Morgunblaðið - 16.07.1965, Síða 22

Morgunblaðið - 16.07.1965, Síða 22
22 MORGUN BLAÖIÐ Föstudagur 16. júlí 1965 Landsmótið í golfi: Magnús hefur 4 högga for- skot í hálfnaðri keppni liiisjafn og heldur slakur árar.gur í miklum vindi í gær LANDSMÓTINU í golfi var fram haldið á velli Golfklúbbs Reykja- vikur við Grafarholt í gaer. Voru þá leiknar 36 holur í meistara-, 1. og 2. flokki, en 12 holur í flokkj unglinga. Veður var held- ur óhagrstætt — allhvasst, svo kylfingum reyndist á stundum erfitt að halda langhögrgum sín- um á brautum vallarins, en tak- ist það ekki er hætt við að kylf- ingar lendi í urð og gjótum sem geta kostað þá mörg högg að losna frá. Voru slík ,rslys“ alltið í gær. SLAKURÁRANGUR Leiknir voru tveir 12 holu hringir í gær. Beztum árangri á slíkum hring náðu í gær þeir Ólafur Ágúst Ólafsson og Óttar Yngvason, léku 12 holur í 51 höggi. „Par“ á þessum 12 holum er 46. En þeir áttu misjafna hringi, ólafur fór hinn hringinn í 58 höggum og Óttar í 57. Jafnbeztum árangri náði Magn- ús Guðmundsson sem léJt 12 hol- ur fyrst á 52 höggum en síðan 55. STAÐAN Að hálfnaðri keppni hefur Mggnús Guðmundsson forystuna með 158 högg en næstir koma Óttar Ynvason 162, Gunnar Sól- nes Ak. 163, Hermann Ingimars- son Ak með 164, Jóhann Eyjólfs- son Rvík 165 og ólafur Ág ólafs- son Rvík 168. Til að sýna efsta mann er hér taifla yfir 12-holu hringina þrjá sem lokið er við nú. son Rvík. Hann fór hringina í gær á 56 og 58 höggum og tók forystu að keppninni hálfnaðri með 160 högg. Hafsteinn I>or- geirsson er hafði forystu eftir fyrsta dag er í 2. sæti með 171 högg, Hallgrímur Þorgrímsson Vestm. þriðji með 175 högg og Gunnar Þorleifsson Rvik 4. með 177 högg. Þykir sýnt að þarna verði mikil barátta um efsta sætið. Magnús Guðmundsson .......... Óttar Yn0 . ason............. Gunnar Sólnes ............. Hermann Ingimarsson.......... Jóhann Eyjólfsson ........... Ólafur Ág. Ólafsson ......... 1 gær kom fram athugasemd vegna dóms varðandi eitt högg Óttars Yngvarssonar og var ekki búið að fella úrskurð um hana. 1. FLOKKUR 1 1. flokki léku menn mjög misjafnlega en bezt Kári Elías- •MMMiHtiiiMMiiiiimiiiiiiMtinMiimmMiiiiiiiiiiiniHiiui Fyrsti Annnar dagur- Samtals dagur 1. 2. . 51 52 56 158 . 54 57 51 162 . 53 58 52 163 . 55 J>4 55 164 . 54 58 53 165 . 59 51 58 168 2. FLOKKUR í 2. flokki var í sérflokki í gær Páll Ásg. Tryggvason Rvík. Lék hann hringina á 65 og 60 högg- um og náði nú 10 högga forystu að keppni hálfnaðri, hefur 185 högg á 36 holur. Næstur kemur Geir Þórðarson Rvík með 195 högg, þá Júlíus Snorrason Vestm. (er hafði forystu eftir fyrsta dag- inn) með 197 og þórir Sæmunds- son Golfkl. Suðurnesja með sama höggafjölda 197. Unglingar Unglingaflokkurinn lék 12 holur í gær og hefur þá lokið 24 holum af 36. Hans Isebarn hefur náð þar öruggri forystu. Má reyndar segja að frammistaða hans í gær hafi verið það bezta á mótinu í gær. Hann lék 12 holur í 63 höggum — sem þykir mjög gott af unglingi. Hann hefur nú 122 högg (eftir 24 holur) Bræðurnir Björgvin Þorsteinsson og Viðar Þorsteinsson frá Akureyri koma næstir með 131 og 136 högg og 4. er Jónatan Ólafsson Rvík með 139. Keppni verður fram haldið I dag og leiknar 24 holur í meist- ara-, 1. og 2. fl. en unglingarnir eiga frídag. | „Viljum fú oð | ■ ■ sjn slóru Í stjörnurnur" i ■ ■ ■ ■ : BRjEZKA stjómin hyggst auka ■ j vemlega fjárveitingar til ; ! íþróttamála, eftir því sem I • Dennis Howell ráðherra sagði ; : á blaðamannafundi. Verður • ■ aukning fjárveitinga fyrst og ; ; fremst til þeirra aðila sem sjá S j um að annast „stór og mikil ; ; íþróttamót með þátttöku beztu i I manna heims“. ■ — „Við höfum hingað til : : fyrst og fremst veitt stuðning j ; brezkum íþróttaflokkum, sem : : farið hafa utan til keppni. En j j nú viljum við hjálpa aðilum : : heima fyrir til að stofna til j j stórmóta. Það er kominn tími ; : til að enska þjóðin fái að sjá j j bezta íþróttafólk heims „á ; ; neimavelli", og þetta mun án j j efa stuðla að því að auka getu ; : ensks íþróttafólks. j Þegar hefur verið veitt ; ; samkv. þessu rífleg fjárupp- i j næð til „Edinborgarleikanna" j ; svonefndu 1970 og við munum i ' heldur ekki skera fé við nögl ■ j ef enska frjálsíþróttasamband- : • inu tekst að fá heimild til að j j sjá um Evrópumót í frjálsum : ■ sem fyrst“, sagði ráðherrann. j „Ég finn ekki formið" — sagði íslandsmeistarinn í golfi KYLFINGAR er þátt taka í landsmótinu í golfi voru heldur svekktir margir hverjir í gær, og óánægðir með frammistöðu sína í keppninni. Urðu margir fyrir „óhöppum og slysum“ vegna vindstrekkings, sem þeim tókst illa að reikna út — og sigra. — Þetta er slök frammistaða, sagði Magnús Guðmundsson sem forystu hefur í keppninni. Vind- urinn er slæmur og ég finn held- ut ekki mitt eðlilega form. Ég bara vona að síðari helmingur keppninnar verði betri. 1 svipaðan streng tóku fleiri. En keppendur héldu þó „húm- ornum" og gerðu að gamni sínu. Einn sagði: Þetta er nú meiri leikurinn hjá manni. Ég held ég gefi nú bara áhöldin min og hætti. Allmargir fylgdust með keppn- jnni, enda var hún skemmtileg þrátt fyrir allt. Mdl höfðoð gegn Liston PIRMA eitt í London er tekur að sér að sjá um sýningar og keppn- ir í hnefaleikum víðsvegar um England hefur höfðað mál gegn Sonny Liston. Krefst enska firm- að 69.815 dollara í skaðabætur fyrir að Liston hefur ekki treyst sér eftir tapið í 1. lotu gegn Clay, að fara sýningarferð til Englands eins og rætt hafði verið um. Bandarískir lögfræðingar vinna nú að þvi að íá málið ógilt bæði vegna formsgalla á stefnu, og eins vegna þess að krafan þykir í hæsta máta ósanngjörn. Haukar og Breiöablik sigruðu í 2. deild Á miðvikudagskvöldið sl. fór fram leikur í annarri deild í Kópavogi. Þá léku Breiðablik og Víkingur. Breiðablik sigraði með 4:3. Þessi lið. eiga nú eftir einn leik hvort, við ísfirðinga. Ef öðru hvoru þeirra tekst að sigra ÍBÍ aukast líkurnar fyrir því að aukaleikur þurfi að skera úr um efsta sætið. í gærkvöldi léku í Hafnarfirði Haukar og Reynir frá Sandgerði. Veður var vont til knattspyrnu- keppni og bar leikurinn þess greinilega merki. Síðast þegar þessi lið léku í deildinni skildu þau jöfn, en nú sigruðu Haukar og voru vel að sigrinum komnir. Þeir voru mun ákveðnari eink- um er leið á leikinn. Þó er enn of mikið af dauðum köflum hjá þeim. Reynismenn börðust vel allan leikinn, en vantaði snerpu til að reka á endahnútinn. Leikur inn endaði 2:0 fyrir Hauka, en sanngjörn úrslit hefðu verið 2:1. Mjög var það bagalegt að línu- verðir komu ekki, svo fá varð pilta, sem ekki hafa dómara- réttindi sem línuverðir. Bæði lið samþykktu þetta, svo leikurinn gæti farið fram, og stóðu línu- verðirnir sig með mikilli prýðL — R. M. 2. deild NÆSTU leikir í annarri deild. Laugardag 17. júlí Melavöllur Þróttur — Siglufjörður. Laugar- dag 17. júlí Hafnarfjörður F.H, — Vestmannaeyjar. Laugardag 17. júií ísafirði Í.B.