Morgunblaðið - 23.10.1965, Page 23

Morgunblaðið - 23.10.1965, Page 23
Laugardagur 553. október 1965 MORGUNBLAÐIÐ 23 Guðbjartur Ásgeirsson, bryti Minning í DAG verður gerð i Hafnar- firði útför Guðbjartar Ásgeirs- sonar bryta, en hann andaðist sl. mánudag. Með Guðbjarti er genginn einn þekktari borgari Hafnar- fjarðar, maður sem í hálfa öld hefur komið mjög við sögu bæj- arins þó ekki hafi hann starfað að opinberum málum. Guðbjartur var fæddur á tsa- firði 23. desember 1889, og voru foreldrar hans, Ásgeir Guð- bjartsson verkamaður og kona hans Gíslína Vigfúsdóttir, sem bæði eru látin. Á ísafirði ólst Guðbjartur upp hjá foreldrum sínum fram að tvítugu, en 1915 réðst hann, sem matsveinn á togara í Hafn- arfirði, en Hafnarfjörður varð síðan heimabyggð hans. Guð- bjartur gerði sjósókn að lífs- starfi sínu og stóð þar vel og ciyggilega í stöðu sinni, sem snatsveinn. Vinsælli mann í sjómanna- stéttinni í Hafnarfirði var vart að finna, og ekki er lakari vitn- isburður húsbænda hans. Á sjón um undi Guðbjartur sér vel og hann átti því láni að fagna að geta stundað starf sitt svo að segja til þess síðasta. Þótt Guðbjartur hefði ærin verkefni að vinna til sjós, þá gaf hann sér samt tíma til þess að sinna hugðarefnum sínum. Hann fékk snemma áhuga á ljós myndun, og hefur hann ásamt konu sinni unnið á sviði ljós- anyndunar, mjög merkilegt starf sér í lagi Ijósmyndun þeirra úr sjómannalífinu og reyndar ís- lenzku atvinnulifi. Margar myndir þeirra eru við urkennd afrek á sínu sviði, og hafa borið hróður sjómanna- stéttarinnar utan lands sem inn- an. Er það verk, sem þau hjón- in hafa unnið á þessu sviði, svo merkt og geymir það merkan þátt íslenzkrar atvinnusögu, að vert er að því sé haldið á lofti og það virt sem skyldi. 1 maí mánuði 1916 kvæntist Guðbjartur eftirlifandi konu sinni Herdísi Guðmundsdóttur frá Skarði í Lundareykjardal og hafa þau eignast 11 börn og eru 7 þeirra á lífi. Tvö fósturbörn hafa þau alið upp, auk þess sem á heimili þeirra dvaldist í rúm 40 ár Guðfinna Sigurðar- dóttir frá Deild á Álftanesi, og var hún ekki síður fjölskyldu- meðlimur en hinir. bað var hlutskipti Guðbjart- ®r, eins og svo margra annarra sjómanna fyrr eg síðar, að starfa lengi fjarri heimili sinu, konu og börnum. Það var því þar eins og víða ,að hlutverk húsfreyjunnar var tvöfalt. Frú Herdís hefur með miklum myndarbrag gegnt hlutverki sínu, hlutverki hinnar íslenzku sjómannskonu, en það var og er oft æði erfitt. Hún bjó manni sníum og fjöl- skyldu elskulegt heimili. Þangað var ævinlega ánægjulegt að koma og vinirnir ætíð vélkomn- ir. Þegar nú Guðbjartur Ásgeirs- son er allur, er horfinn úr hafn firskri sjómannastétt, maður sem ungir sjómenn mættu gjarn an taka sér til fyrirmyndar. Um leið og ég lýk þessum kveðjuorðum mínum til vinar míns, Guðbjartar Ásgeirssonar, sendi ég frú Herdísi og börn- unum innilegar samúðarkveðjur okkar hjóna. Matthias Á. Matthiesen. Liðin er nú hálf öld og ár bet- ur síðan fundum okkar Guð- bjarts Ásgeirssonar fyrst bar saman. Það var hið minnisstseða sumar 1914, þegar heimsstyrj- öldin fyrri brauzt út. Þá var ég 17 ára