Morgunblaðið - 09.12.1965, Page 23

Morgunblaðið - 09.12.1965, Page 23
j Fimmtudagur 9. fle*. 1965 MORCUNBLAÐIÐ 23 Sveinn Kristinsson skrifar um Kópavogsbíó UNGLINGAÁSTIR. j (Les Nymphettes) 4 Frönsk mynd. VIÐ karlmenn erum ekki óvanir því að vera uppteiknaðir sem hálfgildings skúrkar í ástarsög- um flekandi saklausar ungmeyj- ar, oft á því lágkúrulega sið- gæðisplani að hafa af þeim sem xnestar og beztar nytjar fyrir sem minnst og lakast endurgjald. Þó eru til heiðarlegar undan- tekningar frá þessu í ástarsagna* gerð, höfundar, sem láta sér ekki sjást yfir, að „processinn“ getur einnig gengið í öfuga átt. Karl- menn geta einnig orðið fórnar- Skálholtssöfn- unin GJAFAFÉ, er borizt hefur Laug- arnessókn: Ragnar Jóhannesson, Lauga- feigi 23, kr. 200.00; Ásgeir Jóns- son, Laugarteigi 23, 100.00; Guð- rún H. Petersen, Laugarteigi 36, 100.00; Marta Haraldsdóttir, Laug arteigi 40, 100.00; Ragnar Einars- son, Súðarvogi 5, 100.00; Hrefna Sigurðardóttir, Laugarteigi 11, 100.00; Guðmundur Hannesson, Laugarteigi 35, 500.00; Alda Ósk- arsdóttir, Laugarteigi 56, 100.00; Stefán Sigurðsson, Laugarteigi 48, 100.00; Jón Eysteinsson, Laug- orteigi 38, 100.00; Sigurbjörg Guð jónsdóttir, Sjtigahlíð 43, 100.00; Ögmundína Ógmundsdóttir, Mið- túni 48, 200.00; Ragnhildur Eyj- ólfsdóttir, Miðtúni 48, 1.000.00. Sajntals kr. 2.800.00. lömlb skúrka úr kvennastétt, sem leika sér með tilfinningar þeirra, án sjáanlegra samvizkukvala og setja enda á stundum metnað sinn í slíkt athæfi. — En kannske er ekki að kynja, þótt íslenzkar ástarsögur á síðari hluta 20. aldar geymi fleiri daemi um fyrrnefnda afbrigðið. Að minnsta kosti á meðan „kerlingarnar tíu“ eru jafn umsvifamiklar á sagnamark- aðinum og nú er raurtin. Franska myndin „Unglinga- ástir“, sem Kópavogsbíó sýnir um þessar mundir, er raunsæ á áðurnefndu sviði. I>ar er það ung ur háskólastúdent, sem tefeur ásitina nokkuð alvarlega og leit- ar voteygur og ástríðufullur að uppsprettu hennar í kvenlegum hjörtum. Lengi vel hefur hann ekki erindi sem erfiði, skollitað afstreymi hinnar hreinu kenndar verður hvarvetna á vegi hans, konur eru ekfei frá því að kyssa hann og jafnvel sofa hjá honum, en allt í gamni, og svona gat ástin ekki verið á litinn. Og beljakar komiu og börðu hann, og konur spottuðu hann fyrir barnaskap hans, unz hann kvöld eitt situr úti í bíl fyrir utan veitingaferá eina, barinn, traðkaður og smáður, hallar sér í örvæntingu fram á stýrið — þá gerist kraftaverkið, þögult og kyrrlátt læðist það inn í sál hans, og tjaldið fellur. Þessi fearlmaður er greinilega ekki af skúrkaættkvíslinni. Hann leitar að fegurðinni í ástinni fremur en ástinni í fegurðinni, hann skiiur ekki hverflyndi og léttúð hins almenna æskufólks, eins og það er sýnt í myndinni. Fyrir honum er ástin nánast trúarbrögð og svið, sem honum finnst hrein goðgá að snerta öhreinum fæti, meðan aðrir, og það félagar hans leita þangað hverfuls stundargamans og staupa sig í leiðinni. En þótt við nefnum mynd þessa raunsæ-ja í heildinni, þá má um það deila, hve sennilegt það er, að svo sérstæð. kvistur sem þessi ungi, hugþekki stúdent skuli vaxa upp í því umhverfi, sem hann er sprottinn úr. Föður sinn hafði hann aldrei séð, hann stökk í skelfingu frá móður hans MORGITNBLAÐINU hefur borizt ný bók eftir þá Sverri Ki'istjáns- son og Tómas Guðmundsson, Undir hauststjörn>um. Bók þessi, sem er 235 blaðsíður að stærð, er gefin út af forlaginu