Morgunblaðið - 30.06.1965, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.06.1965, Qupperneq 1
28 síður Áframhaldandi óeirðir í S-Kóreu / Seoul, 29. júní, NTB, AP. ENN kom til óeirða í S-Kóreu i dag vegna samkomulags stjórn arinnar við Japani um að aftur akuli komið á eðlilegu stjórn- máiasambandi milli landanna, og voru á fjórða hundrað stúdenta teknir hóndum og margir lög- reglumenn særðust. í Seouil kom til mikiUa átaka t morgun er 500 lögreglumenn vildiu dreifa fjölmennum hópi atúdenta, um 3000 talsins. Not- uðu lögreglumennirnir, sem búnir voru stálhjálmum og gas- grímuim, táiragassprengjur og Skyifuir til að dreifa stúdentunum en þeir köstuðu grjóti áð löig- reglumönnum og særöu marga þeirra. í Teagu, þriðju stærstu borg S-Kóreu, kom einnig til átaka, er 2.500 stúdentar foru þar í mót mælagöngu. Þa.r særðust um 25 lögreglumenn í viðureigninni við stúdentana. Samningur sá um að upp skuli tekið eðlilegt stjórnmálasamband Japans og S-Kóreu var undir- ritaður í Tókíó 22. júní sl. og síðan hefur gengið á óeirðum bæ'ði í Tókíó og í ýmsum borg- um í S-Kóreu. Engan bil’bug er þó að sjá á stjórn Chung Hee Parks og hyggst hún leita sam- þykktar þings S-Kóreu á samn- ingnum við Japani í næsta mán. Nasser Egyptalandsforseti og Chou En-lai, forsætisráðherra Kína, taka á móti Sukarno, Inds nesíuforseta í Kairó. Kosygin að- varar USA Moskvu, 29. júní (NTB-AP) ALEXEI Kosygin aðvaraði í dag Bandarikin vegna stefnu þeirra i Víetnam og sagði að þaú yrðu að gera sér ljóst að kommúnista- löndin myndu nú auka aðstoð eina við Norður-Víetnam. Sagði forsætisrá ðherra n n þetta 1 ræðu er hann flutti í Patrice Lumumba-háskólanum, er verið var að útskrifa' 82 stúdenta frá Asíu, Afríku og Suður-Ameríku, er þar hafa stundað nám. Bar Kosygin Johnson forseta það á brýn, að hann fylgdi sömu stefnu og Barry Goldwater, keppi nautur hans í forsetakosningum á fyrra, hefði viljað taka upp. ítrekaði Kosygin fyrri loforð um aðstoð við Norður-Víetnam og „frelsishreyfingu" Suður-Víet- nam og kröfurnar um að Genfar- eamningurinn um Vietnam skyldi haldinn, Bandaríkjamenn yrðu á brott úr landinu með vopn sín og herlið og landsmenn fengju sjálf- ir að skera úr um framtíð sína án ihlutunar. Tekur Ferhat vi5 völdum í Algeirsborg, 29. júní. NTB; AP HAFT er eftir áreiðanlegum heimildum að nú sé nær full- skipað 15 manna „byltinigarráð“ Boumediennes í Alsír. Eiga í því sæti 11 menn úr her landsins og fjórir menn aðrir, allir úr nú- verandi ríkisstjórn; Bouteflike, utanrikisráðherra; Medeohri, inn anrikisráðherm; .— Belkacem, kennslumálaráðherra og iðnnðar- málaráðherrann, Boumaza. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum að Boumedienne eigi nú viðræður við tvo helztu leið- toga sjálfstæðisbaráttu Alsír um það hvort þeir muni, annar hvor eða báðir, fást til að veita forstöðu hinni nýju stjórn lands ins. Menn þessir eru Ferhat Abbas og Rabah Bitat, sem báð- ir voru mjög á móti Ben Bella og var Bitat í útlegð af þeim sökum en Abbas sat í fangeisi í meira en ár og var það eitt siðasta embættisverk Ben Bella Ferhat Abbas áður en honum var vikið frá völdum, að leysa Abbas úr haldi. Bandarískir fallhlif arhermenn taka þátt I sókn á hendur skæruliöum Saigon, 29. júní (NTB-AP) í DAG hófu bandarískir fallhlíf- arhermenn ásamt hermönnum citjórnar Suður-Víetnam mikla eókn á hendur skæruliðum Viet Cong í frumskógunum norðan Saigon. Er þetta í fyrsta skipti, sem bandariskt herlið tekur slík- »n þátt i hernaðaraðgerðum í S- Vietnam. bátttaka bandarísku fallhlifar- hermannanna í bardögunum í dag-var að beiðni Suður-Víetnam etjórnar og var það Westmore- land hershöfðingi sem hana fyrir skipaði, í umboði Johnsons for- »eta. Hröktu fal)hlífárhermen.n- irnir skæruliðana á undan sér og misstu sjálfir fátt manna. en talið «r að töiuvert mannfáll hafi orð- ið í liði Viet Cong, bæði í bardög- unum og í loftárásum þeim sem á undan höfð.u gengið. Þarna í frumskógunum norðan höfuðborgarinnar höfðu skærulið ar ráðið lögum og lofum um nær tíu ára skeið og höfðu búið þar um sig betur en nokkurs staðar annars staðaT í landinu, grafið neðanjarðarbyrgi og -göng, skot- grafir og meira að segja lagt þangað vegi til aðflutninga vopna og vista.