Morgunblaðið - 09.12.1965, Side 10

Morgunblaðið - 09.12.1965, Side 10
10 MORGU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 9. des. 1965 Hf utverk þeirra er að selja og dreifa frystum fiski á bandarískum markaði Ross félög í fluttar í pokum til íslands til stórskaða fyrir þjóðina. Hitt er tiltölulega nýtt, að malaðar fóð- urvörur séu fluttar á sama hátt. Nú er orðið algengt, að mjöl úr bómullarfræi, copra, smára o. s. frv. sé flutt laust í skipum landa á milli. Til þess að hægt sé að flytja malaðar fóðurvörur lausar í skip- um, er nauðsynlegt að móta þær. fyrst í harða köggla, til að forð- ast að hitni í þeim í skipunum eða við geymslu í landi. Kögglarnir eru vanalega sívaln ingar frá V2 til 2 cm langir og frá 4 til 13 mm í .þvermál. Kögglarn- ir eru myndaðir í þar til gerðum vélum við háan þrýsting. Til að létta fyrir samloðnun kögglanna er notuð gufa, svo að mjölið hitni og vatnsinnihald þess aukist áður en kögglarnir eru mótaðir. Það vatn, sem þannig er bætt í mjöl- ið, hverfur að mestu aftur við kælingu kögglanna. Ef fituinnihald mjölsins er mjög mikið, vilja kögglarnir stundum ekki loða nógu vel sam- an og er oft bætt efni í mjölið eins og t.d. Dura-Bond eða Orzan til þess að bæta úr því. íslenzkt síldarmjöl er stund- um því miður nokkuð feitt og vv óttast að kögglar úr því myndu ekki loða saman, ef fitu- innihald mjölsins væri meira en 9%. Þessi ótti er, sem betur fer, ástæðulaus. Við tilraunir hefur það sýnt sig, að heilmjöl loðir vel saman í kögglum þótt fitu- innihald þess sé hátt. Líklegt er að soðkjarninn virki sem bindi- efni. Næstum allt íslenzkt síldar- mjöl er heilmjöl. Síldarmjöl hefur ennþá ekki, svo vitað sé til, verið flutt laust í skipum landa á milli, en Perú hefur hafið undirbúning að því. Síldarverksmiðjur ríkisins sýndu í ár þá lofsamlegu framtakssemi að hefja í tilraunasky'ni fram- leiðslu á kögglum úr síldarmjöli. Eftirfarandi lauslegur útreikn- ingur gefur hugmynd um, hvað myndi sparast við að hætta að setja mjölið í poka og í stað þess flytja það laust í kögglum á mark aðinn. Útreikningarnir eru mið- aðir við verksmiðju, sem vinnur Jón Gunnarsson 5000 mál á sólarhring og fær alls 200000 mál síldar af hráefni á ári. Sparnaður Pokar um kr. 900000 00 Vinnulaun (við að setja mjölið í poka og stafla þeim) um — 3000000,00 Útskipun og farm- gjöld um — 1500000,00 Kr. 5400000,00 kr. 80000,00 — , 130000,00 — 10000,00 — 90000,00 — 30000,00 Kr. 340000,00 Nettósp. á ári um kr. 5060000,00 Þegar mjölið er sett í köggla Framhald á bls. 11. Aukin útgjöld Vextir af stofn- kostnaðinum Afskriftir Viðhald Bafmagn Gufa JÓN Gunnarsson, verkfræðingur, hefur skrifað merka grein í Tímarit Verkfræðingafélags ís- lands, sem hann nefnir: „Kögglar úr síldar- og fiskimjöli“. Morg- unblaðið hefur fengið góðfúslegt 'k' ■? X* leyfi Jóns til að birta greinina og fer hún hér á eftir: Ómalað hveiti, maís, rúgur o. s. frv. hefur um langan tíma verið flutt laust í skipum landa á milli, þó að þessar vörur séu ennþá Kögglar úr síldarmjöli stofnar sölu- Bandaríkjunum ROSS Internation.il, sú deild Ross-fyrirtækjasamsteypunoiar brezku, sem annast sölu og dreif- ingu á erlendum mörkuðum, hef- ur tilkynnt að mynduð verði tvö sölufélög fyrir Bandarikjamark- aðinn. Þessi tvö nýju fyrirtæki, sem nefnast Ross New York Ltd. og Ross California Ltd., munu fyrst og fremst hafa það verkefni að annast sölu og dreifingu á fryst- ym