Morgunblaðið - 24.06.1965, Qupperneq 1
28 slður
lÍíníWiWttMaMíSji
02. árgangur.
139. tbl. — Fimmtudagur 24. júní 1965
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rússar vísa á bug sátta
nefnd samveldislanda
A sunnudag ræddust þeir við
í Algeirsborg Houari Boumedi
enne, hinn fertugi leiðtogi
byltingarmanna, sem kvöldið
áður stcypti af stóli Ben
Bella forseta, og Abdel
Hakim Amer, varaforseti
Egyptalands. Sagði Boumedi-
enne þá, að hið nýstofnaða
byltingarráð myndi standa
við allar skuldbindingar fyrri
stjórnar landsins og stjórnar-
skiptin myndu engu breyta
um hinn fyrirhugaða fund
leiðtoga Asiu- og Afríku-
rikja í Aigeirsborg 29. júní
nk.
London, 23. júní — NTB, AP.
SOVÉTRÍKIN hafa formlega
vísað á bug tilmælum um að
sáttanefnd samveldisríkjaráð-
stefnunnar í London fái að koma
til Moskvu til viðræðna við
ráðamenn þar, að því er Tasa-
fréttastofan tilkynnti í kvöld.
Eru Sovétríkin fyrst kommún
istaríkjanna til þess að neita
formlega að veita nefndinni mót
töku, en bæði Peking-stjórnin og
stjórn N-Vietnam hafa lýst því
yfir, að nefndin muni ekki fá
að koma til Peking eða Hanoi.
Ber Sovétstjórnin því við í neit-
un sinni, að mál Vietnam sé í
öllum höfuðatriðum mál Norð-
ur-Vietnam, „frelsishreyfingar"
Allt með kyrrum kjörum
David Selznik
látinn
Hollywood, 23. júní. NTB.
Bandaríski kvikmyndaframleið-
andinn David Selznik lézt í gær
63 ára gamall. Banamein hans
var hjartabilun.
Frægust kvikmynda (þeirra sem
Kelznik lét gera er án efa „Gone
with the wind“ með Vivien
Leigh, en á hans vegum voru
lika margar nafntogaðar stór-
myndir m.a.: „David Copper-
field“ „Intermezzo", „Vopnin
ikvödd", „Tvær borgir“, „Anna
Karenina", ,,Kebecca“ og „Duel
in the Sun“.
Fyrri kona Selzniks var Irene
Mayer, dóttir Louis H. Mayer
(Metro-Goldwy-n-Mayer), en
faann skildi við hana og gekk að
eiga kvikmyndaleikkonuna Jenni
fer Jones árið 1949, og lifir hún
mann sinn.
í Algeirsborg
en óvíst hversu fari um
ráðstefnu Asíu- og
Afríkuríkja
Algeirsborg 23. júni NTB AP
ALLT virðist með kyrrum kjör
um í Algeirsborg og öðrum
stærri borgum í Alsír í dag, en
vopnaðir hermenn voru þó á
verði við allar helztu byggingar
í höfuðborginni. Enn er allt í
óvissu um hversu fari um ráð-
stefnu leiðtoga Asíu- og Afríku-
ríkja, sem hefjast átti 29. þ.m.
Alsírska utanrikisráðuneytið
birti í gærkvöldi skrá yfir 28
riki, sem tilkynnt höfðu þátttöku
sína, en mörg ríki önnur hafa
heykzt á því, m.a. flest samveld-
islandanna. Eru allar líkur tald-
ar á að utanríkisráðherrar Asíu-
og Afríkuríkja, sem koma eiga
saman í Algeirsborg í morgun
til undirbúnings fundi leiðtog-
anna, mæli með því að fundinum
verði frestað um sinn.
Til uppþota kom í Aligeirsborg
í gærkvöldi og stó'ðu stúdentar að
baki ócirðunum. Snemma kvölds
lögðu möng hiundruð þeirra und
ir sig helztu verzlunargötur
bongarininar hvolfdu þar úr rusla
tunnura og höfðu fyrir trommur
Oig léku á þær undir vígorð sín,
„Látið Ben Bella lauis«in“ og
„Boumedienne er morðin,gi“.
Meðan á þessu gekik mátti einnig
heyra skotið af vélbyssum ein-
hvers staðar í nánd við forseta-
ihöllina. Síða.r í nótt heyi'ðust
tvennar sprengingar í miðborg-
inni en ekki fer sögum af tjóni
af þeirra völdum. Sagt er að
síðari uppþot stúdentanna séu
miun betur skipulögð en hin fyrri
og eigi upptök sín í gamla borgar
hlutanum, Kasbah, og haf-i stúd-
entarnir lagt mjög fast að lög-
reglúliðinu að bregða trúnaðd við
Boumedienne ag ganga í Kð
me'ð sér.
Byltingarráðið kunngerði í
gær að siðan á Jaugardag hefðu
verið látnir lausir 1.318 pólitísk-.
ir fangar. í óstaðfestum fregnum
segir að byitingarráðið hafi tek-
ið höndum manga stulðiningsmenn
Ben Bella og ekikert hafi til
'hans spurzt síðan hann var hand
tekinn. Amer, varaforseti Egypta
lands, sem kom til Alsír á sunmu
dag til viðræðna við Boumedi-
en.ne, v&r tjáð að vel færi um
Framh. á bls. 27
Suður-Vietnam og Bandaríkja-
stjórnar og að réttu lagi eigi
þau ein um það að fjalla; Sovét-
stjórnin hafi ekkert umboð til
slíks.
