Morgunblaðið - 08.08.1965, Page 31

Morgunblaðið - 08.08.1965, Page 31
Sunnudagur 8. Sgðst 1965 MORGUNBLAÐIÐ 31 V - Samvinnubændur J Framhald af bls. 6 l Dr. Lars Spildo hefir haft og í hefir mörg járn önnur í eldinum I en aið ■stjórna stórfyrirtaekiinu 7 Felleskjöpet í Ósiló. Hann er í in.ikill framámaóuir um margt er t vearðar búnaðarrannsóknir. Um langt skeið var Spildo formaður í hinni norsku deild N.J.F. (Nor- diske jordbruksfonskeres foren- 1 in.g) og í miðstjórn þeirra félags samtaka á Norðurlöndum. Dr. Spildo er formaður stjórnar (bankairáðs) hins nýstofna'ða búnaðarbanka norska ríkirins. En banki sá var stofnaður á jþann hátt að með sérstakri lög- gjöf voru þrír ríkisbankar, er allir höfðu að verkefni að efla og styðja norskan landbúnað og l byggingastarfsemi í sveitum, / Sameinaðir í einn stórbanka. 1 Dr. Spilda hefir komið tiil ís- 7 lands tvívegis áður og er nofckr- 1 um búfræ’ðimönnum og öðrum ( mönnum hér að góðu kunnur. i Hann og Fellesfcjöpet hefir oft / greitt götu íslenzkra búfræði- 1 manna í Noregi. Þannig munu t.d. Hvanmeyringar hafa notið Æyrirgreiðslu hans drjúgrar, á námsferðum þeirra á norskri grund. Ég tel það góðan viðburð er Btjórn Pelleskjöpet í Ósló kem ur nú hingað í heimsókn undir j forystu forstjóra þess Dr. Spildo. [ Formaður stjórnarinnar er bóndinn, sivilagronom Mattis Dobloug, Helgöya, sem á'ður hét Eyjin helga, í Mjörs (Mjösa). j Er það frósöm ey og fögur, nú raunar landföst orðin með brú ( ( íil meginlandsins. Eyin helga \ kemur mjög við sögur, þar dvaldi j i Skúli jarl löngum, Þar eru stór- i I býli mikil og fræg. Hvergi í j t inorskum sveitum er eins hátt . í til lofts og vítt til veggja og á J þessum slóðum. Aldrei gleymi j í ég Jónsmessufcvöldinu og nótt- 1 inni þeirra, er ég í hópi nokkra 7 bænda sigldi umhverfis Eyna helgu, og Jónsmessubálin brunnu á hverju nesi. í eynni helgu geng ur Dobloug sjaldan á grjóti, en ég vona samt að það verði honum og félögum hans fróðleg og Bkemmtileg nýbreytni að ganga hér jöfnum höndum um hraun og gróður, að sjá landið og um hverffð þar sem Hárekur af Heiðmörk eyd-di síðustu árum sínium og liggur í moldu. ^ Árni G. Eylands Utan úr heimi Framhald af bls 16 og öðrum mikilvægum mann- virkjum umhverfis Hanoi. — Einn liðsforingi sagði m.a.: „Ho Chi Minh hefur gefizt timi til að efla varnirnar um- hverfis Hanoi, og við munum verða fyrir miklu tjóni, ef við reyndum að eyðileggja hern- aðarmannvirkin umhverfis borgina." Embættismenn Bandaríkja- hers eru ánægðir með fram- göngu bandarísku flugmann- anna í Vietnam og segja, að tjón á flugvélum og flugmönn um sé undarlega lítið, en segja megi, að engin hætta stafi af hinum iitla flugher kommún- ista. Ómögulegt er að vita hve margir N-Vietnambúar hafa farizt í loftárásunum. Þótt þeim sé fyrst og fremst beint að hernaðarmannvirkjum, fer ekki hjá því að t.d. ökumnn herflu tningabifreiða, hermenn í herskálum og verðir við loft vanabyssur, vrði fyrir sprengj unum. Öll skotmörkin eru ákveðin fyrirfram í Washington og hákvæmlega fylgzt með að flugmennirnir hlýði fengnum fyrirskipunum. - Það snjóar Framh. af bls. 8. myndi von. En Spánverjar ypptu bara öxlum og sögðu „manana". Þegar leið að janúarlokum, hafði veður verið svo milt að páskaliljurnar voru farnar að gægjast upp úr moldinni og það varð að grafa þær upp og gróðursetja í potta. Lean sendi mannafla til Finnlands að leita uppi hugsanlega staði og taka landslagsmyndir. Farið var að tala um það í alvöru að senni- lega yrði að flytja bæði Moskvuborg og