Morgunblaðið - 09.12.1965, Side 25

Morgunblaðið - 09.12.1965, Side 25
Fimmtudagur 9. des. 1985 Tóbaksekrueigandinn var að aýna konu ekrur sínar. — Hérna sjáið bér tóbakstré í fullum skrúða, sagði hann. — En hvað það er dásamlegt, evaraði konan, en segir mér, hve- Dær verða vindlarnir íullþroskað- ir? — Hvaða kventegund giftist þú? .— Hún er engill. — En hvað þú ert heppinn. Mín er ennþá á lífi Blaðamaður hafði frétt af 104 ára gömlum manni, sem bjó skammt frá borg hans og nú heim sótti blaðamaðurinn hann til þess eð eiga við hann viðtai. — Og hverju þakkið þér þenn- an háa aldur? spurði blaðamað- urinn. — Því að ég hef aldrei bragðað éfenga drykki á ævinni, svaraði sá gamli. Hann hafði varla sleppt orðinu, og geysilegur hávaði og bölv heyrðist í næsta herbergi. — Hvað var þetta? spurði blaðamaðurinn. — Æ, þetta var bara hann pabbi. Hann lætur alltaf svona þegar hann hefur smakkað það. Maður nokkur kom inn í veit- Ingahús og pantaði fisk. Þegar hann hafði borðað nokkra bita, kallaði hann á þjóninn og sagði: — Hvernig stendur á þessum vonda fiski? Ég kom héma fyrir tveimur vikum og þá fékk ég þennan dæmalaust góða fisk. — Nú einmitt það. Og þetta er sami fiskurinn. Tveir menn voru að tala um bítlahárið. — Mér geðjast ekki að þessu mikla hári hjá piltunum, sagði annar, maður veit t.d. ekki hvort *r karlmaður og hvort er kven- maður, þegar maður sér tvær manneskjur ganga eftir götu. — Jú, það er mjög einfalt, svar aði hinn. — Þú athugar einfald- lega hvor það er sem hlustar — það er karlmaðurinn. Benedikf Blöndal héraðsdómslögmaður Austurstræti 3. - Sími 10223. Magnús Thorlaeius hæstaréttarlögmaður. Málflutningsskrifstofa. Aðalstræti 9. — Sími 1-1875. LOGI GUÐBRANDSSON hénaðsdómslögmaður Laugavegi 12 — Sími 23207. Yiðtalstími kl. 1—5 eJx. GUSTAF A. SVEINSSON hæslaré t tar lögmað ur Laufásvegi 8. Sími 11171. MORGUNBLAÐIO 25 Fólk úr víðri veröld ANN SYLVAN & CO. Á danska stjörnuhimininn er nú uppgengin ung söngkona, Ann Sylvan að nafni, sem er dönsk að uppruna, þótt nafnið beri þess ekki vott. Ann Sylvan er 18 ára gömul og sendi nýlega frá sér plötu, sem nýtur feikna vinsœlda, Message Understood. Það var söngvarinn Johnny Reimar, sem uppgötvaði þessa nýju og ágætu söngkonu, en hann er ráðgjafi plötufirmans Nordisk Polyfon, og hlustar daglega á fjölda táninga, sem langar að verða frægir. — Reimar varð svo hrifinn af söng hinnar 18 ára gömlu Sylvan, að hann útvegaði henni samning á svipstundu, og afleiðingin er sú að nú syngur Ann með Herman Hermits og Hollies á ferð þeirra í Svíþjóð og víðar. SLÆMT LOFT f CAVERN Nú stendur til að loka The Cavern, Liverpoolklúbbnum, þar sem bítlamir hittu fyrst Brian Epstein og Cilla Black, þar sem Billy Kramer and the Dakotas og margar aðrar „pop“-stjörnur hófu feril sinn. Fyrir skömmu héldu borgaryfirvöldin í Liver- pool fund þar sem heilbrigðis- fulltrúi borgarinnar, Ian Levin, krafðist þess, að klúbbnum yrði séð fyrir loftræstingu og salernis- málin þar tekin til gagngerðrar endurskoðunar, ellegar yrði hon- ura lokað. Kostnaðurinn sem þetta rnundi hafa í för með sér, er xxm 360.000 krónur íslenzkar og þær á eigandi Cavern, Ray McFall, einfaldlega ekki til. — McFall segir: — Mér þykir það leitt, en ég sé engin ráð til að afstýra_ því að klúbbnum