Morgunblaðið - 30.06.1965, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 30.06.1965, Qupperneq 26
26 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 30. j’úfti 1965 Ein stærsta íþrótta - og útihátíð UMFÍ undirhúin að Laugarvatni um helgina Nýr Iþrottaieikvangur vígður að Laugarvatni og keppt í plastsundlaug LANDSMÓT UMFf, hið 12. í röðinni verður að Laugarvatni um næstu helgi, verður að öll- um líkindum ein fjölmennasta og mesta íþróttahátíð, sem hér á landí hefur farið fram. Héraðs sambandið Skarphéðinn, stærsta spmbandið innan UMFl, hefur undirbúið mótið nú á þriðja ár, og að því er séð verður af frá sögn forráðamanna mótsins, er allur undirbúningur og skipu- lag mjög vel af hendi leyst. Á annað þúsund manns keppa, sýna eða starfa að mótinu og njóti mótið hylli veðuriguðanna er ekki ósennilegt að álíta að 10—20 þús. manna komi til Laugarvatns um þessa helgi. Stórar sveitir lögreglumanna úr Reykjavík, hjálparsveitir skáta og aðstoðarmanna — svo- kallaðs heimavarnaliðs — greiða fyrir fólki á allan hátt varðandi umferð, bílastæði, tjaldstæði og fleira. Tugir eða hundruð manna annast um matsölu í mötuneyt- um skólanna eystra og í tjöldum, fengin hafa verið heilu túnin til bílastæða og skipulagðra tjald- stæða og yfirleitt gífurleg undir- búningsvinna verið lögð fram vegna mótshaldsins. ir Undirbúningur PVrir tveimur árum rúmum var skipuð framkvæmdanefnd mótsins og sitja í henni: Stefán Jasonarson Vorsa'bæ form., Her- mann Guðmundsson, Hermann Sigurjónsson, Björn Sigurðsson og Ármann Pétursson. ' Réði nefndin Hafstein Þorvaldsson, Selfossi, framkvæmdastj., og hef- ur hann haft skrifstofu opna undanfarnar vikur og haft ærið að gera. Forráðamenn þessir ræddu við blaðamenn á mánu- dag um mótið og gáfu þær upp- lýsingar sem hér er byggt á. . Stefán Jasonarson sagði að undir'búningur mótsins hefði ver- ið þríþættur: 1. Mannvirkja- gerð og umfangsmikið skipulag á mótsstað. 2. Vinna í héraði til undirbúnings hópsýningum o.fl. 3. Samstarf við einstök héruð og Pressuleikur- inn fellur niður EINS og um mörg undanfarin ár hafði verið ákveðið nú að hafa svokallaðan „pressuleik“ fyrir knattspyrnulandsleikinn við Dani, þ.e. að landsliðið fengi síðustu „alvöru“-æfing- una fyrir landsleikinn og landsliðsnefndin hefði tæki- færi til síðustu breytinga, ef henni hefði skjátlazt í vali sínu. Nú hefur verið ákveðið að láta þennan „pressuleik“ falla niður en hann var ákveðinn annað kvöld. Ekki er getið um ástæðu í tilkynningu frá „mótanefnd KSÍ“, og gera má ráð fyrir að ráðamenn lahds- liðsins telji „keppnisæfingu" óþarfa og ekki þurfi frekar að reyna menn í stöður liðsins. sambönd varðandi fyringreiðslu er fólk hvaðtyp æfa af landinu kemur til mótsins. ■k Margir hjálpast að Keppendur í einstaklings- greinum eru 311 auk boðhlaups- og boðsundssveita, knattspyrnu- liða og annarra hópa. Þá taka um 180 manns þátt í fimleika- sýningum, um 120 manns sýna vikivaka — auk þess sem yfir 300 manns starfa að mótinu, ým- ist við íþróttakeppni, löggæzlu (en sérstakt lið ungra manna hef- ur fengið tilsögn í umferðastjórn og skipulagi á bíla- og tjald- stæðum) veitingasölu ,hlið- vörzlu o.fl. Allt starfið er unnið í sjálfboðavinnu utan 2ö manna sveitar lögreglumanna frá Reykja vík, sem stjórnar umferð o. fl. á mótinu. Þá hleypur Hjálparsveit skáta í Reykjavík undir bagga með Skarphéðinsmönnum og verða 30—40 þeirra til aðstoðar og hafa m.a. sjúkrabíl frá FÍB til taks ef slys ber að höndum. Þá verða 4—5 bílar frá vegaþjónustu FÍB á vegunum að og frá mótinu. ir Dagskrá mótsins Aðaldagskrárliðir mótsins eru þessir: Á laugardagsmongun verður hópganga til íþróttavallar. Þar flytur Árni Guðmundsson skóla- stjóri ávarp, en dr. Gylfi Þ. Gíslason ráðherra flytur vígslu- ræðu. Fánar verða dregnir að hún og fjöldasöngur og síðan flytur sambandsstjóri UMFÍ, sr. Eiríkur Eiríksson setningarræðu. Kl; 9.45 hefst keppni í sundi, frjálsum íþróttum og starfs- fþróttum og kl. 11,30 knatt- spyrnukeppni. Eftir hádegi verð- ur íþróttakeppni haldið áfram í sömu tgreinum og auk þess í handknattleik. Kl. 18,30 verður Vfirlýsing frá IBV Vegna gireinar sem bixtist á iþróttasíðu Morgumblaðsins 23. 