Morgunblaðið - 09.12.1965, Qupperneq 31
FimmtuéfagTf? f. des. 1965
UORGUNBLADIÐ
31
Rækjubátiu:
hættír
á Vestfjörðum
XJM síðustu mánaðamát lauk
Tækjuveiðum í ísafjarðardjúpi,
enda var þá aflinn farinn að
trega, eins og oft vill verða þeg-
ar kemur íram í skammdegið.
16 bátar stunduðu veiðarnar og
var heildarafli frá vertiðarbyrj-
un 436 lestir, en leyfi hafði ver-
ið veitt til þess að' veiða 500
lestir fyrir áramót. Rækjubát-
arnir munu byrja á nýjan leik
upp úr miðjum janúar.
í Arnarfirði stunduðu fimm
bátar raekjuveiði, og fengu sam-
tals 29 lestir.
Einn bátur frá Hólmavík,
Guðmundur frá ,3æ, hóf rækju-
veiðar í Steingrímsfirði og fékik
3.7 lestir I 11 róðrum.
Yfirleitt hefur rækjan við
ísafjarðardjúp verið fremur góð
til vinnslu og hefur verið mikil
atvinna við niðursuðu og fryst-
ingu á henni.
— H.T.
- Páll páfi
Framhald af bls. 1.
Þá var gefin út yfirlýs-
ing, þar sem fallið er frá því,
að Gyðingar beri sök á kross-
festingunni. í yfirlýsingunni
er óskað eftir auknum og
betri samskiptum rómversk-
kaþólskra manna og Gyðinga,
og auknum skilningi í sam-
búð kristinna manna og heið-
inna. Verður yfirlýsing þessi
að teljast heimssöguleg, því
að aldrei áður hefur þessu
máli verið hreyft á vettvangi
kirkjunnar.
Kirkjuþingið lýsti þvf
yfir, að allir menn skuli hafa
trúarbragðafrelsi, og er hér
einnig um sögulegt frávik
kirkjunnar að ræða, því að
aldrei áður hefur þannig ver-
ið mælt með náinni samstöðu
kaþólskra og annarra krist-
inna manná.
Þá hefur kirkjuþingið
lagt fram leiðbeiningar til
kaþólskra manna um afstöðu
þeirra til kjarnorkustyrjalda,
réttlætis, kærleika og hjóna-
bands. Engin samþykkt var
gerð um takmörkun barn-
eigna, en það mál hefur þó
ekki verið afgreitt endanlega.
— Látum ekki
. Framh. af bls. 1
■ „Efnahagsmótaðgerðir okk-
\ ar, eru farnar að hafa sín á-
hrif, og munu koma að gagni
við að leggja áherzlu á, hve
óviturlega var að farið, er lýst
var yfir einhliða sjálfstæði
Khódesíu."
Þá sagði Bottomley um
stjórnir þeirra Afríkuríkja,
sem gagnrýnt hafa brezku
stjórnina fyrir linkind í að-
gerðum gegn stjórn Rhódesíu:
„Við erum mjög ánægðir með
afríska vini okkar, sem taka
höndum saman við okkur, í
tnótaðgerðum við ólöglega
stjórn Rhódesíu."
Bottomley, sem nýlega hitti
Kaunda, forseta Zambiu, að
máli í Lusaka, sagði, að hann
hefði varað forsætisráðherr-
ann við því, að stjórn Ian
Smith myndi sprengja í loft
upp Kariba-raforkuverið,
stigu brezkir hermenn fæti
inn fyrir landamæri Rhódesíu.
Er það trú Bottomley, að þeg-
ar hafi verið komið fyrir
sprengjum í raforkuverinu,
og sé allt undir eyðileggingu
þess búið, ef Bretar fara sér
ekki hægt, í einu og öllu, við
landamærin. Brezkt gæzlulið
flugmanna er nú í 'Zambíu.
Staðurinn þar sem sprenging in varð. Örin bendir á staðinn,
þar sem kúturinn lá i lækn um. Tveimur metrum ofar í
læknum stóð Hjalti, og hann kastaðist þangað, sem krossinn
er.
