Morgunblaðið - 04.08.1965, Síða 2
2
MOnr.ttuo i aqid
Miðvikuctagur 4. ágúst 1965
Betri horfur á síld-
veiði fyrir austan
VONIR manna um aS síldin hafi
ekki alveg- yfirgefið okkur fyrir
austan hafa nú glæðzt á ný. Svo
er að sjá, sem síldin sé nú að
ganga saman í þéttari torfur og
hefur varðskipið Ægir fundið
margar góðar torfur um 240 míl-
ur úti í hafi. i gær morgun höfðu
nokkur skip fengið afla þar. Sig-
urborg fékk 1300 mál og Dagfari
fullfermi, 1000 til 1800 mál. í gær
kveldi var ágætt veður á mið-
unum fyrir austan og bátarnir
farnir að kasta. Búðaklettur
hafði fengið ágæta veiði, en ekki
var vitað hversu mikla.
Blaðið sknaði í gær til Jakobs
Jakobssonar fiskifræðings, þar
sem hann var staddur um borð í
Ægi 240 sjómílur ANA af Banga
nesi, og spurði um veiðihorfum
ar. Hlustunarskilyrði voru ágæt
og heyrðist greinilega í síldarleit
artækinu.
— Við eruim með bráðfallega
torfu á tækinu núna, sagði Jakob.
Við fundum hana í um það bil
2000 metra fjarlægð. Horfurnar
héma fyrir austan em nú að
batna. í sumar höfum við fundið
mikla síld öðm hverju, en hún
hefur bara verið mjög dreifð.
Allar líkur benda nú til, að hún
sé að ganga saman í stærri og
þéttari torfur.
Mörg skip em að veiðum 120
til 240 mílur austur af Langanesi.
Síldin, sem veiðzt hefur, er all
misjöfn, þetta frá 25 til 35 cm
löng, meðallengd 31-32 om. í dag
hefur engin veiði verið, því að
síldin hefur staðið djúpt.
Síldarleitarskipið Pébur Thor-
steinsson er nú á leið út og mun
leita á svæðinu fyrir Austfjörð
um fyrir sunnan okfcur. Hafþór
hefur verið að leita fyrir Norður
landi og í dag fann bann mikla
loðnutorfur undan Stranda
gnuoni.
— Hvers konar síld er það,
sem þeir veiða við Hrollaugseyj
ar?
— Það er mjög ung Islands-
síld, si'ld, sem við einir nýtium
Ég hef oft áður bent á, að sá
síldarstofn er ekki stór og við
verðum bana að gena upp við okk
ur það fjárhagslega atriði, hvort
við viljum heldur veiða hana til
bræðsiu yfir sumartímann eða
bíða þar til á haustin og vetuma
og frysta hana þá. Við verðum að
gera okkur ljóst, að hvort
tveggja getum við ekki gert, það
er ekki hægt bæði að halda og
sleppa. Annars er aðalorsök fjrrir
smásíldarveiðunum fyrir sunnan
neyðarástandið, sem ríkt hefur á
miðunum hér fyrir austan og
norðan í allt sumar. Um leið og
þetta lagast hér, hætta bátamir
að veiða fyrir sunnan.
Frá því kl. 7 á laugardagsmorg
un þar til kl. 7 í gærmorgun til-
kynnbu 88 skip um afLa, alls
78.410 mál og tunnur. Þessir bát-
ar femg'u meira en 1000 mál:
Gultver NS 1400, Bjarmi EA
1000, Ólafur Sigurð=scn AK 1200,
Heimir SU 1200, Búðaklettur GK
1100, Pétur Sigurðsson RE 1100,
Þorbjöm II GK 1100, Arnar RE
2000, Kristján Valgeir CK 1000,
Krossanes SU 1500, Guðbjörg
GK 2200, Bergur VE 1600, Kap
II VE 1100, Hölmngur II AK
2100, Halkion VE 2800, Ingvar
Guðjónsson SK 2200, Súlan EA
1400, Sigurpáll GK 2200, Jörund-
ur II RE 2200, Bára SU 1000,
Sigurður Jónsson SU 1000, Haf
rún IS 1500, Ól. Magnússon EA
1500, Fagriklettur GK 1400, Lóm
ur KE 1300, Sunmutindur SU
1000, Sigurvon RE 1000, Rifsn.es
RE 1000, Gullfaxi NK 1000, Ás-
þór RE 2000, Guðbj. Krisfján
1200, Barði NK 1100 og Garðar
1400.
Dregið í happ-
drætti DAS
í GÆR var dregið í 4. flokki
Happdrættis DAS um 200 vinn-
inga og féllu vinningar þannig:
íbúð eftir eigin vali, kr. 500.-
000.00, kom á nr. 19826.
