Morgunblaðið - 23.10.1965, Side 10

Morgunblaðið - 23.10.1965, Side 10
10 TORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 23. október 196S VÍNLANDS - KORTIÐ Fátækur munkur í * \ tímahraki suöur íBasel Um efni bókarinnar og sögu í stuttu máli Flestir bókamenn munu kannast við „Skáldatíma" . Laxness sem hér er höfð til vidmidunar um stærð Vínlands-bókarinnar. MARGIR hafa velt því fyrir sér, hvað sú bók hafi að geyma, sem mesta athygli hefur vakið allra bóka á heimsmarkaðnum undanfar- ið, þ.e. „The Vinland Map and the Tartar Relation“. Bók þessi hefur að vonum vakið mikla athygli hér á landi, enda fjallar hún um mál sem lengi hefur verið til umræðu meðal íslenzkra fræðimanna, þ.e. fund Græn lands og Vínlands og frá- sagnir íslenzkra heimilda af þeim. — Mun Morgunblaðið skýra frá bók þessari í nokkr um greinum sem birtast munu í blaðinu á næstunni. J>ó ekki verði hér gerð nein vísindaleg skilgreining á Vín- landsbókinni, skal þegar tekið fram, að í augum leikmanns, sem hana handfjaliar og les (eftir áhuga og getu), virðist hér vera um að ræða mjög x vísindalega unnið og vel gert fræðirit. Höfundar bókarinnar eru: R.A. Skelton, Thomas E. Marston og George D. Painter, en formála að henni ritar Alex- ander C. Vietor. Fræðimenn þessir starfa, eins og fyrr hefur verið frá sagt í fréttum af Vín- landsbókinni, við British Muse- um og Yale-háskóla og hafa haft veg og vanda af rannsókn- um þeim sem að baki liggja út- gáfu hennar. Vínlandsbókin er í m j ö g stóru broti (um 30x24 cm), 267 blaðsíður að stærð auk 6 síðna bókaskrár og ítarlegrar nafna- skrár aftan við ritið. Formál- ann ritar Alexander C. Vietor eins og fýrr segir og er hann dagsettur í maí í vor er leið. I>ar segir Vietor m. a. : „Skjöl þau, sem hér er um fjallað, eru svo eínstök að ekki fer hjá því að menn dragi í efa að þati geti verið ófölsuð og þar sem sögulegur ferill þeirra verð ur ekki rekinn, er ekki hægt að færa á það gildar og óhrekjan- legar sönnur að þau séu ósvik- in. Engir að síður hafa niður- stöður rannsókna á innihaldi þeirra og formi innan sögulegs ramm^ fært fyrir því svo sterk- ar líkur að mjög erfitt mun reynast, ef ekki ókleift með öllu, að vefengja áreiðanleik þeirra. Gerðar hafa verið á handritinu allar þær prófanir, sem unnt var, án þess að skadda það á nokkurn máta. Rannsökuð var rithöndin á skjalinu og eiginleikar efni- viðarins (bókfells, pappírs, bleks) og reyndist allt koma heim við aldursákvörðunina („um 1440“) og sömuleiðis heim við allar ályktanir okkar sem að útgáfu þessari stöndum varð I andi upprunastað þess og alla gerð. Allar gildar sannanir, sem fengnar urðu bæði eðlislægar og byggðar á efninu, benda til þess svo að tæpast verður í efa dregið, að Vínlandskortið og Tartarafrásögnin hafi hvort- tveggja verið í bókinni frá upp- hafi. Á báðum er að finna efni sem ekki er áður þekkt af öðr- um heimildum og stenzt sögu- lega gagnrýni. Þeir sem, unnið hafa að undirbúningi bókarinn- ar, ásamt þeim er þetta ritar, hafa gengið úr skugga um að sannanir þessar, þó um sumt séu þær líkindasannanir einar og atvikum háðar, og geti ekki talizt fullgildar sannanir að lögum, réttlæti engu að síður fyllilega þá skilyrðislausu stað- hæfingu að handritið sé ófals- að“. Efni bókarinnar Á eftir formálanum kemur yfirlit yfir efni bókarinnar og er á þessa leið: Fremst er skrá um landabréf og aðrar myndir, sem í bókinni eru, s. s. sýnis- horn af rithöndinni á kortinií og handritunum, myndir af bókarspjöldum beggja handrita hlutapna og ljósprentanir af Vínlandskortinu og af Tartara- frásögninni. I>á kemur fyrsti bókarkaflinn og fjallar hann um upprunalega handritið. Thomas E. Marston skrifar hann og lýsir þar handritinu nákvæmlega og rekur sögu þess bæði fyrir og eftir að það var bútað sundur. Næst koma ljós- prentanirnar af Vínlandskort- inu — bæði í bak og fyrir og af allri Tartarafrásögninni, sem er 21 blað og á eftir þeim sjálf Tartarafrásögnin á latínu og ensku og hefur George D. Painter veg og vanda af þeim kafla, skrifar inngang að hon- um, þýðir frásögnina og skýrir neðanmáls ( og er oft mikið mál). Þá fjallar næsti kafli um Vínlandskortið og ritar hann R. A. Skelton. Er sá kafli miklu viðamestur, eða alls 133 blað- síður. Loks er svo kafli sem ber heitið: „The Vinland Map and the Tartar Relation: an Interpretation og er eftir Paint- er. Lýsir hann þar viðhorfi sínu til hvorttveggja, kortsins og Tartarafrásagnarinnar, og setur fram skoðanir sínar, sem um sumt eru engan veginn sam- hljóða skoðunum Skeltons og bjóða heim