Morgunblaðið - 21.07.1965, Qupperneq 5
Miðvikudagur 21. iúlí 1965
MORGUNBLAÐIÐ
rnmmmmm
FRÁ fornu fari hefur Grund
í Eyjafirði, verið eitt mesta
höfuðból landsins, enda leggja
margir ferðamenn leið sína
þangað til að sjá staðinn, og
skoða hina fallegu kirkju
sem þar er. Kirkja þessi var
reist á árunum 1904—1905, og
var engu til sparað að gera
hana sem veglegasta. En úr
turni Grundarkirkju, er gotc
um að litast um miðsveit Eyja
fjarðar, sem blasir þar við í
sjónhringnum. — Sta'ðarlegt
er á Grund, enda hafa þar
búið ríkilátir merkismenn, og
stórhöfðingjar og væri ekki
úr v'egi að staldra við skjáinn
á tjaldi fortíðarinnar, og rifja
upp lítillega gamlar sögu-sagn
ir, og skyggnast inn í móðu
horfinna alda. — Á Grund
voru eitt sinn heimaslóðir
Sigihvatar Sturlusonar og son
ar hans* I>órðar kakala, er
sátu þar. — Um miðja 14. öld
bjuggu á Grund, þau Grundar
Helga og Einar riddari Svein-
bjarnarson, og að ráðum
Helgu voru þeir Vegnir á
Grund Smiður Andrésson, hirð
stjóri, og Jón skráveifa Gutt-
ormsson, þegar þeir fóru um
Norðurland með óaldar-flokk
sinn, og er snildarleg skáld-
söguleg lýsing af þeim atburði
í sögu Jóns Trausta, sem heit-
ir: „Veizlan á Grund.“ — Um
Grundar-HeLgu hafa spunnizt
þjóðsagnir miklar, ein sagan
hermir, að þegar Helga tók
að eldast, þá lét hún hola inn
an hól, og skreyta hann mjög
að innan á ýmsan hátt. —
Hún lét búa þar til stofu
mikla og setja þar stól í, og
þegar hún andaðist var hún
sett í stólinn, eins og hún
hafði fyrirmælt, og var haug-
urinn síðan byrgður, og heitir
þar síðan Helgu-hóll, og er
hann rétt fyrir ofan túnið á
Grund, er hóll þessi talsvert
hár. — Þjóðsögnin segir að
Helga hafi láti’ð bera mikla
fjársjóði í hól þennan, því hún
var auðkona mikil, og segja
munnmæli að menn hafi vilj
að afla sér fjármuna með því
að grafa upp hólinn, en þegar
þeir fóru að róta til í hólnum,
þá sýndist þeim Grundar-
kirkja vera að brenna. —
Hættu þeir þá við upp-gröft-
inn, og hlupu til og vildu
slökkva eldinn, en þetta voru
þá eintómar missýningar,
bara til að aftra ræningjun-
um frá því að ásælast eignir
Grundar-Helgu, sem í hóln-
um voru fólgnar. — I. G.
ÞEKKIRÐU
LANDIÐ
ÞITT?
Bólstrum
stálhúsgögn
Tökum að okkur að gera við alls konar
stálhúsgögn.
Höfum gott iirval af áklæði.
Upplýsingar í síma 41982.
VISUKORN
Hlt er aff keppa í þá smán
— enginn hreppa gróði:
eignast leppað ævi lán
úr honum kreppusjóði.
Hjálmar Þorsteinsson á
Hofi í nýútkominni bók
sinni, RÖKKURSTUNDIR.
F RETTIR
Konur i Garðahreppi. Orlof hús-
mæðra v«rður að Laugum í Dala-
»ýslu, dagana 20. — 30. ágúst. Upp-
lýsingar í símum 51862 og 51991.
Frá Mæðrastyrksnefnd. Hvílda-rvika
Mæðrastyrksnefndar að Hlaðgerðar-
koti í Mosfellssveit verður 20. ágúst.
Umsókn sendist nefndinni sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar í síma 14349
daglega milli 2—4.
Kvenfélagasamband íslands: Skrif-
•tofan verður lokuð um tíma vegna
•umarleyfa og eru konur vinsamleg-
•st beðnar að snúa sér til formanns
Bambandsins, frú Helgu Magnúsdóttur
á Blikaetöðum, sími um Brúarland
með fyrirgreiðslu meðan á sumar-
Jeyfum stendur.
Kvennadeild Slysavarnarfélagsins i
Reykjavík fer í 8 daga skemmtiferð
*1. júlí. Alla/r upplýsingar í Verzlun-
inni Helma, Hatfnarstræti, sími 13491.
Aðgöngumiðar verða seldir félagskon-
um á föstudag geng framvísun skír-
teina.