-. Annars staðar í Suður-Víet- nam sóttu liðsmenn Víet Cong á, einkum í miðhéruðum landsins og þykir margt benda til þess að þeir hyggist leggja til atlögu við bæinn Kontum, en þar hefst nú við herlið sem stjórnin í Saigon sendi til aðstoðar við bæinn Tuo Morong, er skæruliðar náðu á sitt vald fyrir fjórum dögum og hafa haldið siðan. Tvær flugvélar Bandaríkja- manna voru skotnar niður skammt frá Saigon í morgun, önnur af gerðinni C-123 og hin af gerðinni B-57 Canberra, sú síðari 3 km frá flugstöðinni Son Nhut, sem er skammt frá Saigon, hin fyrri um 21 km frá höfuðborg- inni. Flugmennirnir eru taldir af. Miklar loftárásir voru gerðar á Norður-Vietnam í dag og tóku flugvélar Suður-Víetnam-hers einnig þátt í þeim. Fóru vélarnar norðar en nokkru sinni fyrr og réðust m.a. á hernaðarmannvirki norðan Hanoi, um 130 km frá landamærum ríkisins að Kina. Abbas Alsír? Er talið að Boumedienne vilji ekki sjálfur taka að sér em- bætti forsætisráðherra en kjósi helzt að komið verði á í landinu I borgaralegri stjórn sem njóti stuðnings hersins. Sagt er að Ferhat Abbas, hinn virti forseti útlagastjórnarinnar forðum sem nú er orðinn 60 ára, sé ekki mjög áfram um að taka að sér stjórnarförystu í landinu og muni tæplega takast það á hend- ur, nema tryggt verði að haldn- ar verði almennar lýðræðislegar kosningar í Alsír og þingræði komið þar á. Bitat er 45 ára gamall og mikill stuðningsmað- ur Ben Bella áður, eins og Abb- as. Allt var með kyrrum kjörum í Alsír í dag og engar óeirðir eða óspektir í höfuðborginni. Fulltrúar, sem komið höfðu til að sitja ráðstefnu Asíu- og Afríkulanda tóku saman föggur sínar og héldu heimleiðis, eftir að ráðstefnunni hafði verið Jrestað fram í nóvember. Alsírstjórn hefur sakað Egypta um að hafa staðið að óeirðunum í Algeirsborg og víðar í fyrri viku, þar sem lýst var stuðningi Framhald á bls. 27 Þrívelda- fundur í Kairo Káiró, 29. júni. NTB — AP. TVISVAR hefur verið frestað fyrirhuguðum fundi Nassers Egyptalandsforseta með Chou En lai forsætisráðherra Kínverja og Sukarno, Indónesíuforseta, og er nú ráðgert að fundur þeirra verði á morgun. Einn fulltrúi Indónesíumanna sagði, að beðið væri komu Ali Bhutto frá Pak- istan og væri það orsök þess að fundurinn hefði dregist á lang- inn, því ætlunin hefði verið að utanríkisráðherrar landanna kæmu sér saman um yfirlýsingu varðandi fyrirhugaða ráðstefnu Asíu- og Afríkurikja, sem koma átti saman í Algeirsborg, eri hef- ur nú verið frestað til 5. nóvem- ber. í ritstjórnargrein í Dagblaði þjóðarinnar í Peking segir að „heim^veldissinnar" hafi verið valdir að því að ekkert varð úr fundi Asíu- og Afríkurikja í Algeirsborg ifú, en segir jafn- framt, að kínverska stjórnin styðji heils hugar ákvörðun þá sem tekin hafi verið um að fresta fundinum fram í nóvembei:. Pakistanir og Indverjar semja Á MORGUN verður undirritað- ur í Nýju Dehli og Karachi samningur milli stjórna Indlands og Pakistan um vopnahlé í hinu umdeilda landamærahéraði Rann of Kutch. í marz sl. kom fyrst til átaka í Kutch og í apríl og maí urðu þar oft harðir bardagar og var beitt stórskotaliði og bryndrek- um. Sjaldan bar deiluaðilum saman um hvor hefði átt upp- tökin að átökunum en saman- lögð tala fallinna var nokkuð á sjöunda hundrað manna Wilson, forsætisráðfherra Breta oig fleiri góðir menn skáiust í leikinn og fréistúðu að miðla málum og einnig rnunu fulltrúar beggja landanria á ráðherrafundi samveldislandahna í I.ondon hafa ræðzt við um Rann of Kutch. Er nú svo komið, eins og fyrr segir, að á morgun verð- ur undirritaður samningur um að lokið skuli vopnaviðskiptum í héraðinu, þar skuli haft lög- reglueftirlit og síðan fara fram frekari .samningaviðræður um hversu skuli ievsa ágreininginn um tilkall beggja landanna til hé-raðs þessa, seiri er eyðislétta að sumarlagi en á vetrum mýrar fen, og orð leikur á að hafi að geyma olíu í jörðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.