Morgunblaðið - 26.06.1965, Side 14
14
MORGUNBLAÐID
1
Laugardagur 26. júni 1965
Ég þakka hjartanlega öllum, sem heimsóttu mig og
öðrum sem sendu mér afmæliskveðjur 14. júní síðast-
liðinn. — Ég óska ykkur öllum alls góðs.
Ingihjörg Jónsdóttir.
Ég þakka af alhuga alla þá miklu vinsemd og virð-
ingu, er'mér hefir verið sýnd í tilefni af 75 ára afmæli
mínu þann 13. þ.m. Sérstaklega þakka ég börnum
mínum og tengdabörnum, félögum mínum í Góðtempl-
arareglunni svo og öllum frændum og vinum er gerðu
mér þessi „áramót“ ógleymanleg.
Bið ég þeim öllum blessunar guðs á komandi tímum.
Kristjana Ó. Benediktsdóttir, Mjóstræti 2 R.
Konan mín
VALGERÐUR STEFÁNSDÓTTIR
Reynimel 48,
andaðist að heimili sínu að morgni 25. júní.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Frímann Tjörvason.
SIGURJÓN EINARSSON
frá Miðdal,
lézt í Landsspítalanum 22. þ.m. — Útför hans verður
gerð frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 1. julí kl. 1,30.
Sigurborg Jónsdóttir og systkini hins látna.
GUÐMUNDUR PÉTURSSON
frá Hrísakoti, Nesvegi 63,
lézt að Sólvangi, Hafnarfirði 24. júni.
Fyrir hönd vandamanna.
Pétur Eyfeld.
Eiginmaður minn
SIGURGEIR SIGURGEIRSSON
Safamýri 40,
lézt hinn 18. þ.m. Jarðsett verður frá Hallgrimskirkju
þirðjudaginn 29. júní kl. 10,30. Blóm og kransar afbeðið.
Þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á Blindra-
félagið og Slysavarnafélag íslands.
Helga Halldórsdóttir.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
Iangamma
GUÐBJÖRG BREIÐFJÖRÐ GUÐMUNDSDÓTTIR
sem andaðist 18. júní sh verður jarðsungin mánudaginn
28. júní kl. 2 e.h. frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði.
Magnús Einarsson,
Ragnar Magnússon,
Einar Karl Magnússon,
Ragnheiður Magnúsdóttir.
Móðir mín
SIGURBJÖRG KRISTBJÖRNSDÓTTIR
verður jarðsungin þriðjudaginn 29. júní kl. 13,30 frá
Hallgrímskirkju.
F. h. ættingja og vina.
Þorsteinn Kristinsson.
Jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa
GUÐMUNDAR HALLDÓRSSONAR
Húsasmíðameistara, Brávallagötu 46,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 29. júní kl.
10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað.
Jóhanna L. Jónsdóttir,
dætur, tengdasynir og barnabörn.
Hjartans beztu þakkir til allra þeirra, nær og fjær,
sem sýndu okkur margvíslega vináttu við andlát og
jarðarför
GEORGS LÚDERS
Kársnesbraut 161,
til allra þeirra, sem heimsóttu hann í sjúkrahúsin, til
lækna og hjúkrunarkvenna, sem stunduðu hann með
alúð og umhyggju í hans erfiðu veikindum, og til stofu
félaganna fyrir vinsemd þeirra við hann.
Kristín B. Liiders, dætur og aðrir aðstandcndur.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
GUÐRÚNAR TÓMASDÓTTUR
Fyrir hönd aðstandenda.
Tómas Heigason frá HnífsdaL
Kúntep’s
Or SCAN Dl NAViA
SUNDBOLIR í miklu úrvali.
£ckkaf>úítH
Laugavegi 42. Sími 13662.
BANA“
BETRI STÝRISEIGINLEIKAR
BETRISTÖÐUGLEIKI í BEYGJIIM
BETRI HEMLUN
BETRI ENDING
Veitið yður meiri þzgindi
og öryggi í akstri — notið
GOODYEAR G8,
sem býður yður fleiri kosti
fyrir sama verð.
1------------------
P. STEFÁNSSON H.F.
Laugavegi 170—172
Símar 13450 og 21240
- VETTVANGUR
Framhald af bls. 13
verður ærið fyrir tvo menn eða
þrjá. Þetta er einnig eðlileg af-
leiðing af vexti þjóðarinnar.
