Morgunblaðið - 11.07.1965, Page 11
ihinrunjtagur 11. júlí 1965
MORGUNBLAÐIÐ
11
Þeir höfðu hrugðið sér úr bænuni í hjólatúr.
ar aðrar viðhafnarbyggingar
að fomu. Á þessum slóðum
ha/a því að fornu staðið sam-
an tveir siðir í nýju landi:
eitt mesta hof landsins og
fyrsta kirkjan.
} Þegar ekið er fyrir Músarnes
blasir Hvalfjörður við aug-
um. Von bráðar sjáum við
nútímamenn áþreifanlegt tákn
um byggingarháttu horfins
tíma. Eyðibýlið Ártún er á
tiægri hönd, þegar ekið hefur
j verið yfir Blikadalsá. Ekkert
| er eftir, sem minnir á, að hér
j hafi áður fyrr verið blómlegt
i t>ú, nema ef til vill kýrnar,
sem eru þarna á beit. Þær
hætta að jórtra um stund og
horfa forvitnum augum á tvo
ókunna menn, sem vappa um
hlaðvarpann óg horfa ekki
síður forvitnir á þessi hibýli
forfeðranna. Þáð er ekki svo
ýkja langt síðan bærinn lagð-
ist í eyði, en nú er hann að
niðurlotum kominn. Skor-
i steinninn er tákn hins nýja
j tíma, — hann er steyptur, en
i ekki hefur steypan dugað bet-
j ur en svo, að þurft hefur að
Styrkja hann með timbri og
járni. Þess verður eflaust ekki
langt að bíða að járnið láti
líka undan. Inni í bænum eru
leifar af eldavél. Byðið er á
góðri leið með að éta hana í
sig. Brátt verður ekkert eftir
af bænum néma kannski þúst,
I lem segir börnum framtiðar-
í innar, aS bærixm Ártún hafi
•taðið þarna.
1 hlaðvarpanum stendur
•taur. Okkur býður 1 grun, að
þar fari síðustu leifar af vind
myllu. en þær voru hafðar
til að knýja rafmagn. Þess
finnast enn dæmi á Austfjörð
um. Á girðingarstaurunum val
hoppar sf>óí, — hann er lík-
Ie.|a sammála kúnum um það,
•ð það sé óþarfa hnýsni í
mönnunum að gera sér ferð
heim að bænum. Hærra uppi
öögrar lóa um eirðarlaus að
vanda, en i fjarskanum jarm-
•r lamb. Þetta er smíórr x
náttúrunnar.
— ★ —
Við spyrjum kýrnar, þegar
við yfirgefum Ártún, hvort
þær séu ekki orðnar leiðar á
grasinu, en auðvitað anza þær
engu, enda bjuggjumst við
satt að segja ekki við svari.
Hinum megin þjóðvegarins
gnæfir tákn nútíma bygging-
arhátta í stíl Le Corbusier. Ef
laust hefði sá mæti maður
rekið upp stór augu, hefði
hann séð þessi tvö hús standa
andspænis hvort öðru, En við
hættum að brjóta heilann um
fortíðina og funkisöldina. Við
erum komnir að TíðaskarðL
Hér opnast hið fegursta út-
eýn inn Hvalfjörðinn, og ljós-
myndarinn, sem er ákaflega
næmur fyrir fallegum „mót-
ívum“ grípur ósjálfrátt fastar
um myndavélina sína. Við er-
um komnir í Kjósina. Kjós
merkir „þröngur dalur“.
Undir Útskálahömrum geng
ur Hvalfjarðareyri, lö'ng og
flöt út í fjörðinn. Hér hafa
framsýnir menn hugsað sér
að leggja brú yfir Hvalfjörð-
inn. Fyrir rösklega þremur
áratugum ferjaði bóndinn í
Kalsistaðakoti fólk hér yfir
fjörðinn. Vegur hefur verið
lagður niður að Katanesi og
þar hefur verið gerð bryggja.
Voru þessar framkvæmdir
gerðar að ráði nokkura stór-
huga manna, sem ætluðu að
ráðast i það fyrirtæki að
ferja fólk og bíla yfir fjörð-
inn. í því skyni voru kéyptir
innrásarprammar, en þessi
hugmynd datt algerlega upp-
fyrir, og prammamir hvíla
víst einhvers staðar í Borgar-
firðinum núna.
