Morgunblaðið - 09.06.1965, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 9. júní 1965
MORGUNBLAÐIÐ
23
Síldarvertíðin
I ^ ' !J¥f>í5ííTv,"Wv<'?Sw"" Wj>M S % yA*-.. > , \
‘^SÍSívSv
SÍLDAVERTÍÐIN er nú hafin af
fullum krafti fyrir Austurlandi.
Á flestum stöðum er enn safnað
BÍId í þrær, en síldarverksmiðj-
urnar eru ýmist rétt byrjaðar
bræðslu eða um það bil að
byrja. ísinn í vor tafði víða að-
flutninga á varahlutum, svo
framkvæmdum seinkaði. Einnig
biðu menn eftir að ráða fólk,
þar til samningar hefðu náðzt
við verkalýðsfélögin, en nú mun
það fara að streyma í síldina.
Á Norðurlandshöfnum og í Bol-
ungarvík húa síldarstaðirnir sig
undir að fá flutta til sín síld, og
er verið að útbúa flutninga-
skipin til að sækja hana. Nú er
Bem sagt síldarvertíðin að kom-
ast í fullan gang og ekkert að
verða að vanbúnaði til að taka
á móti silfri hafsins. Mbl. hafði
tal af fréttariturum sínum á flest
um síldarstöðunum í gær og
fékk eftirfarandi fregnir af
þessu:
1 Sildin vegin á Breiðdalsvík
BREIÐDALSVÍK, 8. júní. — Síld
ariðjan hér er byrjuð að bræða.
Hingað hafa þegar komið þessir
bátar: Sigurður Jónsson með
74.690 kg, Helga Guðmundsdótt-
ir með 114,160 kg, Gullver
174,900 kg og Krossanes með
með 129,570 kg og eitt skip er
væntanlegt í nótt með 1000 mál.
Hér í Breiðdalsvík er síldin
vegin en ekki mæld, eins og nær
alls staðar annars staðar á Aust-
fjörðum. — Páll.
N
Engin hræðsla enn
á Stöðvarfirði
STÖÐV ARFIRÐI, 8. júní.
Nokkrum erfiðleikum hefur
það valdið í sambandi við lönd-
un sildarinnar, að ekki hefur
verið hægt að afgreiða bátana
við nýju hafnarbryggjuna, hún
er nú lokuð fyrir allri umferð,
því verið er að steypa plötu yfir
hana. Um miðjan þennan mánuð
mun verða hægt að taka hluta
af henni í notkun, en þangað til
verða skip og bátar og notast
við gömlu hafnarbryggjuna, sem
bæði er lítil og léleg og má því
búast við árekstrum við hana,
vegna hinnar tíðu skipakomu
hingað.
Hér sem annars staðar á Aust-
urlandi er mikill undirbúningur
hjá söltunarstöðvunum, en þær
verða starfræktar fjórar hér í
sumar. Er sá undirbúningur m.a.
1150, Jón á Stapa 200, Eldey 600,
Árni Magnússon 600, Skarðsvik
800, Halldór Jónsson 750, Ögri
450 og Elliði 450. — Gunnar W.
Allt orðið fullt á Norðfirði
NESKAUPSTAÐ, 8. júní. —
Komin eru 26 þús. mál síldar til
Neskaupstaðar og allar þrær
fullar, svo ekki er hægt að taka
á móti meiru. Reiknað er með
að verksmiðjan geti farið í gang
annað kvöld, en hún bræðir
3000—3500 mál á sólarhring.
Unnið hefur verið af fullum
krafti við að koma síldarbræðsl-
unni í gang, en þetta var svo
mikið verk, sem vinna þurfti.
Mikið hefur verið flutt að til
hennar með flugvélum, stundum
hefur Norðfjarðarflugvéiin kom
Síldarflutningaskipið POLAN A (sænskt, sem Krossanesverk-
smiðjan hefur tekið á leigu, er að búa sig út, verið að setja
í það dælu. Ljósm. Sv. Þ.
uð komast í fullan gang
fólginn í stækkun plana, uppsetn
ingu nýrra flokkunarvéla og
byggingu verbúða svo nokkuð sé
nefnt. Mikið skortir á að hér sé
nægilegt vinnuafl til starfa. Á
söltunarstöðvunum svo og í síld-
arverksmiðjunni því að gera má
ráð fyrir að margt aðkomufólk
starfi hér í sumar.
Veðrið hefur verið mjög hlýtt
og gott undanfarna daga og gróð
urinn þýtur upp. Allir vegir eru
sem óðast að verða vel færir öll-
um bílum. Arnþór.
