Morgunblaðið - 26.10.1965, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagúr 26. október 1965
,t,
Sonur okkar og bróðir,
ÁSGRÍMUR KRISTINN HALLDÓRSSON
Suðurgötu 118, Akranesi,
lézt af slysförum 13. þ.m. — Jarðarförin verður til-
kynnt síðar.
Helga Ásgrimsdóttir,
Halldór Magnússon
og systkini.
Móðir mín,
KARÓLÍNA GESTSDÓTTIR
andaðist að Hrafnistu 24. þ. m.--Jarðarförin ákveðin
aíðar.
Benedikta Benediktsdóttir,
Stóragerði 10.
Maðurinn minn,
FRITZ MAGNÚSSON
Ásbyrgi, Skagaströnd,
andaðist 19. þ.m. að Héraðshælinu Blönduósi —
Jarðarförin fer fram frá Hólaneskirkju, Skagaströnd,
fimmtudaginn 28. október kl. 2 síðdegis.
Karla Helgadóttir.
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR
Sigtúni 21,
andaðist í Borgarsjúkrahúsinu sunnudaginn 24. október.
Þórður Stefánsson,
Pálína Þórðardóttir, Stefán Þórðarson.
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
RANNVEIG JÓNSDÓTTIR
Norðurstíg 3
andaðist 23. þessa mánaðar.
Helgi ívarsson,
Sigurður Helgason,
ívar Helgason, Lilja Ingimundardóttir og börn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SALVÖR ÞORKELSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu Miklubraut 58, hinn 25. þ.m.
Fyrir hönd aðstandenda.
Lára Jónsdóttir.
Föðursystir okkar,
HALLDÓRA THORSTEINSSON
Betel, Gimli, Manitoba, Canada,
andaðist 21. október síðastliðinn.
Lydia Björnsson,
Einar Jón Ólafsson.
Bróðir okkar,
GRÍMUR HÁKONARSON
fyrrv. skipstjóri,
andaðist í Landakotsspítalanum að morgni 24. þ.m.
Ólafur H. Hákonarson,
Ólafía Hákonardóttir.
Maðurinn minn
EDWARD PROPPÉ
er lézt 22. okt. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fúnmtudaginn 28. okt. kl. 10,30.
Inga Proppé.
Móðir mín,
ÓLAFÍNA ÁSMUNDSDÓTTIR
frá Nýlendu, Akranesi,
lézt á Sjúkrahúsi Akraness 22. október. — Jarðarförin
ákveðin laugardaginn 30. okt. frá Akraneskirkju og hefst
afhöfnin kl. 2 e.h. — Blóm afþökkuð, en þeim, sem
vildu minnast hinnar látnu er bent á Sjúkrahús Akra-
ness.
Unnur Sveinsdóttir.
Jarðarför móður okkar,
JÓNÍU BJARGAR JÓHANNESDÓTTUR
Skúlagötu 66,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. þ.m.
kl. 1,30 e.h. — Blóm vinsamlega afþökkuð.
Börnin.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför eiginkonu minnar og móðúr okkar,
SOFFÍU GUÐMUNDSDÓTTUR
• J ,
Fyrir hönd vandamann.
Ásgeir iM. Ásgeirsson og börn.
Guðrún Sigurða rdóttir
frú Stokkseyri, sjötug
KIRKJUBÆKUR verða ekki
rengdar — en þeim mun bera
saman um, að Guðrún Sigurðar-
dóttir frá Stokkseyri, húsfreyja
að Grundarstíg 2 hér í borg, sé
70 ára í dag.
Það er hvorki tímabært né
tilhlýðilegt, að svo stöddu, að
skrifa æviminningu þessarar
óvenjulegu konu. — En ég á
ekki víst að fá tækifæri til þess,
er þar að kemur. Því get ég ekki
neitað mér um að senda henni
örstutta kveðju á þessum hátíð-
isdegi.
Hún er dóttir hinna góðfrægu
hjóna, Kristbjargar Jónsdóttur
ig Sigurðar Einarssonar, verzl-
unarmanns, sem flestir Stokks-
eyringar og þeir sem Stokkseyri
gistu á fyrri hluta þessarar ald-
ar, áttu á einhvern hátt liðveizlu
að launa. — Og í foreldrafylgd
í Stokkseyrarkirkju minnist ég
fyrst þessarar yfirlætislausu
stúlku, sem geislaði af ljúflyndi,
góðvild og háttprýði. Þótt síð-
an séu nú liðin nær 60 ár, þætti
mér trúlegt, að þeir sem sjá Guð-
rúnu núna í fyrsta skipti, yrðu
fyrir svipuðum áhrifum. Svo
ótrúlega vel hefur hún ávaxtað
vöggugjafir sínar.