Gjafabréf sundlaugarsjóðs Skála-
túnsheimilisims fást í Bókabúð Æsk-
unnar, Kirkjuhvoli, á skrifstofu Styrkt
•rfélags vangefinna, Skólavörðustíg
18 og hjá framkvæmdanefnd sjóðsins.
Konur Keflavík! Orlof húsmæðra
verður að Hlíðardalscskóla um miðjan
ágúst. Nánari upplýsingar veittar i
símum 2030; 2068 og 1695 kl. 7—8 e.h.
til 25. júlí. — Orlofsnefndin.
Borgarbókasafn Reykjavíkur
er lokað vegna sumarleyfa til
þriðjudagsins 3. ágúst.
Sumardvöl Rauða Krossins. Börn,
sem dveljast eiga 6 vikur, seinna
tímabil, í sumarbúðum Reykjavíkur-
deildar R.K.Í. fara frá bílastæðinu við
Sölvhólsgötu miðvikudaginn 21/7. að
Laugarási kl. 9 f.h., að Efri-Brú kl. 1
e.h. Foreldrar eru beðnir að mæta
stundvíslega með börnin.
kirkju af séra Jóni Thorarensen
ungfrú Margrét !>orsteinsdóttir
Fálkagötu 4 og Benedikt Bach-
man Grandaveg 4 (Studio Guð-
mundar).
Málshœttir
Það lagast í þófinu.
Það er hvorki heilt né hálft.
Það er ekki öll nótt úti enn.
(sagði drau.gurinn).
Það er nú regluleg hefndar-
gjöf.
GAHAIT og GOTT
DANSIN I HRUNA
1 Fögur eru hljóð í Hruna,
hirðar þangað bruna;
svo skal dansinn duna,
að drengir megi það muna.
i Enn er hún Una,
og enn er hún Una.
Munið
Skálholtssöfnunina
Munið Skálholtssöfnun. Gjöfum er
veitt móttaka í skrifstofu Skál-
holtssöfnunnar, Hafnarstræti 22. Sím-
ar 1-83-54 og 1-81-05.
Spakmœli dagsins
í ríki mínu getur sérhver orð-
ið sáluhólpinn á sinn hátt.
— Friðrik mikli tun trúfrelsi.
Smóvarningur
Stærsti hólminn í öxará helt-
ir KAGAHÓIiMI eða Hólmgöngu
hólmi. Hann er beint austur und
an Lögbergi og Lögréttu. í hólma
þessum voru háðar hólmgöngur
til forna. Síðast gengu þar á
hólm Skáld-Hrafn og Gunnlaug-
ur Ormstunga árið 1006. Lög-
rétta var um eitt skeið í hólman-
um, og fógetinn á Bessastöðum
bjó í hólmanum, meðan hann
sat á þingi.
Hœgra hornið
Það er umhugsunarvert, þegar
kona skýtur bónda sinn með
boga og örvum, svo að hún veki
ekki börnin.
PR0PA6ANDA,___
— MATEAIAL T* aC’ANÍÍ’ -
Maó við Breznev í Síam (Thailandi): Hvað, ert þú koxninn hi ngað líka? (Tarantel Press).
Skipafélag
— Hlutabréf
Til sölu eru hlutabréf í skipafélagi. —
Allt að 60%. — Seljast með hagkvæmum •
kjörum, löngum og góðum lánum. —
Tilboð, merkt: „Skip — 6332“ sendist afgr.
Morgunblaðsins.
HI jóðf æraleikarar
Áríðandi fundur í Félagi íslenzkra hljóm-
listarmanna í dag kl. 6 í Lindarbæ (uppi).
Fundarefni:
NÝIR KJARASAMNINGAR.
Stjórnin.
Atvinna
Óskum eftir að ráða eftirtalið starfsfólk:
1. Stúlku, ekki yngri en 18 ára til
afgreiðslu í ljósmyndaverzlun.
2. Konu, 20—30 ára til starfa á ljós-
myndavinnustofu.
Upplýsingar í skrifstofunni, Garðastræti
35, kl. 4—6 í dag.
Gevafótó hf.
Wiki buxur
Stretchbuxur á telpur. Ný gerð nr. 2—14.
R. Ó. Búðin
Skaftahlíð 28. — Sími 34925.
Glæsileg íbúð
á 2. hæð í tvílyftu húsi við Blönduhlíð til sölu. —
íbúðin er um 137 ferm. 4 herb., eldhús og bað. Sér
inngangur. Sér hitalögn, svalir. Allar innréttingar í
íbúðinni eru nýjar og er íbúðin sem ný að sjá.
Teppi fylgja. Góður bílskúr. Óinnréttuð rishæð
þar sem gera mætti 2ja til 3ja herb. íbúð, fylgir.
Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR
og GUNNARS M. GUÐMUNDSSONAR
Austurstræti 9 — Símar 21410 og 14400.