
ferðafólki vanhagar um. Auð-
sætt er að mikinn vinnukraft
þarf til þjónustu þegar stórir
hópar koma. Hefur Hvollinn því
ráðið til sín 8 stúlkur til starfa
í sumar, auk þess sem hægt er
að fá konur úr þorpinu, þegar
flest verður.
í sumar munu verða haldnir
2 opinberir dansleikir á mánuði
og ein skemmtun, þar sem fólki
gefst kostur á að skemmta sér
án áfengis og verður fyrsta
skemmtunin af því tagi 12. júní
n.k.
Stefama
Einn Eslending-
ur á Listahá-
skólanum
Listaháskólinn í Kaupmanna-
höfn hefur fallizt á að taka við
einum íslendingi árlega til náms
í húsagerðarlist, enda fullnægi
hann kröfum um undirbúnings-
nám og standist með fullnægj-
andi árangri inntökupróf í skól-
ann, en þau hefjast venjulega í
byrjun ágústmánaðar.
Umsóknir um námsvist í skól-
anum sendist menntamálaráðu-
neytinu, stjómarráðshúsinu við
Lækjartorg, fyrir 20. júní n.k.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í
ráðuneytinu.
Fé lætur
lömbum
Látmm, 1. júní: —
' HÉR STENDUB yfir sauð-
I burður og er hann langt kom-
| inn. Fé er enn á gjöf, þar sem
i gróður er lítiil, en bændur
eru þó ennþá samæilega birg-
' ir af heyi. Mikið hefur borið
I á því hér að fé hafi látið
| lömbum. Á Látrum eru f jórir
, bændur og hefur þessa orðið
' vart hjá þeim öllum en þó
I hefur þetta komið harðast nið
) ur á einum þeirra, því hjá hon
l um hefur féð látið um helming
' lambanna. Þessa hefur áður
I orðið vart hér í nágrenninu
| en í ár herjar þetta aðeins að
I Látrum. Ekkl er vitað hvað
þessu veldur en sýnishom
I hafa verið send til Reykjavík
I ur og þar komast menn ekki
i að neinni niðurstöðu um or-
sakir þessa. Er þetta mikill
1 skaði fyrir bændurna hér sér
staklega, þar sem ekki er
I hægt að fá tryggt fyrir þessu
, nema með afarkostum.
— Þórður.
Fyrsti báturinn
kominn á síEd
Hnífsdal, 2. júní.
HÉR er fyrsti báturinn kominn
á síld en það er Guðrún Guðleifs
dóttir. f kvöld mun Mímir vænt-
anlega far út og Páll Pálsson í
lok þessarar viku.
Spretta er mjöig lítil ennþá en
þó er litur farinn að koma á
jörðina.
Á sjómannadaginn var haldinn
síðasti dansleikurinn í gamla
samkomuhúsinu en nú er í smíð
um nýtt samkomuhús og verður
hluti þess væntanlega tekinn í
notkun í haust. — Sigurður
Stjórn Lionsklúbbsins ásamt nokkrum konum úr Hraunprýði, sem veittu gjöfinni móttöku.
Frá vinstri: Hulda Sigurjónsdóttir, Sólveig Ey jólfsdóttir form., Svavar Jóhannesson, Vilhjálm-
ur Sveinsson, Soffía Sigurðardóttir Ögmundur Haukur Guðmundsson, Þorgeir Ibsen, Ester
Kláusdóttir og Rannveig Vigfúsdóttir.
Lionsfélagar færa Hraunprý&i
myndarfega gjöf
Á LOKADAGINN, 11. maí, höfðu
Hraunprýðiskonur í Hafnarfirði
merkja og kaffikvöld, svo sem
þær hafa gert sl. 17 ár. Eru
Hraunprýðiskonur ánægðar yfir
góðum degi, allt hefði gengið að
óskum, veðráttan verið þeim hlið
holl, merkin selzt mjög vel, og
húsfyllir af kaffigestum allan
daginn í báðum kaffisöluhúsun-
um.
Um kl. 5 þennan dag kom stjórn
Lionsklúbbs Hafnarfjarðar í
heimsókn og færðu Hraunprýðis-
konum að gjöf „dúkku“ eða lík-
an, sem notað er til kennslu við
lífgun úr dauðadái-
Líkaninu fylgja öll tilheyrandi
áhöld, og er öllu haganlega fyrir
komið í þar til gerðri tösku. Allt
er þetta af vönduðustu gerð og
ákaflega hentugt í allri meðferð.
Forseti Lionsklúbbs Hafnar-
fjarðar, Þorgeir Ibsen, afhenti
gjöfina með ræðu, þar sem hann
meðal annars flutti Hraunprýði
beztu heillaóskir með framtíðar-
starf deildarinnar.
Form. Hraunprýði, Sóveig Eyj-
ólfsdóttir, þakkaði Lionsmönn-
um fyrir hina myndarlegu og vel
hugsuðu gjöf, og bað þá flytja
klúbbsbræðrum sínum innileg-
ustu þakkir og kveðjur frá
Hraunprýði.
Að ósk Lionsklúbbs Hafnar-
fjarðar verður fyrsta námsskeið-
ið í meðferð þessa áhalds haldið
í Raftækjaverksmiðjunni Rafha,
núna næstu daga. Mun erindreki
Slysavarnafélags Islands verða
leiðbeinandi.
Þá mun Hraunprýði standa
fyrir námskeiðum í öllum skól-
um bæjarins á næsta skólaári. —
Einnig barst deildinni gjöf að
upphæð kr. 2000,00 frá skipstjóra
og skipshöfn á m.b. Ársæli Sig-
urðssyni.
Hraunprýðiskonur þakka þess-
ar rausnarlegu gjafir og allan
þann mikla hlýhug sem bæjarbú-
ar hafa sýnt deildinni fyrr og
síðar.