— ★ —
Hvalfjörður er hinn merki-
legasti fyrir margar sakir.
Plágan mikla eða Svarti dauði
barst fyrst hingað árið 14&2
með Eina'ri Herjólfssyni, kaup-
manni. Mikil fiskgengd hefur
tíðum verið á firðinum. Síld-
argöngur hafa verið algengar
á fjörðinn fram eftir öldum,
en forn ömefni henda méðal
annars til þess. Hér hefur ver-
ið mikil selvéiði og æðarvarp.
Um eítt skeið var hér aðal
verzlunarhöfn landsins. Fyrr
á öldum var Hvalfjörður höf-
uðmiðstöð nýrra atvinnuhátta.
Þá má ekki gleyma því, að
Hvalfjörður var í arinarri
heimsstýrjöldinni um skeið
aðalhöfn bandamanna við
norðanvert Atlantshaf. Fjörð-
urinn er víða hyldjúpur, allt
að 200 metrar á dýpt, enda
sigldu stórir vígdrekar inn
fjörðinn.
Áfram höldum við um bratt
ar skriður inn með Hvamms-
vík. Á einum stað stendur sér
kennilegur steinn, sem mörg-
um verður starsýnt á. Þetta
er Staup>asteinn, og hér var
áður fyrri áningarstaður.
Heiti steinsins er dregið af
lögun hans. í bókinni „Merkir
Borgfirðingar“ segir, að
brennivínið muni hafa verið
helgað Birni Jórsalafara, sem
fór um þennan veg í sinni
síðustu för. Ef nánar er að
gætt, má sjá, að ofan í stein-
inum er bikarlaga hola.
1 björgunum fyrir ofan
Staupastein var Arnarhreiður
til skamms tíma. Örninn er
nú horfinn úr Hvalfirði og má
þar ugglaust um kenna refa-
eitrinu,
Þegar við erum komnir
skammt framhjá Staupa-
steini ökum við fram á tvo
snaggaralega stráka, sem aug-
sýxúlega hafa brugðið sér úr
bænum i hjólatúr, en það er
mjög vinsælt sport með ungu
kynslóðinni um sumardaga.
Við námum. staðar og tökum
þá tali.
— Við erum að koma frá
Reykjavík og erum að fara
inn í Botnsdal, sögðu þeir,
þegar við spurðum, hvert
ferðinni væri heitið. Bara að
gamni, sögðu þeir. Við ætlum
að skreppa svona.
Þeir sögðu heita Stein-
grímur Steinþórssori ( sonar-
sonur fýrrverandi ráðherra)
og Geir Haarde. Báðir 14 ára.
— Hvað ætlið þið að vera
lengi í Botnsdalnum, strákar,
spurðum við.
— Fram á mánudag. Það er
verkfall í dag og á morgun,
og svo ætlum vi# að vera
yfir helgina.
— Eruð þið með tjald?
— Já. já. Tjald og allar
græjur, maður.
— Þekkið þið fjöllin 1
Hvalfirðinum?
— Það er nú lítið. En við
erum með landakort.
— Hafið þið hjólað svona
langt áðxir?
— Nei; Við höfum farið
lengst að Álafossi.
— Hvað er langt inn í
BotnsdaJ?
— Það eru sextíu og eitt-
hvað k’lómetrar.
að óskum hingað til?
— Já. já, nema hvað pok-
inn datt einu sinni af hjól-
inu.
— En ef það springur nú
hjá ykkur, hvða gerið þið
þá:?
— Við erum með græjur.
— En ef hann fer nú að
rigna?
— Þá erum við með úlpur
og regnkápur.
— Svo að þið eruð þá færir
í flestan sjó
— Já, já, sgðu þeir bros-
andi, en við vildum ekki tefja
þá lengur, veifuðum til þeírra
og óskuðum þeim góðrar ferð
ar og skemmtunar í Botnsdaln
um.
— ★ —
Brátt erum við komnir að
Hvítanesx, þar sem sjá iná
merkilegar minjar úr sögu
þjóðarinnar. Hér höfðu Banda
menn bækistöð í annarri
heimsstyx-jöld. Við beygjum
út af þjóðveginum og ökum
afleggjarann, sem liggur
niður að húsunum, rústunum
Og bryggjunni. Steinhnullung
arnir á veginum opinbera, að
þetta er ekki fjölfarin leið.
