Morgunblaðið - 21.07.1965, Page 24
IMiMgtittltfftfeför
162. tbl. — Miðvikudagur 21. júlí 1965.
Helmingi útbreiddara
en nokkuit annaö
íslenzkt blað
Árekstrar og tvær bíl-
veltur í Borgarfirði
K. B. Andersen, kennslumála ráðherra Danmerkur og Gylfi Þ.
Gísla.son, menntamálaráðherra, ásamt konum þeirra á Heykja-
víkurflugvelli í gærkvöldi.
(Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
Hefi ekki áhyggjur
af málalokum
— segir K. B. Andersen kennslumála-
rábherra Dana, sem nú er sfaddur hér
MEÐAL farþega frá Kaup-
mannahöfn með Gullfaxa FÍ
í gærkvöldi var K.B. Ander-
sen, kennslumálaráðherra Dan
merkur, og kona hans, en ráð-
herrann er liingað komintn til
að vera viðstaddur Norræna
skólamótið, sem hér verður
sett á fimmtudagsmorgun. —
Gylfi Þ.Gíslason, menntamála
ráðherra og frú, tóku á móti
dönsku ráðherrah jónunum á
Keykjavíkurflugvelli.
Fréttamaður Mbl. náði sem
snöggvast tali af K.B. Ander-
sen í gærkvöldi, en á ráðu-
neyti hans hefur hvað mestur
eldur brunnið í Danmörku
vegna handritamálsins, svo
sem kunnugt er.
Hann kvað ekki annað um
handritamálið að segja nú,
en að afhendingarfrumvarpið
hefði sem betur fór verið sam
þykkt með yfirgnæfandi meiri
hluta atkvæða í danska þing-
inu. Nú yrði að bíða
átekta og sjá hversu lykt-
aði málaferlum þeim, sem
Árnasafnsnefnd stæði í við
ráðuneytið. Hinsvegar hefði
samningurinn um afhending-
una verið undirritaður af
kennslumálaráðherra Dan-
merkur og sendiherra íslands
í Kaupmannahöfn, eins og
kunnugt væri, og jafnskjótt
og málaferlum væri lokið,
mundi afhending hefjast. Var
ekki að heyra á ráðherranum
að hann væri í miklum vafa
um niðurstöður dómstólanna,
og er hann var sérstaklega um
það atriði spurður,sagði hann:
„Það er að sjálfsögðu ekki
hægt að segja með fullri vissu
til um niðurstöður dómstól-
anna. Men jeg er ikkenervös."
Dönsku ráðherrahjónin halda
•utan á mánudag.
Fréttin uppspuni einn
— segir Halldór Laxness
EINS og sagt var í frétt á for-
síðu Mbl. í gær, skýrði dagblaðið
„Land og folk“, málgagn komm-
únista í Danmörku svo frá sl.
sunnudag, að unnið sé að því á
íslandi að undirbúa framboð
Halldórs Laxness við næstu
forsetakosningar á íslandi. Morg-
únblaðið átti í gær samtal við
Halldór og kvaðst hann engan
grun hafa um það, hvaðan blaðið
hafi heimildir sínar enda væri
þettá uppspuni einn.
„Fregnin er algerlega úr lausu
lofti gripin“, sagði Halldór Lax-
ness.“ Ég hef aldrei' heyrt á
þetta minnzt og því síður dottið
slikt framboð í hug. Hvernig
stendur á slíkri fregn í blaði í
framandi landi er mér alveg
óskiljanlegt. Þetta er kjafta-
gangur, sem hvorki kemur mér
við né hef ég neinn áhuga á hon-
um. Það hringdi til mín stúlka
frá danska blaðinu Information
í gærkyöldi og tók að spyrja mig
um þetta mál. Ég sagði henni. að
hún væri nær uppsprettu frétt-
arinnar en ég, enda hefði ég
ekkert samband við þetta blað,
„Land og folk.“
itaiiaor amess.
í Borgarfirði og tvær bilveltur.
Á föstudagskvöld valt VW-bif-
reið út af veginum við Skarðs-
læk. Við Síkisbrýr varð árekstur,
og harður árekstur varð í Galtar-
holtstungu skammt frá Galtar-
holti. Þar rákust saman vörubill
úr Borgarnesi og stór vöruflutn-
ingabíll frá Akureyri og urðu
töluverðar skemmdir á Akureyr-
arbilnum, þar sem pallhorn vöru
bilsins reif aftan af húsi vöru-
flutningabílsins.
Á sunnudagskvöld. varð árekst
ur á svonefndu Hvammsleiti í
Norðurárdal, þar sem mjög oft
hafa orðið slæmir árekstrar áður.
Rétt fyrir hádegi í dag valt
bíll skammt frá Bifröst í Borg-
arfirði. Var það Cortina-bíll og
skemmdist talsvert.
