Morgunblaðið - 26.06.1965, Qupperneq 8
8
MORGUNBLADID
Laugardagur 26. júní 1965
Erlingur Gíslason í hlutverki Skipta-IIans í Ævintýri á gönguför.
L. R. sýnir
á gönguför
LEIKFÉLAG Reykjavíkur mun
fara hringferð umhverfis landið
í sumar með leikritið „Ævin-
týri á gönguför“. Síðasta sýning
á leikritinu hér verður á laugar-
dag, en á mánudag verður lagt
af stað og þá flogið til Horna-
fjarðar, þar sem fyrsta sýningin
verðuf á þriðjudagskvöld, en
síðan verður farið norður og
vestur um land og reiknað er
með að leikförin muni taka all-
an júlímánuð.
Likstjóri í leikförinni verður
Ragnhildur Steingrímsdóttir, en
leikarar verða þeir sömu og ver-
ið hefur, nema hvað Jóhann Páls
son tekur við hlutverki Ver-
munds í stað Gísla Halldórsson-
„Ævintýri
“ út á landi
ar. Leiktjöldin eru eftir Stein-
þór Sigurðsson en fyrir þessa
leikför hafa verið útbúin sérstök
ferðaleiktjöld, senji eru eins og
leiktjöld þau sem notuð hafa ver
ið í Iðnó, að öðru leyti en því,
að þau hafa vrið minnkuð og
lagfærð, mð tilliti til aðstæðna
á litlu leiksviðunum ú.t á landi
og eru heppilegri flutnings.
Undirleikari í ferðinni verður
Guðrún Kristinsdóttir en farar-
stjóri Guðmundur Pálsson, svo
samtals telur hópurinn 13
manns að meðtöldum bifreiða-
stjóra. Þetta mun vera áttunda
sumarið sem Leikfélag Reykja-
víkur fer leikför út á land en
í fyrra fór það með Sunnudagur
í New York og sumarið þar áður
með Hart í bak.
Leikfélagið hefur nú sýnt
„Ævintýri á gönguför“ 80 sinn-
um og hefur ekkert lát orðið
á aðsókn og uppselt á hverja
sýningu, að sögn. Sveins Ein-
arssonar leikhússtjóra. Á fundi
með fréttamönnum skýrði hann
frá því, að Leikfélaginu hefði
iðulega borizt 1000 miðapantanir
á leikritið utan af landi núna
í vetur, án þess að mögulegt
hefði verið að sinna þeim.
Leikfélagið hefur í vetur
leikrit, en sýningar hafa sam-
tals orðið 218 og flestar voru
á „Ævintýri á gönguför“ eða' 80
talsins, eins og áður segir. í
fyrra sýndi Leikfélagið sex
stykki og þá urðu sýningar sam-
atls 150 auk fimm sýninga í Fær-
eyjum og þriggja á Akranesi.
Af leikritum sem sýnd voru í
vetur í Iðnó, mun standa til að
sýna aftur næsta haust, Ævin-
týri á gönguför, Sú gamla kem-
ur í heimsókn og e.t.v. Þjófar,
lík og falar konur.
Mihlor SrctEiek^æstsdlr
i Gs,iasacl<sa,iis,$il
Grundarfirði, 24. júní.
í SUMAR er unnið við stækk
un bátabryggjunnar í Grundar-
firði. Verið er að steypa ker hér
á staðnum og verður því sökkt
fyrir framan bryggjuna. Við
þetta skapast stórum betri aðst-
aða fyrir fiskibátana og er ætl-
unin, að þeir athafni sig við þessa
bryggju, en hafnargarður verði
fyrst og fremst fyrir millilanda
skipin, sem leggja leið sína hing
að í mjög vaxandi mæll. Yfir-
smiður veið þessar framkvæmdir
hafnarinnar er Sigurður Jakob
Magnússon frá Ólafsvík.
