Morgunblaðið - 21.07.1965, Side 6
6
MORG U N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 21. júlí 1965
Um 130 hestar reyndir
og sýndir við Faxaborg
FJÓRÐUNGSMÓT hestamanna
er haldið var um síðustu helgi í
Faxaborg á Hvítárbökkum, fór
mjög vel fram og var þar mikill
manrifjöldi saman kominn. —
Reyndir voru og sýndir alls tæp
lega 130 hestar, en fyrst voru
sýndir alhliða gæðingar og klár
hestar með tölti. — Fyrstu verð-
laun alhliða gæðinga hlaut Nasi
Gísla Ragnarssonar í Fremri-
Hundadal í Dalasýslu; 2. Blesi
Magnúsar Ingimarssonar, Kjaiar
dal, Borgarfjarðarsýslu; 3. Jarp-
ur Magnúsar Guðbrandssonar,
Álftá. — Fyrstur klárhestanna
var Móri Skúla Kristjónssonar
á Svignaskarði 2. Dónald Sturlu
Jóhannessonar á Sturlu-Reykj-
um; 3. Feill Stefáns Eggertssonar
á Steðja. — Allir hlutu þessir
hestar „Silfurskeifu Faxa“ og
mynd tekin af hverjum með
knöpum þeim sem þá sátu 5
keppninnL
Fyrstu verðlaun kynbóta-
hrossa hlaut Baldur eign Hrossa
ræktarsambands Vesturlands. —
Honum fylgdu 10 afkvæmi tam-
in og dæmd. Tók Baldur nú í
annað sinn farandbikar þann,
sem um er keppt, en hann gáfu
fyrrum þingmenn Mýra- og Borg
arfjarðarsýslu þeir Pétur Otte-
sen og Bjarni heitinn Ásgeirsson.
Baldur er 12 vetra. I>á voru hryss
ur sýndar og tók þar fyrstu
verðlaun Sara Einars Gíslasonar
á Hesti. Hún hlaut einnig far-
andbikar, sem gefin er til keppn
innar af Kaupfélagi Borgnesinga.
Þá hófst skeiðkeppnin og var
sprettfærið 250 metrar. Enginn
hestanna náði tilskildum tíma
til 1. verðlauna, en beztum tíma
náði Hrollur Sigurðar Ólafsson
ar, Reykjavík, 25,2 og 3. verðlaun
hlaut Jarpur Magnúsar Guð-
brandssonar á Álftá.
f folahlaupi 250 m. varð fyrst
ur Ölvaldur Sigurðar Tómasson
ar í Sólheimatungu, 19,4 sek., 2.
Reykur Péturs Jónssonar á
Skeljabrekku 19,8 og 3. Hrímnir
Einar Karelssonar í BorgarnesL
20 sek.
Tími ölvalds er nýr mettími í
folahlaupi, en það hefur þó ekki
hlotið staðfestingu enn sem kom
ið er. — Gamla metið var 19,8
sek. og hljóp Reykur sprettfærið
á gamla mettímanum.
Á stökki, 300 m hlaupabraut
varð hlutskarpastur Áki Guð-
bjarts Pálssonar, Reykjavík,
23,1 sek. 2. Grettir Tómasar G.
Guðjónssonar 23,2 og 3. Gula
Gletta Erlings Sigurðssonar 23,8
sek.
Blesi Þorgeirs í Gufunesi varð
fyrstur á 350 m stökki á 26,2 sek.
2. Brana Guðmundar Ágústsson
ar Kirkjuskógi Dölum á 26,4. 3.
Tilberi Skúla í Svignaskarði á
26,7 sek.
í Innanfélagskeppni um Faxa-
skeifuna varð hhitskörpust Lísa
Ólafar Geirsdóttur á Hafþórs-
stöðum.
