Morgunblaðið - 11.07.1965, Qupperneq 2
'
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 11. júlí 1965
Afréttarlönd sunn-
an fjalla kortlögð
Haldið áfram fyrir norðan i sumar
■
f SUMAR er unnið að áfram-
lialdandi gróðurkortagerð á af-
Téttarlöndum á vegum Atvinnu-
■deildar . Háskólans, en þeim
• stjórnar Ingvi Þorsteinsson. Hef-
nr verið unnið að þessu undan-
farin ár. í gær hittum við Stein-
dór Stcindórsson frá Hlöðum,
sem er grasafræðilegur ráðunaut
ur við þessa kortagerð og hefur
ferðast með flokknum um af-
réttarlöndin undanfarin sumur.
— Þetta er 10 manna flokkur í
sumar og gengur alveg Ijórn-
andi hjá strákunum. Ég er bara
aukamaður, sagði Steindór og
hló.
Hann sagði okkur, að nú væri
búið að kortleggja öll afréttar-
lönd sunnan fjalla, austan frá
Hverfisfljóti og vestur til Borgar
fjarðar og að auki heiðarnar vest
anvérðar milli Borgarfjarðar og
Húnavantssýslu. Væri ætlunin
að taka Norðurland áfram svo
Vm tími vinnst til í sumar. En
Sigríður Þorvaldsdóttir
i fyrra var tekin Reykiaheiði.
Ef allt gengi vel ætti að verða
hægt að komast austur að Jókuls
á á Fjöllum.
Spurningu um það hvort hann
hefði gert nokkrar nppgötvamr
á sviði íslenzkrar flóru i þess-
um ferðum, svaraði Steindór á
þann veg, að ennþá væri landið
svo stórt og litið kannað að mað-
ur lærði alltaf eitthvaö nýtt í
hverri ferð.
Upphaf a ritgerð eftir Stein-
dór um hálendisgróðurinn birt-
ist í síðasta hefti af Flóru og
kemur framhaidið í næstu rit-
um. — Okkur væri það kært ef
ritið gæti fengið meiri útbreiðslu
og menn sinntu því meira, því
erfitt er að halda svona úi, sagði
Steindór Steindórsson að lokum.
Nýr bíll er kominn á Höfn i Hornafirði, glansandi og krómaður. Eigandinn var heldur en ekki
hreykinn, þar sem hann ók á fullum hraða eftir akbrautinni með allan strákahópinn á eftir sér,
fulla aðdáunar. Annað eins farartæki hefur ekki komið á göturnar í Höfn.
Rannsóknarstofa fyrir
landbúnaðinn
tekin til starfa á Akureyri
Tekin er til starfa á Akureyri
efr<arannsókparstofa fyrir land-
búnaðinn, sem Ræktunarfélag
Norðurlands hefur beitt sér fyrir.
Fyrir henni stendur Jóhannes
Sigvaldason, efnafræðingur, og
er hann nú á ferðalögum um
Norðurland til að safna jarð-
vegssýnishomum og kenna mönn
um að taka þau. En hin nýja
SÉgríður Þorvaldsdólt-
. ir leikur í Ameríku
SIGRÍÐUR Þorvaldsdóttir, leik-
kona, er á förum til Bandaríkj-
anna, þar sem henni hefur verið
boðið aðalhlutverk í leikriti, sem
á að setja á svið í Dallas Theatre
Centre, en þar var hún á samn-
ingi i tvö ár áður en hún kom
heim. Fer Sigríður vestur á
mánudag, því æfingar hefjast á
miðvikudag og standa yfir í 3—4
vikur, áður en frumsýnt verður.
Og eftir það verður leikið á
hverju kvöldi.
