Morgunblaðið - 08.08.1965, Page 28

Morgunblaðið - 08.08.1965, Page 28
28 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 8. ágúst 1965 GEORCETTE HEYER FRIÐSPILLIRINN — Þei, þei, gesturinn þinn verður hræ'ddur el þú ferð að gráta, sagði Soffía, og strauk flókáð hárið á benni. — Veiztu, að það er kominn herra í heirn- sókn? — Charles? spurði Amabel og gleymdi sem snöggvast raun- um sínum. — Já, hann Charles, svo að þú verður að lofa mér að snyrta þig dálítið og laga til í rúminu. Hananú! Jæja, Charles, ungfrú Rivenhall er reiðubúin að veita þér móttöku! Hún tók skerminn frá, svo að Ijósið féll á rúmið, og benti Charles að setjast hjá systur sinni. Hann gerði það og greip í litlu höndina, sem var orðin eins og kló, og svo talaði hann við barnið og var svo upplífg- andi, að honum tókst að hafa af fyrir henni þangað til Soffia var komin með mjólkina. Þegar hún sá bollann, fór hún undir eins að rella. Hún vildi ekki neitt, hún fengi bara velgju, ef hún ætti að fara að drekka mjólk, hversvegna gæti Soffía ekki látið hana í friði? — Ég trúi ekki, að þú verðir svo vond að vilja ekki mjólk- ina, þegar hún hefur nú verið hituð sérstaklega handa þér, sagði Charles, — og þegar ég er kominn til þess að halda á bollanum fyrir þig. Og hann tók við bollanum úr hendi frænku sinnar. — Og meira að segja rósabolli! Hvar hefurðu fengið hann? Ég þekki hann bara alls ekki! — Cecilia gaf mér hann til að eiga sjálf, sagði Amabel. — En ég vil bara ekki neina mjólk. Það er ekki gott að fara að drekka mjólk um hánótt! — Ég vona, að hann Charles hafi dáðst af alvörurósunum þínum, sagði Soffía og settist á rúmstokkinn og reisti Amabel upp og lét hana hallast að öxl Þórshöfn tJmboðsmaður Morgun- blaðsins á Þórshöfn er Helgi Þorsteinsson, kaupmaður og í verzlun hans er blaðið seit í lausasölu. Reyðarfjörður KBISTINN Magnússon, kaupmaður á Reyðarfirði, er umboðsmaður Morgunblaðs- ins þar í kauptúninu. Að- komumönnum skal á það bent að hjá Kristni er blað- ið einnig selt í lausasölu. Seyðisfjörður UMBOÐ Morgunblaðsins í Seyðisfjarðarbæ er í Verzl. Dvergasteinn. Blaðið er þar einnig í lausasölu fram til kl. 11,30 á kvöldin. „Bar- inn“, veitingastofa, hefur blaðið í lausasölu. Á Egilsstöðum HJÁ Ara Björnssyni í Egils- staðakauptúni er tekið á móti áskrifendum að Morg- unblaðinu. Þar í kauptún- inu er Morgunblaðið selt gestum og gangandi í Ás- bíói og eins í Söluskála kaup félagsins. Á öllum helztu áningastöðum--------- FERÐAFÓLKI skal á það bent, að Morgunblaðið er til sölu á öllum helztu áninga- stöðum á hinum venjulegu ferðamannaslóðum, hvort heldur er sunnan lands, á i ( L sér. — Við erum orðnar svo af- brýðissamar við Cecilia, sagði hún, — af því að hún Amabel er búdn að eignast svo fínan biðil, að við erum alveg horfn- ar í skuggann. Viltu bara sjá blómvöndinn, sem hann færði henni? — Charlbury? sagði hann brosandi. — Já, en ég er hrifnust af sjúpmóðurinni frá þér, sagði Amabel. — Auðvitað ertu það, sagði Soffía. — Drekktu nú mjólkina þína! Ég get fullvissað þig um, að herramenn fyrtast svo auð- veldlega, og það má alls ekki koma fyrir. — Alveg rétt sagði hr. Riven- hall. Ég fer að halda, að þú sért hrifnari af honum Charlbury 'en mér, og það getur gert mig þung lyndan. Hún hló máttleysislega að þessu, en loksins fékkst hún til að drekka mjólkina. Soffía lagði hana varlega útaf aftur, en ekki tók hún annað í mál en að þau væru bæði hjá henni. — Já, en ekki tala meira, sagði Soffía. Ég ætla að segja þér eitt ævintýri, en þú mátt ekki taka fram í, því að þá rugl- ast ég í sögunni. — Já, segðu mér frá því þeg- ar þú varst í Pyrenneafjöllun- um, sagði Amabel, syfjulega. Soffía gerði það og talaði lágt og smámsaman tóku augnalokin á litlu stúlkunni að þyngjast. Hr. Rivenhall sat kyrr hinu- megin við rúmið og horfði á systur sína. Loksins sáu þau, að Amabel var sofnuð. Soffía þagn- aði og leit upp og á hr. Riven- hall. Hann horfði á hana, rétt eins og honum hefði dottið eitt- hvað nýtt í hug, sem hann var hissa á. Hún hélt áfram að horfa rétti út höndina, en lét hana síga aftur, en