Ráðstefna um gialdeyris-
mál ,éhentug# fyrir Frakka
— franska sflarnin hafnar tillögu
Bandaríkjanna um alþjöðaráð-
stefnu um gjaldeyrismál
París, 19. júlí. — AP.
FRAKKAR hafa hafnað
tillögu Bandaríkjamanna
um alþjóðlega ráðstefnu til
að greiða fyrir alþjóða-
gjaldeyrisviðskiptum. —
Valery Giscard D’Estaing,
fjármálaráðherra frönsku
stjórnarinnar, sagði í frétta
tilkynningu í dag, að til-
laga bandarísku stjómar-
innar væri „óhentug" fyr
ir Frakkland.
Ráðherrann sagði, að
tvö skilyrði yrði að upp-
fylla, áður en hægt væri
að efna til slíkrar ráð-
stefnu:
• Fyrst yrði að endurbæta
núverandi gjaldeyrisviðskipta
kerfi.
• I öðru lagi yrði að komast
að samkomulagi um, hver
ættu að vera höfuðmarkmið
alþjóðaráðstefnu um þessi
mál.
Fjármálaráðherra Bandaríkj
anna, Henry H. Fowler, kom
fram með tillögu þá, sem hér
um ræðir, í ræðu á ráðstefnu
um gjaldeyrismál, 10. júlí.
Johnson, Bandaríkjaforseti,
hafði áður lýst áhuga sínum á
þessu máli, og samþykkt tillög
una fyrír sitt leyti.
Gert er ráð fyrir, að Fowler
haldi til flestra V-Evrópu-
landanna í september, og rtyni
að ná samkomulagi um ráð-
stefnu. Er hann kom fram
með tillögu sína, lagði hann
áherzlu á. að undanfari henn-
ar yrði að vera nákvæm at-
hugun, og „alþjóðlegar við-
ræður“.
1 tilkynningu sinni i dag,
sagði franski fjármálaráðherr-
ann m. a.: „Franska stjórnin
hefur um þriggja ára skeið
reynt að draga athygli að
þeim hættum, sem samfara
eru þeim venjum, sem nú
ráða um alþjóðagjaldeyrisvið-
skipti".
Hann kvað Frakka hafa
fylgzt með athygli með tillögu
Fowlers, en hinsvegar væri
fyrirhugað form ekki hentugt
fyrir Frakka".
• Um skilyrðin tvö sagði
hann m. a.: „Áður en hægt er
að koma á nýju, alþjóðlegu
gjaldeyrisviðskiptakerfi, þá er ,4
óhjákvæmilegt, að núverandi
kerfi sé endurbætt. Vissulega
hafa margar þjóðir, sem um
langt skeið hafa búið við óhag
stæðan greiðslujöfnuð, stigið
skref í rétta átt, en einhver
sönnun þess, að hér sé ekki
um stundarfyrirbrigðL verður
að fást, áður en lengra er
haldið. — Þá sagði Giscard,
að áður en efnt yrði til al-
þjóðaráðstefnu um þessi mál,
yrði að liggja fyrir ákveðið
samkomulag um endurbætur
sem gera ætti. Kvað hann þeg
ar liggja fyrir, á vegum Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, tillög-
ur. Þær væru hins vegar á
þann veg, að flestar þjóðir
virtust setja sér mismimandi
takmörk, og þar kæmi einnig
fram, að um grundvallar-
ágreining væri að ræða.
„Frakkland“ sagði Giscard,
„hefur oft lýst afstöðu sinni á
þessu sviði, en óskar eftir því,
að aðrar þjóðir geri slíkt hið
sama. Þá er hugsanlegt, að
einhver árangur náist“.
Frakkar hafa á undanförnu
ári leyst inn mikið af gulli
með dollaraforða sínum, og
látið að því liggja, að taka
beri upp á nýjan leik gamla
gullfótarkerfið.
Aðalfundur Verzlunarfél.
Vesf ur-Skaf f f e llinga
Frá fréttaritara Mbl.
