Morgunblaðið - 10.06.1965, Side 2
2
MORC U N B LADIÐ
Fimmtudagur 10. júní 1965
Þrír bílar í hörku-
órekstri við Hainarij.
MJÖG harður árekstur varð
Ilaust eftir kl. 1 í gær á mótum
Uafnarfjarðarvegar og Hjalla-
Ihrauns. Þar lentu saman tvær
vörubifreiðir og strzetisvagn. —
Surtseyjarkvik-
mynd Osvalds út
á land
HINAR nýju litkvikmyndir Ós-
valds Knudsen, sem sýndar voru
við mikla aðsókn í Reykjavík í
vor, verða sýndar úti á landi á
næstunni.
Myndirnar eru þrjár: ,,Surtur
íer sunnan“, „Sveitin milli
sanda“, sem fjallar um hina
fögru Öræfasveit og „Svipmynd-
ir“ úr lífi ýmissa þjóðkunnra ís-
lendinga.
Surtseyjarkvikmyndin hefur
þegar verið kynnt allvíða er-
lendis við góðar undirtektir og
hefur nýlega verið gengið frá
samningi um sölu myndarinnar
til Bandaríkjanna.
; Lag Magnúsar Blöndals Jó-
hannssonar í Öræfakvikmynd-
inni, sem Ellý Vilhjálms söng,
vakti mikla athygli, og er komið
út á plötu á vegum Svavars
Gests og nefnist: „Sveitin milli
sanda“.
Sýningar myndanna úti á landi
hefjast á Eyrarbakka á fimmtu-
dagskvöld.
Vörubifreiðarnar skemmdust báð
ar mjög mikið, en stórslys urðu
ekki á fólki.
Kl. 1.02 eftir hádegi í gær var
tilkynnt til lögreglunnar í Hafn-
arfirði, að árekstur hefði orðið
á móum Hafnarfjarðarvegur og
Hjallahrauns, en það er rétt
norðan við fisvinnslustöð Frosts
hf. Lögreglumenn fóru þegar á
vettvang. Slys þetta varð með
þeim hætti, að strætisvagn frá
Landleiðum hf var á leið til
Reykjavikur. Þá stanzaði fólks-
bifreið fyrir framan strætisvagn-
inn óg strætisvagninn þá einnig.
Næst á eftir strætisvagninum var
ekið frambyggðri Austin-vöru-
bifreið. Þegar stræitvagninn
stanzaði, hugðist ökumaður vöru-
bfreiðarinnar aka fram með hon-
um og áfram, þá'tók Skumaður-
inn eftir því, að á móti kom
önnur vörubifreið, og reyndi
hann því að hamla ens og rými
frekast leyfði. Það varð þó um
síðan, og skullu vörubifreiðarnar
fyrst saman og Austin-bifreiðin
síðan á strætisvagninn. Við þetta
gjöreyðlagðist stýrishús Austin-
vörubifreiðarinnar og hin vöru-
bifreiðin og farmur hennar
skemmdust einnig mjög mikið.
Strætisvagninn varð fyrir minni
skemmdum.
Við áreksturinn hlaut ökumað-
ur Austin-bifreiðarinnar mikið
högg í andlitið. Var hann fluttur
í Slysavarðstofuna og síðar um
daginn heim til sín. Önnur
meiðsli á fólki er ekki kunnugt
um.
Siónvarpshús líklega keypt
í þessari viku
Samfal við Vilhjálm Þ.
Gíslason, úlvarpsstjora
VILHJÁLMUR Þ. Gíslason,
útvarpsstjóri, er nýlega kom-
inn heim af útvarpsstjóra-
fundi Norðurlanda, sem hald-
inn var í Stokkhólmi, en þar
var einnig rætt um sjónvarps-
mál og aðstoð Norðurland-
anna við væntanlegt sjónvarp
hér. Hér fer á eftir samtal,
sem blaðið átti við útvarps-
stjóra um þessi mál.
— Hvað er að frétta af ís-
lenzka sjónvarpinu og hvernig
er ástatt um þau mál nú?