miklum vangavelt- um um landnám íslendinga eða norrænna manna í Vesturheimi. Bianco-kortið Við lestur bókarinnar kemur í ljós, að það kort annað en Vínlandskortið, sem hlýtur að vekja hvað mesta athygli þeirra sem í bókinni eru, er kort eitt gert af Italanum Bianco, árið 1436. Er svo að sjá sem annaðhvort hafi kort þetta verið fyrirmynd kortagerðar- manni þeim er Vínlandskortið gerði, ellegar þá að sama fyrir- myndin sé að báðum kortunum, Vínlandskortinu og korti Bi- ancos, svo lík eru þessi kort um margt og mikið ,eins og síðar verðuf að vikið í þessum greinaflokki. Ekki hafa fræðimennirnir þó látið sér nægja kort Biancos eitt eins og nærri má geta og til gamans fer hér á eftir skrá um helztu 14. og 15. aldar kort þau, sem um er fjallað í ritinu: 1. kort eftir Giovanni da Carigano, gert í Genúa um 1310. 2. Kort eftir Fra Paolino Minorita gert í Avignon í Frakk landi um 1320. 3. Kort gert um 1321 í Genúa, höfundur talinn Petrus Ves- conte, virðist byggt á korti bróður Paolino. Til eru tíu kort eftir Vesconte, mörg þeirra und irrituð af honum sjálfum. 4. Kort gert í Chester í En"- landi um 1350, höfundur Ran- ulf Higden. 5. „Medici“-kortið svokallaða, heimskort í Laurentínsku sjó- kortabókinni- ítölsku frá árinu 1351. Þetta er fyrsta kortið, sem sýnir Azoreyjar. 6. Kort gert árið 1367 í Fen- eyjum á Ítalíu, höfundar eru Marco og Francesco Pizzigano. 7. Katalónskt kort, gert á Majorku árið 1375, höfúndur Abraham Cresques. 8. Borgia-heimskortið, gert á fimmtándu öld, á fyrra helm- ingi aldarinnar að talið er og sennilega í S-Þýzkalandi. 9. Kort gert á ítalíu, árið 1415 að talið er, höfundur Pirrus de Noha. 10. Annað ítalskt kort, gert að öllum líkindum á árunum 141Þ—1415 í Feneyjum og senni lega byggt á Laurentínsku sjó- kortabókinni. 11. Kort það er gerði Andrea Bianco í Feneyjum árið 1436 og meira verður sagt frá síðar. 12. Kort eftir Giovanni Le- ardo, gert á árunum 1442—52/3 í Feneyjum, byggt á upplýsing- um frá Nicolo de Conti og frá katalónskum kortum. 13. Svissneskt kort frá árinu 1448. 14. Katalónskt heimskort — Catalan-d’Este-kortið, gert á ár unum 1450—60 að því er talið er, ef til vill á eynni Majorku, svipað katalónska kortinu frá 1375 og enda stundum talið fjórtándu aldar kort. 15. Genúa-heimskortið, gert árið 1457 í Genúa á Ítalíu svip- ar mjög til Leardo-kortsins. 16. Kort er gerði Fra Mauro 1 Feneyjum árið 1459 þar- sem samantekin virðist vera land- fræðileg þekking fimmtándu aldar manna. Fyrstu rarmsóknir Fyrsti kafli bókarinnar, sem er eftir Thomas E. Marston, fjallar eins og fyrr getur, um hið upprunalega handrit. Er honum skipt í sjö kafla, sem heita: 1. rakinn ferill handrits- ins og hvernig það komst í hend ur Yale-háskóla; lýsing á hand- ritinu; fornleturfræðileg rann- sókn; pappír, bókfell og blek; bandið á bókinni; texti að hand riti Vincents frá Bauvais og loks yfirlit. í fyrsta kaflanum um sögu handritsins, segir Marston m. a., að í október hafi fornbókasali nokkur í New Haven, Laurence Witten, sýnt þeim Alexander O. Vietor handrit eitt, tiltölu- lega nýinnbundið í kálfskinn, sem haft hafi að geyma heims- kort. er á voru teiknuð m. a. Island, Grænland og Vínland ásamt áður óþekktri frásögn af sendiför bróður Carpini til Tartara (Mongóla) 1245—47, sem Witten kvaðst hafa fengið úr einkasafni í Evrópu. Síðan segir Marston: „Vietor og ég skoðuðum handritið gaum gæfilega. Bæði kortið og text- inn virtust okkur vera ófalsað og okkur leizt handritið mundi vera gert í Rínarlöndum ein- hvern tíma um miðja 15. öld. Nokkrir textanna á kortinu virtust við lauslegt yfirlit eiga heima í eða vera komnir úr handritinu um sendiför Carp- .inis. En tvenht var það, sem kom okkur til að efast um, að handritið og kortið ættu saman að réttu lagi. Hið fyrra voru göt eftir bókaorma á hvoru- tveggja. Bæði kortið og hand- ritið voru nokkuð ormétin, en slóðin eftir bókaormana á báð- um hlutunum stóðst ekki á. Hitt olli okkur þó enn meiri heilabrotum, að framan á kortið (sem eins og áður hefur verið sagt var þannig brotið að kort- ið sjálft var innan í brotinu) var skráð athugasemd, sem af virtist mega ráða, að þar hefði átt að koma á eftir alllöng frá- sögn, í mörgum köflum, sem ekkert átti skylt við Tartara- frásögnina að því er séð varð. Þá segir Marston frá því að í apríl 1958 hafi hann fengið senda fyrirfram skrá um sölu- bækur frá fornbóksala einum í London og pantað hjá honurh nokkrar bækur á skránni, þar á meðal handrit eitt af „Spec- bókaormana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.