Morgunblaðið - 09.12.1965, Síða 1
32 síðuv
Páll páfi VI. sleit í gær kirkju-
þingi, sem mun marka tímamót -
Pjúptækar breytingar gerðar á starfsemi og af-
stöðu rómversk-kaþolsku kirkjunnar, 2400 bisk-
upar vidstaddir slit þingsins, á
Páíagarður, 8. des. — (AP) —
Einkaskeyti til Mbl.
P Á L L páfi VI. sleit í dag
öðru kirkjuþinginu í Páfa-
garði, við hátíðlega athöfn á
Péturstorginu í Róm. Við-
sstaddir voru 2400 biskupar.
Lauk páfi ræðu sinni með
orðunum: „Farið í friði“.
Frá því, að kirkjuþingið var
eett, 11. október 1962, og þar
til því nú lauk, hefur þing-
inu orðið mikið ágengt.
Djúptækar breytingar
hafa verið gerðar á helgisið-
um.
Þá hefur verið gerð sú
breyting, að nú er ekki leng-
ur skylda að láta mæla á
latnesku við guðsþjónustur,
og mega prestar nú mæla á
móðurmálinu. Miðar þessi
breyting að því að auka
tengsl presta og kirkjugesta.
Orninn á Hellissandi
Arnarunginn, sem fannst
með litlu lífsmarki í fjörunni
á Heliissandi á þriðjudag,
var að hressast í gaer, og
farinn að þiggja mat og ger-
ast grimmur á svip. Þessa
mynd af erninum tók Magn-
ús Óiafsson á Gufuskálum.
Minni myndina tók Einar
Magnússon á Rifi af Bjarna
Þórðarsyni með örninn, en
Bjarni handsamaði arnarung-
ann með því að kasta yfir
hann kuldaúlpunni sinni.
Péturstorgiiiu
■fc Kirkjuþingið samþykkti
að biskupar skuli nú verða
þátttakendur í stjórn kirkj-
unnar, ásamt páfanum, og
verður komið á fót biskupa-
þingi. Munu taka þátt í því
biskupar víðs vegar að úr
heiminum. Keraur það fyrst
saman fyrir árslok 1967, og
er hér um að ræða stórt skref
í áttina til aukins lýðræðis
innan kirkjunnar.
Þá mælti kirkjuþingið
með víðtækum breytingum
innan sjálfs Páfagarðs (curia)
og hefur páfi sjálfur mælt svo
fyrir, að þær verði fram-
kvæmdar.
■Jc Jafnframt samþykkti
kirkjuþingið að felldur skyldi
niður miðaldabúningur
múnka, og skal tekinn upp
annar, nýtízkulegri búningur.
■jc Á þinginu voru gerðar
samþykktir og ályktanir,.
sem miða að því að auka
tengslin milli kaþólskra og
annarra kristinna manna, og
er nú unnið að undirbúningi
á sameiginlegri Biblíu.
Framhald af bls. 31
Smith boðar vanskil
við Alþjóðabankann
Zambia hyggst ekki rjúfa stjórnmála-
samband við Bretland, þótt
Smith sitji áfram
Salisbury, London, 8. des.
— (NTB) —
FORSÆTISRÁÐHERRA
Rhódesíu, Ian Smith, lýsti því
yfir í útvarpsræðu í dag, að
stjórn landsins myndi ekki
geta staðið við skuldbinding-
ar sínar við Alþjóðabankann.
Er hér um að ræða fjárhæð,
er nemur 108 milljóum sterl-
ingspunda (um 13.000 millj.
ísl. kr.)
Smith réðst harkalega að
brezku stjórninni í ræðu
sinni, og sagði, að brezkir
ráðamenn hefðu vanmetið
afstöðu Rhódesíumanna í
sjálfstæðismálinu. Þá sagði
forsætisráðherrann, að öllum
friðartilboðum Breta yrði te*k
ið af varúð.
Fyrr í dag lýsti talsmaður
brezka íhaldsflokksins í sam-
veldismálum, Selwyn Lloyd, því
yfir, að leysa yrði Rhódesíumál-
ið með samningum. Lloyd kvað
þó ekki tímabært nú að ákveða
stað eða stund slíkra viðræðna.
Framhald af bls. 31
Páll páfi VI.
Sérolstoða
Svía 09 Dana
New York, 8. desember
NTB
DANMÖRK og Svíþjóð
greiddu atkvæði með álykt-
unartillögu Afríku- og Asíu-
rikja, á Allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna í gærkveidi,
þar sem tilmælum var beint
til Öryggisráðsins, að það
beiti sér fyrir efnahagslegum
refsiaðgerðum gegn stjórn
S-Afríku. Noregur, Finnland
og ísland sátu hjá við at-
kvæðagreiðslu, svo og mörg
önnur vestræn ríki. Tillagan
var samþykkt með miklum
meirihluta.
Það kom á óvart, að fuli-
trúi Svíþjóðar skyldi greiða
tillögunni atkvæði, því að áð-
ur hafði önnur afstaða Svía
verið boðuð.
„Látum ekki segja okkur fyrir
verkum, eins og á stendur" —
segir Bottomley, samveldismálaráðherra, við bandaríska
fréttamenn, er hann rœddi Rhódesíumálið
London, 8. des. — (AP) —
ARTHUR Bottomley, sam-
veldismálaráðherra Breta,
sagði í dag á fundi með
bandarískum fréttamönn-
um, að það gæti haft mjög
alvarlegar afleiðingar, ef
einhver þeirra Afríkuríkja,
sem eru í brezka samveld-
inu, segðu sig úr því vegna
Rhódesíumáisins.
„Það væri óafsakanlegt
að gera sér ekki fulla grein
fyrir alvöru þessa máls,“
sagði Bottomley. Ráðherr-
ann sagðist þó vonast til,
að eining héldist með sam-
veldislöndunum nú, eins og
fyrr, er erfiðleikar hafa
steðjað að.
Þá ræddi Bottomley nokk-
uð þá ákvörðun sambandsins
Eining Afríku, en samtökin,
sem telja 36 þjóðir, hafa lýst
því yfir, að öll meðlimaríkin
muni slíta stjórnmálasam-
bandi við Bretland, verði
stjórn Harold Wilson ekki bú-
inn að koma frá stjórn Ian
Smith í Rhódesíu fyrir 15.
desember. Bottomley sagði
um þessa ákvörðun sambands
ins, að „Bretar væru ekki í
skapi til að láta segja sér fyrir
verkum", eins og á stæði.
Um aðgerðir þær, sem
brezka stjórnin hefur gripið
til gegn Rhódesíu, sagði ráð-
herrann:
Framhald á bls. 31.