Megum bakko
Framhald af bls. 32.
hann verið kældur með vatni,
var mér sagt að fara með hann
niður að Iæknum, sem er í
u.þ.b. 30 metra fjarlægð frá
húsinu. Ég tók hann á öxlina
og bar hann niður að læknum
og rétti hann þar Hauk, sem
bar hann síðasta spölinn að
læknum og kom honum þar
fyrir. Síðan gekk ég upp að
brúnni, sem þarna er skammt
frá og þegar ég sneri þar við,
sprakk kúturinn, og mun þá
í mesta lagi hafa verið liðin
hálf mínúta frá því að Hauk-
ur hafði komið kútnum fyrir
í læknum.
Hér tók Haukur við af
Tryggva og er frásögn hans
á þessa leið:
— Ég tók við kútnum af
Tryggva og bar hann þessa
4—5 metra, sem eftir voru að
læknum ,og kom honum þar
fyrir. Síðan fór ég að hjálpa
Hjalta við að hreinsa barka-
sigti, en gekk síðan frá sigt-
inu að vatnsdælunni, sem var
þarna örskammt frá. í>á kom
sprengingin og ég vissi næst
af mér, þar sem ég var á fjór-
um fótum að reyna að brölta
á fætur, nokkuð lengra frá
læknum, en hvort ég hef
skriðið þangað sjálfur eða
þrýstingurinn þeytt mér úr
stað, veit ég ekki.
Hjalta sagðist svo frá:
— Ég stóð út í miðjum lækn
um og var að dýpka lækinn
fyrir barkasigtið, svona um
tvo metra frá, þar sem kút-
urinn lá í læknum, þegar
sprengingin varð. Síðan veit
ég ekki meira.
Þar sem Hjalti og Haukur
eru ekki til frásagnar um,
hvað gerðist eftir sprenging-
una, báðum við Tryggva að
skýra frá því.
— Já, ég var eins og áður
segir, sagði hann, rétt kominn
upp á brúna, sem er þarna
hjá, þegar sprengingin varð.
Ég sá Hjalta takast á loft,
fljúga um 1 Vz metra í loftinu
og lenda á grúfu. Til Hauks
sá ég aftur á móti ekki, fyrr
en hann var á leið upp lækj-
arbakkann, reikull í spori, en
síðar frétti ég, að hann hefði
dottið skömmu eftir að hann
er vist, sagði Tryggvi, að
lokum, að við megum allir
þakka fyrir að vera nú í tölu
lifenda.
Loks hittum við að máli
Gunnar Sigurðsson, vara-
slökkviliðsstjóra, og tjáði
hann okkur, að það fyrsta
sem slökkviliðið gerði, þegar
það kæmi að brennandi verk
smiðju, eða áþekkum fyrir-
tækjum, væri að kanna, hvort
þar inni væri nokkuð sem
gæti sprungið. í brunamála-
samþykktinni fyrir Reykja-
vík væri reglugerð varðandi
það ,að þegar vinnu sé lokið
á vinnustöðum, skuli öllum
var kominn þar upp. En eitt
gas- og súrefnishylkjum kom-
ið fyrir á einum stað nálægt
útgöngudyrum, og skuli stað-
urinn og dyrnar auðkenndar
þannig, að slökkviliðið geti
fundið hylkin tafarlaust. —
Gunnar kvað þetta vera gert
til þess að koma í veg fyrir
að hylkin næðu að hitna svo
mjög, að sprengihætta stafaði
af þeim, en því miður væri
þessari reglugerð allt of lítið
sinnt. Hann kvaðst vilja geta
þess að lokum, að það væri
tvennt ólíkt, þegar eldur læsti
sig í slönguna og bærist upp
í mælitæki gaskútsins, og þeg
ar eldur umléki kútinn sjálf-
an. í fyrra tilfellinu mætti
auðveldlega koma í veg fyrir
sprengjuhættuna með því að
loka fyrir kútinn, en í því
síðara þyrfti að einangra kút-
inn alveg, þar sem hinar
öru efnabreytingar í honum
áf völdum hitans, gætu valdið
því að hann springi allt að
48 klst. eftir að eldurinn
umlék hann.
