Morgunblaðið - 05.06.1965, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Laugarctagur 5. júní 1965
Skrifsfofur vorar
verða lokaðar á laugardögum
sumarmánuðina.
*
Samábyrgð Islands ,
á fiskiskipum,
Skólavörðustíg 16.
Skrifstofuhúsnæði
Ný 200 ferm. hæð til leigu í Skipholti 35.
Leigist í einu lagi.
; Reykjufell
Skipholti 35 — Sími 19480.
vel snyrtar konur
og vandlátar velja
valholl Laug avegi 25
Hótel Hvanneyri
Siglufirði hefur opnað. — Tekur á móti
gestum til lengri og skemmri dvalar.
Atvinna
Stúlka óskast í strauingar.
i
Fataverksmiðjan
Sportver
Skúlagötu 51. — Sími 19470.
VANDIÐ VALID - VELJID VOLVO
1965 HEFUR V0LV0 SIGRAD í
GUNNAR ASGEIRSSON H. F.
Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200.
Söluumboð á Akureyri:
Magnús Jónsson
Bílaverkstæðið Þórshamar.
(voijvd)
v 1»
Sænsku aksturskeppninni
Rússnesku vetraraksturskeppninni
Finnsku snjóaksturskeppninni
S.A.M. 400 aksturskeppninni, S-Afríku
SAFARI-keppninni, Suður-Afríku.
OG NÚ í 13. grísku-Acropolis-aksturs-
keppninni 20.—23. maí, erfiðustu keppni
Evrópu, hófu 85 bifreiðir keppni, en aðeins
15 luku henni, og sigurvegari varð Carl-
Magnus Skogh, en hann ók
VOLVO AMAZON
sem hafði verið ekið tugi þúsunda
kílómetra.
f kuldum Rússlands jafnt sem í hitum Afríku, hvarvetna þar sem mest reynir á styrk, afl,
þol, aksturseiginleika og öryggi fer VOLVO með öruggan sigur af hólmi. Hvað hefur þetta
að segja fyrir YÐUR, sem EKKI akið kappakstur á mjóum og krókóttum vegum? M. a. að
VOLVO er smíðaður fyrir alla veðráttu, alla vegi, og þolir langvarandi, stöðugan erfiðis-
akstur við hin verstu skilyrði. Þess vegna sigrar VOLVO.
Komið, sjáið og reynið VOLVO.
Kynnið yður VOLVO verð og VOLVO greiðsluskilmála.
Bræðurnir Joginder og Jaswant Singh
sigruðu í SAFARI-keppninni, þeirri erfið-
ustu, sem um getur, á GÖMLUM
VOLVO P-544
Cæsin ágeng
á ökriinum
BÆNDUR í Hornafirði sáðu
korni í vor aS venju og var því
lokið um miðjan mánuðinn. í
fyrra var sáð í 40 'hektara lands,
en mun nú hafa verfð aðeins
meira. Lætur nærri að sáð hafi
verið í tæp 50 hektara. Korji-
a^r^rí |ru nú ‘þfegar ornir grænir.
Gæsin hefur undanfarin ár
herjað á akrana að einhverju
Íeyti og er hún venju fremur
ágeng nú. — Fréttaritari.
— Mirmingarorð
Framh. af bls. 12
la.gar og kunningjar hinna efni-
legu og vellátnu barna þeirra.
Húsmóðirin sinnti önn dagsins
og erfiði með það efst í huga að
búa manni sínum og börnum
gott, hlýlegt og aðlaðandi heimilú
og hugsa um þarfir þeirra í öllu.
Ekki gleymdi hún heldur að búa
þeim þau skilyrði að þau gætu
stundað nám og annan imdirbún
ing undir lífið innan veggja
heimilisins. Studdi maður henn-
ar hana í þeim efnum sem öðru,
enda var samheldni þeirra sér-
stök í svo mörgu falli. Farin að
heilsu og kraftar þrotnir síðustu
árin var henni samt svo rótgró-
in löngunin til að veita og gera
öðrum gott að strax og gestur
var kominn var það hennar
fyrsta að bjóða góðgerðir, enda
var óskum hennar vel sinnt af
hennar frábærilegu fórnfúsu
dóttur og manni hennar, sem
hún var svo gæfusömu að fá að
búa hjá ásamt eiginmanni sín-
um eftir að hún sjálf gat ekld
sinnt heimili.
Öll börn þeirra hjóna sýndu
þeim einskæra ástúð og um-
hyggju, sem mér er vel kunn-
ugt að var þeim báðum mikill
gleðigjafi til hinztu stundar.
Umhugsun húsbóndans um vel-
ferð heimilisins varð öllum ljóa
eftir að var komið inn fyrir
veggi þess. Umhyg.gja og ástúð
við börnin var svo einlæg og á-
nægjuleg að það verður gestum
minnisstætt. Ekki munum við
kunnugir gleyma þeirri fórn sem
hann sýndi í veikindum og við
dauða Þuríðar dóttur sinnar, þeg
ar hann sat dögum og vikum
saman við dánarbeð hennar brot
inn niður af Þjáningum henn-c
ar. En þá eins og I öðru sýndl
hann sama hetjuskapinn, að bug
ast ekki en halda áfram að lifa
lífinu til velfamaðar sím*
skylduliði.
Jóhann mágur minn var heil-
steyptur maður og höfðingi 1
lund og framkomu allri — og
sýndi það sannarlega í verki
allt sitt líf og fram til hinztu
stundar. Ótalin er sú hjálp, sen*
hann veitti, og þau hjónin, ein-
staklingum og hjálpar- og góð-
gerðastofnunum. Það var gert I
kyrrþey og varð ekki hljóðbært
Við nánustu skyldmenni konu
hans fórum ekki varhluta. af
gjafmildi hans og góðvilja í okk-
ar garð. Ég efast um að nokk-
ur maður hafi eins af heilum
hug hugsað gagnvart systur
minni sem hann: „Þitt fólk er
mitt fólk“ — og breytt eftir
því. — Allt hans var hennar og
hennar skylduliði sjólfsagt að
láta í té af rausn og með gleði.
Ég get ekki endað þessar fáu
línur án þess að minnast hva
hann var opinn fyrir allri feg-
urð, hvað hann unni allri list 1
hvaða formi sem hún birtist,
hvort það var tónlist, myndlist,
skáldskapur eða annað. Fegurð
náttúrunnar, litir hennar og lín-
ur heillaði hann svo að hann var
gagntekinn af ánægju og hrifn-
ingu af umgengni við hana. —.
Með honum á ferðalögum á ég
ógleymanlegar endurminningar,
því náttúrunnar naut hann í svo
ríkum mæli.
Af öllum samvistum með hon-
um er hann mér ógleymanlegur
maður og mágur.
Ég þakka þeim hjónum báðum
allt sem þau voru mér og min-
um.
Megi svo vonir þeirra rætast
um tilveruna í öðrum heimi.
Oddur Jónssoa.