Morgunblaðið - 26.10.1965, Side 6
6
MORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. október 1965
Dr. Sturla Friðriksson:
Frönsku Nóbelsverðlauna-
hafarnir í læknisfræði
FYRIR nokkrum dögum barst
sú fregn að Svíar hafi sæmt þrjá
franska vísindam-enn Nóbelsverð
launum í læknisfræði fyrir afrek
á sviði lífefnafræði, smæðarlíf-
fræði og erfðafræði.
Hafa nú 8 vísindamenn hlot-
ið Nóbelsverðlaun á síðastliðn-
um sjö árum fyrir erfðafræði-
rannsóknir sínar, sem eitt bendir
til þess hve skammt er nú stórra
högga milli á þessu sviði líf-
fræðinnar.
Er þess skemmst að minnast að
Bretinn Fransis Crick og Amer-
íkumaðurinn James Watson
hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir
uppgötvun sína á byggingu
kjarnasýrunnar, en hún ber dul-
málslykil að leyndardómi lífs-
ins, ef svo má að orði komast.
Starf Frakkanna var einkum í
því fólgið að sýna fram á hvernig
boð þessa dulmáls geta borizt
frá kjarnasýrunni, og hvernig
það stjórnar uppbyggingu eggja-
hvítuefpa innan frumunnar, en
þau eru grundvallarefni öllum
lifandi verum.
Til þess að skýra viðfangsefni
þetta örlítið nánar er rétt að
geta nokkurra atriða frumufræð
innar.
Eggjahvítuefnið getur ,til dæm
is, verið sérhæfur gerhvati. En
allar lífefnalegar svaranir ein-
staklingsins, hvort heldur um er
að ræða uppbyggingu og þróun
eða hrörnun, eru undir sérstakri
hvatastarfsemi komnar. Kjarna-
sýran er því einskonar arkitekt
er skipuleggur byggingu eggja-
hvítunnar. Frum-uppdrættir
hennar eru of dýrmætir hverri
lífveru, til að yfirgefa kjarnan
og fara út í írymið, til þess að
stjórna byggingu eggjahvítunnar.
Arkitektinn hefur því á að
skipa eins konar sendisvginum og
yfirsmiðum, sem sjá um fram-
kvæmdirnar. Er það einmitt eðli
og störf sendiboðanna og yfir-
smiðanna, sem hinir frönsku vís-
indamenn hafa fengizt við að
kanna.
Hafa þeir meðal annars sýnt
fram á að boðberunum er stjórn-
að af efnum sem geta hamlað
framleiðslu boðanna og tryggt
það, að ekki verði offramleiðsla
á gerkvötum innan frumunnar.
Enda þótt uppgötvun þessi
hafi einkum fræðilegt gildi stuðl
ar hún að aukinni þekkingu á
ýmsum sviðum líf- og læknis-
fræði og gæti þannig einnig haft
hagrænt gildi, það er að segja,
ef mönnum tækist að gefa líkam
anum eða ákveðnum hlutum
hans boð um myndun eggjahvítu
efna t.d. hvata ,og boð um að
örva vöxt eða að draga úr vexti
frumuhópa, svo sem vexti meina.
Frönsku Nóbelsverðlaunahafarnir.
Framlag fronsku vísindamannanna
EINS og getið hefur verið í
fréttum voru Nóbelsverðlaun-
in fyrir læknisfræði veitt
þremur frönskum vísinda-
mönnum fyrir athyglisverðar
rannsóknir á hegðun og bygg-
ingu fruma. Ekki er talið að
uppgötvanir vísindamannanna
hafi hagnýta þýðingu enn sem
komið er, en talið er að þær
verði sérstaklega mikilvægar
fyrir rannsóknir á ýmsum
sjúkdómum, svo sem krabba-
meini. Vísindamennirnir, sem
verðlaunin hlutu, eru André
Lwoff, Francois Jacob og
Jacques Monod, en þeir starfa
allir við Pasteur-stofnunina í
Lyon.
André Lwoff, 63 ára, er
fæddur í Frakklandi ,en er af
rússnesku og pólsku foreldri.
Hann hefur starfað við
Pasteur-stofnunina í áratugi
og síðan 1959 hefur hann
einnig verið prófessor í mikró
bíólógíu við Sorbonne.
Francois Jacob, 45 ára ,er
fyrrverandi nemandi Lwoffs
og hefur starfað við stofnun-
ina síðan 1950. Hann er jafn-
framt prófessor í frumuefna-
fræði við College de France.
