Morgunblaðið - 09.06.1965, Page 3

Morgunblaðið - 09.06.1965, Page 3
Miðviltudagur 9. j*mf 1965 MORGUNBLAÐID 3 SYRTLINGUR, sníkjugosið frá Surti, heldur stöðugt áfram og herðir sig heldur. Um hvítasunnuhelgina var bjart veður og fagurt, svo það sást langt að. Á hvítasunnu- dag gátu Vestmannaeyingar séð alla leið að heiman frá sér, þegar lát varð á gosinu, að eyja var búin að skjóta upp kollinum og mynda svo lítinn kúf. En á annan í hvíta sunnu var sá kúfur horfinn ofan í gíginn, en eftir var kraginn í kring, enda gjallið og askan enn sem komið er ákaflesa laust efni. Hefur gosið hert sig og rifið sig upp gegnum eyjuna. Töldu sumir Vestmannaeyingar að þeir hefðu fundið jarðskjálfta- kipp seint á hvítasunnukvöld og gæti það staðið í sambandi STAKSTEIHAR I fjörunni á Surtsey. Horft á gosið í SyrtlingL Ljósm. Sigurgeir. Syrtlingur herðir sig við sprengingu I gignum, en jarðskjálftamælirinn í Reykja vík mældi engan kipp. Sið- degis í gær hafði svo aftur hlaðizt upp skeifumynduð eyja opin til suðurs, 10 m. áhæð. Á annan hvítasunnudag var ákaflega kyrrt veður og bjart og stóðu gufubólstrarnir af gosinu beint upp í ioftið og breiddu sig þar út, eins og risastórt hvítt kálhöfuð á himninum. Þetta sást langt að. Ljósmyndari blaðsins í Vestmannaeyjum fór út að gosinu með lóðsbátnum og tók myndir. Sænskir sjón- varpsmenn voru þar að taka kvikmyndir, menn frá björg- unarsveitinni í Eyjum að setja upp bjarghringi og stjaka, til notkunar ef einhver félli í Gosið í Syrtlingi var kröft- ugt og í eitt skipti sást hvar svartur öskustrókurinn stóð samfelldur í nokkrar mínútur nokkur hundruð metra upp í loftið. Annars komu svartar öskutrjónur upp, að því er Þessa mynd tók Adolf Hansen þegar Syrtlingur var að byrja að gjósa. '■■■■■' ■ ■ gjár eða sjóinn, og arkitekt og formaður Surtseyjarfé- lagsins að ganga frá vali á stað undir húsið, sem er 1 smíðum í Eyjum og verður sett upp innan skamms í eyj- unni, enda eiga að vera þar verðir í sumar. virtist úr tveimur gígum, en hurfu svo í hinn mikla Jivita gufumökk. Strax og hverri hrinu linnti, mátti sjá hvernig sjórinn sogaðist ofan í gíginn og fossaði að úr öll- ■ um áttum — alveg eins og þegar Surtsey var að fæðast. USSR flaug sendir nýja fil manans — talib, að nýju forskoti sé náð, takizt tilraunin — fyrri tilraun mistókst Askan streymlr upp á nýju gosstöðvunum. tekin í Surtsey. Vestmann aeyjar í baksýn. Myndin Mcnskva, 8. júní — AP-NTB í dag var skotið á loft í Sovétríkjunum nýrri eld- flaug, „Luna 6“, sem ætlað mun að lenda á mánanum. Takist tilraunin, er talið, að Sovétríkin hafi enn á ný náð forskoti á sviði geimsiglinga. Tilkynningin um geimskot- ið var birt skömmu eftir, að forseti Sovétríkjanna, Anast- as Mikoyan, hafði fært Banda ríkjamönnum hamingjuóskir í tilefni af geimferð þeirra McDivitts og White. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum, að ætlunin sé að láta „Lima 6“ lenda á mánanum, og senda þaðan myndir til jarðar. Staðfesting hefur þó ekiki feng- izt á þessu. Minnt er hins vegar á, að sá hafi verið tilgangur til- rairnar, sem gerð var fyrir mán- uði, en mistókst. Þá var tilkynnt, að reynt yrði á nýjan leik, innan skamms. Ekki hefur verið sagt frá því, hvaðan „Luna 6“ var skotið á loft. Hins vegar segir fré'ttastof- an TAS-S, að hér sé um að ræða lið í áætlun Sovétríkjanna um könnun himingeimsins. „Luna 6“ er búin sjálfvdrkum vísindatækjum. Er flaugin hafði