í Vík í Mýrdal:
AÐALFUNDUR Verzlunarfélags
Vestur-Skaftfellinga var hald-
inn á Kirkjubæjarklaustri laug
ardaginn 12. júní 1965. Formað-
urinn, Eyjólfur Eyjólfsson setti
fundinn. Síðan flutti fram-
kvæmdastjóri félagsins, Hálfdán
Guðmundsson skýrslu um starf-
semi félagsins á árinu 1964, las
upp endiurskoðaða reikninga
þess og útskýrði þá. Kom þar í
ljós, að heildarvelta félagsins var
kr. 29.438.962,00 og hafði hún
aukizt um kr. 6,2 milljónir frá
árinu áður eða 27%. Tekjuaf-
gangur reyndist vera kr. 155.000,-
og samþykkti fundurinn í einu
hljóði að leggja hann í stofn-
sjóð félagsmanna, Einnig kom
það fram í skýrshi framkvæmda
stjórans, að á sL ári var slátur-
hús félagsins í Vík stækkað og
endurbætt. Þá gat framkvæmda-
stjóri þess í lok ræðu sinnar, að
fyrirhugað væri að hefja bygg-
ingu nýs verzlunarhúss í Vík á
þessu ári.
Að lokinni ræðu framkvæmda
stjórans fóru fram kosningar í
stjóm félagsins og voru þessir
endurkjörnir: Eyjólfur Eyjólfs-
son, hreppsjtóri á Hnausum,
Bjarni Bjarnason, hreppstjóri í
Hörgsdal og Siggeir Bjömsson,
hreppstjóri í Holti. Varamaður
var endurkjörinn Kristján Páls-
son bóndi í Skaftárdal. Endur-
skoðandi var endurkosinn Ari
Þorgilsson tímavörður í Vík og
varaendurskoðandi var einnig
endurkjörinn, Jón Valmundsson
húsasmíðameistari í Vík.
Á fundinum urðu miklar um-
ræður um félagsmál og ýms önn
ur mál og eftirfarandi tillögur
voru samþykktar einróma:
1. „Aðalfundur V.V.S. 1965
beinir þeirri ákveðnu áskorun
til hafnamefndar Dyrhólahafnar
að hún beiti sér eftir megni fyrir
að knýja fram jákvæðar aðgerðir
um framgang hafnarrannsókna
við Dyrhólaey".
2. „Aðalfundur V. V.S. 1965
þakkar Alþingi og ríkisstjórn
hækkun á flutningastyrk í Vest-
ur-Skaftafellssýslu. — Engu að
síður telur fundurinn nauðsyn-
legt að styrkur þessi verði enn
hækkaður, þar sem sýslubúar
verða að sæta svo mjög miklu
hærri flutningsgjöldum en axm-
ars staðar gerist í landinu, með
an ekkert raunhæft er gert í
hafnarmálum þeirra".
3. „Aðalfundur V. V. S. 1965
skorar á stjórn Áburðarverk-
smiðjunnar að beita sér fyrir því
að áburður verði seldur á sama
verði á verzlunarstað sýslunnar
í Vík í Mýrdal og hann er seldur
á höfnum úti um land“.
Þessi aðalfundur Verzlunarfé-
lagsins var mjög vel sóttur og
sátu hann um 60 félagsmenn.
Stjórn félagsins er nú svona
skipuð: Eyjólfur Eyjólfsson
Hnausum, formaður; Bjarni
Bjarnason, Hörgsdal, varaform.;
J Siggeir Björnsson, Holti; Árni
Jóhannesson, Gröf; Hannes Hjart
I arson, Herjólfsstöðum; Páll Páls
1 son, Litlu-Heiði og Ásgeir Páls-
son, Framnesi. Endurskoðendur
eru Ari Þorgilsson í Vik og séra
Páll Pálsson í Vík. Framkvæmda
stjóri er Háldán Guðmundsson i
' Vík.
