Morgunblaðið - 19.10.1965, Síða 10

Morgunblaðið - 19.10.1965, Síða 10
MORCU NBLAÐIÐ 10 fftr Þriðjudagur 19. október Í965 í Tíu Helgafellsbæk- ur koma út í dag Krossinn sýnir staðinn, ]»ar sem báturinn íórst, rétt út af Grinda- víkinni. Staðarbergið er rétt vestan við. í DAG koma í bókaverzlanir tíu nýjar Helgafellsbækur . „The Supreme Life“ (Ævi Jesú), eftir Ásmund Guðmunds- son, fyrrverandi biskup, kemur nú út í enskri þýðingu Kristins K. Ólafssonar. Hafa ýmsir er- lendir kennimenn, sem þegar hafa átt þess kost að lesa bókina, farið um hana miklum viður- kenningarorðum. Bókin er 320 bls. að stærð í stóru broti. Er bún sérstaklega ætluð þeim, sem senda jólabók til enskumælandi fólks. Ásmundur Guðmundsson. „Barbara“, hin kunna skáld- saga Færeyingsins Jörgen-Franz Jacobsen kemur út í 2. útgáfu í þýðingu Aðalsteins Sigmunds- conar. Bókin kom fyrst út fyrir 20 árum í litlu upplagi og seldist samstundis. Höfundurinn skrif- aði bókina í banalegunni, og lá handritið tilbúið á náttborðinu, þegar hann lézt. William Heine- sen ritar formála um höfUndinn. „Orgelsmiðjan“ nefnist ný skáldsaga eftir Jón frá Pálm- holti. Þetta er nútímasaga all- nýstárleg að formi og efni. Bókin gerist öll á einum degi meðan aðalpersónan liggur meðvit- Undarlaus í pyntingaklefa, en undirmeðvitundin starfar í sam- ræmi við þyntingarnar. Af þeim ástæðum getur sagan gerzt á ólíklegustu stöðum, svo sem i helvíti jafnt og jarðríki. 4. og 5. hefti timaritsins Helga- fell. koma út samtímis, og er hvort hefti aðeins ein ritgerð, hin fyrri eftir dr. Steingrím J. Þor- ■teinsson um Einar Benediktsson og hin síðari „Hversvegna orti Egill höfuðlausn?" eftir Pétur Benediktsson, bankastjóra. Þá er bók eftir Harald Jó- hannsson, hagfræðing, „í skugga efnahagsbandalags Evrópu'*. Bók eftir Dag Sigurðarson er hann kallar „Niðstöng hin meiri“, *ögur, greinar og kvæði. ,,Ský í buxum“ nefnist litil bók, þýdd kvæði eftir rússneska ljóðskáldið Vladimir Majakow- skí. Geir Kristjánsson þýðir úr frummálinu og skrifar greinar- korn um skáldið. Helgafell hefur áður gefið út bók um Boris Pasternak, Ijóðaþýðingar eftir sama þýðanda og grein um skáld- ið. Þá er komin út bók eftir Bjarna Benediktsson frá Hofteigi, sem hann kallar ,,1 andófi". Eru það fjögur stutt leikrit, í torf- mýrinni, Dánarminning, Vöxtur bæjarins og Ryk. Loks er komið út leikrit Er- lings Halldórssonar, „Minkarn- ir“ en það er einungis til sölu hjá höfundi. Eftirtaldar bækur eru vænt- anlegar fyrir jólin: Ný útgáfa af Illgresi Arnar Arnarsonar. Er þessi útgáfa K nokkru stærri en fyrri útgáfan, | ýmis kvæði komið 4 leitirnar, sem bætt hefir verið við. Endurtekningin eftir Sören Kirkegaard. Er efni bókarinnar sótt í ástir þeirra Sören Kirke- gaars og Regínu Olsen, en út af þeim samdi Kirkegaard flestar bækur sínar fyrri hluta ævinnar. Bókina þýddi Þorsteinn Gylfason og skrifar hann ítarlega ritgerð um höfundinn er birtist í bók- inni. GuIIna hliðið í útgáfu Matthí- asar Johannessen. Ný útgáfa af verkinu í litlu broti, og skrifar Matthías ítarlega ritgerð um verkið og höfundinn Davíð Stef- ánsson frá Fagraskógi. ÖIl verk Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, ljóð, skáldsögur og leikrit í sex bindum, koma út um næstú mánaðarmót. Þá kemur „Borgarlíf“ nútíma skáldsaga eftir Ingimar Erlend Sigurðsson og loks önnur nútíma saga eftir Jóhannes Helga „Svört messa“. Þá er í prentun bók Williams Heinesen ,,Hin sæla von“. Loks er jólabók ætluð íslenzku konunni, Æskuminningar