Morgunblaðið - 01.10.1965, Side 6

Morgunblaðið - 01.10.1965, Side 6
ð MORGUNBLAÐID Föstudagur 1. október 1965 — fullyrðingar rannsóknar- Leikendur tveir, sem leika samanlagt 50 hlutverk 1 FYRRADAG kom hlngað til inn lands bandaríski leikflokkur- Ný songplata IViagnúsar Jónssonar FYRIR skömmu er komin á markaðinn ný LP-(hljómplata með söng Magnúsar Jónssonar tenorsöngvara. Á plötunni eru fjórtán sönglög eftir jafnmarga íslenzka hötfunda. Undirleikari er Ólafur Vignir Albertsson, en útgefandi SG-hljómplötur. Undirritaður gat því miður ekki verið vfðstaddur síðustu tón leikana, sem Magnús hélt hér heima, snemma í sumar, en flest ir sem þá heyrðu, munu vera á einu máli um, að hann hafi sjald an verið betur á sig kominn radd lega, eða „í betra formi" eins og sagt er. Svipað má segja um söng hans á þessari plötu. Glæsi bragur raddarinnar nýtur sín þar víða mjög vel, söngurinn er þrótt mikill og karlmannlegur, og margt er tekið næmum tökum. Þó er Ijó'ðasöngur naumast sterk asta hlið Magnúsar, einkum eins og rödd hans hefir þróazt síðustu árin. Ýmisleg ónákvæmni, bæði í meðferð laga og ljóða, er til óprýði á þessari annars skemmti legu plötu og ekki sarruboðin svo vel menntum og ágætum söngv- ara sem Magnús er- En margir munu fagna því sýnishorni ís- lenzkrar sönglagagei'ðar, sem platan hefir að færa, og óska þess eins, að það hefði verið enn fjölbreyttara en raun ber vitni. Ólafur Vignir Albertsson leys- ir sitt hlutverk af hendi með prýði. Frágangur plötunnar af hálfu útgefanda er að flestu leyti me'ð Framh. á bls. 31 „Brinkmann American Theatre Group“ og mun hann leika og syngja nokkurn hluta kvæðabálksins „Spoon River Anthology“ eftir Edgar Master eða Kirkjugarði í Skeiðarár- þorpi eins og Magnús Ásgeirs- son kallar hann, en nokkur ljóð úr þessum kvæðabálki hafa birzt í þýðingu hans. Leikflokkurinn kemur hingað frá Noregi, en hann mun dvelj- ast hér í tíu daga og væntan- lega halda sjö sýningar hér. — Verða fjórar þeirra hér í Rvík, tvær væntanlega á Akureyri og ein í Vestmannaeyjum. Fyrsta sýningin verður á föstudags- kvöld og þá í tilefni af því að liðin eru 25 ár frá því að fyrsti sendiherra Bandaríkjanna af- henti skilríki sín hér. í leikflokknum eru tveir leikarar, þau Ruth Brink- mann, sem leikflokkurinn er kenndur við, og Maurice Warner, tveir söngvarar, Dorthy Millar og John Gittings, sem syngja ýmiss bandarísk þjóðlög, leikstjórinn Franz Schafarnek, sem er eiginmaður Ruth Brinkmann og leikmynda- teiknarinn Tibor Vartok. — Starf leikendanna er æði yfir- gripsmikið í leik þessum, því að !þau þurfa að leika hvorki meira né minna en 25 hlutverk hvort. „Brinkmann American Theatre Group“ var stofnað fyr ir þremur árum í Vín og hefur kjarninn verið að mestu hinn sami síðan. f>au hafa farið víða um lönd og sýningum þeirra verið vel tekið. Héðan fara þau svo á miðvikudag og halda þá til Finnlands en að því loknu til Svíþjóðar og Danmerkur. Að- setursstaður þeirra er Vín. verkstjóranámskeiðanna STJÓRN verkstjómamámskeið- anna hefur ákveðið að halda tvö námskeið fyrri hluta vetrar og hefst vetrarstarfið með al- mermu námskeiði 4. okt. n.k. Verður þetta fyrra námskeið með svipuðum hætti og nám- skeið þau, sem haldin hafa ver ið undanfarna vetur, en þau hafa verið skipulögð með til- liti til þess að þau gætu sótt starfandi verkstjórar og aðrir verkstjórnendur úr hvaða starfs grein sem er. Er hér um að ræða 4ra vikna námskeið og verður kennslu- og fyrirlestrarefni:, verkstjórn, vinnusálfræði, öryggismál, at- vinnulöggjof, atvinnuheilsu- fræði, hjálp í viðlögum, vinnu rannsóknir, vinnueihföldun, — ákvæðisvinna, skipulags- og flutningatækni, rekstrarhag- fræði o.fl. Kennslu og fyrir- lestra annast 10 sérfræðingar í ýmsum greinum. Síðara námskeiðið er sérnám skeið fyrir frystihúsverkstjóra, sem hefst 28. okt. n.k. og er þar um að ræða nýjan þátt í starfsemi námskeiðanna. Námskeiðið hefur verið skipu lagt í samráði við sérfræðinga í þjónustu Sölumiðstöðvar Hrað frystihúsanna og Sjávarafurða- deild Sambands ísl. samvinnu- félaga. Námsefni verður að nokkru það sama og á hinum al mennu námskeiðum, en aðhæft frystihúsrekstri og bætt við ýmsu er sérstaklega varðar fisk vinnslu og frystitækni. Auk hinna venjulegu kennslukrafta námskeiðanna, munu nokkrir sérfræðingar frystihúsanna ann ast kennslu á þessu námskeiði. Forstöðumaður námskeiðanna er Sigurður Ingimundarson verkfr. Iðnaðarmálastofnun