Þá er og unnið að þvd í surnar
að leggja nýja vatnsleiðslu að
þorpinu. Hinjga'ð til hefur vatnið
verið tekið úr læk í fjalli fyrir
ofan byggðarlagáð, en á si. ári
Var borað fyrir vatni skammt
fyrir innan þorpið á svonefnd-
um Kvernáreyruim. Fannst þar
nægiiegt Vatn og er niú komið
hór á staðinn bæði efni í lögn-
ina svo og dælur. Vænta má þess,
að vatnið komist í samiband sfð-
ar á þessu ári. Sveinn Torfi
Sveinsson verkfræðinigur hefuir
.verið til ráðuneytis urri þessar
framkvæmdir.
Þá er hér í sumar í smíðum
nýtt póst- og símstöðVarhús, og
standa vonir til þess, að hæ'gt
verði að flytja einihvern hluta af
afgreiðsilu pósts og síma í hi3
nýja hús fyrir næstkomandi ára-
mót. Bætir þáð úr mjög brýnni
þörf , því að vinnuskilyrði starfa
fólks þessarar stofnunar hér eru
vægast sagt harla bágborin og
gegnir furðu, hversu afgreiðsia
pósts hefur þó gengið vel miðað
yið allar aðstæður. Yfirsmiður
við bygigingu þessa húss er
Björn Gu'ðmundsson Grundar-
firði.
Loks er þess að geta, að hér
í þorpinu er í smíðum kirkja,
sem vonir standa til, að hægt
verði að messa í á komandi jól-
lái. Hefur sóknarpresturinn,
séra Magnús Guðmundsson, unn
ið mjög ötuillega að framgangi
þessa miáls. Margir Grundfirð-
ingar, heima og heiman, hafa
lagt þessu máli mikið lið, og
kirkjU'byiggingunni hafa borizt
margar góðar gjafir nú þegar og
verið tilkynnt um aðrar, sem
væntainlegar eru. — Emil.
Ihmið að hafnar-
gerð í Ólafsvík
Ólafsvík, 24. júní.
Sanddæluskipið Sandey er ný-
komið hingað og "a að dæla
sandi upp úr höfninni. Sandin-
um á að dæla í ramma, sem
mótaður er úr grjóti og var unn-
ið við það fyrr í vor. Sandey
mun eiga að dæla um 70 þús.
rúmmetrum af sandi. Uppfyll-
ing sú, sem myndast við sand-
dælingu þessa, mun verða um
114 til 2 ha. að stærð. Aðrar
framkvæmdir við höfnina í sum-
ar eru, að byggð verður 110 m
löng bryggja úr harðviði, sem
tengd verður uppfyllingu þeirri,
sem Sandey er að dæla í. Við
bryggju þessa verður 414 m
dýpi um stórstraumsfjöru og
munu 5 bátar geta landað í einu
við hana. Áætlaður kostnaður
við framkvæmdir þessar eru 7
millj. kr. og er búið að tryggja
fjármagn til þeirra. Verkstjóri
við hafnargerðina er Sigurður J.
Magnússon trésimíðameistari hé3
an úr Ólafsvík.
— Hinrik
Hótel opnað í félags-
heimilinu ■ Neskaupstað
Neskaupstað, 24. júní.
í DAG boðaði stjórn félagsheim-
ilisins í Neskaupstað fréttaritara
blaða og útvarps á sinn fund.
Hafði Gunnar Ólafsson skóla-
tjóri orð fyrir stjórninni. Sagði
hann tilefnið vera, að á morgun
yrði opnað nýtt gistihús í félags-
heimilinu, sem hlotið hefði nafn-
ið Hótel Egilsbúð. Un'nið hefur
verið í allan vetur við að inn-
rétta fimm herbergi, sem eru á
2 hæð hússins, og eru þau nú
fullbúin. Þar er pláss fyrir 15
rúm. Herbergin eru búin mjög
smekklegum húsgögnum. Hótel-
stýra verður Aðalheiður Svein-
þórsdóttir. Á morgun verður
einnig opnuð matsala í félags-
heimilinu og er nýlokið við
smíði á stóru eldhúsi, sem er út-
búið öllum hinum fullkomnustu
tækjum. Matráðskona verður Jó-
hanna Gunnarsstein. Hótelið mun
einnig útvaga herbergi úti í bæ
ef með þarf og einnig svefn-
pokapláss.