allan mann- afla og útbúnað norður til Finnlands og taka myndina þar. En þá fór loks að snjóa og Lean hélt með allt sitt fólk frá höfuðborginni norður í land. En snjórinn í Soria var dá- lítið sérstakur snjór og hegð- aði sér ekki alls kostar eins og snjór er vanur að gera. Hann tók til dæmis upp á því að bráðna, svo þúfnakollarnir stóðu upp úr hér og hvar og grípa varð til marmaradufts til að strá yfir hann og bæta í götjin. Einn daginn skein sól í heiði, næsta dag var lágskýj- að, þriðja daginn rigning — og Lean átti í stökustu vandræð- um með að fella saman það sem tekið var einn daginn við framhald sama atriðis, sem tekið var næsta dag eða enn seinna. Leikararnir sátu og hímdu úti á berangri eða höfð- ust við í gisthúsunum tveimur sem Soria hefur upp á að bjóða og biðu eftir að kallið kæmi. Oft var það eins og að bíða eftir Godot — það voru helzt veðurfræðingarnir og svo Lean sjálfur, sem rennt gátu grun í hvað næst yrði. Leikararnir Omar Sharif, Tom Courtenay, Rod Steiger, Julie Christie og Geraldine Chaplin, báru saman bækur sínar og voru jafn nær. Og svo var aft- ur beðið. En David Lean lét veðrið ekkert á sig fá. Hann hefur áður fengizt við annað eins og óþolinmæði hrjáir hann ekki. „Zhivago læknir“ er þriðja mynd hans á tíu árum. Síð- ustu myndirnar tvær, „Brúin yfir Kwai-fljótið“, sem tekin var á Ceylon með miklu brauki og brambolti og „Ar- abíu-Lawrence“, sem tekin var í Arabíu suður, við sízt betri skilyrði — unnu til 14 Oscars-verðlauna, þar á meðal verðlaunanna fyrir beztu mynd ársins og beztu leik- stjórn ársins. Lean, sem nú er 57 ára gamall og maður mjög vel á sig kominn, segir sjálfur um þetta: „Mér stóð hjartan- lega á sama þó ég gerði aðra erfiða mynd. Ég fer nú óðum að nálgast hin hljóðlátu og hægu ár — þá fæ ég nógan tíma til að taka hljóðlátar og hægar myndir". Lean er kunnur að vand- virkni sinni og alúð við töku kvikmynda og fyrir ná- kvæmni sína og snilli í öllum vinnubrögðum. Hann hóf starf sitt við kvikmyndir fyrir rétt- um fjörutíu árum, sem sendi- sveinn og snattari og vann sig upp á að verða aðstoðarleik- stjóri og yfirumsjónarmaður með 'allri gerð mynda hjá „British Movietone News" fyr- ir stríð. Noel Coward fékk hann til að stjórna myndinni „In which we serve“ og var það upphafið að framabraut Leans sem leikstjóra. Hann stjórnaði fleiri myndum Cow- ards, sem gátu sér gott orð, s. s. „This happy Breed“, „Brief Encounter" og „Blithe Spirit". Síðan fór hann yfir í Dickens og stjórnaði töku myndanna „Great Especta- tions“ og „Oliver Twist“. Árið 1955 tók hann sina fyrstu mynd erlendis, þá mynd sem hann hefur sjálfur einna mest- ar mætur á, „Summer Mad- ness“, ástarsögu frá Feneyj- um, sem Katherine Hepburn og Rossano Brazzi léku i. Þegar hér var komið sögu Leans, var hann orðinn einn af beztu leikstjórum Breta, en ekki svo frægur erlendis að tali tæki. En þá tókst sam- vinna hans og Sam Spiegels, Oscars-verðlaunin fóru að sankast að honum og hann fékk á sig það orð að hann væri gæddur Mídasar gáfu væri einn örfárra manna, sem gætu gert jafnvel óvenjuleg- ustu myndir að metsölumynd um. Lean hefur ekki horfið aftur til Bretlands síðan, af ýmsum sökum, en ber sjálfur við „eigin óskum, forsjóninni og sköttunum“. Nú hefur hann að jafnaði bækistöð 1 Feneyjum en er annars oftast á ferðalögum þann tíma, sem hann hefur aflögu frá kvik- myndunum. Hann er fjór- kvæntur og á hvorki hús né íbúð eins og stendur en aftur á mó.ti stóran, brúnan Rolls Royce, sem hann hefur með sér hvert sem hann fer. Omar