Huldu. Þó alllangt sé liðið frá því að Hulda skáldkona lézt, hefir eng- inn fengið til prentunar það síð- asta sem skáldkonan færði í let- ur, fallega minningarbók frá æskuárum. Lýsir hún þar æsku- árunum og kynnum sínum af mörgum stórmennum þess tíma á Norðurlandi. Tveir hrútar biurmu inni PATREKSFIRÐI, 18. okt. — Um kl. 4 í nótt kviknaði í gripahús- um við Aðalstræti 72 á Patreks- firði. I húsunum var geymt hey og tveir hrútar. Slökkviliðið kom á vettvang nokkrum mínútum eftir íkviknunina, en stúlka í næsta húsi varð eldsins vör, og gerði brunaliðinu þegar aðvart. Húsið var orðið alelda er slökkvi liðið kom á vetivang. Tókst að slökkva í heyinu, en þá var húsið fallið. Hrútarnir brunnu inni. Eigandi hússins er Kristinn Fjeldsted. Húsið er vátryggt, en mér er ókunnugt um hvort hey- birgðir voru það — Trausti. EI.ZTA togaraútgerðarfélag landsins, Fiskveiðihlutafélagið AUiance, átti 60 ára afmæli í gær, 18. okt. Stofendur þess voru Thor Jensen, Halldór Kr. Þorsteinsson, Jón Ólafsson, Jón Sigurðsson, Jafet Ólafsson, Magn ús Magnússon og Kolbeinn Þor- steinsson. Félagið var lengi með stærstu fiskveiðihlutafélögum landsins, rak umfangsmikla togaraútgerð, fiskverkunarstöðvar og síldar- bræðslur. Fyrsti framkvæmdastjóri þess — Báfurinn Framha’d af bls. 32 þeim tókst að koma henni aftur í lag. Þannig gekk í ca. 3% tíma. Skipstjórinn hafði samband við skip og land um talstöðina og dáðust menn að rósemi hans. Síðast heyrðist í honum í tal- stöðinni, þegar hann sagði frá því að 7 skipverjar væru farnir í gúmmíbátnum, en hinn bátur- inn vildi ekki blásast upp, en ekki væri öll nótt úti enn. Og síðan að enski togarinn væri nú að leggjast upp að bátnum. Menn biðu við tæki sín. Loks kom hann aftur, í þetta sinn í stöð togarans, sagði að allir væru komnir þar heilir á húfi, þeim liði vel og togarinn mundi halda með þá til Reykjavíkur. Þakkaði hann öllum, sem höfðu unnið að björgunarstarfi. Eftir það tókst ekki að ná í brezka togarann. Já, þetta var tæpt. Mbl. hringdi í Tómas Þorvalds son, formann björgunarsveitar- inna/ í Grindavík, en sveitin fylgdist allan tímann með bátn- um úr landi, tilbúin með tæki sín, ef hann ræki upp. Tómas sagði, að björgunar- sveitin hefði haft fyrstu fréttir af þvi að Strákur væri í nauð kl. 6,15. Þá var suðvestan storm ur, 6—7 vindstig og gekk á með hríðaréljum. Var veltubrim, eins og Grindvíkingar kalla það, og alveg ófært út úr höfninni þar. Strákur var þá um 2 Vz mílu út af Staðarbergi, en þar er á nokkuð löngum kafla hátt berg. Rak bátinn upp undir land. en I síðan komu skipverjar upp segl var Thor Jensen, til 1910, en þá tók við framkvæmdastjórastörf- um Jón Ólafsson. Síðan 1930 hef- ur sonur Jóns heitins, Ólafur H. Jónsson, verið framkvæmdastjóri þess. Fyrsti togari félagsins var Jón forseti, eldri, sem smíðaður var í Skotlandi og kom hingað til lands 23. janúar 1907. í dag á félagið togarann Jón forseta, sem kom til landsins 1948. Lengi rak félagið síldar- verksmiðju á Djúpuvík, fisk- verkunarstöðvar á Þormóðsstöð- um og í Ánanaustum. um og gátu haldið í horfinu. 