verði lokað. Ég á peningana ekki til, þannig að ég verð að selja. Það verður tap fyrir borgina á margan hátt — hugsið ykkur aðeins, að Liver- pool er heimsfræg sem fæðingar- staður „beat’s“-ins. En borgar- ráðið lítur ekki á málið frá því sjónarmiði. The Carvern stendur nú höll- um fæti fjárhagslega, sökum lít- illar aðsóknar, á þessum síðustu og verstu tímum, en i gamla daga átti klúbburinn miklu gengi að fagna og peningarnir streymdu inn, vegna allra „beat“ stjarnanna, sem þar hafa komið fram á undanförnum árum. Nú virðist ekki annað fyrir hendi, en að þessum stað, þar sem vagga „beats“-ins stóð verði lok- að, og þykir mörgum að vonum, erfitt að sætta sig við það. MEIRA UM PETULA CLARK Petula Clark var gerð rækileg skil hér í dálkunum fyrir nokkr- um dögum. Hins vegar voru að 'berast þær fregnir af henni, að hún væri allt að því trúlofuð. Ungur maður, hinn ásjálegasti eins og gefur að skilja, hefur grunsamlega oft sézt í fylgd með henni í næturklúbbnum fræga, Copacabana í New York. Ekki er .gjörla vitað um nafn hins unga manns, en allar kjaftakerl- ingar kvikmyndablaðanna í Bandaríkjunum leggjast nú á eitt, að grafa það upp, svo og fortíð unga mannsins. JAMES BOND ~>f ~>f« Eftir IAN FLEMING — Ah! Þér eruð harðgerðar, ungfrú — og það líkar mér! Nú segið T»ér mér, hver sendi yður, eða ég brýt eitthvað . . . — Hættu þessu, Quarrel. Hún vill ekki tala . . . — Hann nær í ykkur, svínin ykkar! Hann nær í ykkur! — Aðeins einn náungi getur hrætt fólk til að þegja svona vel, stjóri . . . og það er DR. NO! ^ * " í t JÚMB Ó —K— — -X— —<-K— Teiknari: J. M O R Á Júmbó var yfir sig hrifinn af því, hve fljótur Fögnuður var að skilja þetta heima tilbúna fingra- og táknmál. Hann yfirgaf Fögnuð, þar sem hann var önnum kafinn við að tína brauðaldinin, og gekk niður að ströndinni. Útsýnið var mjög takmarkað þarna, og það var aldrei að vita hvenær mannæturnar sneru aftur. En allt virtist vera í ró og spekt. Eftir nákvæma könnun á umhverfinu Iagði Júmbó frá sér byssuna og tók til við fisk- veiðar. Þarna moraði allt af humar og öðrum krabbadýrum, og brátt var karfan full. KVIKSJÁ *—)<—. --K- Fróðleiksmolar til gagns og gamans SÁ möguleiki, að atómstyrjöld kynni að gera óvirkar banda- rískar höfuðstöðvar á jörðinni og þannig lama hernaðarstjórn Bandaríkjahers, varð til þess að fyrir fjórum árum lét hershöfð- ingjaráð Bandaríkjanna byggja neyðarhöfuðstöðvar, sem komið var fyrir í risastórri þotu, eða nánar tiltekið fjórum slíkum þotum, sem skiptast á vöktum. Sú höfuðstöð, sem er á vakt hverju sinni er yfirleitt í 8 km. hæð og lendir ekki fyrr en önn- ur höfuðstöð hefur hafið sig til flugs. Um borð í þotunni er ætíð einn hershöfðingi og starfs lið valinna visindamanna, sem á einu augnabliki geta náð sam- bandi við Stríðsmálaráðuneytið og Hvíta húsið. Ef svo ólíklega skyldi vilja til, að allar varð- stöðvar á jörðinni yrðu eyði- lagðar, mun þessi fljúgandi höf uðstöð taka taumana í sínar hendur og stjórna öllum gangi atómstyrjaldarinnar. Þar af leið andi er um borð í hinum f jórum þotum „rauð askja sem inni- heldur allar þær fyrirskipanir, sem Stríðsmálaráðuneytið hef- ur talið nauðsynlegt að gefa. En einn maður getur ekki opnað þessa „rauðu öskju“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.