í gær var sagt, að mjög væri
lagt að Kína að taka á móti
friðarnefnd samveldislandanna
og ynnu að því fjölmargir leið-
togar Asíu- og Afríkulanda á
ráðstefnunni. Kina og N-Viet-
nam höfðu áður átalið harðlega
stofnun nefndarinnar og þó
hvorugt landanna hafi formlega
neitað að taka við henni enn,
þykir fáum liklegt að friðar-
nefnd undir forystu Wilsons fái
að koma til Feking eða Hanoi.
Bandaríkin hafa aftur á móti
lýst sig fús til viðræðna við
nefndina einhvern tíman i næsta
mánuði og kvaðst Johnson
Bandaríkjaforseti fagna þessari
tilraun samveldislandanna til að
koma á sáttum í Vietnam. —
Ákveðinn hefur verið fundur
sáttanefndarinnar og U Thants
í Genf 7. júlí nk.
Robert Kennedy:
Frumvarp gegn
útbreiðslu
kjurnorkuvopnu
Washington, 23. júní. NTB.
ROBERT Kennedy, öldungadeild
arþingmaður, lagði í dag fram
frumvarp í fimm liðum um varn
ir gegn útbreiðslu kjarnorku-
vopna og kvað það eitt mikil-
vægastu atriða í utanríkismáia-
stefnu Bandaríkjanna að koma
í veg fyrir frekari útbreiðslu
slíkra vopna.
Framh. á bls. 27
íugþúsundir manna
missa heimili sín
Vín, 23. júní — NTiB.
£ K K I réna flóðin i Dóná og
hafa tugþúsundir manna, sem á
bökkum árinnar bjuggu, misst
hcimili sin, a.m.k. í bráð. — t
Tékkóslóvakíu einni hafa 45.000
manns flúið heimili sin og isvip-
aða sögu er að segja um mikinn
hluta Júgóslavíu, Ungverjalands
og Austurríkis.
í Tékkóslóvakíu vinna á sjö-
tinda þúsund hermanna að björg
unarstörfum og hleðslu varnar-
garða, en margir slíkir hafa
torostið undan þunga vatns-
íiaumsins og mörg hundruð fer-
kílómetra akurlendis og 48 þorp
eru á kafi í vatni.
í Júgósiaviu hæikkaði yfir-
borð Dónár um einn sentimeter
á klukkustund í gær og úrhellis
rigning og hvassviðri bættu
ekki um.
í Ungverjalandi eru 35.000
manna önnum kafnir við fyrir-
hleðslur. Þar hefur orðið verst
úti héraðið sem liggur milli
landamæranna að Júgóslavíu og
bæjarins Mohucs. og þar hefur
fólk flúið mörg þorp.
I Austurríki komst hráðlestin
milli Basel og Vinarborgar ekki
leiðar sinnar, því vatn flæddi
yfir brautarteinana milli Ziri og
Voels í Tirólafylki og var þá
farþegum í lestinni skotið upp
I langferðabifreiðir og ekið til
Innsbruck, en þaðan Vóru aftur
lestarférðir til Vínar.
Atökin í Víetnam hafa ekki dregiö
úr styrk Atiantshafsfiota NATO
segir Thomas H. Moorer, aðmiráll
sem er hér / heimsókn
seta íslands, forsætisráðherra og
utanríkisráðherra. Það er mér
ánægja að kynnast þeim og ræða
Framh. á bls. 27
IHOMAS H. Moorer, aðmíráll,
yfirmaður Atlantshafsflota
NATO, kom í heimsókn til Is-
lands í fyrrakvöld og hélt vest-
ur um haf í gærkvöldi. Hér
ræddi aðmírállinn m.a. við for-
seta Islands, forsætisráðherra,
utanríkisráðherra og hitti að
máli Manlio Brosio, aðalfram-
kvæmdastjóra NATO, sem hér
hefur verið í heimsókn.
Moorer aðmíráll átti í gær
stuttan fund með blaðamönnum.
Hann kvaðst hafa tekið við hinu
nýja starfi sínu sem yfirmaður
Atlantshafsflota NATO 1. maí sl.
Oig hafa komið hingað eftir ráð-
stefnuna í París, en haft viðdvöl
í Hollandi og Bretlandi. Hann
hefði ekki enn heimsótt nema
nokkur NATO-landanna í krafti
síns nýja embættis, en myndi
heimsækja þau síðar öll, t.d.
myndi hann fara til Portúgal í
septemiber n.k.
Aðmirállinn kvaðst oít hafa
komið til íslands áður, m.a. á
styrjaldarárunum. Hafði hann
orð á því, að sér fyndist hafa
orðið miklar framfarir á íslandi,
mikið byggt og hér viftist vera
hið líflegasta efnahagslíf.
Kvað hann það skoðun sína,
að lega íslands hefði mikla hern-
aðarlega þýðingu. Landið væri
mikilvægt vegna siglinga, enda
byggi hér þjóð sjófarenda.
Kvaðst aðmírállinn hafa m.a. séð
hér styttu Leifs Eiríkssonar á
ferð sinni um Reykjavík fyrr
um daginn.
— Ég hitti hér Manlio Brosio að
alframkvæmdastjóra NATO, og
snæddi með honum hádegisverð
og mun líklega snæða með hon-
um kvöldverð. Það er hrein til-
viljun að við hittumst hér. Ég
hitti hann í fyrsta skipti á ráð-
stefnunni fyrir nokkru. Brosio
hefur unnið mjög gott starf sem
framkvæmdastjóri NATO.
Þá hef ég hitt hér að máli for-
Thomas H. Moorer