Morgunblaðið - 23.10.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.10.1965, Blaðsíða 1
32 síður 52. árgangur. 242. tbl. — Laugardagur 23. október 1965 Premtsmiðja Morgunblaðsins. Wi!son til Rhodesíu ásunnudag London, 22. okt. (AP) HAROLD Wiison, íorsætis- ráðherra Bretlands, íer á sunnudag flugleiðis til Salis- bury, höfuðborgar Rhodesíu, þar sem hann mun dveljast um vikutíma og ræða við Ian Smith, forsætisráðherra. I för með Wilson verður Arthur Bottomley, samveldis- málaráðherra, auk fimm ráð- gjafa. Litið er á för Wilsons til Rhodesíu sem mjög vafasama. Er talið að erfitt verði fyrir hann að ná nokkru samkomu- lagi við Smith um framtíð Rhodesíu, en komi hann tóm- hentur til baka, muni hann bíða mikinn álitshnekki. Hins vegar yrði það að sjálfsögðu mikill persónulegur sigur fyr- ir Wilson, tækist honum að ná einhverju samkomulagi við Framh. á bls. 2 Fundur fiokksráðs Sjálfstæðisflok ksins um fielgina í DAG kl. 10 f.h. hefst ráS- i stofna SjáMstæSisflokksins um svcitastjórnarmál en fundur flokkráSs SjálfstæSisflokksins verð'ur haldinn í sambandi viS hana. Til ráSstefnu þessarar er boS- iS fulltrúum SjálfstæSisflakks- ins í sveitastjórnum um land allt, en jafnframt munu flokksráSs- menn sitja hana. Róðstefnan verður sett í dag kl. 10 f.h. Verða þá kjörnar nefnd ir, en síðan mun formaður Sjálf- stæðisflokksins dr. Bjarni Rene- diktsson, forsætisráðherra flytja ræ'ðu, Kl. 2 í dag mun Geir Hall- grimsson, borgarstjóri, flytja rœðu um verkefni sveitarfélaga | og Jón G. Sólnes, bankastjóri forseti bæjarstjórnar Akureyrar flytja ræðu um fjármál sveitar- félaga. Að loknu kaffihléi kl. 16,30 mun Þorvaldur Garðar Krist- jánsson, framkvæmdastjóri Sjálf stæðisflokksins flytja ræðu um undirbúning og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga. Að lok- inni ræðu hans verða almennar umræðum. Ráðstefnunni verður fram hald ið kl. 10 á morgun, sunnudag, og verður þá tekin fyrir ályktun um sveitarstjórnarmál. Almennar um ræður halda áfram efti matar- hlé kl. 14 og verður ályktunin þá jafnframt afgreidd. ■ Mynd þessi var tekin í The Mariners Museum, Newport | News, Virginia í Bandaríkj- unum, við hátiðahöld, sem þar fóru fram í tilefni dags Leifs heppna, 9. október sl. Fjöl- 1 menni var við samkomu þessa. i •tm m.a. sóttu fulltrúi norska : sendiherrans vestra og Pétur Phorsteinsson, sendiherra ís- í lands í Washington, sem flutti barna ræðu og minntist land- töku Leifs í Ameríku. , | 1 dag og næstu daga birtir Vlbl. nokkrar greinar um Tale-kortið, sem talið er aS færi sönnur á landafundi Leifs og byggðar eru á þeirri rægu bók „Tlie Vinland Map ;nd the Tartar Relation". — ; ' y rsia greinin er á bls. 10 og 1 í blaðinu í dag. Ráöstefna Sjálfstæöisflokksins um sveitarstjórnarmál hefst í dag Johnson til Hvíta hússins Fundur Flokksráðs Sjálfstæð- isflokksins verður boðaður eftir nánari ákvörðun. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins heldur fulltrúum á ráðstefnunni síðdegisboð kl. 17—19 á sunnu- dag. Washington, 22. okt. (NTB) LYNDON B. JOHNSON, forseti Bandarikjanna, kom í dag til Hvíta hússins í fyrsta skipti síð Fraimhald á bis. 2. Lyndon B. Johnson, Bandaríkjaforseti, er nú kominn heim til Hvíta hússins frá sjúkrahúsinu í Bethesda. En mynd þessi er tekin í sjúkrahússgarðinum áð ur en hann fór. Var forsetinn að sóla sig þegar ljósmyndarann bar að garði, og varð fúslega við beiðni um að sýna á sér skurðinn. Erhard leggur fram ráðherralista En ráðherraefnin ekki öll ánægð með embættin Bonn, 22. október - (NTB). LUDWIG Erbard, kamlari V- Þýzkalands, afhenti í dag Hein- rich Lúbke, forseta, ráðherralista sinn. Tilnefnir Erhard þar 19 meðráðherra sína í næstu ríkis- stjórn, 12 úr flokki kristilegra demókrata, fimm kristilega sósíal ista og fjóra úr flokki frjálsira demókrata. Eiga nýju ráðherr- arnir það sameiginlegt að flestir eru þeir unigir að árum, hafa öði.rzt reynslu sína að mestu á & árunum eftir heimsstyrjöldina síðari. Ráðherralistinn verður ekki birtur í heild fyrr en á þriðjudag. Ekki hafði Erhard fyrr lagt fram ráðherralistann, en fram komu óánægjuraddir varðandi embættaskipanir. Paul Mikat, sem Erhard ætlaði að skipa inn- anríkisráðherra, lýsti því yfir í dag að hann kysi heldur fyrra embætti sitt, en hann hefur ver- ið menningarmálaráðherra fylk- isstjórnarinnar í Nordrhein- Westfalen. Er hann sagður hafa samþykkt að taka að sér embætti innanríkisráðherra, en skipt um skoðun. Þegar fréttist um ákvörðun Mikats, komu fleiri ráðherraefni fram með óskir um breytingar. Þannig t. d. Paul Lúcke, sem átti að verða verkamálaráðherra, heldur embætti húsnæðismála- Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.