Morgunblaðið - 08.08.1965, Page 12

Morgunblaðið - 08.08.1965, Page 12
# MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 8. ágúst 1965 > 12 -> Gott að vera islendingur í FÆREYJUM samband við íslenzkt íþrótta- félag. í veizlulok voru sungn- ir þjóðsöngvar Færyja og Is- lands. Við urSum óneitanlega dálítið undrandi, þegar all- flestir Færeyingar sungu ís- lenzka þjóðsönginn Og kunnu fyrsta erindið utan að. — segja ungtemplarnir, sem * „ dvöldu þar yfir Olafsvökuna MARGIR íslendingar lögðu leið sína til Færeyja til þess að taka þátt í Ólafs- vökuhátíðahöldunum, sem fram fóru í ofanverðum júlí. Við hittum í Þórshöfn hóp íslenzkra ungtemplara. Þau voru 30 saman og dvöldu í Færeyjum nokkra daga í boði íþróttafélagsins Kyndils. Þau komu víða við meðan á dvöl þeirra stóð, sáu margt, sem þau höfðu aldrei áður komizt í kynni við og luku upp ein- um munni um það, að ferð- in hefði verið ævintýri lík- ust. — Við hittum þau skömmu áður en þau héldu heim á leið og báðum þau að segja okkur frá ferða- lagi þeirra. — I>egar við fengum þá hug mynd að bregða okkur til Fær eyja, settum við okkur í sam- band við íþróttafélagið Kynd- il, sem starfar á sama grund- velli og félag okkar, Hrönn, þ.e. það er félag ungtemplara. Þeir tóku málaleitan okkar vel, en sögðu að erfitt væri að hýsa hópinn yfir Ólafsvök- una, því að þá streyma allir til Þórshafnar og ekki hægt um vik að fá inni þá. Okkur var mikið í mun að komast í tæka tíð fyrir Ólafsvökuna, og lyktir mála urðu þser, að við fengum inni í gagnfræðaskól- anum í Þórshöfn, en þar hef- ur aldrei dvalið ferðahópur áður. — Við komum til Þórshafn ar á Ólafsvökuaftan — eða aðgangadag ólafsvöku — og tókum sama dag þátt í skrúð- göngu íþróttafólks, piltarnir í íþróttabúningum og stúlkurn- ar í þjóðbúningum. Daginn eftir kepptum við í handknatt leik við gestgjafana, en þeir sigruðu með 14 mörkum gegn 10, sem vart er nema von, því að við höfðum aldrei spilað saman handbolta áður. Okkur ánægðustu með frammistöð- • í KIRKJUBÆ — Við heimsóttum þann sögufræga stað, Kirkjubæ, og áttum skemmtilega dagstund hjá Páli Paturssyni, kóngs- bónda. Hann sýndi okkur sitt- hvað markvert á staðnum og fór með okkur á staði, sem hann sagðist aldrei sýna öðr- um en íslendingum- Páll er mikill íslandsvinur og talar ís- lenzku mætavel. Þarna sáum við s.tórmerkar fornminjcir, elztu timburstofu, sem enn stendur uppi, að hans sögn; steinkirkju frá miðöldum, sem aldrei hefur verið fullgerð, en þó verið vígð. Undir hinu gamla íbúðarhúsi Páis sáum við dýflissu, lítið óhugnanlegt svarthol. Á veggjunum voru greinilegar rispur eftir negl- ur. Húsið var í upphafi 50 metrar að lengd, en snjóflóð hefur tekið af báðum endum þess. Kirkjubær, sem er 13 kilómetra frá Þórshöfn, er elzta byggð í Færeyjum. Þar sat Grimur Kamban, fyrsti landnámsmaðurinn. • ÞRJÚ I.H) Á VELLINUM — Þá brugðum við okkur til Vestmanna, lítillar byggð- ar, en þangað er um tveggja tíma akstur. Þar fór fram ár- slitaleikur í handknattleik milli Kyndils, gjestgjafa okk- ur, og Vestmanna. Leiknum var lýst í útvarpi, og sagði þulurinn, að þrjú lið hfðu ver ið á vellinum, Vestmanna, Kyndill og íslendingarnir, en við hvöttum gestgjafa okkar óspart. Kyndill sigraði í þess um leik, en félagið hefur ver- ið Færeypameistari síðan 1958. Þeir komu til íslands í keppnisferð nú í sumar. Um kvöldið hélt bæjarstjórnin og góðtemplarareglan okkur sam sæti. Þar voru fluttar ótal ræður og gjafir afhentar. • SUNGU ÍSLENZKA ÞJÓÐSÖNGINN — Næsta dag héldum við tslenzku ungtemplararnár, sem brugðu sér til Færeyja. Myndin er tekin á heimleiðinnt. inu var veizla, þar sem 10 róðri af Erlu kóngsdóttur. — þjónustustúlkur snerust í Eftir hádegi gengum við í En hvað fannst nú unga fólk inu ' minnisstæðast úr Fær- Wmsm 'vI ''"■A ► «*>’ * # kringum okkur, en þar voru komnir Færeyjameistararnir í skildist, að gert væri ráð fyrir að við kepptum í knattspyrnu, en það kom sem sagt á daginn, að um handbofta var að ræða. Samt sem áður vorum við hin íþróttakeppni. skrúðgöngu inn á íþróttavöll- inn, þar sem svo til allur bær inn — um 12 þúsund manns — var mættur. Þar kepptum við fyrst í handknattleik og sigruðum nú, naumlega þó og í knattspyrnu og töpuðum 6:2. í báðum liðum okkar kepptu hinir sömu. Um kvöld- ið var enn veizla og dans, en öllum fallegustu stúlkum í bænum hafði verið boðið. 1 þessari veizlu vakti það at- hygli okkar, að einn Færey- ingurinn hélt ræðu á íslenzku og vitnaði óspart í íslenzk skáld. Hann lagði út af orð- takinu „Fjarlægðin gerir fjöll in blá og mennina mikla“ og sagði síðan: Þótt fjöllin virð- ist ekki blá, þegar þið eruð í Færeyjum, vona ég, að ykk- ur virðist þau blá, þegar þið komið til íslands. Það kom í ljós, meðan á dvöl okkar í Fuglafirði stóð, að iþróttafélagið þar heldur mikinn áhuga á að komast í eyjaferðinni? Soffía Guðmundsdóttir, skrif stofustúlka hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, sagði, að heimsóknin í Kirkjubæ hefði verið minnisstæðust. — Það verður ölulm minn- isstætt, sem sáu baðstofuna þar, alveg eins og hún leit út á 10. öld. Þarna sáum við líka fyrstu eldavélina í Fær- eyjum. Gaman var að sjá fólk ið í þjóðbúningunum, þeir eru fallegir, en samt ekki eins fallegir og íslenzki búningur- inn, finnst mér! ★ Pétur Jónsson, rafvirkja- nemi, sagði að sér væri tvennt minnisstæðast: móttökurnar, sem hópurinn hlaut, og nátt- úrufegurðin í Færeyjum. — En ég hfði ekkert haft á móti því að sjá grinda- dráp, sagði hann brosandi. Okkur var allsstaðar sýnd ein stök gestrisni, og gestgjafarn- með báti til Toftir, sem er sunnarlega á Austurey, og þaðan með bílum ti-1 Fugla- fjarðar. Þar hlutum við stór- kostlegar móttökur. í hádeg- Andrés Indriðason skrifar frá Færeyjum:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.