Morgunblaðið - 11.07.1965, Síða 21
Sunnudagur 11. ]úlf 19(55
MORCUNBLAÐIÐ
21
Þannig er gert ráð fyrir að hið nýja hverfi, Iðngarðar, sem nú er
það er fullgert.
að rísa milii Suðurlandsbrautar og Miklubrautar, líti út þegar
Svttr tíl dr. Matt-
híasar Jónassonar
ÞVÍ miður get ég ekki tekið
fullgiida afsökun dr. Matthíasar
Jónassonar í Mbl. þann 19. júní
í.l., og má þó af henni sjá, að
honom þykir ekki heiður að
þvi, sem ég sakaði hann um. —
Dr. Matthías segir, að hann hafi
í umræddum bókarkafla sínum
ekki átt við neinn sérstakan
mann. En hversvegna er hann
þar þá að tala um, að „íbúar
þessa kalda lands“ hafi ekki
orðið svo afskiptir að eignast
engan 'spámann? Er hægt að
skilja það öðruvísi en svo, að
hann eigi þar við einhvern sér-
stakan mann íslenzkan? Og hver
væri svo sá spámaður íslenzk-
ur, sem taia mætti um, að boð-
ið hafi „þjóð sinni upphefð for-
ystuhlutverksins, að opna mann-
kyninu óþrotlegan lífveg yfir
stjörnur og vetrarbrautir"? Ég
er ekki sá eini, sem þykist ekki
geta betur séð en að hér hafi
þrátt fyrir heldur fáránlegt orða
lag, verið átt við ákveðinn ís-
lending, þ.e. dr. Helga Pjeturss,
6em að vísu var ekki spámaður
íyrst og fremst, heldur maður,
sem rétt er að segja að unnið
hafi vísindastörf á brautryðjandi
hátt.
Dr. Matthías segir, í svari sínu,
að ég hafi í grein minni talað
um þá „bilun“, sem lengi hafi
þjáð dr. Helga,“ og er slíkt í
góðu samræmi við afsökun hans.
Mín orð voru einungis á þá leið,
að svefnskortur sá, sem lengi
þjáði dr. Helga, hafi orðið til
þess, að hann hafi sérstaklega
farið að hugleiða eðli og nauð-
syn svefnsins, og er slíkt ákaf-
lega eðlilegt. Það er sagt að eng-
inn viti, hvað hann átt hefir
fyrr en misst hefir, og þýðir
það nokkurn veginn hið sama
og hann fari þá fyrst að hug-
leiða það. Hefir þetta, eins og
dr. Helgi dró heldur enga dul á
dregið úr framkvæmdamætti
hans. En lesi menn það með
skilningi og ekki alltof smá-
smugulegu hugarfari, sem hann
þrátt fyrir svefnskort sinn hefir
ritað, þá munu þeir geta gengið
úr skugga um, að hjá honum
hefir ekki verið um að ræða þá
„bilun“, sem dr. Matthías senni-
lega á við og af sumum hefir
verið haldið á loft. Sannleikur-
inn er, að í ritum dr. Helga er
um.að ræða ljósari hugsun og í
sumum greinum meira raunsæi
en fundið verður í ritum nokk-
urs íslendings annars honum
samtíma, og sný ég ekki aftur
með það, að dr. Matthíasi og
ýmsum öðrum hefði betur tek-
izt við sumt, ef þeir hefðu haft
sjálfstæði og þor til að færa sér
það í nyt.
Þorsteinn Jónsson
á Úlfsstöðum
Góður heyskapur
BÆ, Höfðaströnd, 8. júní. —
Undanfarna daga hefur heyþurrk
ur verið með ágætum hér í firð-
inum. Flestir bændur eru byrjað-
ir heyskap og hafa náð inn eftir
•hendinni. Þó er í Fljótum og
Sléttuhlíð ekki byrjað vegna
Slæmrar sprettu.
Á Hofsósi hefur verið ágæt
vinna við nýtingu sjávarafurða.
