Morgunblaðið - 23.10.1965, Síða 19

Morgunblaðið - 23.10.1965, Síða 19
Laugardagur 23. oktíber 1965 MORGU N B LAÐIÐ 19 Fyrsti kjarasamningurinn geröur 1917 —Sjómarmafélagið Framhald af bls. 17 á seglskipunum fóru æ versnandi á þessum árum, því nú voru eng in samtök meðal sjómanna og út- gerðarmenn höfðu ekkert aðhald úr þeirri átt. Verkamannablaðið hvatti sjómenn til samtaka hvað eftir annað og sýndi fram á sam- takaþörfina. En sjálft varð það að hætta í janúar 1914 vegna deyfðar og samtakaleysis 'verka- lýðsins. Svo skall á ófriðurinn og afleiðingar hans komu fljótt í ljós í aukinni dýrtíð. Fór þá sem endranær, að laun verkamanna hækkuðu ekki jafn ,ört né að sama skapi, sem peningar féllu í verði. Kjör verðalýðsins íhríðversnuðu af þeim sök- um. Vorið 1915 fór nýtt lífs- xnark að sjást með' samtök- um verkalýðsins, þegar verka- mannablaðið „Dagsbrún" fór að koma út. í 2. tölúblaði þess blaðs er tekin upp að mestu grein „há- seta“ úr Verkamannablaðinu, „því engin breyting til batnaðar er enn þá komin, síðan þessi tveggja ára gamla grein var skrif uð“, segir blaðið. Aftan við grein ina leiðir svo blaðið skýr og sterk rök að því, hver nauðsyn sé á að bæta ástandið. Nokkru seinna flytur blaðið grein um vökurnar á botnvörpuskipunum, bendir á að alþingislög séu eina úrlausnin á því máli og heimtar að slík lög séu sett. í byrjun októ ber ritar F. J. grein í Dagsbrún og hvetur til að stofna Sjómanna félag. Daufar undirtektir sjómanna En sá sem fyrstur hóf verkleg ar framkvæmdir var Jón Guðna- son, þá háseti á botnvörpuskip- inu Nirði. Jón var í landi fyrri hluta október. ■ Notaði hann þá Sigurjón Á. Ólafsson, formaður í 31 ár. tímann til þess að ganga á milli manna og leitast fyrir um þátt- töku í stofnun sjómannafélags. Undirtektir sjómanna voru fyrst í stað heldur daufar, enda þorri manna þá á sjó. Sá sneri Jón sér til ritstjóra „Dagsbrúnar** Ólafs Friðrikssonar, sem tók þessum ráðagerðum Jón fegins hendi. Einnig sneri Jón sér til Jónasar Jónssonar frá Hriflu og brást hann vel við. Nokkru seinna var boðað til fundár til þess að und- irbúa félagsstofnun. Ágrip af því sem á fundinum gerðist var fært til bókar, og er fundargerðin þannig í heild: „Laugardaginn 16. ok!t. var fundur haldinn um kvöldið í Good-templarahúsinu í Reykja- vík, til þess að ræða um stofnun sjómannafélags. Voru nær 50 manns mættir í fundarbyrjun, og voru það nær allt sjómeenn. Jón Guðnason setti fundinn. Fundarstjóri var skipaður Ólaf- ur Guðmundsson, en ritari Ólaf- ur Friðriksson. Jón Guðnason hóf umræður Hið glæsilega hús Sjómannafélagsins við Lindargötu, sem það á ásamt vm. Dagsbrún, og tóku alls 9 menn þátt í þeim. Var að þeim umræðum loknum samþykkt, með öllum greiddum atkvæðum að stofna sjómanna- félag. Urðu þá á ný' æðimiklar umræður málinu viðvíkjandi. Komu fram tillögur um að hvorki skipstjórar né stýrimenn, er störfuðu sem slíkir, mættu vera í félaginu, og voru þær báð- ar samþykktar einum rómi. Til þess að semja uppkast að lögum fyrir félagið og boða til næsta fundar voru þessir menn kosnir: Guðleifur Hjörleifsson, Jón Guðnason, Hjörtur Guð- brandsson, Ólafur Friðriksson, Jónas Jónsson frá Hriflu, Jósep Húnfjörð og Ólafur Guðmunds- son. Að þeirri kosningu lokinni var fundi slitið. Ólafur Guðmundsson Ólafur Friðriksson“. Laugardaginn 23. okt. 1915 var svo haldinn almennur hásetafund ur í Bárubúð. Furtdarstjóri var Jón Guðna- son og hóf hann umræður. Nefndin sem kosin hafði verið á undirbúningsfundinum. lagði fyrir fundinn frumvarp til laga fyrir væntanlegt félag og hafði Ólafur Friðriksson orð fyrir nefndinni. Eftir að hafa lesið lögin grein fýrir grein, lagði hann fram til- lögu um að þá þegar yrði stofnað Hásetafélag Reykjavíkur og var það