humar og rækjum frá fyrir- tækjum móðurfélagsins í Ástra- líu og Miðausturlöndum. Hið nýja sölufélag í New York mun annast söluna á austur- strönd Bandaríkjanna og mið- vesturríkjunum* Ross California mun hafa bækistöðvar í Los Angeles og annast söluna á vest urströndinni. Ross fyrirtækjasamsteypan áætlar, að sala fyrirtækisins í Bandaríkjunum muni nema 5 milljónum dollara, eða 215 millj. ísl. króna árið 1966 og hún mun aukast verulega árið 1967, eftir því sem Ross færir út kvíamar í Ástralíu og Miðausturlöndum. Árið 1967 mun fyrirtækið einn ig senda frystan fisk á Banda- ríkjamarkað frá Ross-Steers fyrir tækinu í St. Johns á Nýfundna- landi. Ágætt verð erlendis — en aflinn lítill TOGARINN Marz seldi afla sinn í Bremerhaven s.l. mánudag. Var hann með 115 tonn, sem seldust fyrir 129 þúsund mörk. Er þetta ágæt sala. Egill Skallagrímsson seldi s.l. þriðjudag í Cuxhaven. Var hann með 159,8 tonn af ísaðri síld, sem seldust fyrir 117.555 mörk, og 50,4 tonn af öðrum fiski, sem seldust fyrir .72.525 mörk, eða alls 190.080 mörk. Er þetta hvort- tveggja afbragðsverð. í gærmorgun seldi Kaldbakur í Grimsby 98 tonn fyrir 10.878 sterlingspund og er það einnig ágætisverð. t dag, fimmtudag, selja þrír islenzkir togarar í Bretlandi og einn í Þýzkalandi. Hið eina, sem skyggir á þess- ar sölur, er hve aflamagn tog- aranna er lítið, enda hefur afli þeirra verið fádæma lítill að undanförnu. íslenzku togararnir eru nú all ir á veiðum á heimamiðum. í langan tíma hefur aðeins einn islenzkur togari reynt fyrir sér á fjarlægum miðum. Það er Marz, sem var um tíma að veið- um við Hvarf á Grænlandi í vondu veðri og litlum fiski. Norðurstjarnan sendir framleiðslu sína á erlendan markað. King Oscar Kippers Snacks skipað um borð í Eimskipafélagsskipí Reykjavík. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) NORÐURSTJARNAN HEFUR FRAM- LEITT LIÐLEGA MILLJÚN DÚSIR Um 525 þúsund dósir hafa þegar verið sendar á bandarískan markað NORÐURSTJARNAN h.f. í Hafnarfirði hefur þegar fram- leitt liðlega eina milljón dósa af niðursoðinni síld, svonefndri kippers snack. Langmestur hluti framleiðslunnar er flutt- ur út, eingöngu til Bandaríkj- anna. Að því er Andrés Pétursson, framkvæmdastjóri, hefur skýrt Morgunblaðinu frá eru nú 80 manns í vinnu hjá verksmiðj- unni og er soðið niður í 20—30 þúsund dósir á dag. Einnig er unnið að flökun og frystingu síldar til að safna birgðum til þess tíma er síld veiðist ekki. Annars er soðin niður ný síld. þegar hún er fáanleg. Um 30 þúsund dósir hafa verið sendar á innlendan mark- að og hefur feitari síldin líkað mjög vel. Fyrsta síldin, sem soðin var niður, var mögur og þótti ýmsum hún of þurr. Norðurstjarnan hefur þegar flutt út um 525 þúsund dósir til Bandaríkjanna undir vörumerk- inu King Oscar Kippers Snacks. Norska fyrirtækið Chr. Bjelland í Stavanger sér um sölu og dreifingu á síldinni í Bandaríkjunum og hefur hún til þessa verið send til New York, Portland, Seattle, Los Angeles og San Fransisco. Fyrsta sendingin fór utan 6. nóvember sl., en sú næsta og fjórða fer n.k. laugardag. Það verða um 200 þúsund dósir. Þar sem svo stutt er frá þvi framleiðsla fyrirtækisins var send á erlendan markað heíur Norðurstjarnan ekki enn feng- ið skýrslu um, hvernig hún feil- ur bandarískum neytendum í geð. Milljónasparnaður með því að flyIja síldar- og fiskimjöl í kögglum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.