menntaskólapiltur, en Guðbjartur 25 ára að aldri. Þetta var fyrsta sumarið mitt „á síld“. Var ég háseti á Daníu Framhald af bls. 8 milli lögsagnarumdæma landsins, ásamt ýmsu fróðleiks- og skemmtiefni úr sveitum, líkt og var í fyrra í keppni kaupstað- anna og sjá sömu menn um þennan þátt og þá var, Birgir ísleifur Gunnarsson og Guðni Þórðarson. Áfram mætti sjálfsagt halda með þessa upptalningu. Við von- um að ekki verði efnisskortur og vitum það reyndar en við vonum líka að efnið í vetrardagskránni Cg flutningur þess verði til ánægju og fróðleiks til þess að hlustendur geti bæði fylgzt fljótt og vel með því sem gerist í önn og deilum dagsins eða hvílt sig írá þeirri önn og lyft sér upp við tónlist og talað orð eftir því sem hugur þeirra girnist að velja úr þeirri 16 klukkustunda dag- *krá á dag, sem nú byrjar á morgun. gömlu, litlu gufuskipi, sem Tul- inius á Akureyri gerði út á síldveiðar fyrir Norðurlandi. Guðbjartur var matsveinninn, en hafði þá stundað sjómennsku frá unglingsárum, lengst af mat- sveinn, sem og varð ævistarf hans. Lengst af var hann á togurum, en röskan hálfan ann- an tug hinna síðustu ár starf- aði hann á skipum Eimskipa- félagsins, lengi og síðast á Fjall- fossi. Um jólaleytið í hittiðfyrra var hann staddur með Fjallfossi í Kotka í Finnlandi. Brunafrost var á er hann fák-læddur brá sér niður á hafnarbakkann til að taka ljósmynd af einhverju, er fyrir augu hans hafði borið. Skipti engum togum. Frostið beit hann og fékk hann aðsvif. Lauk þar með starfsferli hnns og sjúkur var hann fluttur fiug- leiðis heim til íslands. Lá hann lengi í sjúkrahúsi, en fékk um síðir nokkurn bata, svo að hann hafði ferlivist, en fulla heilsu fékk hann ekki upp frá því. Og nú í byrjun þessarar viku, s.l. mánudag, varð hann bráðkvadd Ul'. Sumarið 1914 kynntist ég einn ig á Norðurlandi ungri, fríðri og föngulegri stúlku, Herdísi Guðmundsdóttur. Tókust og góðir kunnleikar með henni og Guðbjarti og tveim árum síðar, vorið 1916, giftust þau. Hefði Guðbjartur fengið að lifa af þenna vetur, sem í dag gengur í garð, hefðu þau hjónin með komanda vori getað minnst gullbrúðkaups síns. En enginn má sköpum renna. Eigi er það ætlan mín, að rekja hér í löngu máli sam- skipti okkar Guðbjarts næst. liðna hálfa öld, né heldur ljúf kynni mín af elskulegu heim- ili þeirra. Torvelt hygg ég vera að benda á samvaldari hjón en þau Herdísi og Guðbjart og bar sam líf þeirra og heimili þessu Ijós- ast vitni. Guðbjartur var heil- steyptur drengskaparmaður í hvívetna, óáleitinn, hreinskipt- inn og hjálpfús svo að af bar. En frú Herdís, sem nú á að bak að sjá lífsforunaut sínum, er honura svo lík um allt, er bezt var ,að fátítt má telja. Enn held ur hún reisn sinni og æsku- þokka svo vel að undrun má sæta, ellefu barna móðir og fóst urmóðir tveggja. Af börnum þeirra hjóna eru sjö á lífi og annað fósturbarnanna. — Sumarið 1914, er við Guð- bjartur vorum samskipa á síld- veiðum og raunar 5-6 árum fyrr (1908-’10) var Guðbjartur tekinn að iðka töku ljósmynda í tómstundum sínum, en þetta föndur hans átti eftir að bera mikinn ávöxt, sem eigi má láta ógetið nú þegar hann er