• Ófullgerða
hljómkviðan
Þórunn Xngvarsdóttir á Vífils
götu sendir Velvakanda þessa
pistla urn fuglalífið:
„í vikunni sem leið var ég að
lesa í greinum Velvakanda. Og
efnið fjallaði um það, hvað
fuglalífið væri orðið litið í görð
um borgarinnar. A'ð sjál'fsögðu
var köttunum kennt um það,
sem ekki er ólíklegt, að sé rétt
mætt. Þegar kettir eru heimilis
lausir, þá vitanlega reyna þeir
að bjarga sér, eins og bezt geng
ur. En frá mínum bæjardyrum
séð, þá eru fleiri en kettirnir
þar áð verki. Ég hef séð mínum
eigin augum, að strákar eiga
sinn drjúga þátt í því, hvað
þetta snertir. Eitt sinn leigði eg
í kjallara í húsi, og glugginn
minn sneri inn í garðinn. Þar
voru há og gróðursæl tré út
við girðinguna. Eitt vorið tek
ög eftir því, að það koma marg
ir fuglar og setjast á tré í næsta
garði. Þetta voru bæði músar
rindlar og þrestir. Allt í einu
heyri eg svo undursamlegan
klið, — hvað raddirnar voru
mjúkar og hljóðlátar, en þó
seiðandi um leið. Það var unaðs
legt áð hlusta á þetta. Mér
fannst þetta yndisleg hljóm-
kviða. Ætti ég mér ósk, þá vildi
eg fá að deyja við svona klið.
En þetta endaði verr en það
byrjaði, því að allt í einu snögg
hætti þessi yndislegi kliður.
Þarna vóru strákar og tvær til
þrjár telpur í sama garðL sem
fuglarnir vóru L Eg vissi, að
nú hafði eitthvað skeð. Eg gekk
hljóð og hugsi inn til mán; þessi
dagur fannst mér dapur. Jæja,
næsta dag fann eg litlu telpurn
ar og spyr þær, hvort strákarn-
ir hafi veitt fuglana í net. Já,
þær sögðu, að þeir hefðu veitt
marga, marga fugla. „Þeir
drápu þá hér um bil alla“,
sögðu þær. Eg þekkti ekkert af
þessum börnum, en eg kannað-
ist við einn af strákunum bara
í sjón.
En litla hljómkviðan fannst
mér ófullgerð og hljómsveitin
horfin."
• Stráksláninn
og fuglsunginn
„Það var í júlimánuði. Þá
byggði þröstur sér hreiður í
tré í garðinum við húsið, sem
eg var í. Þegar ungarnir vóru
orðnir það stórir, að þeir gátu
flögrað um, fóru þeir að fljúga
um í hreiðrinu og við það. Ednn
morguninn situr einn unginn á
garðinum og er að tista. Kem-
ur þá ekki stæiðar-stréksláni
og fer að eltast við ungann, en
hann var ekki orðinn svo vel
fleygur, að hann næði sér nógu
hátt upp, því að stélið var
ekki fullvaxið. Strákur gerir
sér hægt um vik, klæðir sig úr
úlpunni og fleygir henni yfir
ungann. Þess vegna náði hann
unganum. Eg kalla í strákinn
og spyr hann, hvað hann ætli
að gera vi’ð ungann. Hann setti
upp sakleysisgrímu og sagði, að
unginn hefði svo lítið stél. Eg
spurði hann, hvort hann ætl-
aði að lengja á honum stélið;
en með það fór hann og hafði
ungann í annarri hendjnni.
Það var dökkt í kringum
þennan dreng, meðan eg sá til
hans“.
Fleiri pistlar frá Þórunni
feoma á morgun.
Nýtt símanúmer:
38820
BRÆÐURNIR ORMSSON h.f.
Vesturgötu 3. — Lágmúla 9.