Jaques Monod, 55 ára, er
fæddur í París en hlaut mennt
un sína í Bandaríkjunum.
Hann hefur starfað við stofn-
unina síðan 1945 og er prófess
or í lífefnafræði við Faculte
des Sciences í París.
Lwoff varð fyrst kunnur
fyrir rannsóknir sínar á bakte
ríum og protozoum, en síðar
lagði hann megin áherzlu á
að rannsaka svonefndar lýsó-
gen bakteríur. Með notkun
últrafjólublárra geisla hefur
honum tekizt að vekja' upp
veirur í þessum síðastnefndu
bakteríum. Monod varð fyrst-
þekktur fyrir athyglisverðar
rannsóknir á myndun ger-
hvata (enzyma). Jacob hefur
starfað með Lwoff við rann-
sóknir á lýsógen bakteríum og
Framhald á bls. 12
Allar lifandi verur saman
standa af frumum og hver fruma
er gerð úr kjarna, sem umluktur
er frymi og frumuhimnu. í kjarn
anum hvílir erfðaefnið í svo-
nefndum litþráðum. Eru þeir
raðir af genum, sem hvert um
sig ræður ákveðnum erfðaeigin-
leika. Genin eru mynduð úr sam-
eindum þeirrar kjarnasýru, sem
kölluð er deoxyribonuclein sýra
og skammstöfuð er DNA.
Síðustu Nóbelsverðlaunahafar
í erfðafræði sýndu fram á að
þessi kjarnasýra var byggð upp
af tveimur þráðum, sem voru
snúnir saman eins og meiðar í
hringstiga og voru meiðar stig-
ans tengdir saman með þrepum
gerðum af fernskonar lútum Er
það mismunandi samröðun þess-
ara lútaþrepa, sem veldur til-
brigðum í kjarnasýrunni, þannig
að hvert gen hefur sína sérstöðu
eða sitt dulmál. Þetta dulmál er
síðan notað, til þess að segja fyr-
ir um byggingu hinna ýmsu
eggjahvítuefna, sem sett eru sam
an utan við kjarnann úti í frym-
inu, í stöðvum sem kallaðar eru
ríbósom.
Eggjahvítuefnin eru byggð upp
úr aminosýrum. Eru af þeim 20
mismunandi gerðir á sveimi í
íryminu og gefa genin fyrirskip-
anir um það hvaða aminósýrur
akuli tengja saman hverju sinni
til myndunar þess eggjahvítuefn
ia, sem líkaminn þarfnast þá
atundina.
Það er nú vitað að hver þrjú
þrep í kjarnasýrustiganum
ákvarða eða velja úr hverja ein-
ataka aminosýru í byggingu
eggjahvítuefnisins og næstu þrjú
þrep ákvarða þá aminosýru sem
við hana á að tengjast, og svo
koll af kolli þangað til amino-
aýrukeðjan hefur myndað eitt-
hvert ákveðið eggjahvítuefnið.
Daglega hringja mjög margir
til Velvakanda með umkvart-
anir eða ábendingar. Ég kann
betur að meta góð bréf, en
öllum er hins vegar áhætt að
hringja og sjálfsagt er að
koma á framfæri því, sem
„símafólkinu" liggur á hjarta,
ef málefnið er ekki þeim mun
viðameira. Þá er betra að
skrifa. — Og hér eru nokkur
atriði úr símtölum fyrir helg-
ina:
Bílastæði við
Tjörnina
Þegar Loftleiðir hófu að
nota Tjarnarkaffi fyrir farþega
sína voru bílastæðin við húsin
afnumin — og einungis Loft-
leiðavögnunum ætlaður þar
staður. Nú eru Loftleiðir löngu
hættir að aka farþegum sínum
þangað en bílastæði eru enn
bönnuð á þessum stað. „Ég
lendi alltaf í vandræðum með
að fá bílastæði, þegar ég er
við jarðarför í Dómkirkjunni
— og ég hef stundum horft
löngunaraugum á þetta auða
svæði“, sagði maðurinn að lok-
um.
Hvað segði hann, ef hann
þyrfti að verða við jarðarför
daglega? Þá kynntist hann því
hvernig það er að vinna í mið-
borginni og þurfa á hverjum
degi að aka margar götur í
leit að stæði. Það tekur á taug-
arnar.