6. 1965 sem bar yfirsikriftina „Vestmannaeyinigair sátu heima“ vill stjórn I.B.V. koma á fram- færi eftirfarandi. Stjóm Í.B.V. sótti um fire&tun á umræddum leik til K.S.Í. vegna: 1. Loks átti flugvellinum í Eyjum sokum viðgerðar frá há- deigi þriðjud. 22. júní til kl. 20.00 fimmtudaginn 24. júni. Hefðu piltarnir flogið til Reykjavíkur að morgni 22 júní áttu þeir enga ferð vísa til Eyja fyrr en fimmtu daginn 24. júní. 2. Af fyrrgreindum ástæðum hefði reynzt óigerlegt að fá marga leikmenn lausa úr sinni vinnu. 3. A’ð ofangreindum ástæðum frestaði mótanefnd K.S.f. um- ræddum leik. Þá viill stjóm Í.B.V. taka það fram að aldrei áður hefúr þurft að fresta l’eik þeirra vegna, en t.d. á síðastliðnu sumri þurfti að fresta átta leikjum í landsmóti hér í Vestmannaeyj- um vegna þess að liðin, sem keppa áttu komust ekki samdæg urs með fluigvél til Eyja. verðlaunaafhending og síðan kvöldverður. Kl. 8 um kvöldið hefst kvöld- vaka við pallinn milli íþrótta- vallanna. Sýndur verður körfu- knattleikur og nemar í íþrótta- kennaraskólanum sýna leikfimi og dans. Þarna syngja og 3 kórar. Loks verður dansað — nýju dansarnir á tveim útipöllum en gömlu dansarnir innanhúss. Árdegis á sunnudag verður íþróttakeppni í öllum greinum haldið áfram, en að loknum há- degisverði hefst sérstök hátíð. Sr. Eiríkur J. Eiríksson mess- ar, Stefán Jasonarson flytur ávarp og forseti íslands Ásigeir Ásgeirsspn flytur ávarp. Þarna verða vikivakar sýndir og flutt sérstök „Sögusýning": Áshildarstaðasamþykktin, eftir sr. Sigurð í Holti. Taka 28 manns þátt í þeirri sýningu. Ávörp flytja og Bjarni Bjarnason fyrr- um skólastj. og Sigurður Greips- son form. Skarphéðins. Þessari útihátíð á að vera lokið kl. 15,35 og hefst þá hópsýning karla úr Skarphéðni (leikfimi) og síðan hópsýning kvenna. Kl. 16.00 verður glímukeppni síðan úrslit í knattspyrnu og handknattleik. Að afloknum kvöldverði á sunnudag verður einnig dansað úti og inni. fþróttakeppnin er nuög um- fangsmikil. í sundi er keppt í 10 greinum, 14 greinum frjáls- íþrótta, knattspyrnu (undan- keppni hefur farið fram), hand- knattleik, glímu að ótgleymdum starfsíþróttunum, sem fá vegleg- an sess á dagskránni. Af keppn- isgreinum þar má nefna, dráttar- vélaakstur, að leggja á borð, nautgripadómar, sauðfjárdómar, hestadómar, gróðursetning trjá- plantna, jurtagreining, blóma- skreyting o. fl. — f sambandi við starfsíþróttakeppnina fer fram mikil vélasýning, sem sjö innflutningsfyrirtæki standa að og sýna söluvöru sína. A Góð aðstaða til íþrótta- keppni. Forráðamenn landsmótsins fóru hiýjum þakkarorðum um aðstoð þá, er íþróttakennaraskól- inn hefði látið í té og rómuðu skólastjórann Árna Guðmunds- son mjög fyrir margháttaða að- stoð. Hefur hann staðið í hópi þeirra sjálfboðaliða er undirbúið hafa mótið hörðum höndum, auk þess sem skólinn lánar velli sína og ýmislegt annað til mótsins. Aðstaðan _ til íþróttanna er mjög góð. Á laugardaginn hefst mótið á nýjum íþróttavelli íþróttakennaraskólans, grasvelli með 400 m hlaupabraut, kast- geirum, stökkigryfjum og öllu til- heyrandi byggt eftir ströngustu kröfum þar um. Verður mót þetta vígsluhátíð vallarins sem íþróttakennaraskólinn hefur þráð mjög. Auk þess verður notaður malarvöllur skólans, svo og