samþykkt. Lagafrumvarp það, sem nefndin hafði samið var samþykkt með litlum breyting- um. . Lögin voru í verulegum atrið um sniðin eftir lögum verka- mannafél. Dagsbrún, en það félag er um 9 ára eldra en Sjómanna- félagið. Tilgangi var lýst í 2. gr. „Til- gangur félagsins-er að styðja og efla hag atvinnu háseta". í 3. gr. segir: „Rétt til að vera meðlimir hafa allir hásetar, er stunda at- vinnu á hafskipum. Nú verður félagsmaður stýrimaður eða skip stjóri, og er hann þá úr félaginu“. Aðrir höfðu ekki rétt til að vera félagsmenn, nema þeir væru meðal stofnenda eða þeir væru samþykktir á tveim félagsfund- um í röð með leynilegri atkvæða greiðslu (4. gr.). Stjórnin var skipuð 7 mönnum (6. gr.) og ,auk þess gert ráð fyrir framkvæmda stjóra síðar (14. gr.). Inngangs- eyrir var ákveðin 2 kr. og árstil- lag 4 kr. (15. gr.). í 21. gr. segir: „Aukalög skulu lögð fyrir félags- fund til samþykktar. Aukalögin skulu tiltaka kröfur félagsmanna gagnvart útgerðarmönnum, og má enginn félagsmaður ráðast á skip fyrir minna en þau ákveða“. Aukalögunum mátti breyta á að- alfundi eða almennum félags- fundi með meirihluta-samþykki (30. gr.). Á stofnfundinum vannst ekki tími til að kjósa stjórn fyrir fé- lagið. I>að var gert á fundi 29. okt. og varð fyrsta stjórnin skip- uð sem hér segir: Jón Bach, formaður Jósep Húnfjörð, varaformaður Ólafur Friðriksson, ritari Guðmundur Kristjánsson, féhirðir Guðleifur Hjörleifsson, varaféhirðir Björn Blöndal Jónsson, aðstoðarmaður Jón Einarsson (yngri), aðstoðarmaður Endurskoðendur voru kosnir: Jónas Jónsson frá Hriflu Grímur Hákonarson Jón Guðnason Á þessum fundi gengu margir í félagið og í fundarlok voru fé- lagsmenn orðnir 165. Á félagsfundi 3. nóv. var lesið og rætt frumv. til aukalaga (þ.e. taxta um kaup og kjör sem und- irbúningsnefnd hafði samið. Aukalögin voru samþykkt og var það fyrsti taxti úm kaup og kjör háseta á togurum, á hringnóta- veiðum, á handfæraveiðum og á vélskipum. Þessi taxti var sendur útgerðar mönnum og fékk, vægast sagt, litlar undirtektir, t.d. þóttist einn framkv.stjóri ekki geta gefið á- kveðin svör vegna þess, að: „eftir lögum og landsvenjum er það skipstjóri, en ekki félagsstjórnin sem ráða skipshafnir. hvern mann með ákveðnu kaupi“. Á þessum sama fundi var les- ið bréf frá vmf. Dagsbrún, með áskorun um að kjósa tvo menn, til þess að undirbúa stofnun verkamannasambands. Var það samþykkt og voru einum rómi kosnir þeir Jónas Jónsson frá Hriflu og Guðleifur Hjörleifsson. Samvinna þeirra félaga svo og fleiri verkalýðsfélaga leiddi til þess, að Alþýðusamband íslands var stofnað litlu. síðar, eða 12 marz 1916. Félagið lét fleiri mál til sín taka þegar í byrjun, en aðeins varðandi kaup og kjör. Á fundi 21. nóv. flutti Matthías Ólafsson erindi, að undirlagi stjórnar félagsins, um líftrygg- ingu sjómanna og á tveim fund- um var rætt um þátttöku í bæj- arstjómarkosningum og alþingis- kosningum og var á síðari fund- inum, 28. nóv. samþykkt svohljóð andi yfirlýsing: „Hásetafélagið álítur það heyra undir verksvið sitt, að kjósa alþýðumenn í bæjarstjórn og til þingsetu, en ekki höfðingja svokallaða, eins og verið hefur“. Fyrsta verkfallið árið 1916 Fyrst£T verkfall sitt háði félag- ið vorið 1916 og var það sérstak- lega vegna lifrarinnar á togurun- um. Verkfallið var nokkuð hart, en ekki árangursríkt að sama skapi, nema að því leyti, að það sýndi sjómönnum, að hægt væri að ná góðum árangri, ef allir sjómenn væru félagsbundnir og samtök góð. í ársbyrjun 1917 náði félagið samningum við Fél. ísl. botn- vörpuskipaeigenda og var það raunverulega fyrsti samningur inn, sem félagið gerði. Hér hefur, nokkuð nákvæm- lega verið sagt frá tildrögum að stofnun félagsins, svo og fyrstu viðfangsefnum. Á