Morgunblaðið - 21.07.1965, Síða 11
Miðvikudagur 21. júlí 1965
MORCUNBLAÐIÐ
11
Sigríður Árnadóttir,
skriftarkennari — Minning
Eveðjn iiá Verzlunaiskóla ís’.ands
FRK. SIGRÍÐUR Árnadóttir,
skriftarkennari, átti lengstan
samfelldan starfsferil allra kenn
ara við Verzlunarskóla íslands.
Hún hóf þar skriftarkennslu
árið 1909 og kenndi síðan óslitið
í 40 ár við Verzlunarskólann.
Þeir voru þvi orðnir ærið marg
ir verzlunarmennirnir, sem not-
ið höfðu tilsagnar hennar í
skrift. Er þeim, sem þessar lín-
ur ritar, minnisstætt, að þegar
ekólanefndin hélt henni samsæti
og sæmdi hana fögrum minja-
grip fyrir langt og gott starf, þá
komst einn skólanefndarmaður-
inn, gamall nemandi frk. Sigríð-
«r, svo að orði, að aldrei yrði
sér hugsað til Verzlunarskólans,
svo að hann minntist ekki frk.
Sigríar Árnadóttur. Hún væri í
eínum huga e.k. einkenni eða
tákn fyrir langt tímabil í sögu
ekólans, að sínu leyti eins og t d.
Viktoría drottning hefði verið á
einni öld í sínu mikla Bretaveidi,
l>ó að annars væri ólíku saman
eð jafna.
Hvorugt leyndi sér, að frk.
Sigríður var bæði af góðu bergi
brotin og hafði hlotið gott upp-
eldi. Hin látlausa fágun og hóg-
værð hinnar sannmenntuðu
konu voru aðall hennar og prýði.
bessi kjölfesta brást henni
aldrei, þó að oft reyndi á þolin-
mæðina. Það liggur í augum
uppi, að 40 ára skriftarkennsla
i framhaldsskóla, þar sem megn-
ið af nemendunum þóttist ekkert
eiga ólært í þeirri grein, hefur
ekki verið neinn dans á rósum.
En hér reyndist svo sem oftar,
að göfugmennskan er vænleg-
ust til sigurs, hvort sem það
er nú í skólastofunni eða á öðr-
um vettvangi. Munu hinir mörgu
nemendur frk. Sigríðar nú und-
antekningalaust minnast hennar
með virðingu og innilegri þökk
fyrir frábæra alúð og óviðjafn-
anlega þolinmæði í starfi.
Frk. Sigríður Árnadóttir var
fædd að Sauðá við Sauðárkrok
3. júní 1881. Voru foreldrar
hennar þau Árni héraðslæknir
Jónsson og kona hans, Sigríður
Jóhannesdóttir. Áþriðja árinu
fór hún í fóstur til Jóns rekrors
Þorkelssonar og konu hans, Sig-
ríðar Jónsdóttur að Víðimýri
Jónssonar, sem var aíasystir
hennar.
Á sinni tíð var heimili þeirra
rektorshjóna eitt allra helzta
menningarheimili bæjarins. Hús
bóndinn var orðlagður lærdóms-
og mannkostamaður, en hús-
freyja hinn mesti skörungur og
rausnarkona. Voru þau hjón hin-
ar mestu hollvættir ýmsum efni
legum, en fátækum skólasvein-
um. Naut frk. Sigríður snemma
hjá þeim tilsagnar, sumum,
t.a.m. hjá Bjarna Jónssyni frá
Vogi. I uppvextinum naut hún
einnig kennslu hjá Thomsens-
systrum, bæði í bóklegum grein-
um og hannyrðum. Thomsens-
systur, Kristjana og María,
bjuggu í litlu húsi við Grjóta-
götuna. Kristjana Thomsen, sem
talin var prýðilega að sér í
ensku og dönsku, kenndi bók-
legar greinir, og mest á dönsku.
En María, systir hennar, var
mikil hannyrðakoma og sagði til
í kvenlegum listum.