Þegar ég segi, að Guðrún sé
óvenjuleg kona, á ég ekki við
það, að hún hafi verið undra-
barn í venjulegri merkingu þess
orðs. Hún er að vísu prýðileg-
um gáfum gædd og naut í æsku
ágætrar bæði bóklegrar og verk-
legrar menntunar í barnaskóla,
kvenaskóla, foreldrahúsum á
námsskeiðum og úrvalsheimilum,
innanlands og utan. Varð hún
einkum leikin í hannyrðum og
matreiðslu, ritfær vel og unnandi
allra fagurra mennta. — En það
sem gefur öllu í fari hennar æðra
gildi eru hinar sjaldgæfu gáfur
hjartans, sem erfitt er að skil-
greina, en eru „í og með og
undir“ öllum hennar orðum og
gjörðum. Hygg ég að fleirum en
mér fari þannig, er við hugsum
til þess sem Guðrún hefur gott
til okkar lagt, að okkur finnist
tómlegt að gjalda við því venju-
legar þakkir með venjulegum
orðum. Og engan hef ég enn hitt,
sem einhver kynni hefur af
henni haft, að ekki hafi birt og
hlýnað yfir svipnum við að minn
ast þess.
Guðrún er svo hamingjusöm,
að eiginmaður hennar, Ólafur
kaupmaður Jóhannesson, hefur í
bezta máta verið samhentur
henni og samtaka um höfðings-
skap allan og heimilisrausn, og
þannig stutt hana til að byggja
ofan á þann grundvöll, sem lagð
ur var í foreldrahúsum.
Hún eignaðist aldrei systur af
foreldrum hennar fæddar — og
í hjónabandi sínu er hún aðeins
stjúpmóðir. En það mun finnast
bæði stjúpbörnum hennar og
okkur, sem höfum átt því láni
að fagna að vera heimilisvinir
hennar frá æskuárum, að hún
beri ástúðarheitin móðir og syst-
Hjartans þakkir til vina og skyldfólks, sem glöddu
mig á áttræðis afmæli mínu.
Anna Havsteen, Karlagötu 16.
Eg þakka öllum, sem sýndu mér vinsemd með gjöfum
og heimsóknum á 75 ára afmæli mínu 20. þ.m. —
Guð launi ykkur öllum.
Guðrún Erlendsdóttir,
Miðtúni 16, Selfossi.
Alúðar kveðjur sendum við öllum okkar vinum og
vandamönnum, sem heiðruðu okkur á 50 ára hjú-
skaparafmæli okkar 16. október sl. með skeytum, gjöf-
um og heimsóknum, sem gjöra okkur daginn ógleyman-
legan. Með innilegu þakklæti biðjum við algóðan guð að
blessa öll ykkar ófarin æviár og styrkja ykkur á rauna
stundum. — Liflð heil.
Þorlákur Jónsson og Herdís Jónsdóttir,
Hrafnistu.
.t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför móður minnar, tengdamóður og ömmu okkar,
ÁSLAUGAR KRISTINSDÓTTUR
Bólstaðahlíð 64.
Guðjón Eymundsson,
Ásdís Ingólfsdóttir og börn.
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóð-
ur og ömmu,
MARÍU ÓLAFSSON
Ása Traustadóttir, Ólafur Traustason,
Pétur Traustason, Theódóra Óskarsdóttir,
Jóhanna Traustadóttir, Jón Guðnason,
.. og barnabörn. < •
ir með svo miklum rétti og sæmd
sem nokkur kona, sem til þeirra
er borin eða fædd. Og þegar sagt
er amma í fjölskyldu hennar, þá
er sannarlega enginn gervi-
hljómur í ávarpinu.
Störf Guðrúnar að félagsmál-
um eru kapítuh út af fyrir sig.
Fyrst í átthögunum, í ungmenna
féllögum hér í borg, bæði í Breið
firðingafélaginu og þó einkum i
Stokkseyringafélaginu þar sem
hún hefur um árabil gegnt for-
mannsstörfum af stakri kost-
gæfni. — En þar eð ég vona að
aðrir geri þeim þætti starfa henn
ar skil á þessum degi, fjölyrði ég
ekki um þau að sinni.
Nú kynni einhver að hugsa, að
sú kona, sem svo miklu góðu
hefur orkað, væri hraust og nyti
því vel krafta sinna. En því er
ekki svo varið um Guðrúnu. —■
Áratugum saman hefur hún átt í
höggi við þráláta vanheilsu. „Og
það er blessuðúm manninum
mínum að þakka, hve vel hann
hefur búið að mér, að ég er kom-
in fram á þennan dag“, er við-
kvæði hennar.
Að lokum skal þess getið, að I
Grímsnesinu, þeirri gróðursælu
og vinhlýju sveit, mun Guðrún
fyrst hafa litið dagsins Ijós, og
þeirri byggð er hún bundin
traustum ættarböndum .Þar aust
urfrá, við Álftavatnið bjarta, hef
ur hún lengi átt sumarbústað og
þangað hefur hún þráfaldlega
sótt líkamlega og andlega endur-
næringu við gróðurilm og fjalla-
blæ.
Djúpar þakkir og heitar óskir
um marga og fagra ókomna daga
munu í dag umvefja Guðrúnu
og ástvini hennar.
26. okt. 1965.
Jarþrúður Einarsdóttir.
Píanókennsla
Get bætt við nemendum.
Anna Briem,
Sóleyjargötu 17,
sími 13583.
HeJmilisfæki
Iðnaðartæki
Ferðatæki
Kosang
as
Sölvhólsgötu 1.
Símj 17171.
Pétur
Kósan
Ný ibúð óskast
Er kaupandi að 3ja herb. íbúð
á hæð tilbúinni undir tréverk.
íbúðin þarf að vera fokheld í
síðasta lagi 1. nóvember. —
Tilboð sendist Mbl., merkt:
„Ný íbúð — 2804“.