Morgunblaðið - 08.08.1965, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.08.1965, Qupperneq 18
r 18 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 8. ágúst 1985 Nýjasti brjóstahaldarinn Tegund 1220 Þessi fallegi vatteraði næion-brjóstahaldari er nýkominn á mark'aðinn. Hann sameinar alla þá kosti, sem brjóstahaldari þarf að hafa: 1. fl. efni, vandaður frágangur, þægilegur og fallegur. Biðjið um Tegund 1220 og þér íáið það bezta. Söluumboð: Davíð S. Jónsson & Co. Heildverziun, Keykjavík. Tíglaplötor — fyrirliggjandi— Lakkhúðaðar þilplötur stærð 120 x 120 cm. margir litir G A B O O N — plötur 16 — 19 — 22 m/m. Gaboon á LUDVIG STORR simi 1-33-33 Akranes Húseignin Melteigur 4 ásamt eignarlóð er til sölu. Upplýsingar í sima 1978. | Vinsælar utanlandsferðir með ísl. fararstjórum Margra ára reynsla og ótví- ræðar vinsældir tryggir far- þegum okkar skemmtilegt og snurðulaust ferðalag undir leiðsögn reyndra fararstjóra, sem mörg ár í röð hafa farið sömu ferðii-nar viðurkenndar og vinsælar af þeim mörgu, sem reynt hafa. Við auglýsum sjaldan því hinir fjölmörgu ánægðu viðskiptavinir komnir heim úr SUNNUFEKÐUM eru okkar bezta auglýsing. NÚ ÞEGAR ER UPPSELT í MAKGAK OKKAR FERÐIK OG AÐEINS FÁ SÆTI LAUS í HINUM. London — Amsterdam — Kaupmannahöfn 15. ágúst og 17. sept. — 12 dagar, kr. 11.800,- Stutt og ódýr ferð, sem gefur tækifæri til að kynnast þremur vinsælum stórborgum Evrópu, sem þó eru allar mjög ólíkar. Ferð sem búið er að fara tvisvar í sumar við miklar vinsældir. Milljónaborgin London tilkomumikl og sögufræg höfuðborg heims- veldis með sínar frægu skemmtanir og tízkuhús. Amsterdam heillandi og fögur með fljót sín og skurði, blómum skrýdd og létt í skapi. Og „Borgin við Sundið“, Kaup- mannahfn, þar sem íslendngar una sér betur en víðast, á erlendri grund. Borg í sumar- búningi með Tívolí og fleiri skemmtistaði. Hægt að framlengja dvölina í Kaupmanna- höfn. — Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson. (Fullbókað 17. september. 4 sæti laus í auka- ferðinni 15. ágúst). Edinborgarhátíðin — 23. ágúst — 7 dagar, kr. 7.210,- Flogið til Glasgow og dvalið í viku í hinni undurfögru höfuðborg Skotlands. Edin- borg á frægustu listahátíð álfunnar, sem þar er árlega haldin um þetta leyti. Farið verð- ur í skemmtiferðir um skozku hálöndin, þar sem landslagsfegurð er víðfræg. Hægt að framlengja dvölina og fara til London. — Fararstjóri: Gunnar Eyjólfsson leikari. (Full- bókað í þessa ferð). París — Rínarlönd — Sviss — 27. ágúst — 21 dagur, kr. 18.640,- Þessi vinsæla ferð hefir eins og flestar hinar verið fullskipuð ár eftir ár. Fólki gefst kostur á að kynnast nokkrum fegurstu stöðum Evrópu í rólegri ferð. Flogið til Parísar. Dvalið þar í borg fegurðar og gleði sólríka sumardaga. Flogið til Rínarlanda og ekið um hinar fögru og sögufrægu Rínarbyggðir. Verið á vínhátíðinni, þar sem drottningin er krýnd. Að lokum er dvalið í hinu undurfagra Alpafjallalandi Sviss í Luzern, þar sem tindar Alpafjalla speglast í vötnum. Farið í ökuferðir og siglt. Skroppið í skemmtiferð yfir til Ítalíu. Hægt að verða eftir á heimleið í London eða Kaupmannahöfn. — Fararstjóri: Jón Helgason. (7 sæti laus). Ítalía í septembersól — 6. september — 21 dagur, kr. 21.300,- Flogið til Mílanó, og ekið þaðan um fegurstu byggðir Ítalíu, með 3—4 daga viðdvöl í Feneyjum, hinni „fljótandi ævintýraborg“ og listborginni Florenz. Fimm dagar í Róm og gengið á fund Páfans. Fjórir