sneri sér svo og flýtti sér út. 15. kafli. Næsta dag hitti Soffía alls ekki frænda sinn. Hann kom inn til Amabel á þeim tíma, sem hann vissi, að Soffía var að hvíla sig, og kom ekki heim til kvöld- verðar. Frú Ombersley hélt, að Laus íbúð 3 herb., eldhús Og bað, við miðbæinn, getur vanur blóma sölumaður fengið keypta með góðum kjörum, eða leigt gegn skilyrðum. Tilboð - merkt: „Laus íbúð — 6345“, leggist inn á afgr. blaðsins. eitthvað hefði komið fyrir, sem honum þætti miður, því að enda þótt framkoma hans við hana væri með þolinmæði, sem aldrei brást, og hann gerðd allt, sem hennd gat orðið til þæginda, var hann þimgur á brúnina og svar- aði mörgu af þvi, sem hún sagði við hann, út í hött. Samt lagði hann það á sig að spila ofurlítið við hana, og þegar spilamennskan var trufl,- uð af heimsókn hr. Fawnhope, með afrit af kvæðinu sínu handa frúnni, og rósavönd handa Cec- iliu, hafði hann nægilegt vald yfir sjálfum sér til að heilsa gestinum — ef til vill ekki með neinni hrifningu, að minnsta kosti með fullri kurteisi. Hr. Fawnhope hafði skrifað einar þrjátíu línur af sorgar- leiknum sínum, daginn áður, og var ekki óánægður með þær, og var hvorki að súta snúna kenn- ingu né stirðlega verslínu. Hann sagði ekkert annað en það, sem viðeigandi var og þegar hann hafði spurt um líðan sjúklings- ins og það efni var uppurið, tal- aði hann um daginn og veginn, svo líkt manni með viti, að hr. Rivenhall tók að mýkjast í hans garð, og fór ekki út fyrr en frú- in fór að biðja skáldið að lesa fyrir sig kvæðið, sem snerist um björgun Amabel úr bráðri lífs- hættu. Jafnvel þessi viðbjóðs- lega tilgerð gat ekki algjörlega rekið á flótta hinar vingjam- legri tilfinningar hr. Rivenhalls, en stöðugar heimsóknir hans höfðu mýkt skap hans nokkuð í hans garð, og það meir en efni stóðu til. Cecilia hafði getað sagt honum, að þetta hugrekki skáldsins ' stafaði af vanþekk- ingu þess á smithættunni, en ekki af venjulegu hugrekki, en þar eð það var ekki vani hennar að ræða biðil sinn við bróður sinn og hann hins vegar of raun sær til að átta sig á þessari hulu, sem skáldið hafði vafið sig í, skildi hann ekki þessa afstöðu hr. Fawnhopes. Hann fór nú aldrei framar inn í sjúkrastofuna á þeim tíma, sem hann gat búizt við að hitta frænku sína þar, og þegar þau hittust við máltíðir, var fram- koma hans við hana snögg, svo að ekki sé sagt afundin. Ceclia, sem vissi vel um þá þakklætis- skuld, sem hann vissi sig standa í við Soffíu, varð hissa á þessu, og gekk hvað eftir annað á bróður sinn um það, hvort þeim hefði lent saman. En Soffía bara hristi höfuðið og setti upp glettn issvip. Amabel hresstist við, þótt hægt færi og hvað eftir annað kom afturkippur í batann. í hálf an sólarhring heimtaði hún að hafa Jacko hjá sér. Og það var bara Soffíu að þakka og mót- mælum hennar, að hr. Riven- hall, sendi ekki gagngert til Om- bersley eftir þessum ómissandi apa, svo mjög var honum í mun, að ekki yrði tafið fyrir bata systur sinnar. En Tina, sem hing að tii hafði verið útilokuð frá sj úkrastofunni, gat vel komið í staðinn fyrir Jaeko, og hringaði sig nú ánægð í rúmi húsmóður sinnar. Þegar sjúkdómurinn var kom- inn á fjórðu viku, tók læknir- inn að hafa orð á því, að sjúkl- ingurinn gæti haft gott af að komast í sveit. En þar var að mæta óvæntri og þverúðarfullri Bloðið koslar 5 krónur . Imsila andstöðu af frú Omibersley hálfu. Hann hafði einhvemtíma nefnt á nafn við hana afturkipp í batanum, og það hafði sezt svo að hjá henni, að ekkert gat feng- ið hana til að samþykkja, að Amabel kæmist undan læknis- hendi. Og hún lagði áherzlu á, hve óheppilegt það gæti verið fyrir Amabel að komast í sam- félag systra sinna og bróður síns sem var svo hávær, en þau áttu að fara í sumarleyfinu til Ombersley. Litla stúlkan var enn máttfarin, og óhæf til allr- ar líkamsáreynslu, og hrökk í kút við minnsta hljóð — það færi betur um hana í London unddr eftirliti læknisins og í um- sjá hennar elsku mömmu sinnar. Því að nú, þegar batinn var orð- inn nokkuð öruggur, kom móður tilfinningin upp hjá frú Ombers ley. Hún og hún