Boskerville-hundurinn cg
Grunt skipstjóri og börn hans
í BÓKAFLOKKNUM „Sígildar
sögur Iðunnar" eru nýkomnar út
tvær bækur, Baskerville-hundur
inn eftir Arthur Conan Doyle í
þýðingu Kristmundar Bjarnason-
ar og Grant skipstjóri og börn
hans eftir Jules Verne í þýðingu
Inga Sigurðssonar. Báðar þessar
sögur eru gamalkunnar íslenzk-
um lesendum og hafa ávallt átt
miklum vinsældum að fagna, en
hafa verið ófáanlegar á bóka-
markaði hérlendis um langt ára-
bil.
Iðunn hóf útgáfu þessa bóka-
flokks fyrir þremur árum. Birt-
ast þar einvörðungu víðfrægar
sögur, sem um áratuga skeið hafa
verið vinsælt og eftirsótt lestrar-
efni fólks á öllum aldri. En út-
gefandi segir, að til bókaflokks-
ins sé stofnað í þeim megintil-
gangi að gefa æsku landsins kost
á að lesa þessar sigildu bækur
í góðum þýðingum og vönduð-
um útgáfum. Og víst er um það,
að bezt njóta menn þessara bóka
á unglingsaldri, þótt þær séu
ekki í raun réttri skrifaðar fyrir
unglinga í upphafi.
Áður eru komnar út eftirtald-
ar sjö sögur í þessum bókaflokki:
Ben Húr, Kofi Tómasar frænda,
ívar hlújárn, Skytturnar I—III
og Börnin í Nýskógum. Flestali-
ar eru bækur þessar prýddar
fjölda mynda, sumar myndum úr
kvikmyndum en aðrar teikning-
um. \
Sérvirkjanir fyrir einstök
byggðarlög á Vestf jörðnm
Tillaga VestíjarðaþiitgmrniTtíi
FJÓRIR Vestfjarðaþingmenn,
þeir Sigurður Bjarnason, Þor-
valdur Garðar Kristjánsson,
Matthias Bjarnason og Birgir
Finnsson flytja svohljóðandi
þingsályktunartiliögu á Alþingi:
Aiþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að láta fram fara
rannsókn á því, hvernig þeim
byggðarlögum . á Vestfjörðum
verði tryggð afnot raforku, sem
samveitur ná ekki til sakir strjál
býlis. Skal í því sambandi athug-
að sérstaklega, hvernig sérvirkj-
unum verði við komið i þágu ein-
stakra byggðarlaga og býla.
Kona fyrir bíl
í GÆRMORGUN varð kona fyrir
bíl á Fríkirkjuvegi. Var hún á
gangi austur Skothúsveg og fór
yfir götuna á gatnamótunum við
Fríkirkjuveginn. FóLksibiifreið var
á leið suður Fríkirkjuveginn og
lenti konan, sem heitir Aðalheið-
ur Dröfn Gísladóttir, Tjarnar-
götu 41, á hægra framhorni bíls-
ins og kastaðist í götuna. Hún
marðisit á mjöðm og fékk höfuð-
högg og var lengi dags í gær í
rannsókn á Slysavarðstofunni.
Bifreiðin, sem ók á konuna,
skildi eftir sig 16 m. hemlaför.
Gatan var blaut, en ekiki veru-
lega hál .
Allt gengur vel
með „GeminiVII“
Houston, Texas, 8. desember
— AP.
FERÐ geimfarsins „Gemini VII“
gengur enn vel, og fer allt fram
eftir áætlun. Þá miðar undir-
búningi að „Gemini VII“ geim-
skotinu betur, en gert hafði verið
ráð fyrir, og mun því vekða
skotið á loft á sunnudag, ekki
mánudag, eins og áður hafði
verið boðað. Geimförin tvö
munu síðan hafa samfylgd, 1—3
hringi umhverfis jörðu.
— Rörsteypan
Framhald af bls. 32.
ýý Milljónatjón
þá var húsið að mestu brunnið.
Mbl. átti í gærkvöldi tal við
Hilmar Guðjónsson, eiganda
Rörsteypunnar. Hann sagði að
þarna hefði orðið gífurlegt tjón,
óhætt að segja að það skipi
milljónum, því bæði væri hús-
ið alveg ónýtt og að auki allar
þær 10-15 vélar, nýjar og gaml-
ar, sem í því voru. Þetta tjón
væri ekki hægt að meta, aðeins
hægt að gizka á. Þó vildi svo
heppilega til, að nýjar vélar,
sem Rörsteypan var að fá, og
komnar til landsins, voru ekki
komnar í verksmiðjuna og
mundu nú aldrei komast þang-
að.