Árið 1908 sigldi frk. Sigríður
til náms í Statens Lærer H0j-
skole í Kaupmannahöfn, aðal-
lega í landafræði. Jafnframt
sótti hún námskeið í skrift. Var
þetta nám raunar miðað við
kennarastörf við Kvennaskól-
ann. En eftir heimkomuna fékk
Jón Ólafsson, skáld og ritstjóri,
sem þá var ritari í skólanefnd
Verzlunarskólans, og síðar for-
maður, frk. Sigríði til að taka að
sér jíkriftarkennslu við skólann.
Þar með var hafinn hinn langi
og farsæli starfsferill frk. Sigríð
ar við skólann.
Allir samstarfsmenn frk. Sig-
ríðar munu ljúka upp einum
munni um það, að grandvarari
Vegleg gjöf fil
SVFÍ og Hrafnistu
TJM þessar fundir er staddur hér
é iandi Ólafur Albertsson kaup-
maður í Kaupmannahöfn, en
hann hefur dvalist þar í 35 ár.
Óiafur er mikill áhugamaður um
eiysavárnir og er í stjórn slysa-
varnardeildarinnar Gefjunar í
Höfn, en hún er deild í Slysa-
varnarfélagi íslands.
Slysavarnarfélag fslands kvaddi
blaðamenn á sinn fund í sam-
bandi við komu Ólafs og konu
hans, en þau komu með tvær
íorláta Börgundarhólmsklukkur
og færðu SVFÍ og Hrafnistu.
Klukka sú er SVFÍ fékk er ensk
•— einstæður dýrgripur og segja
kunnáttumenn að engin önnur
6ambærileg sé til á íslandi.
Klukkan er 200 ára og hefur inn
byggt orgel í stað slagverks. —
(Klukka sú, er Dvalarheimilið
fékk er frönsk, dýrgripur mik-
ill, 175 ára. Forráðamenn SVFÍ
kváðust vílja þakka Ólafi
Albertssyni gott starf og þrótt-
mikið meðal íslendinga og ann-
ara, er áhuga hefðu á starfi
SVFÍ í Kaupmannahöfn.
Þá skýrði Ólafur Albertsson
nokkuð frá slysavarnardeildinni
Gefjunni, en eins og fyrr er
sagt er hún deild í SVFÍ. Deild-
in var stofnuð í janúar 1953 af
Matthíasi Þórðarsyni frá Móum
og Jóni Helgasyni stórkaup-
xnanni. Seinna bættust svo í hóp
inn Agnar Tryggvason og séra
Finnur Tulinius. Lengst af hafa
etarfað i stjórn deildarinnar
þeir séra Finnur Tulinius og Ól-
efur Albertsson, en Jón Helga-
son óskaði þess nýlega að hætta,
þar eð hann var farinn að
heilsu. Núverandi stjórn skipa
eéra Finnur Tulinius, séra Jónas
Gislason, Pétur M. Jónsson, Þor
björn Petersen og Ólafur Al-
bertsson.
Markmið deildarinnar er að
veita SVFÍ allan þann styrk, sem
henni er unnt. Hefur hún geng-
ist fyrir söfnunum með íslend-
ingum í Danmörku og reynt að
vekja áhuga fólks á þeirri starf-
semi, sem SVFÍ vinnur að. Frá
upphafi munu hafa safnazt á
Vegum deildarinnar um 200 þús.
krónur og þar af befur SVFÍ
fengið um 140 þús. kr. Ólafur
kvaðst vilja taka það fram að
SVFÍ hefði leyft deildinni að
halda eftir % hluta brúttótekna
deildarinnar og sé það sjóður
hennar. Leysist deildin hins veg
ar upp, sem Ólafur kvaðst vona.
að aldrei yrði, myndi þetta fé
renna til SVFÍ.
Að endingu bað SVFÍ Mbl. að
taka fram, að félagið hefur i
nýlega reist þrjú ný skipbrots-
mannaskýli á Ströndum og nýtt
væri á döfinni í Surtsey, þar sem
reist myndi skýli í félagi við
Surtseyjarfélagið og Björgunar
félag Vestmannaeyja.