Forna, Reykjavík. Undirtitill bókarinn- ar er: Íslenzkir örlagaþættir. Eins og kunnugt er kom út í fyrra eftir þá félaga Sverri og Tómas bókin Konur og krafta- skáld og hlaut hún ágætar við- tokur. Hún fjallar um nokkra Tómas. ófrískri. Móðir hans er ekki sér- lega „sympathysk“ kona að sjá né heyra. — En kannske er ein- mitt þar skýringin á afstöðu hins unga manns, föðurleysi, og hleypi dómar móður hans hafi gert hann meira þurfandi fyrir þá tegund ástar, sem höfðar til hlýju og tryggðar umfram allt annað, en ella hefði orðið. Unglingaástir er ekki stór- mynd, j venjulegri merkingu, en þekkta íslendinga, líf þeirra og örlög. í þessa nýju bók skrifa þeir enn um þekkta íslendinga. Sverrir á þrjár greinar sem nefn- ast: Ástir Baldvins Einarssonar, Óöld í Árnessýslu og Bóndinn á Brúnum, en Tómas Guðmunds- son skrifar greinamar. Nætur- sigling undir hauststjörnum, Undarleg örlög og Sóllborg. Aft- ast í bókinni eru jnyndir af helztu persónum sem við sögu koma, þar á meðal Baldvin Einarssyni, Einari Benediktssyni og baróninum á Hvítárvöllum. I formála fyrir bók þessari segir útgefandi m.a. á þessa leið: ,,Að efni þessarar bókar eiga höfundar hvor um sig þrjár frá- sagnir. Sumt af því var skrifað fyrir allmörgum árum að beiðni útgefandans, annað er nýtt af nálinni og kemur nú í fyrsta sinn fyrir almenningssjónir. Sem fyrr bregða höfundarnir upp lif- andi myndum af þeim persónum, sem korna við sögu. Ýmist eru það svipmyndir, þar sem vissir drættir verða öðrum skýrari, eða uppgjör heillar ævi, en í öllum þessum þáttum er byggt á traust- um heimildum, þó að þeirra sé ekki ávallt getið. Frásagnir þess- ar eru sundurleitari en efni en í fyrri bókinni, en þær gerast allar bregður athyglisverðu ljósi yfir lí'f unga fólksins í París. Christi- an Pesey leikur hinn unga stúd- ent, og virðist mér túlkun hans mjög góð. Er athyglisvert, hve honum tekst að safna djúpum, ástríðufullum trega í augnatillit sitt, sem þó er sáfellt á hvörfum flöktandi vonar. — Colette Descombes og Claude Arnold fara með aðalkvenhlutverkin í myndinni. Sverrir. á sama tímaskeiði, eru íslenzkir örlagaþættir frá liðinni öld“. Til að gefa lesendum nokkra nánari grein fyrir efni bókarinn- ar, er rétt að sfeýra frá því, að greinin um Baldvin Einarsson ber undirtitilinn Unnustan og eiiífð- in, Óöld í Árnessýslu er um af- drif Sigurðar Gottsiveinssonár, Bóndinn á Brúnum er lífsganga fyrir kóng og kennimenn, Sól- borg hefur undirtiitilinn Einar Benediktsson í sæti rannsóknar- dómara, Undarleg örlög fjallar um baróninn á Hvítárvöllum og Nætursigling undir hauststjörn- um fjallar um brúðarrán. Ný bók eftir Sverri og Tómas — lindir hauststjörnum íslandsmyndabók Hjálmars R. Bárðarsonar HJÁLMAR R. Bárðarson er fyrir löngu orðinn landskunnur ljósmyndari. Víða erlendis, eink um á Norðurlöndum, og í Bret- landi, er nafn hans þekkt meðal áhugaljósmyndara, því að mynd ir hans hafa viða birzt. í sumar sendi hann frá sér ínikla myndabók um ísland. Þetta er önnur íslandsbókin hans öllu meiri og veglegri en sú fyrri. Bókin er 208 blaðsíður að stærð prentuð með „tiefdruck" -aðferð í Hollandi, í góðu al- shirtingsbandi. í henni eru 241 xnynd og þar af 50 í litum. Myndatextar eru á sex tungu- málum: íslenzku, dönsku, frönsku, þýzku og spænsku, en fremst í bókinni er stutt kynn- ing á íslandi á öllum fyrrnefnd- um tungumálum. Er þar drepið á það helzta varðandi sögu lands ins og náttúru þess. í stuttu máli