(
1 Við kranabryggjuna á Vopnafirði. Menn frá
nna að tanksmíði fyrir sildar- vertiðina 15
Stálsmiðjunni vi
m. frá ísröndin
Tveir bátar verða gerðir út á
síld héðan í sumar, Heimir er
farinn og hefur lagt upp annars
staðar til þessa, og Kambaröst
fer á morgun.
Hér er engin síldarbræðsla,
verður ekki komin upp fyrr en
á næsta ári. En saltað hefur
verið 3 undanfarin sumur og fer
6öltunarplanið að verða tilbúið
nú. — Stefán.
Þrær fullar og bræðsla hafin
REYÐARÍIRÐI, 7. júní. — Þrær
cíldarverksmiðjunnar á Reyðar-
firði eru nú alveg fullar, en þær
taka um 13 þús. mál. Bræðsla
hófst á miðnætti sl. og virðist
allt hafa reynzt í bezta lagi, en
miklar endurbætur hafa verið
gerðar á verksmiðjunni í vetur.
Afköst hennar eru 2500 mál á
eólarhring. Auk endurbóta á
sjálfri verksmiðjunni er verið að
byggja hér tveggja hæða stein-
hús til íveru og mötuneytis fyrir
starfsfólk hennar auk fleiri nota.
Er þetta brýn nauðsyn, þar sem
að venju vinnur í verksmiðjunni
margt aðkomumanna og reynzt
hefur mjög erfitt að fá hér ínni
fyrir það:
Auk þessa er verið að stækka
mjölhús verksmiðjunnar, ný
löndunartæki verða sett upp, og
byrjað er að undirbúa og steypa
móltökuþró fyrir haust og vetr-
arsild.
30 þús. mál komin
til Eskifjarðar
ESKIFIRÐI, 8. júní. — Bræðslan
á Eskifirði hefur tekið á móti
30 þús. málum síldar. Krossa-
nesið er auk þess á leiðinni með
1300 mál og þegar það er komið,
eru þrær orðnar fullar hér, en
einn tankur losnar þó í fyrra-
málið. Brætt er af fullum krafti.
Frá því á laugardag hefur bor
izt þessi síld: Halkíon 700 mál,
Ingiber Ólafsson II 300, Eldborg
500, Reykjaborg 800, Hafrún
ið tvisvar, þrisvar á sólarhring
með varahluti.
Hér verða 6 síldarplön í sumar
og eru þau að verða til.
— Ásgeir.
Byrjað að bræða í dag
BAKKAGERÐI í BORGAR-
FIRÐI, 8. júní. — Búið er að
fylla alla geyma hjá síldar-
bræðslunni. Þeir taka að visu
el?ki nema 5000 mál, en voru
fullir á laugardag og ekki hægt
að taka við síld siðan. Bræðsla
á að byrja á morgun.
Hér verða tvær söltunarstöðv-
■ar starfræktar í sumar, en að
sjálfsögðu er ekki vitað hvenær
byrjað verður að salta. Verið er
að koma upp bílavog, til að geta
vegið síldina, en hún hefur ekki
verið vigtuð hér fyrr.
— Ingvar.
Ýmist síldarskip eða ísjakar
VOPNAFIRÐI, 8. jú.ni. Eins og
sjá má af meðfylgjandi mynd-
um hefur ísinn verið að glettast
við okkur Vopnfirðinga að und-
anförnu. Hefur fylgt honum
kuldi og þoka, stillur miklar.
Hefur veðri oftast verið þannig
háttað, að þoka hefur legið yfir
ísnum, en sólskin í sveitinni inn-
an við fjarðarbotninn, enda hef-
ur gróðri íarið meira fram inn
til dala en út við sjóinn.
Annan þessa mánaðar var
fyrstu síldinni landað hér. Komu
þá 4 skip með 4706 mál. Þriðja
og fjórða rak svo ísinn inn aftur
og fyllti þá höfnina. Fimmta
iónaði hann frá aftur. Lönduðu
þá 7 bátar 7632 málum og þann
sjötta, á hvítasunnudag, vár ís-
inn svo allur horfinn. Lönduðu
þá 8 skip 4923 málum. Þann sjö-
unda lönduðu fjögur skip 2462
málum. Hefur þá alls verið land
að hér á þessu sumri 19735 mál-
um. Fyrstu síldinni í fyrrasumar
var landað hér 9. maí.
í gærkvöldi kom flutningabíll
með þau stykki, sem vantað hef-
ur í verksmiðjuna. Verða vænt-
anlega ekki margir dagar þar til
hún getur hafið vinnslu.
