Morgunblaðið - 03.06.1965, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtúdagur 3. júni 1965
■
Keflvíkingar taka þátt í
keppni um Evrópubikarinn
Bíða þó enn um sinn með að
senda þátttökutilkynningu
EINS og málin horfa nú tekur
íslandsmeistaralið Keflvík-
inga þátt í keppninni um Ev-
rópubikarinn í knattspyrnu,
sem hefst 15. ágúst og lýkur á
næsta ári. Sem Islandsmeist-
arar 1964 hafa Keflvíkingar
rétt til þátttöku og þar sem
liðið hefur sýnt álíka styrk
nú í vor og það sýndi í fyrra,
hafa Keflvíkingar aflað sér
eyðublaða til að tilkynna þátt
töku — en þátttökutilkynn-
ingar þurfa að hafa borizt
Evrópusambandinu íyrir 30.
júní nk.
1 gegn 1
ÞESSAR myndir tók Sveinn
Þormóðsson í leik KR og
Keflavíkur í fyrrakrvöld í
Njarðvíkum, þar sem liðin
skildu jöfn 1—1. — Á stærri
myndinni sést þvaga við mark
Keflavíkur eftir hornspyrnu
— sem þó ekkert varð úr. Á
minni myndinni slær Kjartan
markvörður ÍBK knöttinn yf-
ir á hættulegu augnabliki.
Veður spillti EOP-mótinu
en skemmtileg var keppnin
HIÐ árlega E.Ó.P.-mót frjáls-
íþróttadeildar KR var haldið á
Melavellinum í fyrrakvöid. Veð-
ur spillti mjög árangri en eigi
að siður náðist athyglisverður
árangur í sumum greinum.
Óvæntustu úrslit urðu í 110
m. grindahlaupi þar sem Kjartan
Guðjónsson ÍR sigraði Valbjörn
Þorláksson i fyrsta sinn í keppni.
Náði Kjartan allgóðum tíma,
sem þó er ekki fyllilega að
marka vegna veðuraðstæðna.
Reztum árangri mótsins náði
Guðmundur Hermannsson í kúlu
varpi. Varpaði hann 16.28 m. í
sinni síðustu tilraun — og virð-
ist nú vera all öruggur með 16
metrana.
Athyglisvert var 1500 m. hlaup
ið sem hlaupið var við mjög
erfiðar aðstæður. Þar voru eigi
að síður 6 menn undir 4.13.0 og
gefur þetta hlaup, við iilar að-
stæður, vonir um mjög skemmti-
Fr jálsíþróttadeild
ÍR efnir til fundar
í KVÖLD kl. 20,30 efnir Frjáls-
íþróttadeild ÍR til fundar í Café
Höll (uppi).
Rætt verður um sumarstarfið,
þjálfaramál og Frjálsíþróttamál
ÍR í byrjun júlí. Að lokum verð
ur kaffidrykkja.
leg millivegalengdahlaup í sum-
ar.
Sérstaka athygli vakti 200 m.
hlaupið. Þ-ar sigraði Ólafur Guð-
mundsson KR eftir mjög harða
og jafna baráttu lengst af við
Þorkel Steinar Ellertsson Á. Þor-
kell er þ'jálfari þeirra Ármenn-
inga og áreiðanlega fótfráasti
þjálfari hérlendis nú.