Þá var fréttariturum einnig
sýnt hið nýja skrifstofuhúsnæði
bæjarsjóðs, en það er í suður-
heimili félagsheimilisins á 2.
hæð. Þar eru 4 rúmgóðar stof-
ur, klæddar innan með harð-
viði og öll teppalögð. Gamla hús
næðinu, sem bæjarsjóður hafði
áður fyrir skrifstofur sínar, er
verið að breyta, og verður þar
opnað sjómannaheimili í næsta
mánuði. Yfirsmiður við félags-
heimilið hefur verið frá önd-
verðu ívar Kristinsson, en nú-
verandi framkvæmdastjóri fé-
lagsheimilisins er Guðmundur
Sigurjónsson.
— Ásgeir.
„Surtsey í litum “
— lallea myndabók
^COMIN er út bókin „Surtsey í
litum“. Textann, sem er bæði á
íslenzku og ensku, samdi Guð-
mundur Sigvaldason, jarðfræð-
ingur, en myndirnar eru teknar
af niu mönnum. Útgefandi er
Myndabókaútgáfan.
Tvö kort eru í bókinni, ann-
að af Surtsey en hitt af Vest-
mannaeyjum og Surtsey. Þau eru
gerð af Kristni Helgasyni hjá
Landmælingum ríkisins.
Sérlega fallegar myndir prýða
bókina,- sem var prentuð hjá Lit-
brá, en um framköllun á litfilm-
um sá Geisli. Hefur prentun tek-
izt mjög vel.
Hver bók er seld í plastumbúð-
um og kostar hún kr. 107.50 með
söluskatti.
„Surtsey í litum“ er ekki stór
bók, en falleg og eiguleg, og
hentar því einkar vel til gjafa
handa vinum og kunningjum
erlendis.
Jeppi á Fjalli (Vaídemar Lárusson) vaknar upp í höllinni. Frá sýningu Jeppaflokksins.
Jeppaflokkurinn # leikför
Nokkrir leikarar, sem nefna
sig Jeppaflokkinn, eru að leggja
af stað í leikför út á land með
eitt vinsælasta elikrit Holbergs
„Jeppa á Fjalli“ og sýna fyrst
á Blönduósi á simnudagskvöld.
Síðan ér ætlimin að fara til
Sauðárkróks, Siglufjarðar, Ólafs
fjarðar, Vestfjarða síðan víðs-
vegar um landið, en leikförin
stendur í 5 vikur. í sumar verða
4 leikflokkar á ferðinni og hafa
þeir reynt að hafa samráð til
að vera á víxl á stöðunum. í
haust ætlar Jeppaflokkurinn svo
að hefja sýningar í Reykjavík.
Valdimar Lárusson leikur
Jeppa, en hann lék sama hlut-
verk sem gestur með Leikfélag-
inu á Selfossi í vetur. Var far-
ið með leikinn um Suðurlands-
undirlendi og sýndi það sig að
var það ástæðan til þess að leik-
arahópur úr báðum leikhúsun-
um í Reykjavík tók sig saman
um að æfa hann og ferðast með
þetta leikrit í sumar. Leikstjóri
er sami og á Selfossi, Gísli Al-
freðsson, en Bjarni Steingríms-
son hefur tekið við æfingum.
Leiktjöldin eru að mestu þau
sömu og á Selfossi, en þau gerði
Lárus Ingólfsson.
Leikarar auk Valdemars eru
Emelía Jónasdóttir, sem leikur
Nillu, Bjarni Steingrímsson,
Borgar Garðarsson, Jón Kjart-
ansson, Jón Júlíusson og Karl
Guðmundsson.
Leikritið Jeppi á Fjalli eftir
Holberg hefur löngum verið .vin-
sælt hér og annars staðar á
Norðurlöndum. Það var fyrst
sýnt hér 1895 á Akureyri — og
þá á dönsku. En í Roykjavík var
það sýnt 1905. Nú er það filutt
í þýðingu, sem Lárus Sigur-
björnsson gerði fyrir flutning
þess í Iðnó 1934. Fyrir utan Sel-
fossýninguna hefur Jeppi á
Fjalli ekki verið sýndur hér í
um það bil áratug.