Klirkjan á miklu sterkari í-
tök í huga þjóðarinnar en menn
gera sér að jafnaði ljóst. Helztu
mælskumenn stjórnmálaflokk-
anna koma fram einu sinni á ári
í fjölmennum byggðarlögum, haf
andi með sér vinsæla skemmti-
krafta, og þó er stundum varla
fundarfært hjá þeim, en prest-
arnir svo misjafnir sem þeir nú
annars eru að gáfum og mælsku,
safna alltaf um sig nokkrum
hóp áheyrenda og það sami mað-
ur 50-190 sinnum á ári. Ríkið
leggur fram mikinn hluta kostn-
aðar við byggingu skóla og fé-
lagsheimila, en fámennir söfnuð-
ir brjótast í því hjálparlaust að
endurbyggja kirkjur sínar og
vilja ekki fækka þeim, þótt það
væri víða í sjálfu sér eðlilegt
og ódýrara. Þjóðin vill hafa
kirkjuna og hún vill fjölbreytt-
ara kirkjulegt starf, einkum
meðal æskulýðsins. Þess vegna
mun sá vísir, sem verið er að
gróðursetja í Skálholti, vaxa og
verða að stórum meiði.
□
Ástæðan til þesis hundingja-
háttar að reyna með öllu móti
að spilla fyrir því að í Skálholti
rísi upp ný og vegleg menning-
arstofnun, er ekki sú að þjóð,
sem árlega eyðir tugum eðá
hundruðum milljóna í allskonar
óþarfa eða blátt áfram vitleysu,
þnrfi að ofbjóða kostaðurinn. Á-
stæðan er fyrst og fremst ofs-
tæki þeirra manna, sem hatast
við kirkju og kristindóm, en
telja það óhyggilegt frá flokks-
pólitísku sjónarmiði að vega
beint framan að kirkjunni, Hjal-
ið um falska rómantík og sparn-
aðarvælið er því blátt áfram
hræsni og yfirdrepsskapur. Það
er gömul aðferð að spilla fyrir
góðu málefni að leggja forustu-
menn þess í einelti, hártoga orð
þeirra og áætlanir, reyna að
vekja tortryggni gegn þeim og
jafnvel að hælbíta þá með skæt-
ingi og beinu níði, þegar færi
gefst. Þess konar skæruhernaði
hefur nú verið haldið uppi viku
eftir viku gegn biskupi landsins.
Orð hans hafa verið afbökuð,
gerðir hans affluttar og jafnveí
beitt svo lélegri fyndni, að einn
liðurinn í áætlun hans með Skál
holt sé að reisa þar sláturhús.
Allt vælið um það, að þjóðin
hafi ekki ráð á endurreisn Skál-
holts, er hrein og bein þjóðar-
skömm, hin lúalega og látlausa
rógsherferð gegn biskupi lands-
ins í sambandi við það mál er
hneyksli og blettur á íslenzkri
blaðamennsku. Það ætti að vera
sjálfsögð hvöt öllum þeim, sem
skömm hafa á slíku atferli, til
að sameinast enn betur um Skál
holtssöfnunina. Með því er yfir-
drepsskapnum og hræsninni svar
að með fullum drengskap, hund-
ingjahættinum mætt með þeirri
heilbrigðu rómantík, sem hefur
verið, er og verður fjöregg þjóð-
legrar menningar á íslandL
Rýmingarsala
Verzlunin hættir um óákveðinn tíma.
Ungbarnafatnaður
Barnafatnaður HALFVIRÐI
Unglingafatnaður
SMÁSALA — Laugavegi 81.
Málverkasýning
Oskar Just í Iðnskólanum Reykjavík við Skóla-
vörðustíg er opin frá kl. 15—22.
Starfsstúlkur
óskast að Vistheimilinu að Arnarholti.
Upplýs.ngar að Arnarholti í sima um Brúarland.
SJÚKRAHÚSNEFND REVKJAVÍKUK.
SUMARFRÍIN NÁLGAST. — LÁTIÐ
ATHUGA RAFGEYMINN ÁÐUR EN
LAGT ER í I.ANGFERÐ.
Hleðslustöð Pólor
ÞVERHOLTI 15.