Morgunblaðið - 06.07.1965, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur (5. júlí 1965
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innaniands.
í lausasölu kr. 5.00 eintakið.
KALIN TÚN Á'
AUSTURLANDI
CJvo sem kunnugt er af frétt-
^ um hefur talsvert kal
komið fram í túnum á Aust-
urlandi. Er þetta í annað sinn
á fáum árum, sem bændur á
Austurlandi verða fyrir bús-
ifjum af þessum sökum, en
árið 1962 kom kal einnig fram
í túnum nokkurra býla þar.
Að þessu sinni virðist vera
um að ræða töluvert miiri
skemmdir en þá og á sumum
býlum mun nær öll tún hafa
kalið.
Búnaðardeild atvinnudeild-
ar háskólans vinnur nú að
rannsóknum á kalinu og or-
sökum þess, en nauðsynlegt
er að finna ut af hverju kalið
kemur, hvort efni vantar í
jörðina eða plöntur ekki nógu
sterkar.
Þá hefur Búnaðarfélag ís-
lands sent tvo ráðunauta aust-
ur til þess að kanna hversu
víðtækar kalskemmdirnar
eru, hve mörg býli hafa orðið
fyrir erfiðleikum af þessum
sökum og hve mikill hluti
túna þeirra er skemmdur og
loks hve margir hektarar í
heild hafa skemmzt á Austur-
landi af kali.
Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda, sem nýlega var
haldinn að Eiðum setti fram
ósk um það til landbúnaðar-
ráðherra Ingólfs Jónssonar,
Búnaðarfélagsins og Stéttar-
sambandsins, að viðeigandi
ráðstafanir yrðu gerðar til
þess að aðstoða þá bændur,
sem nú eiga í erfiðleikum af
völdum kalsins.
Ingólfur Jónsson, landbún-
aðarráðherra, hefur einnig
kynnt sér af eigin raun kal-
skemmdirnar.
Eitt byggðarlag fyrir austan
hefur orðið fyrir sérstöku á-
falli af völdum kalsins en það
er Norðfjörður. Þar háttar
svo til að tólf býli við Norð-
fjörð sjá Neskaupstað að
mestu fyrir mjólk og er það
kaupstaðnum mjög mikilvægt
sökum erfiðra samgangna, sér
staklega að vetrarlagi. Við
Norðfjörð er ástandið svo
slæmt af völdum kalsins, að
bændur gera varla ráð fyrir
að hafa nægilega sumarhaga.
Það er ljóst, að viðkomandi
aðilar hafa brugðizt skjótt við
til þess að kanna orsakir kals-
ihs og hversu víðtækt það er.
En það er auðvitað nauðsyn-
legur grundvöllur fyrir frek-
afi aðgerðum til aðstoðar
þeim bændum, sem fyrir því
hafa orðið. Mikilvægt er að
komast fyrir orsakir kalsins
fyrir austan og hvernig á því
st'endur að ítrekaðar 3kemmd-
ir vérða af þess völdum á
þessu landsvæði á fáum árum.
Er vonandi, að þær athug-
anir, sem nú fara fram á þessu
máli, leiði til þess, að hægt
verði að fyrirbyggja svo víð-
tækar skemmdir af völdum
kals í framtíðinni og jafn-
framt, að leiðir verði fundn-
ar til þess að aðstoða aust-
firzka bændur, sem fyrir þess
um búsifjum hafa orðið.
FJÖLSÓTT
HÉRAÐSMÓT
Cjálfstæðisflokkurinn efnir
^ til fjölda héraðsmóta í
sumar eins og jafnan áður og
er nú mjög til þeirra vandað.
Enn hefur einungis verið hald
inn rúmlega þriðjungur
þeirra héraðsmóta, sem fyrir-
hugað er að efna til, en að-
sókn að þeim, sem þegar hafa
verið haldin, hefur verið ó-
venju mikil.
Að þessu sinni sjá einir
fremstu skemmtikraftar lands
ins, Svavar Gests og félagar
hans, um skemmtiatriði á hér-
aðsmótunum en í ræðuhöld-
um hefur það nýmæli verið
tekið upp að nú talar jafnan
sérstakur fulltrúi ungu kyn-
slóðarinnar á hverju héraðs-
móti.
Aðsókn að héraðsmótum
Sjálfstæðisflokksins í sumar
hefur verið geysimikil og er
sérstaklega áberandi hve
unga fólkið flykkist í stórum
hópum á mótin. Er enginn
vafi á því, að Sjálfstæðisflokk
urinn nýtur nú vaxandi byrs
meðal æskufólks landsins. Að
sókn þeirra að héraðsmótun-
um nú er aðeins eitt fjöl-
margra dæma um það. Fé-
lagssamtök ungra Sjálfstæðis-
manna starfa nú af óvenju-
miklum krafti um land allt og
mikill fjöldi efnilegra ungra
manna og kvenna er að koma
upp í flokknum.
Þessi ánægjulegu tíðindi
eru auðvitað fyrst og fremst
að þakka því, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur sýnt æsku-
fólki innan sinna raða mikið
og vaxandi traust. Ungir
menn eru í auknum mæli sett-
ir til mikilvægra trúnaðar-
starfa á vegum flokksins og
starfsemi unga fólksins setur
æ meir svip sinn á flokkinn.