Aðeins eitt frystihús er á staðn-
um og þar leggja upp 4 bátar.
Þeir hafa aflað sæmilega fram
að þ^su, en afli er nú að tregð-
ast. Mér er sagt að konur, sem
vinna við frystihúsið, hafi haft
um 4000 kr. á viku undanfarið.
Heilsufar er ágætt í héraðinu.
ÞAÐ LENGIR STUTTA SUMARFRIIf) EF FARIÐ ER MEÐ
HINUM FULLKOMNU ÞOTUM PAN AMERICAN. .
Vinsælustu þotu-ferðirnar í dag eru þessar: j
NEW YORK
21 dags fargjald)
Kr. 8.044,00 báðar leiðir. MIAMI, FLORIDA
(21 dags fargjald)
Kr. 12,393,00 báðar leiðir.
í sumar er loks hægt að fara til Kaupmannahafnar og
annarra borga á Norðurlöndum með þotum Pan American
og SAS — um Glasgow og Oslo.
Leitið upplýsinga hjá okkur.
Látið okkur skipuleggja ferðina.
Aðalumboð á íslandi:
G. Helgason & Melsted hf.
Hafnarstrœti 19
Símar 10275 11644
Árekstiir á
Akranesi
FAUTAMIKILL árekstur varð í
dag kl. 16.10 fyrir framan kirkj-
una, á milli E-5 og E-664. E-5 ók
niður Skólabraut,. en E-664 kom
niður Laugarbrekku og beygði
fyrir kirkjuna út á Skólabraut.
því birtist E-5. E-664 hemlaði,
en hemlar voru óvirkir og því
renndi hann á E-5 eins og reiður
boli á rautt klæði. Hvorugan
manninn sakaði, en bílarnir
stórskemmdust. — Að minnsta
kosti annar bíllinn var gljáfægð
ur og í tipp-topp-standi.
— Oddur.
Sumorleyfis-
ferðii Furfuglu
i juhmanuoi
I. ) Vikuna 10.—18. júlí verð-
ux dvalið í Landmannalaugum.
Þaðan verða svo farnar göngu-
ferðir um nágrennið.
II. ) 17.—25. júlí hefst 9 daga
ferð um Vestur-Skaftafellssýslu.
í þessa f-erð er ætlaður mjöig rúm
ur tími enda margt fagurra staða
á leiðinni. Ekið ver’ður austur
byggðir og skoðaðir helztu stað-
ir á þeirri leið. Góðar horfur eru
á að kömast megi að Lakagígum
og verða þá teknir 3—4 dagar í
þá ferð, að öðrum kosfi verður
ekið austur í Núpstaðaskóg oig
gengið að Grænalóni og á Súlu- •
tinda.
Ráðgert er að fara Fjallabaks-
veg um Eldgjá á heimleiðinni.
Farfuglar leggja til fæði í ferð
inni og tjöld ef ós'ka’ð er.
Kostnaður er áætlaður kr.
3800. Skrifstofa Farfugla að Lauf-
ásvegi 41 veitir allar nánari upp-
lýsingair.
i STUTTU m
London — Guðshús Gyð-
inga í Southgate í London
eyðilagðist nýverið af eldi. —
Nokkuð hefur borið á því und
anfarið, að eldur kæmi upp 1
synagogum og öðrum bygg-
ingum Gyðinga í London og
talið vera af mannavöldum.
Washington — Bráðlega er
rágert að senda á loft tvo
froska í geimfari fullu af
vatni og eiga þeir að vera
fjóra daga í ferðinni.
YFIR 50 ÁRA REYNSLA
OUTBOARD MARINE I SMÍÐI
UTANBORÐSHREYFLA
ER TRYGGING YÐAR
ÞEGAR ÞÉR KAUPIÐ
5 hö.
9,5 hö.
kr. 12,366
kr. 19,955
EVINRUDE
LAUGAVEGI 178 SlMI 38000