Sharif, sem leikur Zhivago lækni og er mikill vinur Le- ans og aðdáandi, segir um hann og bílinn: „Ef Rollsinn hefði stýrið hægra megin hefði fyrir löngu verið búið að slá Lean til riddara". Um Lean sem leikstjóra seg ir Sharif: „Hann er mjög ein- sem nú eru á boðstólum eru ekki hótinu betri en dagbæk- ur, fullar af linku og sjálfs- dýrkun, og skortir tilfinnan- lega bæði söguþráð og heil- steyptar manngerðir“, segir Lean. Þegar hann las „Zhivago lækni“ fyrst var það fólkið í sögunni, sem hann fékk mest- an hug á. „Myndin er ekki saga byltingarinnar“, segir hann, „heldur sagan af þvi hvað verður um fámennan hóp manna, þegar byltingin sjcellur yfir það — hetjuhug- myndin hefur alltaf sótt fast á mig, en ekki þessi gamal- dags kvikmyndahetja, sem var hér áður fyrr. Alec Guiness í „Brúnni yfir Kwai-fljótið“ og Peter O’Toole í „Arabíu-Law- rence“ voru ekki neinar venju legar hetjur. Zhivago er nær því að vera dýrlingur en hetja. Hvorki hann né Lara, konan sem hann ann, myndu líta svo á að þau væru neitt mikið öðruvísi en flók er flest, að minnsta kosti hreint engin mikilmenni. Þessvegna er svo erfitt að velja leikara í þessi hlutverk. Til þess að leika þau þyrfti öðruvísi fólk en yfir- leitt fæst við leiklist". Það er einmitt val Leans á leikurum í myndina um Zhi- vago lækni, sem mestar deilur hefur vakið. Þeir voru ekki Omar Sharif og Tarek sonur hans, (sem leikur Zhivago ungan dreng). beittur maður og svifst einskis ef því er að skipta. Hann er kröfuharður við sjálfan sig og aðra. Leikurum hættir alltaf til að líta stórt á sig og eru gjarnir á að sleppa fram af sér beizlinu. David lætur engum manni haldast uppi neitt slíkt. Hann á það til að missa stjórn á skapi sínu, en gerir það með afskaplega miklum menning- arbrag. Hann er einstaklega brezkur í öllu sínu hátterni“. Lean lætur sig litlu skipta, hvað um hann er sagt og skrifað. Hann einbeitir sér að myndinni sem hann er með í takinu og er tregur til að tala um kvikmyndir almennt eða láta í ljósi nokkrar skoðanir á þessari listgrein. Velgengni hans á fjármálasviðinu hefur ekki aflað honum neinna sér- stakra vinsælda með hinum svokölluðu „áhugamönnum um alvarlega kvikmyndalist“ og gagnrýnendur hans hafa m.a. fundið honum það til for- áttu að hann hafi engan sér- stakan og persónulegan stíl i leikstjórn sinni. Lean andmæl ir því ekki, en segir að sér finnist mestu máli skipta manngerðir þær sem í mynd- inni eigi að koma fram og söguþráðurinn, hitt hafi aldrei verið sér áhugamál að setja neitt persónulegt mark á myndir sínar. „Fjolrnargar þessára avant-garde-mynda, hrifnir vestur í Hollywood er hann lýsti því yfir, að allar viðurkenndar stjörnur þar væru fólk komið töluvert til ára sinna. Hlutverk Zhivagos er mjög passívt, minnir á Pjotr Petrovitch i „Stríð og friður“, öll ósköpin dynja yfir hann á einstaklega rússneskan máta. í athugasemdum sínum um Zhivago skrifaði Robert Bolt hjá sér að hann hefði til að bera „fágun án linku, göfug mennsku án tilgerðar og stak- an hæfileika til að líta hlutina augum utanaðkomandi manns án þess þó að vera hið minnsta kaldlyndur, hæfileika, sem sumir mjög góðir læknar hafa til að bera“. Lean leitar fyrir sér um mann.er hefði til þess bolmagn og hæfileika að tak- ast Zhivago á hendur, og Om- ar Sharif varð fyrir valinu. Það skeður margt skrítið í kvikmyndum, og það er svo sem ekkert skrítnara að eg- ypzkur bridgesnillingur geti leikið rússneskan lækni og skáld en að hægt sé að skapa skika af Rússlandi á sléttum Spánar — en það er