Þegar við erum komnir nokk-
uð áleiðis. sjáum við hvar
kind hefur komið sér fyrir
á veginum með lömb sín tvö.
Þau líta uþp öll í einu, og
það má sjá, að þeim er ekkert
um þessa röskun gefið. Ekki
virðast þau hafa í hyggju að
víkja af veginum, svo að Ijós-
myndarinn hefur á orði að
réttast væri að kæra þau
fyrir hreppstjóranujtn. Sitja
svona á miðjum vegi og tefja
alla umferð, ekki nema það
þó!
Við erum komnir að mst-
um gamals samkomuhúss.
Okkur kemur í hug, það sexn
mætur maður sagði einhverju
sinni: Nú er hún Snorrabúð
stekkur. Ekkert er eftir af
samkomuhúsinu nema þrep
og fordyri, sem þó er að
nokkru hrunið. Upp ú.r stein-
lðgðum þrepunum gægist
mosi, en leifar af ryðguðu
bárujárni eru á við og dreif.
Ugglaust hafa hérna staðið
stórmenm, sem ákváðu örlög
þjóðanna á sínum tíma. Okk-
ur kom í hug Winston Churc-
hill. Ljósmyndarinn klöngrað-
ist yfir grjóthrúgu og hverfur
inn í fordyrið en hann kemur
snarla atftur og gefur skýrslu
um ástandið þar inni: „Það
má greina lykt af kindum og
öðru“. í samkomuhúsi Bret-
anna eiga kindur nú sama-
stað.
Á (leiðinni lengra niður
eftir standa gamlir ljósa-
staurar við veginn. Þeir eru
fyrir löngu hættir að gegna
hlutvérki sínu, en einu sinni
lýstu þeir upp sögulegan vett-
vang. Niðri við bryggjuna
standa uppi útveggir tveggja
húsa. Tímans tönn hefur ekki
megnað að granda þeim,
enda eru þessi hús byggð úr
varanlegu efni. Samt sem
áður getum við ekki varizt
þeirx-i bugsun, að hér hljóti
að vera draugalegt á vetur-
nóttum.
Bryggjan stendur enn uppi.
Nokkrir lestarvagnar eru á
bryggjusporðinum. Þeirra
hlutverk hefur verið að flytja
vistir úr skipunum í vöru-
skemmurnar á næsta leiti.
Þessar skemmur sjást að visu
ekki lengur. Aðeins steyptir
grunrar, sem vitna um til-
vex-u þeirra. Við bryggjuna
lágu stórir og miklir vígdrek-
ar við festar 1 eina tíð. Þaðan
lét Hood, hið fræga brezka
orustuskip, úr höfn hinzta
sinní. Það kom aldrei til baka.
„Það sökk daginn, sem ég
fæddist“, sagði Ijósmyndar-
inn og bætti svo við: „Já,
þetta gekk ekki alveg átaka-
laust!"
Þegar við göngum eftir
biyggjimni sjáum við hrúgur
af ryðguðu kafbátaneti, sem
slætt hefur verið upp. Ofan af
brúnni sáum við helming af
innrásarpramma. Hann var
orðinn grænköflóttur af slýi.
Hinn helminguritin lá í fjöru-
borðinu, ef betur var að gáð.
Við ökum upp á þjóðveg-
inn aftur, og fáum samfylgd
spóa, sem trítlar á undan
okkur. Og enn sækja að okk-
ur hugrenningar: Hvað skyldi
styrjöldin hafi kostað í pen-
ingum fyrir utan mannslíf?
An alls efa væri hægt að
byggja margar brýr yfir Hval
fjörð fyrir þá upphæð — og
yrði þó afgangur!
— ★ —
Það er fagurt um að litast,
þegar hórft er inn í fjarðar-
botninn: þama blasa
við Múiafjall, Selfjalí, Hval-
féll og Botnssúlur, sem eru
rúst forris eldfjalls. Hval-
bátur er að leggja úr höfn frá
Hvalstöðinni. Úti á sjónum
er fuglágei. Þýrill speglast
í sjónum. Þetta er fallegt og
næstum ólýsanlegt sjónspil.
Frahald á bls. 22.
Frá Hvítanesi: Á bryggjusporðinum standa enn nokkrir lestarvagnar. Hrúgan fremst á
• myndinni er kafbátanet.