Bifreið eftir eigin vali, krónur
200.000.00, kom á nr. 6891.
Bifreið eftir eigin vali, krónur
150.000.00, kom á nr; 15105.
Bifreið eftir eigin vali, krónur
130.000.00, kom á nr.35750.
Bifreið eftir eigin vali, krónur
130.000.00, kom á nr. 64754.
Húsbúnaður eftir eigin vali fyr
ir kr. 25.000.00 kom á nr. 15685.
Húsbúnaður eftir eigin vali fyr
ir kr. 20.000.00 kom á nr. 54299
og 58796.
Húsbúnaður eftir eigin vali fyr
ir kr. 15.000.00 kom á nr. 25771
39120 og 54925.
Eftirtalin númer hlutu húsbún-
að fyrir kr. 10.000.00 hvert: 2457
10899 11472 14217 20553 32690
41772 44585 60439 og 60746.
(Birt án ábyrgðar).
Frost í Mývatns
sveit í s.l, viku
Mývatnssveit, 3. ágúst.
HEYSKAPURINN hefur yfirleitt
gengið mjög vel og var gras
spretta víða ágæt. Þar sem fyrst
var slegið lítur mjög vel út með
háarsprettu. í síðustu viku gekk
í norðanátt og kólnaði mjög í
veðri. Gerði næturfrost og
skemmdi kartöflugrös í sumum
görðum, en í öðrum er grasið ó-
skemmt. Norðanáttinni' fylgdi
töluverð úrkoma, snjór til fjalla
og jafnvel gránaði hér niður und-
ir byggð. En eru hæstu fjöll hér
með hvíta kolla.
Umferð á vegum hér um verzl-
unarmannahelgina var ekki sér-
lega mikil. Óefað hefur veðurút-
litið og kuldinr. um helgina átt
sinn þátt í því. Héraðsmót Sjálf-
stæðisflokksins, hið fyrsta hér í
Mývatnssveit, var haldið í Skjól-
brekku sl. laugardagskvöld. Að-
sókn var geysimikil og kom fólk
mjög víða að. Alls munu hafa
mætt þar hátt á fimmta hundrað
iSKÚNNUN
Vs ÞQR
3.-8 - %.,5
./
*Rlk
:r-1-
BREYTILEG átt var hér á
landi í gær, mjög víða haf-
gola upp úir hádeginu.
Inn tiil landsins var y.firleitt
sólskin, en skýjað út við sjó-
inin, einikum aiusban tiL
Mikill hæðarhryggur ligg-
ur norðan frá heimskauti suð
ur um Grænland, Grænlands-
haf og vesbanvert Atlantshaf.
Hann hreyfist lítið úr stað
svo að búast má við stilltu
veðri á þessu svæði næstu
dægrin.
B’ímlega 8000
mól til
Breiðdalsvíkur
Breiðdalsvík 3. ágúst.
Frá 18. júlí til 1. ágúst hafa
8 skip landað hér alls 8189 mál-
um af Suðurlandssíld. Þessi skip
hafa landað hér: Arnar RE 1255
mál; Björn Jónsson RE 927; Gull
berg NS 1339; ísleifur IV. VE
1161; Sigurfari SF 2802; Gissur
hvíti SF 1465; Sigurður Jónsson
SU 820, og Glófaxi NK 420 mál.
Auk þess hefur Síldariðjan tek-
ið 1466 mál frá söltunarstöðvun-
um.
Óþurrkar hafa verið í Breið-
dal undanfarið og lítið því verið
þurrkað af töðu enn sem komið
er.
manns, þrátt fyrir leiðinlegt veð-
ur þann dag.
Á sunnudag var komið þurrt
og stillt veður og heldur mildara.
í dag var hér ágætis þurrkur.
Sl. sunnudag valt hér jeppabif-
reið úr Reykjavík í mjög slæmri
beygju, á þjóðveginum, skammt
austan við Skútustaði. Lenti bíll-
inn út í læk. Tveir piltar um tví-
tugt voru í jeppanum og sluppu
þeir án alvarlegra meiðsla. Þó
var héraðslæknirinn á Breiðu-
mýri tilkvaddur til að gera að
sárum þeirra. Jeppinn er mikið
skemmdur og verður Tluttur á
vörubíl suður til Reykjavíkur. f
sömu beygju og þessi jeppi valt
varð önnur bílvelta fyrir viku
síðan, samanber mynd í Morgun-
blaðinu sl. sunnudag. Virðist vera
full ástæða til að þessi hættustað-
ur verði lagfærður og fleiri slíkir
hér, áður en fleiri óhöpp henda.