ein, gæti hugs- að um blessað barnið meðan hún væri að hressast. Þetta var því ákveðið og hvorkd Cecilia né Soffía létu neina löngun í ljós að fara úr borginni. Það var orðið lítið um að vera í borginni í samkvæmislíf- inu, en veðrið var samt sæmi- legt. Þó var skúrasamt, svo að ungu stúlkurnar gátu sjaldan farið út nema búa sig vel. En það voru fleiri en fjöl- skylda Ombersleys lávarðar, sem höfðu ákveðið að verða um kyrrt í borginni, þangað til í ágústmánuði. Charlbury lávarð- ur var enn heima hjá sér í Mount Street og hr. Fawnhope í íbúð sinni í St. James og ,Brom- ford lávarður daufheyrðist við öllum bænum móður sinnar og neitaði að fara til Kent, og Brink low-fjölskyldan fann sér nógar átyllur til að vera kyrr heima hjá sér í Brook Street. Og auk þess var ungfrú Wraxton aftur farin að koma í Berkleytorghús- ið, þegar það vitnaðist, að öll hætta væri liðin hjá, kurteis við alla og jafnvel gælin við frú Ombersley og Amabel, og öll í undirbúningnum að brúðkaup- inu. Hr. Rivenhall fann sér til áríðandi störf, sem hann þurfti að inna af hendi á góssum sín- um, og þar eð ungfrú Wraxton ímyndaði sér, að hann væri að búa húsin undir komu hennar, lét hún. gott heita þó að hann væri fjarverandi. Cecilia var ekki eins sterk- byggð og frænka hennar og var því lengur að jafnan sig eftir alla áreynsluna og áhyggjurnar af þessari fjögurra vikna inni- lokun. Hún var talsvert miður sín og ekki eins blómleg og ver- ið hafði. Hún var líka með þögl- asta móti og það slapp ekki við eftirtekt bróður hennar. Hann fann að þessu vdð hana, og þegar hún svaraði honum út af og hefði helzt viljað fara út, hélt hann aftur af henni og sagði: — Farðu ekki, Cilly! Hún leit á hann spyrjandi, en dokaði við. Eftir andartak spurði hann snöggt: — Ertu ó- hamingjusöm? Hún roðnaði og varirnar skulfu, án þess að hún gæti að því gert. Hún hreyfði sig eitt- hvað í mótmælaskyni og sneri sér undan, því að henni var ó- mögulegt að útskýra fyrir hon- um þá byltingu, sem var að ger- ast í huga hennar. Henni til mestu furðu þrýsti hann hönd hennar, og sagði hik- andi en í blíðari tón: — Ég ætl- aði aldrei að gera þig óham- ingjusama. Mér datt ekki I hug .... þú ert svo góð stúlka, Cilly! Ég býst við, að ef skáld- ið þitt vildi taka sér einhverja heiðarlega atvinnu, mundi ég taka aftur mótmæli min og lofa þér að ráða. Þetta kom henni svo á, óvart, að hún gat sig ekki hreyft, en aðeins augun litu beint á hann. Hún kippti ekki að sér hendinni en beið þess, að hann sleppti henni og sneri sér við, rétt eins og hann vildi ekki verða fyrir þessu undrandi augnatilliti henn ar. — Þú hélzt, að ég væri grimm ur og tilfinningalaus. Vist getur verið, að svo hafi ég virzt, en iég óska einskis annars en hamingju þinnar. Ég get auðvitað ekki ver ið neitt hrifinn af þessu vali þínu ,en ef þú ert hinsvegar einráðin í þessu, þá skal guð vita, að ég vil ekki stía þér frá manni, sem þú elskar af öllu hjarta, né heldur stuðla að hjónabandi með manni, sem þú kærir þig ekkert um. — Oharles! sagði hún veikt. Hann leit um öxl og sagði en eins og með nokkrum erfiois- munum: — Ég hef sjálfur séð, a ðekkert nema eyrnd og óham- ingja getur stafað af hjónabönd- um, sem þannig eru til komin. Þú skalt að minnsta kosti ekki verða neydd til að iðrast alla ævi! Ég skal tala við fööur minn. Þú hefur haft á móti á- hrifunum, sem ég hef á hann, en í þetta sinn skulu þau verða þér í vil. Ef öðruvísi hefði á staðið, hefði h-ún spurt hann eitthvað nánar út í þýðingu þessara orða, en þessi viðbrigði höfðu rænt hana öllum hæfileika til að hugsa. Hún fann ekkert orð til að segja, en mátti taka á öllu sínu til að fara ekki að gráta. Hann leit við og sagði brosandi: — Ég hlýt að vera hreinasta skrímsli í þínum augum, að hafa gert þig svona orðlausa. Staiou ekki á mig eins og þú trúir mér ekki! Þú skalt fá að giftast skáld inu þínu, vertu viss um það! Bóleg reglusöm slúlka sem vinnur úti, óskar eftir 1—2 herb. íbúð (í góðu standi). Algjr reglusemi pg góð umgengni. Tilboð merkt: „Reglusöm — 6341“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.