Hilmar býr sjálfur 600-800 m.
frá Rörsteypuhúsinu. Hann var
vakinn um nóttina, leit út um
gluggann og sá að verksmiðjan
var alelda. — Það fer ekki beint
vel með mann að sjá séoleiðis,
sagði hann.
í greinargerð sem fj'Igir frum-
varpinu segir svo:
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem fyrir liggja um framhald
rafvæðingar landsins, er aug-
ljóst orðið, að vegna strjálbýlis
á Vestfjörðum er ekki gert ráð
fyrir að allmargir sveitabæir í
þessum landshluta fái raforku
frá samveitum. Hins vegar er
þörf fólksins í þessum héruðum
fyrir lífsþægindi raforkunnar
ekki minni en annars staðar. Án
raforku getur nútímafólk ekki
verið. Þess vegna verður að fara
aðrar leiðir tii þess að tryggja
sveitum Vestfjarða raforku. —
Koma þar til greina sérvirkjanir
fyrir einstök byggðarlög og auk-
in aðstoð hins opinbera við diesel
orkuver í þágu einstakra býla og
sveita. Flutningsmenn tillögu
þessarar telja, að fólkið í hinni
strjálustu byggð í landinu eigi
ekki síður rétt á því en aðrir
landsmenn að njóta lífsþæginda
raforkunnar. Þess vegna beri að
gera sérstakar ráðstafanir til
þess að rafvæða strjálbýlustu
sveitirnar.
— Smith
Framhald af bls. 1
Þær fregnir bárust í dag frá
Lusaka í Zambíu, að forseti lands
ins, Kaunda, hefði tilkynnt ríkj-
um þeim, sem aðild eiga að sam-
bandinu Afrisk eining, OAU, að
stjórn Zambíu myndi ekki fara
að tilmælum sambandsins og
slíta stjórnmálasambandi við
Bretland, hefði brezku stjórninni
ekki tekizt að knésetja stjórn
Smith í Rhódesiu, fyrir 15. des.
í ræðu sinni í dag, sagði Ian
Smith ennfremur, að nauðsynlegt
myndi reynast að grípa til sér-
stakra mótaðgerða, vegna þeirra
ráðstafana, sem mörg ríki hefðu
nú gripið til gegn Rhódesíu.
Sagði forsætisráðherrann m.a.,
að kæmi til atvinnuleysis í
Rhódesíu, myndi erlendum mönn
um, sem nú starfa í landinu, sagt
upp störfúm sinum, -og þeir send-
ir til síns heima.
Fréttaritarar í Salisbury minna
á í þessu sambandi, að Smith hafi
áður hótað að senda úr landi um
250.0000 verkamenn frá Malawi
og Zambíu, sem nú starfa í
Rhódesíu.
Þá lét Smith að því liggja, að
til greina kæmi að haékka út-
flutningsverð á kolum frá Rhód-
esíu. Mun ráðstöfun þessi, ef til
framkvæmda kemur, einkum
eiga að bitna á Zambíu, sem
kaupir kol frá Rhódesíu, í all-
•miklum mæli.
Fyrir tæpri viku lagði brezka
stjórnin hald á gjaldeyrisvara-
sjóði Rhódesíu í Bretlandi, alLs
um 22 milljónir punda (um 2.600
millj. ísl. kr.) Fjármálaráðherra
Rhódesíu tilkynnti í dag, að fram
vegis ýrðu öll viðskiptalönd
Rhódesíu á sterlingssvæðinu að
greiða með kanadiskum eða
bandarískum dölum, eða evrópsk
um gjaldeyri. Þá sagði ráðherr-
ann, að framvegis yrðu nokkur
viðskiptalönd, þ.á.m. Zambía, að
greiða fyrir vörur fyrirfram.
Franska olíuskipið \„Antinia“
kom í dag í höfn í Mozambique.
Olía sú, sem skipið flytur, verður
send til Rhódesíu.
Móðir okkar
INGIBJÖRG STEINGRÍMSDÓTTIR
Vesturgötu 46 A,
andaðist í Landakotsspítalanum miðvikudaginn 8. des-
ember.
Anna Kr. Bjarnadóttir,
Inga Lillý Bjarnadóttir.