allur. Enn man ég eftir gömlu kassa- vélinni hans á Daníu. En hún var fyrirrennari margra annara margfalt fullkomnari mynda- véla, er hann síðar aflaði sér. Nálega alla starfsævi sína, eða um hálfan sjötta tug ára, má segja að Guðbjartur hafi sjald- an skilist við myndavél sína. Val viðfangsefna hans var vit- anlega f.o.fr. sjórinn, skipin, sjómennirnir og störf þeirra. í þessu safni, er hann nú lætur eftir sig, er ótrúlega mikill fjöldi, —■ ef til vill þúsundir — af filmum og ljósmyndaplötum sem geyma þróunarsögu sjó- sóknar íslendinga allt frá skútu- öldinni, mótorbátunum, togurun i og farskipunum. Þetta mikla safn Guðbjarts um sjó- sókn \ þjóðarinnar frá því skömmu eftir aldamótin, mun án efa vera hið merkasta á sínu sviði, og er þess að vænta að réttir opinberir aðilar hlut- izt til um, að þessi merki þátt- ur í atvinnusögu þjóðarinnar glatist eigi. Einnig á sviði ljósmyndagerð ar var frú Herdís manni sínum samhent, og hefur hún nú um allangt árabil starfrækt Ijós- myndastofu að heimili þeirra í Hafnarfirði. Og allar stundir, þegar Guðbjartur „var í landi“, vann hann þar með konu sinni. Með Guðbjarti Ásgeirssyni er mér nú horfinn einn bezti og tryggasti vina minna. Honum og ekkju hans og skylduliði öllu bið ég blessunar Guðs. Lúðv. Guðm. A T H U G I Ð að borjð saman við útbrevðslu er langtum ódýrara að auglýsa * Morgunbtaðinu en öðium blöðum. Leikrit Arthurs Millers, „Eftir syndafallið“, hefur nú verið sýnt 10 sinniim í Þjóðleikhúsinu. Fá leikrit, sem skrifuð hafa verið á síðari árum, hafa vakið jafnmikið umtal og blaðaskrif. — Næsta sýning leiksins verður í kvöld. Myndin er af Herdísi Þorvaldsdóttur og Rúrik Haraldssyni. í hlutverkum sínum. Fært fyrir Klofning BÚÐADAL, 21. okt. — f gær fóru vegagerðarmenn strax og gerðu til bráðabirgða við skemmdir þær, sem urðu í vatns- veðrinu á veginum á Fjallinu, við Reykjadalsá, við Hörðudalsá og á Skógarstrandavegi hjá Narfeyri. Er nú fært um vegina, en fullnaðarviðgerð fer fram seinna. Vegurinn um Svínadal er aftur á móti slæmur enn, og er hann ófær. Byrjuðu þeir viðgerð seinni hluta dags í dag og vonast til að koma veginum í lag seinni hluta dags á morgun, ef vel gengur. Það er þó bót í máli, að leiðin til Vestfjarða lokast ekki af þessum sökum, því hægt er að fara út fyrir Klofning, en það munar hálfum öðrum tíma. — K.A. Sýning á sænskum læknatækjum NÚNA stendur yfir í lækna- húsinu nýja, Domus Medica, við Egilsgötu sýning á sænsk- um læknatækjum. Fjögur fyrirtæki sýna þarna og meðal tækja, sem eru á sýn- ingunni má nefna ýmiss kon- ar blóðrannsóknartæki, svo KlAAIroenoinl iora KlnA- blandara og tæki sem skilur blóð, auk tækis til þess að mýlja frumur. Þá gefur þarna einnig að líta margvísleg borð til þess að geyma á skurðáhöld og hjólaborð. Einnig er á sýningunni súrefn istæki til notkunar á sjúkra- húsum og þá má nefna sótt- hreinsaðar grisjur, auk margs fleira. Sýningin er, eins og áður segir, í Domus Medica og fer fram, þar sem fundarsalur læknanna kemur til með að vera. Sýningin mun standa yfir í viku og verður hún nnín irlnn-q

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.