Mbl. náði tali af Sigríði og
spurði hana nánar um þetta. Hún
sagðist hafa fengið bréf frá leik-
húsinu, þar sem henni var boðið
hlutverk í gamanleik, sem nefn-
ist „Marriage go round“. Fjallar
1 um norræna stúlku, sem kemur
tii Bandaríkjanna og leikur
Sigríður hana. Mér þykir mjög
vænt um þetta og finnst mér
sómi sýndur með því að þeir
skuli vilja fá mig aftur, því nóg-
ar eru um boðið þarna. Ég var
á samningi hjá leikhúsinu í tvö
ár eftir að ég lauk leikskólanum
í Kaliforníu og lék þar frá því
um haustið 1962 til vors 1964.
Dallas Theatre Centre starfar
allt árið. Leikhússtjóri er hinn
kunni Poul Baker, sem m. a. var
yfirmaður allrar skemmtistarf-
semi hersins á stríðsárunum.
Hann hefur leikskóia í sambandi
við leikhúsið og þangað sækir
fólk hvaðanæva að. Sagði Sig-
ríður að sér þætti einmitt svo
mikill fengur í að fá að vinna hjá
honum.
Sigríður hefur í vetur starfað
hjá Þjóðleikhúsinu og kvaðst
gera það aftur næsta vetur, eða
þegar sýningum lýkur á leikrit-
inu í Ameríku. — Ég vil helzt
vera hér heima, en hingað til
hafa ekki verið mikil not fyrir
mig. Ég vona að ég fái bara sem
mest að gera í framtíðinni.
1 GÆRMORGUN var veður sízt hlýrra á meginlandinu,
stillt og þurrt hér á landi og t.d. 11 stiga hiti í London og
víða léttskýjað norðanlands. 10 stig í París og Kaupmanna-
Nokkur þokuúðningur var við höfn. Um 600 km. suður af
annes austan lands. Hiti var íslandi er lægð, sem þokast
yfirleitt 10—12 stig, og var austur eftir.
• •IIUIHMIHHIUIIIMII
IftMtiaMAIMflltttlAS IIMIIMIIMIftllil'
efnarannsóknarstofa er til húsa
á Akureyri í verksmiðjuhúsi, þar
sem efnagerðin Sjöfn var áður.
Mbl. hitti í gær að máli Steindór
Steindórsson og fékk nánari
fréttir af þessu hjá honum.
Steindór Steindórsson
Ræktunarfélag Norðurlands,
sem nú er 60 ára gamalt, hefur
beitt sér fyrir þessu máli. Félagið
var upphaflega með tilraunir í
grasrækt, garðrækt og skógrækt
og rak sína tilraunastöð árum
saman, sagði Steindór. En með
nýskipulagningu á tilraunastarf-
inu varð það að lokum úr að rík-
ið keypti tilraunastöðina. Þá var
farið að svipast um eftir nýjum
verkefnum. Varð það úr hjá
stjóminni að setja á stofn efna-
rannsóknarstofa fyrir landbúnað-
inn. Þetta mun fyrst hafa komið
til tals fyrir 3 árum. Fyrir tveim
árum samþykkti aðalfundur fé-
lagsins að beita sér fyrir þessu
og er stofnunin að taka til starfa
um þessar mundir.
Starfssvæðið er allt Norður-
land, frá Hrútafirði til Langa-
ness sagði Steindór. Húsnæðið,
sem stofnunin hefur, er frekar
lítið, en ágætt geymslupláss er
annars staðar. Þarna munu vinna
tveir starfsmenn. Jóhannes Sig-
valdason hefur nýlega lokið
prófi í landbúnaðarefnafræði í
Höfn. Hann hefur séð um kaup
á öllum tækjum og uppsetningu
rannsóknarstofunnar. En reynt
hefur verið að afla þeirra beztu
tækja, sem fáanleg eru fyrir
svona litla stofu.
Viðfangsefnin fyrst um sinn
verða jarðvegsrannsóknir og fóð-
urrannsóknir, svó og annað sem
til fellur á sviði landbúnaðar.