Dagsbrún tekur afstöðu
tíl hafnarvinnu unglinga
AÐ GEFNU tilefni vill Verka-
mannafélagið Dagsbrún minna á,
að slysafjöldi við Reykjavíkur-
höfn hefur verið ískyggilega
mikill á undanförnum árum, og
hvergi á vinnusvæði félagsins
hafa verið jafn alvarleg og tíð
slys og í skipavinnunni.
Að undanförnu hafa óeðliæga
margir unglingar verið í þeirri
vinnu. Stjórn Dagsbrúnar telur.
að af þessum ástæðum skapxst
slíkt hættuástand, að ekki verði \
við unað Stjórnin vill því alvar-
lega benda foreldrum á þá
hættu, sem börn eru í við skipa-
vinnu við Reykjavíkurhöfn og
vara við að senda unglinga,
yngri en 15 ára, í slíka vinnu.
Jafnframt beinir félagið þess-
ari aðvörun til atvinnurekenda
við Reykjavikurhöfn, að verði
ekki gagnger breyting á, má bú-
ast við, að öllum Dagsbiúnar-
mönnum veiði bannað að vinna
með unglingum, yngri en 16 ára,
í skipavinnu.
Aðvörun þessi er' birt í sam-
ráði við Öryggiseftirlit ríkisins.
20 júlí 1965
Fréttatilkynning frá
Verkamannafélaginu Dagsbrún
FERÐIR
í VIKU
BEINALEIÐ
TIL^
L0ND0N
FLUCFE.LAG
og vammlausari samkennara
geti vart. Aldrei náði þreyta eða
amstur að bregða skugga á
framkomu hennar. Alltaf var
hún jafnalúðleg á kennarastof-
unni í frítímum, alltaf jafnþægi-
lega ræðin og gamansöm. En
kímni hennar var mild og
græskulaus. Allir söknuðu frk.
Sigríðar, þe'gar hún lét af starfi
og hætti að spjalla við okkur
á kennarastofunni.
Nú, að leiðarlokum, fylgja frk.
Sigríði Árnadóttur, á hennar
hinztu för, alúðarþakkir skóla-
stjóra, samkennara, nemenda og
skóláns alls, fyrir hennar langa
og merka kennslustarf, fyrir
mannkosti hennar og göfugt
hjarta.
Jón Gíslason.
Sölufólk — Aukavinna
Bandarískt útgáfufyrirtæki óskar að ráða sölufólk
í aukavinnu sem fyrst. — Góð sölulaun.
Fullkomin tilsögn veitt þeim, sem uppfylla nauð-
synleg skilyrði. — Lysthafendur vinsamlegast
leggi nöfn sín og símanúmer inn á afgr. Mbl.
fyrir 25. júlí nk., merkt: „Aukavinna — 7533“.
Húnaflug
Blönduósi
Afgreiðslumaður Húnaflugs á Blönduósi er
Sverrir Kristófersson, kaupmaður, sími 53.
Blönduósi.
Afgreiðsla okkar í Reykjavík er hjá Flugsýn h.f.,
Reykjavíkurflugvelli, símar 18823 og 18410.
Kaupmenn — pantið
— Pókus
blómaáburðinn í síma 12505.
Litli ferðaklúbburinn
Verzlunarmannahelgin — Þórsmörk
Ferðir föstudagskvöld kl. 20 og laúgardag kl. 14.
Aðgöngumiðar seldir að Frikirkjuvegi 11, fimmtu-
dagskvöld 22. júlí og föstudagskvöld 23. júlí, mánu
dagskvöld 26. júlí og þriðjudagskvöld 27. júlí. —
Alla dagana frá kl. 20—22.
Upplýsingar í sima 15937 frá kl. 14—20.
Trvggið ykkur miða í tíma.
Litli ferðaklúbburinn.
DAIMMORK — RUMENiA
29. iúlí til 19. ágúst.
Fararstjóri: Gestur Þorgrimsson.
22 daga ferð.
Dvalið í 6 daga í Kaupmannahöfn og 14
daga á Mamaia baðströndinni. — Ferðir
til Istanhul, Odessa og innan lands gegn
aukagreiðslu.
5 sæti laus. — Þátttaka tilkynnist
fyrir annað kvöld.
Ferðaskrifstofan
LANO SYN 1-
Skólavörðustíg 16. — Simi 22890.