Síldin er mögur ennþá. Mælt
af
síldarstöð-
unum
var úr fyrstu skipunum, þann
annan. Þá reyndist hún 9,6% of
feit, en hún er öll stór, sést ekki
í henni smásild. Þegar hún verð-
ur orðin feit, þá verður það
falleg söltunarsíld. — Sigurjón.
Nú fer fólkið að streyma að
RAUFARHÖFN, 8. júní. — Kl.
10 í morgun var búið að landa
í þrærnar hjá okkur 47.200 mál-
um af síld og síðan hafa mörg
skip komið inn. Þrærnar taka
60—70 þús mál, og er því búið
að nota um % hluta rýmisins og
síldarverksmiðjan ekki farin að
bræða. Verður líklega vika þang
að til það verður hægt. ísinn
tafði mjög undirbúningsfram-
kvæmdir. Vélar komust ekki
hingað í tæka tíð, en verið er
að skipta um vélar í verksmiðj-
unni og einnig gufuketil.
Veiðin I dag er góð, en mis-
jöfn. Veitt er um 110 mílur út af
Langanesi og því einna stytzt
hingað inn Lýsistökuskip sem
var á leið til Raufarhafnar,
sigldi gegnum 30—40 skipa rúss-
neskan síldarflota um 60 mílur
út af Dalatanga, að því er skip-
stjórinn sagði mér. Voru þau
öll á fullri ferð norðaustur,
Sigurður Bjarnason EA 4 50 kemur með fyrstu síldina tí l Vopnaf jarðar-
■
sjálfsagt á síldarmiðin okkar.
Verið er að undirbúa söltun-
arplönin, aðallega að setja flókk
unarvélar þar sem þær ekki
voru áður. Beðið var eftir því
hvort samningar tækjust við
verkalýðsféiögin áður en farið
var að ráða fólk, en nú fer það
að streyma að eftir að samn-
ingar hafa náðzt. — Einar.
Síldarflutningar til Krossaness
AKUREYRI, 8. júní. — Til
Krossaness hafa komið með síld
Snæfell með 174 mál, Jörundur
III með 2191 mál og er búið að
bræða þetta. Hrönn ÍS hefur
komið með 202 að auki. Nú er
verið að landa ú.r Oddgeiri um
1300 málum og e.t.v. von á Þor-
steini RE í kvöld.
Síldarflutningaskipið Polana
frá Svíþjóð liggur í Krossanesi
þar sem verið er að setja í það
síldarbræðslu, en það er leigu-
skip sem Krossanesverksmiðjan
hefur fengið til að sækja síld
á miðin í sumar.
4 síldarbræðslur
og 20 söltunarstöðvar bíða
SIGLUFIRÐI, 8. júní. — ÖIIuik
undirbúningi undir móttöku síld
ar er hér að mestu lokið. Hér
bíða 4 síldarbræðslur, tvö frysti-
hús, og nálægt 20 söltunarstöðv-
ar eftir því að fá síld til vinnslu.
Er meiri undirbúningur nú en
nokkru sinni fyrr undir síldar-
flutninga, bæði á vegum Síldar-
verksmiðja ríkisins og einnig
hefur síldarverksmiðjan Rauðka
nú í fyrsta skipti tekið á leigu
skip til siidarflutninga.
Þá gera Siglfirðingar sér
einnig vonir um að erlendum
síldveiðiskipum verði leyft að
landa hér síld til vinnslu, þó
þannig að íslenzk síldveiðiskip
hafi alltaf forgangsrétt til lönd-
unar. — Stefán.
Flytja síldina til Bolungarvíkur
BOLUNGARVÍK, 8. júní. —
Átta bátar verða gerðir út frá
Bolungarvík í sumar. Síldarverk
smiðja Einars Guðfinnssonar er
tilbúin til að taka á móti síld
í bræðslu. Er Dagstjarnan, áður
Þyrill, væntanleg heim frá
Þýzkalandi, en þar hefur verið
í viðgerð undanfarið, • verið sett
í hana önnur dæla og fleiri breyt
ingar gerðar. Á Dagstjarnan að
flytja síld ?.f miðunum hingað og
leggur hún af stað þann 12. júní,
fer beint á miðin fyrir austaa
og getur sennilega farið að land*
hér seinni hluta mánaðarins.
Fyrirhugað er að tveir bátar,
Heiðrún og Dagrún, leiti fyrst
síldar í Djúpinu, en þar var
ágæt veiði siðari hluta vetrar.
Þróarrými hjá síldarverksmiðj-
unni er 30 þús. tunnur, og er
allt í undirbúningi.
Handfæraveiðar hafa verið að
glæðast undanfarið. — Hallur.