Kurteisi
„Þegar menn stöðva bíla
sína á gatnamótum eftir að
myrkt er orðið ættu þeir að
minnka ljósin til þess að
trufla síður bíla, sem hafa for-
gangsrétt — og vegfarendur,
sem þurfa að komast yfir göt-
una framan við hinn stanzaða
bíl. Þetta geri ég alltaf“, sagði
maðurinn í símanum — „og
fólk kann vel að meta það.
Slík aðferð gefur öðrum veg-
farendum líka ótvírætt til
kynna, að ökumaðurinn hyggst
virða rétt annarra. Aðrir öku-
menn og fólkið, sem gengur
yfir götuna, er þá öruggara“.
★ „Algert rán “
Loks segi bilaeigandi:
„Það er venja að „herða“ nýja
bíla eftir 3—500 km akstur:
Herða allar skrúfur og lagfæra
það, sem losnað hefur. Ég hélt
að öll bílaumboðin ynntu þessa
þjónustu af hendi ókeypis. En
ég komst að raun um annað
ekki alls fyrir löngu. Ég á nýj-
an bíl og mér var gert að
greiða 700 krónur fyrir herzl-
una á honum. Mér finnst það
algert rán, því þetta er ekki
nema tveggja tíma vinna. Eða
hvað finnst Velvakanda?"
Ég hef ekki ýkjamikla
reynzlu á þessu sviði. Ég hef
átt nýjan Volkswagen og hjá
þeim var herzlan ókeypis —
og hélt ég satt að segja að
þannig væri það alls staðar.
-jfc- Öryrkjar
Og þá er hér stutt bréf:
„Nú, á tímum allsnægta,
finnst mér loks kominn tími
til að senda þér nokkrar línur
örbyrgðarinnar. — Ég hefi
verið sjúklingur og 100% öryrki
í 25 löng ár. Einmitt á þessum
árum hafa þjóð og einstakling-
ar verið að auðgast — og það
stórlega, en mín kjör farið
versnandi.
Ég er einhleypur og verð að
kaupa mér máltíð á matsölu-
húsi, kostar hún 50—70 krónur.
Á sama tíma er ríkisstarfs-
mönnum gefinn kostur á máltíð
fyrir 17 til 30 krónur.
Hvað er hér á seyði? Hvers
eiga öryrkja að gjalda, hvers
vegna er þeim ekki gefinn kost-
ur á sambærilegu verði á sínu
fæði?
örorkulaun mín eru kr.
2.500,— á mánuði og geta því
allir hugsandi menn getið sér til
um útkomuna.
Að endingu, kæri Velvak-
andi. Mundir þú ekki gangast
fyrir því að meira tillit verði
tekið til okkar öryrkjanna í
framtíðinni
—* Guðmundur Þórðarson".
'fc Mjólkursamsalan
Og loks kemur hér stutt
bréf frá Mjólkursamsölunni og
þykir mér gott, að eitthvað
berst úr þeim herbúðum, því að
undanförnu hafa andmælendur
mjólkurhyrnanna og Samsöl-
unnar yfirleitt ekki verið þeir
pennalötustu:
„Valvakandi birtir bréf á
miðvikudag frá húsmóður í aust
urbænum, sem áfellist Mjólkur-
samsöluna fyrir að leggja niður
mjólkurbúð vegna húsaleigu-
hækkunar.
Hér mun vera átt við mjólk-
urbúðina Barónsstíg 59. í nýrri
reglugerð um mjók og mjólk-
urvörur eru strangari ákvæði
um mjólkurbúðir en áður, og
heilbrigðisnefnd hefur sett hin
um ófullkomnustu búðum
ákveðinn frest, að viðlagðri
lokun, til að uppfylla þessi skii
yrði, sem miðá að bættri með-
ferð mjólkurinnar.
Þar sem engir möguleikar
eru í umræddri búð til að full-
nægja nýju ákvæðúnum á
Mjólkursamsalan ekki annarra
kosta völ en að leggja hana
niður í des. n.k. Leiguupphæð-
in er ekki ástæða til þess.
Mjólkursamsalan færist þá
mest í búð Alþýðubrauðgerðar-
innar, sem er tæpum 200 metr-
um neðar, við Leifsgötuna, en
heilbrigðisnefnd mun hafa sett
frest til 1. nóvember til að
ljúka endurbótum þar.
Virðingarfyllst,
M j ólkursamsalan
Sefán Björnsson.
Kaupmenn - Kaupfélög
Nú er rétti tíminn tii að panta
Rafhlöður fyrir veturinn.
Bræðurnir Ormsson hf.
Vesturgötu 3, Lágmúla 9.
Sími 38820.