— í fyrsta lagi eru meiri
háttar mál, sem hvert land
varðar og sérstök samvinna
þeirra, ávallt rædd á þessum
fundum. En hér var einnig
það sérstaka tilefni, að tekizt
hefur náin samvinna — og
okkur mjög hagstæð — milli
Ríkisútvarpsins og hinna nor-
rænu stöðvanna um síðasta
undirbúning og framkvæmd-
ir sjónvarpsins hér. Á grund-
velli álits sjónvarpsnefndar-
innar — sem vann langt og
ítarlegt starf — hafa norræn-
ir sérfræðingar tekið að sér,
í samvinnu við okkar verk-
fræðinga, að sannprófa allan
undirbúninginn í einstökum
atriðum og stjórna fram-
kvæmdunum. Þeir hafa mjög
víðtæka reynslu — þetta eru
ýmsir sömu mennirnir, sem á
sínum tíma stóðu fyrir undir-
búningi og fyrstu starfrækslu
sjónvarpsstöðvanna á Norður
löndum eða hafa starfað lengi
við þær. Það er einnig hvar-
vetna viðurkennt, að nofræn-
ir verkfræðingar eru einnig á
þessu sviði mjög framarlega
á alþjóðavísu. Þeir hafa líka
lokið lofsorði á verkfræðilega
undirbúningsvinnu íslenzku
verkfræðinganna, sem unnu
með sjónvarpsnefndinni og síð
ar með þeim, en það eru verk
fræðingar frá Landssímanum,
sem eru í þjónustu útvarps-
ins eftir sérstökum samningi.
— í hverju er þetta nor-
ræna sjónvarpssamstarf fólg-
ið hér?
— Fjórir verkfræðingar,
einn frá hverju landi, hafa
þaulskoðað öll málin. Hjá
norska sjónvarpinu aðallega
er farið yfir öll tilboð um
vélakost og gerðar tillögur
um kaupin.
— Hefur verið leitað tilboða
í allan útbúnað?
— Já, útboð eru löngu send
um allar jarðir og tilboðin
voru opnuð í vor og er síðan
unnið að samanburði þeirra
og úrvali. Afgreiðslufrestur á
mörgum þeirra er mjög lang-
ur, og líklegt að tekið verði
tilboðum úr ýmsum áttum,
eftir því sem hægt er og æski-
legt að samræma þau. Þá er
það, sem samstarfið við hin-
ar norrænu sjónvarpsstöðvarn
ar kemur aftur inn í málið.
Svo heppilega hefur sem sé
samizt, til þess að flýta fyrir
framkvæmdum og æfingu
starfsfólks, að norrænu sjón-
varpsstöðvarnar eða helzt Sví-
ar og Danir, lána okkun end-
urgjaldslaust allan vélaköst,
bæði sendi og stúdíótæki til
undirbúningsins og tilrauna-
sendinganna, þangað til kom-
in eru hingað og endanlega
uppsett þau nýju tæki, sem
er ætlunin að kaupa, en verð-
ur að bíða eftir því sem við
óskúm, meðan verið er að und
irbúa stöðvarnar og byrja
reksturinn. Við greiðum ferða
kostnað, en þeir laun.
— Hvenær og hvernig kem-
ur þetta til framkvæmda?
— Undirbúningsrannsóknir
eru eins og ég sagði, löngu
byrjaðar og sumum lokið.
Vélakosturinn, sem við fáum
frá þeim, getur verið tilbúinn
síðla sumars, þegar við vilj-
um. Námskeið starfsfólksins
geta einnig byrjað þegar við
viljum og búið er að ráða
fólkið.
— Á hverju stendur þá þar?
— Það gengur ekki við-
stöðulaust að fá heimild til að
ráða um 30 nýja menn og fá
þeim skipað í launaflokka.
Sumum finnst á þessu þung-
lamalegur gangur. Ráðherra
okkar hefur þó unnið vel að
þessu og heimild er fengin til
ráðningarinnar, en ekki geng-
ið .frá launaflokkaskiptingu,
en verður væntanlega gert
næstu daga.
— Þá er það húsnæðið?
■— Já, við skoðuðum strax
í sjónvarpsnefndinni ýmis hús
og önnur síðan og í fjárhags-
áætlun er gert ráð fyrir fé til
byggingar. Til mála komu
ýmis hús, neðan frá Tjörn og
austur í bæ og inn í Kópavog.