Í. — Breiða- blik. Von á góium myndum af Mars Sú fyrsta móttekin í gærkvöldi □---------------------------□ Sjá einnig grein á bls. 12. □---------------------------□ Pasadena, Kaliforníu, 15. júlí (AP-NTB) ALLT útlit er nú fyrir að bandaríska geimfarið ,,Marin- er 4“ sendi til jarðar 20 ljós- iHyndir af yfirborði reiki- stjörnunnar Mars." En um tíma í dag var óttazt að bilun hefði orðið á segulbandstækj- um geimfarsins, og að bilunin yrði þess valdandi, að aðeins bærust sex myndir af stjörn- unni. „Mariner 4“ var laust eftir hádegið í dag kominn um 200 þúsund kílómetra frá Mars og stefndi frá stjörnunni með rúmlega 16 þúsund kílómetra hraða á klukkustund. En myndirnar voru teknar í nótt, og komst geimfarið þá næst Mars í rúmlega níu þúsund kílómetra f jarlægð. Myndirnar sendir „Mariner 4“ til jarðar með sérstökum merkj um, sem ráðin eru á jörðu með »hjálp rafeindeheila. Tekur það 8Vz klukkustund að senda hverja mynd. Merkin, sem „Mariner 4“ sendir, eru tölum- ar 0 og 1. Hver sex stafa sam- stæða merkir einn pimkt í myndinni. Punktar þessir mynda svo línur í myndinni, og eru 200 punktar í hverri hnu og 200 lín ur í hverri mynd. Alls eru merk in fyrir hverja mvhc! 40 þúsund. Úr tölunum, sem sendar eru, ræður rafeindaheilinn lit. Þann- ig eru litirnir númeraðir frá núlli, sem er hvítt, upp í 63, sem er svart. Á milli eru mismun- andi gráir litir. Samkvæmt upp lýsingum sérfræðinga þýðir þannig sendingin 0,1,0,1,0,0, töl- una 20, sem er frekar ljósgrár punktur. Sérfræðingar þeir, sem for- ustu hafa haft í Bandaríkjunum varðandi þessa tilraun me3 „Mariner 4“, boðuðu í dag til fundar með fréttamönnum f Pasadena. Sögðu þeir að auk ljósmyndanna hefði geimfarið sent mjög markverðar upplýs- ingar til jarðar um aðstæður 1 geimnum-í nágrenni stjörnunn- ar. Þannig skýrði dr. James A. van Allen, sem Van Allen geisla beltin umhverfis jörðu eru kennd við, frá því að engin geislabelti hafi fundizt umhverf is Marz. Er þetta mjög þýðingar mikið varðandi hugsanlegar Marz-ferðir einhverntíma 1 framtíðinni. Einnig sagði van All en að svo til ekkert segulsvæði væri umhverfis Mars. Dr. William H. Pickering hef- ur haft yfirumsjón með tilraun- inni. Sagði hann fréttamönnum að merkjasendingar „Marinera 4“ væru mjög skýrar. Höfðu þá þegar borizt fyrstu 93 línurnar úr fyrstu myndinni, eða nær helmingur myndarinnar. Sagði Pickering að myndin kæmi mjög vel fram, og bjóst jafnvel við a3 unnt yrði að birta fyrstu mynd- ina í nótt eða fyrramálið. V Jeppaflokkurinn á Vestfjörðum ísafirði, 15. júlí. JEPPAFLOKKURINN er nú & ferðalagi um Vestfirði og sýnir gamanleikinn Jeppa á JTjalli eftir Holberg. Flokkurinn hefur a3 undanförnu sýnt á vestanverðu Norðurlandi, Snæfellsnesi og nú síðustu dagana á norðanverðum Vestfjörðum. Mjög mikil aðsókn hefur verið að þessum leiksýn- ingum og undirtektir frábærar. Hér á ísafirði voru tvær sýning- ar á leiknum fyrir troðfullu húsi bæði kvöldin. Jeppaflokkurinn sýnir næst á sunnanverðum Vest- fjörðum, en heldur síðan norður og austur um. — H. T.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.