má segja, að Hjálmar fari hringferð umhverf is landið bregði upp svipmynd- um af náttúru þess, atvinnulífi og menningu þjóðarinnar. Hér mætast andstæður frosts og funa. í>að er afrek eins manns að setja saman slíka alhliða land- lýsingu úr eigin myndasafni. Að baki þessarar stóru bókar ligg- ur geysimikið starf. Tómstunda- iðja heils áratugs, óteljandi ferðalög um landið þvert og endi langt — og ótrúlega mikil vinna í myrkrastofunni á kvöldin, bæði sumar og vetur í fjölmörg ár, því að hér er saman komið úrvalið úr þúsundum ljósmynda sem Hjálmar á í fórum sínum. Og samt nægði öll þessi fyrir- höfn ekki, ef maðurinn með ljósmyndavélina hefði ekki næmt auga fyrir því myndræna í umhverfinu. Allt þetta lof á Hjálmar R. Bárðarson skilið fyrir bók sína, þótt ég sé hins vegar þeirrar skoðunar, að hann hefði getað gert miklu betri bók, ef hann hefði haft haria helfningi minni — og fellt úr töluverðan fjölda mynda, sem fremur verða að teljast heimild, lýsing á atvinnu og lifnaðarháttum okkar, en listrænt smíði. En, þegar þessari bók er flett verður fyrst ög fre'mst að hafa það í huga, að hér er höfundur- inn að leitast við að gefa heil- steypta mynd af landi og þjóð — og kemur það niður á hinu listræna gildi bókarinnar. Ég feri hins vegar ráð fyrir að í essari mynd hafi bókin meira gildi fyrir útlent fólk, sem kynn ast vill landinu. Landslagsmyndirnar eru bezti hluti bókarinnar og margar þeirra eru afbragð. Ég nefni mynd frá Seyðisfirði, loftmynd af ísafirði, sérstæðar myndir af íslenzkum bergmyndunum, nokkrar fuglamyndir — svo og myndir úr Surtsey. Atvinnulifs- myndirnar eru ekki jafn inni- haldsríkar, en þær gegna sínu mikilvæga hlutverki, eins og fyrr var bent á. Og án þeirra væri vissulega ekki gefin heild- armynd af landi og þjóð. Prent- un nokkurra litmyndanna hef- ur ekki heppnast nógu vel, en sumar eru þó í sérflokki — og skulu Surtseyjar-myndirnar þá fyrst nefndar. Ég felli mig ekki að öllu leyti við uppsétningu myndanna. Víð ast hvar ná þær saman í kili bókarinnar, en einhvern veginn finnst mér, að heildaryfirbragð ið hefði orðið léttara, ef mynd- irnar hefðu verið meira að- greindar og meira „loft“ væri í opnunum. En myndatextar á sex tungumálum sníða höfundin- um að sjálfsögðu stakk sem hann hefur þó haft þrengri en ástæða var til. Einhverjum finnst nú e.t.v., að ég sé búinn að rifa niður allt lofið, sem ég hlóð á Hjálmar í upphafi þessa greinarkorns. Ég neita því harðlega. En úr því að ég sá ástæðu til að vekja athygli á þessari myndarlegu bók hlaut ég líka að benda á það, sem mér þótti miður — vonandi hef ég ekki gert of mikið úr því. Fyrir þá, sem aldrei hafa litið þetta land augum, er þetta geysifróðleg bók og gleðjandi fyrir augað — og þeir íslend- ingar, sem vilja fallegar mynda bækur um landið okkar, eiga vart kost á öðrum betri. Ég endurtek það, sem ég sagði í upphafi, að mér finnst það afrek að koma slíkri bók frá sér án þess að fá svo mikíð sem eina mynd frá öðrum. Ég efast um, að nokkur núlifandi ljósmyndari gæti sent frá sér jafn yfirlitsmikla, margþætta og vel unna íslandslýsingu. En vonandi leggur Hjálmar höfuð- áherzlu á hið myndræna í næstu bók sinni, því að ég efast ekki um, að þar nyti hann sín enn betur. En slikar bækur hafa því miður minni sölumöguleika og það er kostnaðarsamt og áhættu mikið fyrirtæki að leggja í út-l gáfu vandaðrar myndabókar. h.j.h.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.