3ar þá austur með landinu, en þó alltaf ívið nær, þangað til þeir SÁTTASEMJARI hefur að und- anförnu haldið sáttafundi með útgerðarmönnum og yfirmönn- um á togurum um kaup og kjör þeirra síðastnefndu. Hafa samn- í GÆR rauk veðrið skyndilega upp með roki og rigningu í Sand gerði. Minni bátarnir fóru þá að slást utan í við bryggjurnar og einn þeirra, Sævar slitnaði upp, meðan verið var að reyna að koma á hann böndum og rak upp í krikann við höfnina. Þar brotn- aði hann og er talinn ónýtur. ÚTBOÐSFRESTUR i lagningu vatnsveitu úr landi til Vest- mannaeyja er útrunninn. Bárust alls 20 tilboð, hvaðanæva að úr heiminum, en ekkert frá íslenzk- um verktökum. Komu tilboð frá Noregi, Svíþjóð, Þýzkalandi, Frakklandi, Englandi, Banda- ríkjunum og víðar. Mbl. leitaði fregna jaf þessum tilboðum hjá Guðlaugi Gíslasyni, bæjarstjóra og hjá Innkaupa- stofnun ríkisins og var sagt að tilboðin væru mjög mismunandi, bæði hvað snertir aðferðir við að leggja vatnslögnina úr landi Tapaði veski með 12000 kr. UNGUR maður búsettur í Kópa- vogi var svo óheppinn að tapa peningum á sunnudaginn í nám unda vfð Félagsheimilið eða fyr- irtækið Litlaskálann. Peningarn- ir um 12.00 kr. voru í veski á- samt ökuskírteini mannsins og ýmsum skilríkjum félagssamtaka sem maðurinn starfar fyrir. Hann telur sig hafa tapað pen- ingunum eftir hádegi á sunnu- dag. Hugðist hann þá grípa til peninganna, en hann á íbúð í smíðum þar sýðra. Skilvís finn- andi peninganna er beðinn að gera lögreglunni viðvart, eða í síma 40539. voru þvert út af GrindavíkinnL Björgunarsveitin í landi sá þá að ljós var 1—2 mílur frá bátnum, þó skipverjar sæju það ekki, því þeir voru svo miklu lægra. Hafði björgunarsveitin samband við skipverja á Strák og bað þá um að setja upp rak- ettu, til að gera þessu skipi við vart. Sýndist þeim skipið þá breyta um stefnu. Þetta var brezki togarinn Imperialist, sem ekki hafði komið auga á bátinn. Og rétt um leið náði loftskeyta stöðin sambandi við brezka tog arann. Þeir náðu svo 7 mönnum 1 gúmmíbátnum, og síðan 2 aC bátnum sjálfum. Það sást illa úr landi, en togarinn virtist leggjast upp að Strák, sem brotnaði eitthvað við það, og náði þannig tveimur síðustu mönnunum. Aðspurður gizkaði Tómas á að Strákur hefði ekki verið meira en mílu frá brim- garðinum. Og þegar hann tal- aði við okkur var báturinn brot inn á reki í jaðrinum á brim- garðinum út af Hofsnesi. — Þetta hefur verið tæptT sögðum við. — Já, þetta var tæpt, svaraði hann. ingar ekki tekizt. í gær boðuðu yfirmenn á tog- urum verkfall frá mánudeginum 25. október. Sævar var 8—9 tonna dekkbát ur, eign Hrei'ðars Sigurjónssonar, sem hefur róið á honum í haust. Sandgerðismenn ruku til og fóru með litlu bátana út og ætl- uðu að liggja þar með þá meðan fló'ð væri, en bjuggust við að lægði þegar fjaraði. og eins væri efni það sem boðið er mjög mismunandi. Væru til- boðin því í tækniathugun hjá verkfræðingi, til glöggvunar áð- ur en farið er að bera tilboðin saman. Gífurleg aðsókn að Kjarvalssýn- ingu GÍFURleg aðsókn hefur verið að Afmælissýningu Kjarvals 1 Listamannaskálanum. Á sunnu- dag komu nær 2000 manns, og af þeim keyptu 1400 happdrættis- miða og inn kom í peningum þennan eina dag í byggingarsjóð myndlistarmanna 141 þús. kr. Er þá samtals komið inn á tveim ur og hálfum degi yfir fjórðung- ur milljónar. Það vekur athygli hve margir láta börn sín, jafnvel innan fermingar, votta Kjarval vináttu sína með því að kaupa happdrættismiða í happdrætti harts. Ástæða er til að vekja athygli fól'ks að skoða sýninguna næstu daga því um helgina verður áreið anlega húsfyllir. Sýningin verður til sunnudagskvölds næstkom- andL Fyrsti togari félagsins „Jón forseti" á siglingu út aí Axnarfirði. AIEiance 60 ára ■ gær Yfirmenn á togurum boða verkfall Bát rak upp í Sandgerði 20 tilboð í vatns- lögnina í Eyjum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.