Hin mikla aðsókn að hér-
aðsmótunum nú og sá fjöldi
ungs fólks, sem þau sækir,
sýnir, að Sjálfstæðisflokkur-
inn á nú vaxandi fylgi að
fagna og að styrkur flokksins
út um landsbyggðina hefur
aukizt og eflzt til mikilla
muna.
„VIÐ BIÐUM BAÐAR“
FYRIR skömmu var dómur
up kveðinn í Sydney í Ástra-
líu í máli manns eins er orð-
ið hafði að bana öðrum manni
er falað hafði eiginorð af
konu hins fyrrnefnda. Málið
vakti mikla athygli í Ástra-
líu og víða um heim, er máls-
atvik komu öll í ljós, og
kannski engin furða.
Hinn ákærði, Boro Trajano-
vic, sem er júgóslavneskur að
ætt og uppruna og orðinn
þrjátíu og tveggja ára, var
maður vinsæll og vel liðinn
í sínu nýja heimalandi. Hann
var múrari að atvinnu og átti
orðið fjögur börn með eigin-
konum sínum tveim — sem
bjuggu saman á heimilinu og
sáu í sameiningu um allan bú-
rekstur og barnauppeldi og
sem er tæplega ársgömul.
Catherine Doyle heitir síðari
kona Boros, og á tvær dætur,
eins og hálfs árs og þriggja
mánaða gamlar.
Svo var það fyrir nokkru,
að einhver aðdáandi Cather-
rine komst að því, hversu var
í pottinn búið og að hún var
ekki lagalega gift Boris. Þóttu
honum þá vænkast sínar horf
ur og gekk fast eftir ráðahag
við hana, en Catherine kvaðst
hvorki vilja heyra han né sjá,
hún elskaði Boris og hefði al-
ið honum tvö börn og hugs-
aði sér hreint ekki að yfir-
gefa hann í bráð né lengd.
Ekki gafst vonbiðill hennar þó
upp við svo búið en hélt
áfram uppteknum hætti og
reyndi meira að segja að tala
um fyrir Boris, sagði sambúð
þeirra til mestu smánar og
Catherine væri nær að giftast
sér. Þetta gekk svo nokkurn
tíma, að ekki linnti ásókn vin-
biðils Cat^erine og loks brast
Boris þolinmæðina, og greip
til þeirra einna úrræða sem
eftir voru til að fá manninn
ofan af þesu.
Dómarinn í Sidney dæmdi
Boris í átta ára fangelsi fyrir
manndráp — en þær Nina og
Catherine brostu bara og
sögðu: „Átta ár er enginn ei-
lífðartími. Við bíðum báðar.
Boris er dásamlegur maður og
við viljum hvorug við hann
skiljast."
Boro Trajanovic,
sá er myrti vonbiðil konunnar.
kom svo vel saman að margar
systur hefðu mátt öfunda þær
þessvegna. Fyrri kona Boros
— og sú eina, að því er ástr-
ölsk lög heimila — en Nina
Rotter, sem hefur alið manni
sínum tvö börn, dreng sem nú
er orðinn sex ára og stúlku
☆
Catherine, sem tók Boro fram
yfir biðilinn.
Nina, fyrri kona Boros.
— Við stöndum saman.
LANDSMÓT
U.M.F.Í.
TTm helgina fór fram að
^ Laugarvatni 12. landsmót
Ungmennafélags íslands og
var það geysi f jölsótt og þátt-
taka í íþróttakeppnunum mik
il. Það er vel, að Ungmenna-
félag íslands stendur að svo
mikilli hátíð íþrótta og æsku.
Það sýnir að enn býr mikill
kraftur í ungmennafélags-
hreyfingunni og henni hefur
auðnazt að finna sér starfsvið
við hæfi að lokinni sögufrægri
baráttu fyrri hluta aldarinn-
ar. —
Ungmennahreyfingin átti
ríkan þátt í þeirri vakninga-
öldu, sem gekk yfir land og
þjóð við upphaf nýrrar aldar,
og hún efldist og jókst með
ótrúlegum hraða. Hún hefur
nú orðið að hasla sér nýjan
starfsgrundvöll með tilliti til
U Thant. frarnkv.st.j. Sameinuðu
þjóðanna, kom i nótt flugleiðis
til Genf, til þess að sitja þar
fundi Efnahags- ag félagsmála-
ráðs S.þ. Sagði hann við blaða-
menn á flugvellinum að hann
hefði í hyggju að hitta friðar-
nefnd brezka samveldisins að
máli í Genf næstkomandi mið-
vikudag.
U Thant kvaðst vona að friðar
oefndiu gæti Látið sig vita á
breyttra aðstæðna og er þesa
að vænta, að hið glæsilega
landsmót Ungmennafélags ís-
iands um helgina sé vottur
þess, að henni hafi tékizt það.
mánudag, hvort hún sæi sér fært
að eiga með sér fund.
í París sagði U Thant í gær-
kvöldi að Páll páfi 6. væri nú
að ígrunda hvort hann ætti að
flytja ræðu á AUsherjarfþingi
S.þ. í haust, er ráðgert er að páf-
inn komi þá til New York. Tals-
maður Páfagarðs sagði í dag að
of snemmt væri að segja nokkuð
um hversu umfangsmikil heim-
sókn páfa til aðalstöðva S.þ. yrði.
Flytur páfi ræðu
á Allsherjarþinginu?
4
I