dagar í Sorrento við hinn undurfagra Napoliflóa. Farið til Capri og annarra frægra og fagurra staða. Siglt með Michelangelo, splunkunýju, stærsta og glæsilegasta hafskipi ítala (43.000 smál. frá Napoli til Cannes á Frakklands- strönd. Þar er dvalið í 3 daga í baðstrandarbænum Nizza, áður en flogið er heim með viðkomu að vild, í Kaupmannahöfn eða London. Farárstjóri: Thor Vilhjálmsson. (Fullbókað nema sæti losni vegna forfalla). Ítalía og Spánn — 28. september — 21 dagur, kr. 24.860,- Þessi óvenjulega ferð gefur fólki kost á því að kynnast fegurstu stöðum Italíu og Spán- ar og hefir slík ferð ekki áður verið á boðstólum hérlendis. Flogið til Feneyja og dvalið þar í hinni undurfögru „fljótandi“ ævintýraborg, sem stundum er kölluð „drottning Adriahafsins“. Flogið þaðan til Rómar og dvalið í nokkra daga í „borginni eilífu", þar sem margt er að skoða. Ekið suður til Napoli og dvalið á Capri, áður en siglt er með hinu nýja og glæsilega hafskipi ítala, Michelangelo (43 þús. smál.) lúxusskip. búið öllum lífs- ins þægindum. Komið til Gíbraltar á þriðja degi og ekið um hina undurfögru Sólströnd Andalúsíu til baðstrandarbæjarins Torremo lino, þar Sem dvalið er í fjóra daga. Ekið síðan eina fegurstu leið Spánar til Madrid með viðkomu í Granada hinni fögru höfuð- borg Máranna á Spáni, þar sem hallir þeirra og skrauthýsi standa enn. Að lokinni dvöl í Madrid er flogið til London, þar sem hægt er að framlengja ferðina. Fararstjóri: Jón Helgason. (9 sæti laus þegar þetta er prentað). Ævintýraferðin til Austurlanda — 8. október — 20 dagar, kr. 19.850,- Þessi ótrúlega ódýra Austurlandaferð var farin fullskipuð með 35 farþegum í fyrra og komust miklu færri en vildu. Verðið er svona lágt vegna samvinnu við enska ferðaskrif- stofu, sem hefir á leigu lúxushótel í Egyptalandi, sem starfrækt eru í fyrrverandi höll- um Faruks konungs. Flogið til Amsterdam. Dvalið þar í sólarhring. áður en flogið er til Cairo. Þar er dvalið í viku og farið í skoðunarferðir um Nílardal. Síðan getur fólk val- ið um vikudvöl á baðströndinni í Alexandríu, eða ferðalags til „Landsins helga", Jer- úsalem, Betlehem o. fl. sögustaða Biblíunnar, auk Damaskus og Líbanon. Dvalið í tvo daga í London á heimieið og hægt að framlengja dvölina þar. Fararstjóri: Guðni Þórðarson. (11 sæti laus vegna þess að hægt var að fjölga í ferðinni). í SUNNUFERÐUM eru eingöngu notuð góð hótel. Engar langar, þreytandi bílferðir, flogið og siglt lengstu leiðírnar og ekið aðeins þar sem landslágsfegurð er mest. í öllum tilfellum er hægt að framlengja dvölina erlendis. Kjörorð okkar er: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar farþega. Við gefum sjálfum okkur ekki einkunn, en spyrjið þá mörgu, sem reynt hafa SUNNUFERÐIR. Margir velja þær aftur ár eftir ár. — Kynnið ykkur verð og gæði annarra ferða — og vandið valið — Biðjið um nákvæma ferðaáætlun og pantið snemma. Auk hópferðanna hefir SUNNA fullkomna ferðaþjónustu fyrir einstaklinga og selur farseðla með flugvélum og skipum úm allan heim, járnbrautar- og bílafargjöld í mörgum löndum. — Pantar hótelin og anriast alla fyrirgreiðslu og undirbúning. Farseðlarnir eru á sama verði og hjá flutningafyrirtækjum og ferðaþjónustan því ókeypis í kaupbæti fyrir viðskiptavininn. Ferðaskrifstofan SUNNA Bankastræti 7. Sími 16-400. Vika á baðströnd og vika í Kaup- mannahöfn. Broitför alla sunnu- daga, verð kr. 10.200,00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.