hand- bolta- og körfuboltavöllur hans. Framh. á bls. 27 JÓHANN ÞORKELSSON, I héraðslæknir — að sigri unnum. Hann er 62 ára og hellur tryggð við golfíþróttina — nýtur henn- ar og skemmtir sér. Golfið er —• eins og af þessu má sjá — jafnt fyrir ungia sem gamla. Vann bikarinn 62 ára Skemmtileg golfkeppni á Akureyri NÝLEGA er lokið hjá Golfklúbb Akureyrar keppni um ,JHikes Cup". Þetta er 18 holu höggleik nr með % forgjöf. Sigurvegari varð Jóhann Þorkelsson héraðs- læknir, og þykir þetta mjög at- hyglisverður árangur hjá Jó- hanni, því hann er orðinn 62 ára gamall — en heldur þó fyllilega í við þá sem yngri eru að árum. En einmitt þetta sýnir hinn sér- stæða eiginleika golfíþróttarinn- ar, að jafnt ungir sem gamlir geta stundað hann til árangurs og gamans. Jóhann tók þegar í upphafi forystu í keppninni, en er 9 hol- ur voru eftir var staðan nokkuð jöfn, Jóhann 41 högg; Hörður Steinbergsson 41; Sigtryggur Júlíusson 41. Sigtryggur er einn ig með eldri félögum í klúbbn- um, var I úrslitum um íslands- meistaratitilinn 1942 og Islands- meistari 1946 og margfaldur Akureyrarmeistari. Enn í dag er hann með betri kylfingum í GA. Jóhann og Tryggvi háðu skemmtilegt einvígi um bikarinn, en á 16. holu hlekktist Sigtryggi á. Kostaði „slysið“ hann 3 högg og Jóhann sigraði örugglega. Hinir yngri kylfingar eins og Gunnar Sólnes og Hörður Stein- bergsson lögðu sig alla fram, en tókst aðeins að jafna metin við Sigtrygg. ii Úrslit urðu: Jóhann Þorkelsson 79 högg; 2. Sigtryggur Júlíusson 80; Gunnar Sólnes 80 Hörður Steinbergsson 80; Hafliði Guð- mundsson 82 og Árni Ingimundar son 84. Í.B.V. EFST í B-RIÐLI Hafa hlotið 8 stig — Unnu Breiðablik 5:1 VESTMANNAEYINGAR unnu stóran sigur í gærkvöldi, er þeir sigruðu Breiðablik í Kópavogi 5 : 1, í skemmtilegum og fjörug- um leik, sem þó á köflum var nokkuð gróft leikinn. Rok og rigningarskúrir settu sinn svip á leikinn, en leikmönnum tókst samt furðanlega að halda knett- inum niðri. Vestmannaeyingar voru mun ágengari við mark Breiðablitks, og byggðu upp hverja sóknarlot una á fætur annarri, en þeim tekst ekki að skora fyrr en á 30. mín. Vörn Breiðabliks var illa leikinn og hinir hröðu sóknarmenn Í.B.V. voru ekki seinir að notfæra sér mistökin og skoruðu auðveldlega. Skömmu seinna fá Breiðabliks menn víti, en það mega þeir þakka línuverðinum; dómarinn var ekki í þeirri aðstöðu að geta séð þegar varnarmaður Í.B.V. varði knöttinn með báðum hönd um. Jón Ingi framkvæmdi spyrn- una og skoraði örugglega. Á síðustu 5 mín. hálfleiksins skorg svo Vestmannaeyingar 2 mörk og staðan í leikhléi var 3 : 1 fyrir Í.B.V. í síðari hálfleiknum léku eyjá- menn undan vindinum og var búizt við að þeir myndu skora fjöldann allan af mörkum, en reyndin varð önnur. Þeim tókst aðeins að skora 2 mörk, og bæði snernma í hálfleiknum. Breiðabliksmenn voru nú mun lakari en í leiknum við ísafjörð "á dögunum. Það vantaði alla snerpu í liðið og vamarmenn voru sér í lagi eitthvað miður sín. Eg held að það sé rangt að láta Guðmund leika í stöðu út- herja, hann nýtisf áreiðanlega betur sem innherjL Lið Í.B.V. er harðskeytt og á köflum ýf harðskeytt. Þeir era ákveðnir og ófeimnir við að skjóta á mark. Dómari var Steinn Guðmunds- son og kom hann vel frá þessum leik. — R.M. Sambandsþing UMFÍ. 24. samibandsiþing Unigmenna- félags íslands verður haldið I sambamdi við landsmótið á Laugarvatni dagana 1. o.g 2. júlL Þingið verður sett í samkomusal menntasikólans á fimmtudag kL 4 e.ih. Þingslit fara fram á föstu- dag. Rétt til þinigisetu eiga 74 fu'll- trúar og samlbandsstjórn. Nokkrir gestir eru boðnir. A'ðalmiái þingsins eru: félags- mái, ilþróttamáil og starifsiþróttix,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.