Tekið verður til efnagheiningar
af hverjum sem er, en fyrir slík
verkefni þarf að greiða. Auðvit-
að getur stofnunin ekki staðið
undir sér sjálf og þarf rekstrar-
fé. Ræktunarfélagið leggur fram
það fé, sem það hefur yfir að
ráða og leitað verður til búnaðar-
félaganná, en einnig vonumst við
til að njóta góðvildar fjárveit-
ingavaldsins til að leggja fram á
móti um helming kostnaðar.
Rannsóknarstofan er komin upp
með frjálsum framlögum og án
nokkurs ríkisstuðnings. Búnaðar-
samtökin á Norðurlandi hafa
fram fé ásamt Ræktunarsamband
inu.
— Fram að þessu hefur orðið
að senda allt til efnagreiningar
af Norðurlandi til Atvinnudeild-
arinnar í Reykjavík, sem við
viljum hafa sem bezta samvinnu
við. En með tilkomu rannsóknar-
stofu fyrir norðan, hugsum við
okkur að hægt verði að fá þessa
þjónustu á staðinn, auk þess sem
unnt verði að komast í nánara
samstarf við bændur en hægt er
fyrir eina stóra stofnun í Reykja-
vík, sagði Steindór að lokum.
Þórarinn Olaís-
son 80 órn
ó morgnn
Stykkishólmi, 10. júlí.
80 ÁRA verður á mánudaginn
12. þ.m. Þorsteinn Ólafsáon i
Stykkishólmi. Hann er fæddur að
Búðum í Eyrasveit. F oreldiar
hans vóru Ing'fgerður Þorgeirs-
dóttir og Ólafur Þorgrímsson.
Þorsteinn ólst upp og bjó í Eyrar-
sveit, þar til hann fluttist til
Stykkishólms, árið 1930. Þor-
steinn er þríkvæntur og eru allar
konur hans látnar.
Lengst af stundaði Þorsteinn
sjómennsku, bæði í Eyrarsveit
og Stykkiahólmi. Hann er vand-
sýnt mikinn áhuga á málinu og aður maður til orðs og æðis og er
einnig kaupfélögin, ekki sízt þessvegna vinmargur.
KEA. Þessir aðilar hafa lagt I — Fréttaritari.
Fulltrúar fara heim
frá Egilsstöðum
af fundi norrænna húsmæðrakennara
FUNDUR norrænna húsmæðra-
kennara var settur sunnudaginn
4. júlí að viðstöddum mörgum
gestum. Útlendir þátttakendur
voru 93 en í allt eru þingfull-
trúar um 150. Ingólfur Jónsson,
landbúnaðarráðherra, setti mótið.
Frk. Halldóra Eggertsdóttir tal-
aði og formenn félagsins í hverju
landi fluttu kveðjur. Frú Inge
Fred Juul-Andersen frá Dan-
mörku, skilaði kveðju frá Nord-
isk Samarbeide.
Við setninguna lék Gísli Magn-
ússon, píanóleikari og Gerður
Hjörleifsdóttir las upp ljóð eftir
Tómas Guðmundsson og Guðrún
Á Símonar söng. Eftir setn-
ingu flutti dr. Baldur Johnsen
fyrirlestur um mataræði í gamla
daga.
Þrjár sýningar voru opnaðar I
sambandi við fundinn, gamla
búrið og handavinnu- og vefnað-
arsýning frá Kennaraskólanum.
Fyrirlestra á fundum norrænu
húsmæðrakennaranna fluttu próf
Steingrímur J. Þorsteinsson, dr.
Sigurður Þórarinsson, Björn Th.
Björnsson, Hörður Ágústsson.
Þjóðminjasafn var heimsótt og
skoðað í fylgd með Kristjáni
Eldjárn, bærinn skoðaður o. fU
Fulltrúar fóru sl. fimmtudag 1
ferðalag á Snæfellsnes og norður
í land og enda á Egilsstöðum.
Þaðan fara þeir beint út