Mikil umferð var í héraðinu
um helgina, þar sem fjórðungs-
mót hestamanna var haldið 1
Faxaiborg. — H.
í höfuðið
BORGARNESI, 20. júlí — Frá
því á föstudagskvöld og þar til
í dag haía orðið þrír árekstrar
Fékk vírstroffu
Þoka á
uiiðuuuui
Landa sildinni í Reykjavík
vegna verkfalls ■ Vestmannaeyjum
í SKÝRSLU Fiskifélágsins um
sildveiðarnar á mánudag og að-
faranótt þriðjudags segir, að veð-
ur hafi verið gott á miðunum,
en svartaþoka. Skipin voru eink-
um að veiðum nyrzt á Gerpis-
flaki og sunnan til í Norðfjarðar-
dýpi, 40—50 mílur frá landi. Alls
tilkynntu 32 skip um afla, sam-
tals 14.970 mál og tunnur. Mestan
afla höfðu: Bjartur NK 1400 mál
og tunnur, Ögri RE 920 mál og
tunnur, Jón Kjartansson 800 mál
og Óskar Halldórsson RE 800
mál.
Lítil veiði var í gærdag.
TOLF síldarbátar, sem stund-
að hafa veiðar fyrir sunnan
land, komu til Reykjavíkur í
gær með afla sinn til löndun-
ar, þar eð síldarverksmiðjur
í Vestmannaeyjum taka ekki
á móti síld vegna vinnudeil-
unnar, sem þar stendur yfir.
Síldin, sem bátarnir komu
með, er sumargotsíld. Togara
afgreiðslan sá um löndun úr
bátunum,. sem lögðust við
Faxagarð og Ingólfsgarð. Eftir
talin skip komu með síld til
Reykjavíkur í gær: Engey
með 1400 mál, Gulltoppur
1100, Mars 1100, Huginn II
1400, Kópur 200, Stapaf°U
1300, Ágústa 1200, Sigurður
1100, Ásgeir 700, Gullborg
1100 og ísleifur boðaði komu
sína með 2000 mál. Þá kom
hingað einnig Ófeigur III, en
ekki var vitað nákvæmlega
um aflamagn hans. Síldin fer
til bræðslu í fiskimjölsverk-
smiðjuna á Kletti, en tveir bát
ar lönduðu til Faxaverksmiðj
unnar.
í GÆRKVÖLDI kl. 21.18, var
sjúkrabifreið kvödd að mb. And-
vara við Grandagarð, en þar
hafði einn skipverja fengið vír-
stroffu í höfuðið og skaddazt í
andliti. Skipverjinn, Sigurjón
Gíslason, var fluttur í Slysavarð
stofuna. Meiðsli hans voru ekki
fullkunn.
Síldinni Iandað úr Gulltoppi.
(Ljósm. Mbl. Ól.K.M.)
Stal 10-15 þús. á Flúðum
LÖGREGLAN í Vestmannaeyjum
hefur í gæzluvarðhaldi tvítugan
pilt, sem viðurkennt hefur að
hafa stolið 10—15 þús. krónum
í félagsheimilinu að Flúðum að-
faranótt sl. sunnudags. Var pilt
urinn handtekinn í gærmorgun,
er hann var grunaður um að
hafa stolið peningum af sofandi
manni um borð í Herjólfi í Vest
mannaeyjahöfn. — Viðurkenndi
hann þjófnaðina og er grunaður
um fleiri afbrot.
í gærmorgun var kært til lög-
reglunnar í Vestmannaeyjum
vegna þjófnaðar, sem framinn
var um borð í Herjólfi í íyrri-
nótt. Hafði 7—800 krónum verið
stolið frá sofandi manni. Tók
lögreglan í gæzlu sína tvítugan
pilt, er grunaður var um að hafa
stolið peningunum. Viðurkenndi
hann stuldinn.
Við nánari yfirheyrzlu kom og
í ljós, að piltur þessi hafði að-
faranótt sunnudags stolið 10—15
þús. krónum í félagsheimilinu að
Flúðum í Hrunamannahreppi.
Hafði hann komizt inn í her-
bergi í félagsheimilinu, þar sem
tekjur af veitingasölu á dans-
leik, sem haldinn var um kvöld-
ið, voru geymdar.
Er menn söknuðu fjárins var
pilturinn á leið til Reykjavíkur
eða kominn'þangað, en lögreglan
á Selfossi tilkynnti Vestmanna-
eyjalögreglunni um þjófnað þenn
an og jafnframt, að umræddur
piltur lægi undir grun. Við yfir-
heyrslu í Vestmannaeyjum viður
kenndi hann þennan þjófnað
einnig, en peningunum hafði
hann öllum sóað hér í Reykja-
vík.
Pilturinn er grunaður um enn
fleiri afbrot og er mál hans i
rannsókn. Hann er skipverji á
báti, sem leggur upp í Eyjum, ea
er ekki búsettur þar.