náð um 1000 km hæð, skömmu eftir hádegi í dag (ísL tími), var frá því skýrt, að hún væri því sem næst á réttri braut, og öll tæki í bezta lagi. Þá hafði þeg- ar verið hafizt handa um að vinna úr upplýsingum, sem bor- izt höfðu. Margþrepa eldfiaug var notuð við geimskotið. Tíminn og skattamálin t ritstjórnargrein Tímans í gær er rætt um skattamálin og full- yrt, að ofsköttun á öllum sviðum í tíð Viðreisnarstjó'marinnar sé höfuðorsök verðhólgunnar. Þar segir m. a.: „Halldór E Sigurðsson rakti það í eldhúsdagsræðu sinni, j hvernig ofsköttunarstefnan hefur leitt til dýrtíðar, sem reynt hef- ur verið að mæta með auknum niðurgreiðslum. Þannig leiðir of- sköttunin til niðurgreiðslna, nið- urgreiðslurnar svo til nýrra skattaálaga, og þannig koll af kolli. Til niðurborgana var varið 115 millj. kr. árið 1958, en nú er varið til þeirra á fjárlögum 543 millj. kr. Hækkunin er hvorki meira né minna en 330%. Hér er þó ekki öll sagan sögð, því að fjölskyldubætumar má einnig telja til niðurgreiðslu á dýrtíð- inni, enda reiknaðar til frádrátt- ar á framfærsluvísitölunni. Dýr- tiðin hefur átt meginþátt í því að hækka útflutningsuppbætur iandbúnaðarins o. s. frv. Ofsköttunarstefna ríkisstjórnar innar hefur þannig leitt til stór- felldrar dýrtíðar og víxlhækk- ana, og ríkisstjórnin virðist eiig- in ráð sjá önnur en að halda áfram á þessari braut. Hún er orðin þreytt stjórn og úrræða- laus og hefur ekki áhuga á öðra en hanga við völd, hvernig sem allt veltist. Slík stjórn getur ekki leitt til annars en glundroða og upplausnar“. Gamall Tímasiður Við lestur þessarar ófögra lýs- ingar hljóta menn að minnast þess, að sárafáir alþingismenn hafa borið fram fleiri tillögur en einmitt Halldór E. Sigurðsson, þar sem krafizt er stóraukinna útgjalda ríkissjóðs á flestum sviðum, án þess þó að þess sé að nokkru getið, hvemig f jár eigi að afla til þeirra. Og að gömlum Timasið, þá er sá háttur á hafður um alla talnameðferð að taka ekki tillit til breytts verðlags, en þess konar samanburður er auð- vitað með öllu óraunhæfur. — Tímaliðinu fer illa að tala um ofsköttun, því að aldrei hafa skattaálögur verið óréttlátari og miskunnarlausari en einmitt þeg- ar núvenandi formaður Fram- sóknarflokksins, Eysteinn Jóns- son, fór með fjármál ríkisins. Sundraður henti- stefnuflokkur Einkar háfleyga lýsingn á Framsóknarftokknum gat að líta I Degí á Akureyri fyrir skömmu. Þar segir m.a.: „Framsóknarfl. er sprott- inn úr íslenzkum jarðvegi og er meginstefna hans byggð á því að setja vinnu og þekkingu i öndverðu en gera fjármagmð að þjóni. Samvinnustefn,an og hug- sjónir ungmennafélaganna er kjarni hennar“. Enda þótt samvinniuhreyfingin hafi víða um heim náð góðum árangri varðandi vörudreifingu í strjálbýli, þá verður ekki með góðu móti séð á hvem hátt er unnt að byggjia á henni þjóð- málastefnu heils stjórnmála- flokks. Þetta hefur hvergi sann- ast betur en einmitt á Framsókn- arflokkmm, en hann hefur ávallt rekið einstæða hentistefnu í flestum málum og komið fram af meira ábyrgðarleysi en nokk- ur stjórnmálaflokkur annar á ís- landi. Foringjar þessa flokks- ræksnis jafnt sem óbreyttir flokksmenn eru um flest svo sundurþykkir, að flokkurinn get- ur ekki einu sinini samið ein- földustu stefnusrá í allra helztu þjóðmálum, án þess að hún sé svo loðin, að hana megi skilja á a.m.k. þrjá vegu í öllum megin- , atriðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.