Árangur mótsins í einstökum
greinum varð þessi:
110 m. grindahlaup:
Kjartan GuðjónssOn, ÍR 15,7
Valbjörn Þorláksson, KR 16,2
Sigurður Lárusson, Á 16,3
200 m. hlaup:
Ólafur Guðmundsson, KR, 23,5
Þorkell St. Ellertsson, Á, 23,8
Sigurður Geirdal, Á, 24,2
1500 m. hlaup:
Halldór Guðbjörnsson, KR, 4:05,6
Kristl. Guðbjörnsson, KR, 4:07,2
Agnar Leví, KR, 4:00,1
Halldór Jóhannesson, HSÞ, 4:10,7
Þórarinn Arnórssson, ÍR, 4:12,1
Marinó Eggertsson, UNÞ, 4:12,9
100 m. hlaup kvenna:
Linda Ríkharðsdóttir, ÍR, 15,1
María Hauksdóttir, ÍR, 16,3
100 m. hlaup drengja
Ragnar Guðmundsson, Á, 12i,l
Magnús Jónsson, Á, 12,3
1000 m. boðhlaup:
Sveit KR 2:12,1
Sveit Ármanns 2:16,6
Kúluvarp:
Guðm. Hermannsson, KR, 16,28
Kjartan Guðjónsson, ÍR, 13,05
Ármann J. Lárusson, UBK, 12,97
Sleggjukast:
Jón Magnússon, ÍR, 47,65
Jón Ö. Þormóðsson, ÍR, 47,61
Langstökk:
Páll Eiríksson, KR, 6,74
Einar Frímannsson, KR, 6,63
Ragnar Guðmundsson, Á, .6,58
Kjartan Guðjónsson, ÍR, 6,56
Mbl. átti stutt samtal við Haf
stein Guðmundsson formann
íþróttabandalags Keflavíkur um
málið. Hafsteinn sagði:
— Það er mikill áhugi fyrir
þátttöku í Evrópukeppninni. Við
höfum kynnt okkur reglugerð
keppninnar og enn er nokkur
stund til stefnu því þátttökufrest
ur er til 30. júní. Við höfum að-
allega verið að bíða eftir því að
sjá hvernig liðið reyndist í sín-
um fyrstu leikjum í ár. Eftir
þeirri reynslu sem af er, tel ég
víst að við göngum til Evrópu-
keppninnar. Við eigum leik í
næstu viku og við munum enn
bíða og sjá.
— Hins vegar tel ég, hélt Haf
steinn áfram, að Keflavíkurlið-
ið hafi ekki komið ver til leikja
nú í ár en í fyrra. Það þýðir að
við tökum þátt í Evrópukeppn-
inni.
— Ef til þátttökunnar kemur,
þá myndi leikur ykkar fara fram
í Reykjavík?
— Jú, að sjálfsögðu. Þegar um
slíka heimsókn og aðeins einn
leik er að ræða er hvergi að-
staða til móttöku erlends liðs
eða kappieikshalds í Evrópu-
keppni nema í Reykjavík.
— Hvert er álit þitt á væntan
legum mótherjum?
— Þegar dregið er, mun lönd
um að einhverju leyti skipt eftir
hnattlegu. Það þýðir að mögu-
legir eru allt að 10 mótherjar,
þ.e. Norðurlöndin, Bretlandseyj
ar, Holland, B.elgía eða Luxem-
borg. Mikill munur er á meist-
araliðum þessara landa, og mál-
ið allt á þeim rekspöl nú. að ekki
er ráðlegt að spá neinu.
-
Ali Oppheim á fullri ferð.
Frœkinn garpur á Hvíta-
sunnumótinu á Siglufir&i
EINS og fyrr hefur verið getið
koma norskir skíðamenn til
Siglufjarðar um hvítasunnuna
og munu þeir verða meðal kepp-
enda á Skarðsmótinu. Fyrst skal
nefna Alf Opheim frá Voss. Alt
er nú 45 ára og virðist vera lítið
lakari, en flestir vestumorskir
svigmenn í dag.
Alf Opheim keppti á Olympíu-
leikjunum 1948 og 1952 og varð
Noregsmeistari í Alpagreinum
árið 1950. Ennfremur vann hann
Alpagreinar á Holmenkollenmót-
inu árið 1953. Oft síðar hefur
hann verið nr. 2—3 í Alpagrein- 1 marz sL
um á Noregsmeistara- og Holm-
enkollenmótum.
í marz sl. þegar reykvískir
skiðamenn kepptu í Voss var
Alf Opheim meðal keppenda.
Ennfremur hefur hann verið
þjálfari skíðamanna í Voss sl.
2—3 ár.
Þrír keppendur úr drengja-
flokknum í Voss mæta ennfrem-
ur til leiks á Skarðsmótinu. Eru
það þeir Jarle Tveit, Brede Tveit
og Terje Gjeraldsveit, Brede og
Jarle unnu hvor sinn aldurs-
flokk á skíðamótinu í Voss í
Á Skarðsmótinu um hvítasunn
ima verður tvímælalaust margt
um manninn, og munu norsku
keppendurnir án efa setja sinn
svip á Skarðmótið í ár.
Alf Oppheim er meðal fræg-
ustu skíðamanna er hingað hafa
komið. Eru þau ótöM verðlaun-
in sem henn hefur unnið á stór-
mótum í Noregi og víðar fyrr
á árum og er einstakt hiversu vel
hann ber aldur sinn og ætla má
að það verði ísl. görpum ekki
auðvelt hlutverk að sigra hann
í góðri brekku.