Is- lands, Skipholti 37, annast fram kvæmd þeirra og veitir allar nánari upplýsingar. (Fréttatilkynning frá stjórn Verkstjóranámskeiðanna). ýkr Eru að selja sumar- kartöflurnar Vegna fyrirspurnar um kartöflur, sem birtist í þessum dálkum á miðvikudag, hefur Velvakanda borizt eftirfarandi yfirlýsing frá E. B. Malmquist, yfirmatsmanni garðávaxta: „Þar sem í Ijós hefur komið við athugun á kártöflu- og gul- rófubirgðum nokkurra verzl- ana og matsölustaða, að ofan- greindar vörur hafa verið seld- ar óflokkaðar og ómetnar, — þá er hlutaðeigandi aðiljum hér með bent á, að samkvæmt 33. gr. laga nr. 59/1960 um fram leiðsluráð landbúnaðarins o. fl. og reglugerð nr. 162/1962 skulu allar kartöflur, gulrófur og gul rætur, sem seldar eru til mann- eldis, vera metnar, flokkaðar og auðkenndar á umbúðum, éins og matsreglur ákveða. Brot varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkv. lögum. E. B. Malmquist". Vélvakandi hefur sannfrétt, að mjög hafi borið á því hjá sumum kaupmönnum, að þeir hafi legið með gamlar birgðir af kartöflum frá sumaruppsker unni. Þetta er ómetin vara, sem þolir afar illa geymslu, ekki sízt í pappírsumbúðum í heit- um búðum. Hefur komið i ljós, eins og fram kemur í yfirlýs- ingu yfirmatsmanns, að nokkr- ar verzlanir og nokkrir matsölu staðir hafa gerzt sekir um að hafa á boðstólum kartöflur frá sumaruppskerunni, en 20. sept. sl. var sett mat á kartöfiur og aðra garðávexti skv. lögum, og er þvi algerlega óheimilt (sbr. yfirlýsinguna) að selja aðra garðávexti en þá, sem hafa ver ið flokkaðir og metnir. Þegar fólk fær óætar kartöflur, á það ekki að hika við að skila þeim og fá nýjar og kæra seljandann fyrir heilbrigðisyfirvöldunum. Neytendur eiga ekki að þola, að prangað sé inn á þá ógeðslegum slepjukartöflum, sem ekki eru einu sinni skepnum bjóðandL Zebrabrautin kom- in, en . . . Hér var sagt frá áhyggjum heimilisföður sl. þriðjudag. Son ur hans er í Laugalækjarskóla ÍC, PIR og þarf að fara yfir Sundlauga veg til að sækja leikfimitíma 1 íþróttahúsið í Laugardal. Áður en pistillinn birtist, var máluð zebrabraut yfir Sundlaugaveg, en fyrir vestan Laugalæk, svo að nú þurfa börnin að fara yfir þrjár götur (Laugalæk, Sund- laugaveg og Reykjaveg). Allt ætti þó að vera í lagi um öryggi barnanna, ef bílstjórar tækju tillit til gangbrautarinnar yfir þessa miklu umferðarbraut, en það gera þeir ekki allir, — þvl miður. T.d. var stúlka að fylgja tveimur börnum yfir hina merktu gangbraut sl. miðviku- dag, þegar þrír bílar óku á fullri ferð yfir hana, án þess að taka minnsta tillit til stúlkunn ar og barnanna. Því miður náði stúlkan ekki númerunum, því að hún þurfti að vera með allan hugann við börnin. Þarna þyrfti lögregluþjónn að vera á verði, a.m.k. í fyrstunni, meðan bifreiðarstjórar læra að virða rétt gangandi fólks á zebra- brautinni. 6 v 12 v 24 v B O S C H flautur, 1 og 2ja tóna. BRÆÐURNIR ORMSSON hf Vesturgötu 3. — Sími 11467. nefndar þing landsSns Kommúnisk bylting undirbúin í Perú? í yfirlýsingunni sagði, að gerð hefði verið alþjóðleg áætl- un um að koma á kommúnisma í Perú og öðrum löndum S- Ameríku“. Undanfarnar vikur hafa stað ið yfir víðtækar rannsóknir og yfirheyrslur á vegum nefndar- innar. Talsmenn stjórnar lands- ins hafa neitað að ræða skýrslu nefndarinnar. Stjórn Belaunde hefur marg sinnis lýst því yfir, að land- inu stafi engin hætta af skæru- liðum kommúnista. Skæruhern aður á landamærum sé hverf- andi, og stundaður af illa búnu liði manna, sem hafi hvað eftir anna beðið 1. 0ra hlut fyrir st j órnarhernum. í samstarfi Lima, Perú, 30. sept — AP: SÉRSTÖK rannsóknarnefnd þingsins í Perú skýrði svo frá í dag, að uppvíst hefði orðið um sameiginlega tilraun stjórnar Sovéríkjanna, Kúbu og Alþýðu lýðveldisins Kína til að koma á kommúniskum stjómarháttum í landinu. Hefðu kommúnistiaríkin þrjú varið um 170 millj. ísl. króna (4 millj. dala) til að þjálfa 1700 skæruliða, sem síðan hefðu átt að ná yfirráðum í Perú. Bandanski leikflokkurinn. T.v. Tibor Vertok; Maurice Wamer; Franz Schaftranek; Ruth Brink- mann og John Gittings. Á myndinia vantar Dorthy Miller. Bandarískur leikflokkur sýnir hér „Kirkjugarðinn í Skeiðarárþorpi" Yfirlýsing þessi var gefin á sameiginlegum fundi beggja þingdeilda í dag. Nefndarmenn eru úr báðum deildum, en meiri- hluti þeirra eru andstæðingar stjórnar Belaunde, forseta landsins. Mýr þáttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.