áhættu- spil engu að síður og annað áhættuspilið til er að velja dóttur Charlie Chaplins til þess að leika eiginkonu Zhi- vagos. SÖguþráður myndarinnar byggist mjög á því að vel sé haldið á þríhyrningsspili Zhi- vagos, eiginkonu hans Tonyu (Geraldine) og hinnar kon- unnar sem hann ann, Löru, sem Julie Christie leikur. Það gæti eyðilagt allt samspilið, ef ein hlið þríhyrningsins væri veikari og ver leikin en hinar tvær. Omar Sharif er þegar nokkuð kunnur leikari og hef- ur á sér töluvert orð fyrir góða hæfileika og Julie Christie hefur þegar sýnt hvað í henni býr, þó ekki geti hún talist vön leikkona, en Geraldine Chaplin er alger- lega óskrifað blað í þeim efn- um, hefur aldrei leikið í kvik- mynd áður. Illgjarnar tungur segja að það geri ekkert til og komi tæpast málinu við, hún geti tæplega leikið svo illa að um- tal það, sem leikur hennar í myndinni veki, vegi ekki upp á móti því. Það sem ungfrú Chaplin eigi að leggja kvik- myndinni til, sé fyrst og fremst nafn föður síns. Lean ber eindregið á móti þessu og segist hafa valið hana ein- göngu vegna bess hve vel sér hafi litizt á tilraunakvikmynd ina, sem tekin var af henni og sýnd er hvaða forvitnum blaða manni sem sjá vill í kvik- myndaveri M-G-M í Madrid, en það er næsta óvenjulegt. Sú sjón tekur þó ekki af öll tvímæli. Geraldine Chaplin gæti allt eins sætt örlögum Edsel-bílanna hjá Ford,' sem var hampað svo óskaplega áð- ur en þeir komu á markaðinn, að þeir stóðust ekki loforð aug lýsenda sinna. En þetta er ef- laust mesta svartsýni, Lean er snillingur í að fást við leikara. Og sjálf lítur ungfrú Chapl- in hreint ekki út fyrir að vera neitt vesalings unglamb í ræn- ingjahöndum. Hún lætur sér vel líka allt umtalið sem henni hlotnast og hundinum hennar (sem heitir Boris, skírður í höfuðið á Boris Godounov, ekki Pasternak) og talar við blaðamenn frjálslega og eðli- lega um sjálfa sig og allt sitt fólk og hreyfir bara mótmæl- um endrum ög eins þegar spurt er heimskulegra spurn- inga. „Það var nú til dæmis þessi franska blaðakona", seg- ir Geraldine, „sem byrjaði á því að spyrja eins og álka: — Hver ert þú7 — Geraldine Chaplin, sagði ég, hvað átti ég annað að segja. En hún situr við sinn keip og spyr enn: — Já, en Geraldine Chaplin, hver ert þú eiginlega?“ Ef heppnin og ráðandi veð- urguðir á Spáni verða David Lean hliðhollir, verður lokið þar töku kvikmyndarinnar um Zhivago lækni einhvern tíma í september. Þetta verður mik il mynd og vegleg, hvernig sem á er litið, þriggja klukku- stunda löng. Auk páskalilj- anna og alls þess sem áður er getið og gömlu járbrautarlest- anna, sem spænska stjómin eftirlét Lean og leikaranna, sem áður voru nefndir, eru á leikendaskrá Bretarnir tveir, Richardson og Guinness, sem báðir hafa nú nafnbótina „Sir“ og bæði hin írska Siobhan MacKenna og Rita Tushing- ham að auki. Kvikmyndahand rit Bolts er mjög háfleygt og bókmenntalegt að sögn og myndin gengur sinn gang í hefðbundnum rússneskum stíl eins og vera ber, hægt og tígu lega, eins og Síbeíuilestin, sem sniglast yfir slétturnar austur til Vladivostok og blæs mik- inn. Örlagahelgi Slava hvílir yfir öllu og sögupersónurnar rekast hverjar á aðra fyrir ó- umflýjanlega tilviljun á víð- áttum Rússland. Þetta er mik- ið efni og stórfenglegt og framleiðendurnir kunna að hafa mjög svo rétt fyrir sér er þeir fullyrða að Zhivago lækn ir gefi ekkert eftir „Gone with the wind“ (Á hverfanda hveli) og hafi meira að segja snjóinn fram yfir hana. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.