í sumar hefur það oftar en einu
sinni borið við, að ferðafólk hef-
ur brennt sig við hverina austan
við Námafjall. Einn slíkur bruni
átti sér stað sl. sunnudag og
brenndist þar Þjóðverji. Verður
mjög alvarlega að brína fyrir
fólki, sem leggur leið sína þar
um hverina að fara með mestu
gát, svo slíkir atburðir komi ekki
fyrir. — Kristján.
Næturfrost
í Kjós
Valdastöðum, Kjós, 3. ágúst.
FROST mældist í nótt sem leið í
Kjósinni og komst frostið niður
í eitt til tvö stig. Ekki er mér
kunnugt um skemmdir en búast
má við að þær hafi orðið nokkr-
ar, t.d. á kartöflugrasi.
Skömmu fyrir síðustu helgi
varð dóttir hjónanna í Miðdal fyr
ir því óhappi, að hún fór með
aðra höndina í áburðardreifara
með þeim afleiðingum, að hún
handleggsbrotnaði á upphand-
legg. Var stúlkan flutt suður í
Slysavarðstofuna.
Nú er verið að byggja brú yfir
Sandá og mun hún verða eitt-
hvað liðlega 10 metra á lengd.
Sláttur hefur gengið mjög vel
hér í Kjósinni og gróður og nýt-
ing heyja verið með ágætum.
— St. G.
Bíll veltur í Mos-
fellssveit
LAUST fyrir kl. 9 á la'Uigardags-
rnorgum valt bifreið á móts við
Hmðaisbaði í Mosfellssveit
Skeanmdist bifrieiðiin milkið, en
Framhald á bls. 23
Skipsbrotsmenn af Birni Jóns
syni RE við komuna til
Reykjavíkur á laugardag. Á
myndinni eru, talið frá
vinstri: Jakob Guðmundsson
háseti, Jón Jónsson 1. vélstj.,
Þorbjörn Aðalbjörnsson mat-
sveinn, hásetarnir Leifur
Rasmussen, Guðmundur Há-
konarson og Ingibergur Guð-
geirsson, Björn Kjartansson
2. vélstjóri, Theódór Sigur-
bergsson stýrimaður og Björn
Jónsson skipstjóri. Tveir há-
setar, Hallgrímur Einarsson
og Jakob Guðmundsson,, eru
ekki á myndinni.
Daviðshús
opnar
Akureyri, 3. ágúst.
Davíðshús var opnað almenn-
ingi sunnudaginn 1. ágúst kl. 3
síðdegis og verður framvegis op-
ið daglega kl. 3 til 5.
Fyrir skömmu kaus bæjar-
stjórn Akureyrar þriggja manna
nefnd til að annast rekstur húss-
ins og eiga í henni sæti Stefán
Stefánsson bæjarverkfræðingur,
Stefán Reykjalín byggingameist-
ari, og Þórarinn Björnsson skóla
meistari. Nefndin hefur ráðið
Kristján Rögnvaldsson til að
annast umsjón hússins. Um sex-
tíu manns hafa komíð í húsið
tvo fyrstu dagana.
Sv. P.
Hver tók bíl-
þjófinn upp?
MILLI kl. 19 og 20 á laugardags-
kvöld 31. júlí var bifreiðinni E-
511 stolið frá bifreiðastæðinu
Vísi við Þjóðveg á Akranesi. Bif-
reiðin er af gerðinni Chevrolet,
árgerð 1954, dökkblá að ofan og
ljósblá að neðan. Hún fannst síð-
ar um kvöldið mannlaus á Hafn-
armelum í Melasveit, þar sem
henni hafði verið ekið út af veg-
inum. Þeir, sem kynnu að hafa
orðið varir við ferðir E-511 á
umræddu tímabili eða tekið upp
farþega á Hafnarmelum á laug-
ardagskvöld, eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við lög-
regluna á Akranesi.
Cyrankiewicz til
Parísar
Josef Cyrankiewicz, fors*tis-
ráðherra Póllands, hefur þegið
boð frá de Gaulle, Frakklands-
forseta, um að heimsækja Frakk-
land. Franska utanríkisráðuneyt
ið skýrði frá þessu í morgun.
Kemur Cyrankiewicz væntan-
lega til Parísar 9. september og
dvelst í Frakklandi til 11. eða
12. sama mánaðar.
Þetta er í fyrsta skipti frá því
að kommúnistar tóku völdin í
Póllandi, sem pólskur forsætis-
ráðherra heimsækir Frakkland.