Morgunblaðið - 02.03.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.03.1966, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 2. marz ISBfl MORGU NBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM SÍÐASTLIÐINN sunnu- dag gekkst kvenfélagið Hlíf á ísafirði fyrir hinu árlega samsæti sínu fyrir eldra fólkið í bænum. Var það haldið í Alþýðuhúsinu, og fór að vanda ágætlega fram. Skemmtiatriði voru Hlífarkonur sýna vikivaka. Hlífarsamsætið á ísafirði — f jölbreytt og ánægjuleg samkoma hin fjölbreyttustu, söngur, leikþættir, upplestrar, skrautsýningar, þjóðbún- ingasýning, ræður og á- vörp, vikivakar og dans. Mikla athygli vakti sýn- ing gamalla þjóðbúninga, sem Hlífarkonur höfðu vandað mjög til. Samkoman hófst klukkan 5 síðdegis með því að Ragnhild- ur Helgadóttir, formaður kvenfélagsins Hlífar, bauð gesti velkomna og lét í ljós þá ósk, að þeir mættu eiga saman ánægjulega kvöld- stund. Síðan söng Hlífarkór- inn undir stjórn frú Guðrún- ar Eyþórsdóttur, og séra Sigurður Kristjánsson prófast Fjöldi Isfirðinga sótti Hlífarsamsætið, sem nýtur mikilla vinsælda í bænum ur flutti ræðu, þar sem hann minntist m.a. á hið nýja elli- heimili, sem fyrirhugað er að byggja á ísafirði á næst- unni. Síðan var gert hlé, og voru nú fram bornar miklar og góðar veitingar í báðum aðal- sölum Alþýðuhússins. Veittu Hlífarkonur kaffi og súkku- laði, smurt brauð og hvers konar góðgæti af mikilii rausn. Síðan hófust skemmtiatrið- in að nýju með söng Hlífar- kórsins. í>á var leikinn leik- þátturinn „Fegurðarsam- keppni.“ Ingibjörg Sigmunds- dóttir las upp kvæði og sýnd- ur var leikþátturinn „Hjá lækni“. Næst var skrautsýn- ing: Nú andar suðrið, og síð- an fór fram þjóðbúningasýn- ing. Sýndu 11 konur búning- ana. Frú Ragnhildur Helga- dóttir sýndi viðhafnarbúning, sem notaður var fyrir 200 árum. Frú Hulda Guðmunds- dóttir sýndi viðhafnarbún- ing ungrar stúlku frá sama tímabili. Frú Sigríður Sig- urðardóttir sýndi gamla skaut búninginn. Frú Helga Sigurð- ardóttir sýndi skautbúning, samfellu, sem fröken Ragn- hildur Jakobsdóttir í Ögri átti. Frú Ragnhildur Guð- mundsdóttir sýndi mjög fall- egan skautbúning sem amma hennar, frú Ragnhildur Teits- dóttir, prestsfrú á Hrafnseyri við Arnarfjörð átti. Ágústa Magnúsdóttir sýndi elztu gerð peysufata. Frú Elísabet Jóns- dóttir sýndi gömul klæðis- peysuföt, og Guðrún Gísla- dóttir sýndi upphlut. Frú Sól- veig Sörensen sýndi peysuföt eins og þau eru í dag, og Gréta Jónsdóttir sýndi upphlut eins og hann er í dag. Að lokum sýndi ungfrú Ásthildur Her- mannsdóttir bláan kyrtil,mjög glæsilegan og fagran búning. Var þessi þjóðbúningasýning einkar athygilsverð og ánægju leg. Þá flutti Sigurður Bjarna- son, alþingismaður, stutt ávarp. Minntist hann sérstak- lega margþætts menningar- og félagsstarfs kvenfélagsins Hlífar í bænum. Einnig drap hann á hið merkilega fram- lag kvenfélagsins Óskar til skólamála bæjarbúa. Þá fór fram skrautsýning, Burnirótin, sem nokkrar ung- ar stúlkur önnuðust og Hlíf- arkórinn aðstoðaði við. Þá voru dansaðir vikivakar, og að lokum var dansað til klukk an eitt. Húsfyllir var á samkom- unni, og skemmti fólk sér ágætlega. Var auðsætt að fé- lagskonur í kvenfélaginu Hlíf höfðu lagt á sig geysimikla vinnu til undirbúnings sam- komunni. . . ................................................................................-.•.■.. ••.•■-■ ........................... ' Frú Ragnhildur Heigadouir, form. kvenfélagsins Hlífar í gömlum þjóðbúningi. — Ljósmyndirnar tók Árni Matthíasson. Bifvélavirkjar — Mleistarar Bifvélavirki með meistararéttindi óskast á bíla- verkstæði. — Upplýsingar í síma 35740 Herrapeysur nýkomnar. Verzlun Ó.L. Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu) T ery lenebuxur á drengi nýkomnar. — Verðið mjög lágt. Verzlun Ó.L. TraÖarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu) Hópferðabllar allar stærðir -------- I NíúMAR bimi 32716 og 34307. Hafnarfjörður Afgreiðslustúlka óskast hálfan daginn. Radióval, Gunnarssundi 8. Sími 52070. Sunnlendingar! Hjón í húsnæðisvandræðum óska eftir ibúð, helzt í sveit. Svar óskast sent Mbl., merkt: „Lítið — 8693“. 50 íslenzkir skemmtikraftar í Austurbæjarbíói fimmtudag- inn 3. marz kl. 11,15, Aðgöngumiðasala í Austur- bæjarbíói frá kl. 4 í dag. Skrifstofa skemmtikrafta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.