þessari hálfu öld, sem félag- ið hefur lifað og starfað hefur það mikið gerzt, að ómögulegt er í stuttu máli að lýsa því öllu, enda óþarft nú þar sem verið er að skrifa 50 ára sögu félagsins. Sú bók gat því miður ekki komið út fyrir afmælið eins og ætlað var, en mun koma út á næsta ári. Það hafa skipzt á skin og skúr- ir í lífi og starfi félagsins, stund- um hefur gengið allvel, stundum miður. en alltaf hefur verið sótt á og nokkuð miðað áleiðis. Auk bættra kjara og hækkun- ar kaups, sem félagið hefur unn- ið að, eru ýmis mannréttindamál sem félagið hefur barizt fyrir, ýmist eitt sér eða í samvinnu við önnur félög og heildarsamtök verkafólks. Margt af þeim málum hefur vissulega markað tímamót og má þar helzt nefna lögin um hina lögbundnu hvíld til handa togara mönnum, fyrst 6 tíma hvíldina, síðar 8 tíma og nú 12 tíma. Þá má nefna orlofslögin er sett voru á sínum tíma og hefur orlof aukizt frá því, sem fyrst var á- kveðið er lögin voru ’sett, ýmist með samningum eða breytingum á lögum og er nú í samningum sjómanna sumarleyfið 21 virkur dagur eða 7% af öllu kaupi og/eða hlut. Þáskal minnzt á, að nýlega var með breytingum á sjómanna lögunum greiðsla í veikinda- og slysatilfellum ákveðið fullt kaup og/eða hlutur í einn mánuð fyr ir okkar menn í stað viku áður, og þar til viðbótar höfum við samninga um dagpeningagreiðslu eða fullt mánaðarkaup í allt að tvo mánuði. Fatatrygging hefur hæVkíið all verulega, samkv. nýlega útgef- inni reglugerð. Merkur áfangi má það teljast, þegar með samningum tókst að fá kauptryggingu á bátum. Kauptrygging háseta er nú kr. 10.886,00 á mánuði, svo þó ekki sé um háa upphæð að ræða gengur enginn slyppur og snauður frá að vertíð lokinni, eins og áður kom oft fyrir. Minnast má á lífeyrissjóð tog- arastjómanna og undirmanna á farskipum þótt nokkur skuggi sé þar á, þar sem bátasjómenn hafa ekki enn fengið aðild, en að því er og verður unnið, að sjóðurinn verði fyrir alla sjómenn. Að sjálfsögðu er ekki enn mik ® ið um lífeyrisgreiðslur úr sjóðn- um, en margur sjómaður hefur, fyrir rétt til lána úr sjóðnum, eignazt hús eða íbúð. Síðast en ekki sízt má minnast á líftryggingu sjómanna, sem var eitt af fyrstu áhugamálum félags ins. Tvisvar gerðist það við fisk- verðssamninga sjóma/masamtak- anna innan Alþýðusambandsins að loforð fékkst um 100% hækk- un á hinni lögbundnu tryggingu, er varð svo síðar itl þess, að allt verkafólk fékk þá tryggingu og mun hún nú nema um 200 þús- und krónum ef um eingreiðslu væri að ræða. Auk þessa hafa sjómannasani- tökin samið við útgerðarfélögin um að þau kaupL aukatryggingu við dauða eða fulla örorku, sem verða af slysum og er sú trygg- ing nú 300 þúsund á farskipum, 250 þús. á hvalbátum og 200 þús. á togurum og bátum, en að því verður stefnt að tryggingin verðl orðin 300 þúsund á öllum skipum um næstu áramót. Öryggismálin hefur félagið allt af látið mikið til sín taka og mik ið orðið ágengt í því efni í sam- vinnu við önnur samtök sjó- manna. 2 milljónir króna í styrkar- og sjúkrasjóði Eins og önnur félög verkafólks hefur Sjómánnafélagið eignazt sinn styrktar og sjúkrasjóð, en tekjur sjóðsins eru þær, að sam- kvæmt samningum greiða útgerð tryggingu háseta & bátum, ein* Ob ——— —A — il'C.JU... bi...u ijg verður samkvæmt því mánaðar- greiðsla nú til sjóðsins kr. 106,86 á mánuði af hverjum þeim manni á fiskiskipi, sem félagið á samn- ingsrétt fyrir, en á farskipum er mánaðargjaldið kr. 60,00 af hverj um manni er byggist á því, að samkvæmt farmannasamningum eru greiðslur í veikinda- og slysa tilfellum lengri tíma en samkv. samningum þeirra, sem á fiski- skipum eru. í styrktar- og sjúkrasjóði félags Framhald af 20. síðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.