Morgunblaðið - 02.03.1966, Page 10

Morgunblaðið - 02.03.1966, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 2. marz 1966 FRÉTTAMYNDIR Róstusamt hefur verið að undanförnu á Indonesiu, og hefur mikill fjoldi kommunista verið dreþinn. Hér er einn leiðtogi þeirra, Njono, sem dæmdur var til dauða í síðustu viku. Hér er önnur mynd frá byltin gunni í Sýrlandi. Myndina tók Constantin Vishnevetsky, fréttarit ari Izvestia, málgagns sovézku stjómarinnar. Ekki hefur hermönnunum tveimur líkað að láta mynda sig, jþví strax eftir myndatökuna, skutu þeir að frétta manninum, sem þó slapp ó- meiddur undan. I»á er hér mynd frá Vietnam. Hermaður krýpur yfir líki yfirmanns síns, sem skotinn var tii bana í Boi Loi skóginum, um 60 km. norð-vestur af Saigon. Hermaðurinn hefur tekið kross, er hann har um hálsinn, og borið að vörum foringjans. Mynd þessi var tekin sl. miðvikudag í Damascus, höfuðborg Sýrlands, skömmu eftir byltingu yfirmanna úr hemum. Skrið- dreki er á verði á götunni, en í baksýn má greina reyksúlu upp úr h,úsi Amin Hafez, hershöfðingja, fyrrum forseta iands- ins. I>essi broshyri maður er fyrmm yfirmaður leyniþjónustunnar í Ghana, og heitir Khow Awihyia. Um hann sagði Kwama Nkrumah, sem þá var einvaldur í Ghana: „hann er hættuleg- asti fjandmaður minn“. Awihyia var staddur í London, þegar byltingin var gerð í Ghana. Hann hefur verið í útlegð að und- anförnu, en fær nú að snúa heim. ' >,- - t I fyrri viku var tveimur Minutemen eldflaugum skotið á loft samtímis frá Vandenberg flugstöðinni í Bandaríkjunum, og sjást þær hér á leiðinni upp í geiminn. Eldflaugar þessar eru hluti af varnarkerfi Bandarikjanna, og komið fyrir í ncðanjarðar- skots.Cðvum víða um landið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.