Um skeið voru ofarlega á
baugi hús við Tjörnina og við
Laugaveg. Það er einn liður í
samvinnu við hinar sjónvarps-
stöðvarnar, að frá þeim komi
hingað húsameistari, sérfróð-
ur um sjónvarpshús, og er nú
staddur hér húsameistari
sænska sjónvarpsins, sem áð-
Framh. á bls. 3
? UNDANFARNA daga hefur
| verið xakin SA-átt milli Bret-
I landseyja og íslamds, svo að
| allmikil reykjarmóða hefur
1 borizt hingað til Suðurlands.
| í gær vair bjart til lofitsíns, en
I gráleit móða í lofti, svo að
| Esja og Akrafjail sóust ó-
| greinilega úr borginni. Hér
I yfir landinu er há/þrýstisvæði
I og víðast hreinviðri. Kl. 15 í
| gær vac 18 stiga hiti á Egils-
I stöðum, en lágmarksihiti nótt-
| i. a áðuir, a'ðeins 0 stig. Stór
| lægð er að nálgast suðvestan
I af hafi og búiist við talsverð-
wiimniiiiiiiiiiiinniiinniniiiiiiiuniinniinmiinniniii
um A-strekkingi um surrnan- :
vert landið.
Veðurhorfur í gærkvöldi: Suð \
vesturmið: Allhvass A-SA, f
dálítið þokusúld. Suðvestur- j
land, Faxaflói og miðin: A- I
kaldi, mistur í lofti og sums f
staðar dálítil rigning. Breiða- ;
fjörður til Austfjarða og mið- \
in: Hægviðri, sums staðar næt \
uhþoka í útsveitum. Suðaust- f
urland og miðin: A-átt, all- ;
hvasst með köflum dálítil \
þokusúld. Austurdjúp: Hæg- f
viðri, skýjað. Horfur á föstu- |
dag: Austlæg átt, skýjað sunn f
an lands og austan.
Vilhjálmur Þ. Gislason, utvarpsstjon, a fundi EBU, Evropubandalags útvarpsstöðva
9 VI !?(.? kl.li
Sumarferð Varðar verður 11. júlí
Hin árlega sumarferð Varðarfélagsins verður að þessu sinni farín sunnudaginn 11. juli. Eariö
verður í Þjórsárdal og ekið um fegurstu sveitir nærlendis. Skoðaðar verða undirbúningsframkv.
við hina væntanlegu BúrfellsvirkjunL — Ferðin verður augiýst nánar síðar. Myndin er tekin á
áningarstað í einni Varðar-ferðinnL
Tvö innbrot
ó Akrnnesi
AKRANESI, 9. júnsí — Tvö iirun-
brot hafa verið frami.n hér í
bænium með stuittu miliibili og
stolið samitals 14.000 kr.
Aðfarainótt 21. maí var brotizt
inn í skrifstofu Ásmundiair h.f.
Vesturgötu 48. Þaðan var stolið
4000 kr. í peningum, geymdum
í lauina'bréfum, sem ætluð voru
starfsfólki fyrirtækisins.
Og svo vair þaö á aðfaranótt
'hvítas.unnudagains að brotizt
vair inn í söluskála Hallgrims
Árnasonar á Skólabraut 18 og
stolið peningum að upphæð 9000
kr.
Lögregla staðarins tók miann
einn fastan í gær heima í her-
bergi ?ínu. Yfirheyrslur voru í
skrifstofu bæjarfógéta í gær-
kvöldi allt til miðnáéttis. Játaði
maðúrinn á sig írinbrotið á báð-
uin stoðum, sém hér um ræðir.
Mestu af þessum pemingum sagð
ist hann iiafa eytt í áfengi og
bíla. Hann er utanbæjarmað'ur
og hefur starfað hér vetrarlangrt.
— Oddur.
- SÍLDIN
Framhald af bls. 32
tanga: Sólfari með 1200 mál,
Hafrún NK 600, Svanur JS 800,
Crnýfari 200, Hilmir KE 450.
Hannes Hafst. 1700, Gjafar 1450*
Ljörg 900 og Björn Jónsson 100.
Þsssi skip tilkynntu afla í gær
til síldarleitarinnar á Raufar-
höfn:
Náttfari 1000, Fróðaklettur
1600, Guðrún 1600, Grótta 1400
Guðrún Guðlaugisdóttir 1600,
Haraldur 1600, Eldborg 1500
Björgvin 1650, Ásbjörn 1500,
Akraborg 1400, Guðbjörg RE 850
Súlan 1400, Ásþór 1200, Þörbjörn
II 1450, Pétur Jónsson 550, Guð-
björg GK 1300, Bjarmi II 1700,
Snæfell 1500, Hafrún IS 1800,
Siglfirðingur 1550, Mummi 900,
Björgúlfur 500, Vonin 1250, og
Skírnir 800.