Morgunblaðið - 02.03.1966, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.03.1966, Blaðsíða 16
16 MORGU NBLAÐIÐ Miðvikudagur 2. marz 1968 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. . Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 95.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 5.00 eintakið. FYRIRTÆKI í ÞÁGU LANDBÚNAÐAR k Búnaðarþingi var rætt um, hvern hag við ís- lendingar gætum haft af því að reisa kornmyllur og flytja korn til landsins í tankskip- um og ómalað. Hafa niður- stöður athugana á þessu máli áður verið birtar hér í blað- inu. Morgunblaðið hefur bent á að æskilegasta leiðin til að hrinda þessu stórmáli í fram- kvæmd væri sú, að stofna öfl- ugt félag, almenningshlutafé- lag, sem fyrst og fremst væri í eigu bænda um land allt, en aðrir þeir, sem áhuga hefðu á að festa fé sitt í slíkum rekstri gætu orðið meðeig- endur. Eins og kunnugt er hefur sú hugmynd skotið upp koll- inum öðru hverju, að þjóð- nýta ætti Áburðarverksmiðj- una, þar sem ríkið væri hvort sem er meirihlutaeigandi þess fyrirtækis. — Morgunblaðið hefur lýst andstöðu sinni við slíkar fyrirætlanir. Reynslan hér á landi sem annars stað- ar af þjóðnýttum fyrirtækj- um er ekki með þeim hætti, að eðlilegt sé að halda lengra út á þá braut. Þvert á móti ætti að gera ráðstafanir til að losa ríkið við ýmsan þann rekstur, sem betur er kom- inn í höndum -einstakling- anna og félaga, sem borgar- arnir eiga. Nýjasta dæmið um þetta er óstjórnin á Skipa útgerð ríkisins, en fleiri dæmi mætti nefna. En þegar rætt er um að stofna öflugt félag, sem ræki kornmyllur, vaknar sú hug- mynd, hvort ekki væri unnt að stofna enn öflugra félag, sem samhliða þessum rekstri ætti Áburðarverksmiðjuna og gerði ráðstafanir til að endur- bæta hana og efla. Lítill vafi er á því, að þeir, sem Áburðarverksmiðjuna eiga ásamt ríkinu, væru fúsir til að taka þátt í stofnun slíks félags, og fjöldi annarra manna, ekki sízt í bændastétt, mundi vilja vera með í slíku átaki, að því þó auðvitað á- skildu, að það væri vel undir- búið, og ekki yrði á því þjóð- nýtingarbragur og sá ræfil- dómur, sem því fylgir venju- lega að hafa pólitíska yfir- stjórn fyrirtækjanna. Því miður hagar svo til hér, gagnstætt því sem yfirleitt er í lýðræðisríkjum, að engin stofnun eða fyrirtæki er til, sem hefur það meginmark- mið að undirbúa ný verkefni og hleypa þeim af stokkun- um með þátttöku annarra. Þetta hefur leitt til þess, að þegar rætt er um þörf endur- skipulagningar, yaknar fyrst sú hugmynd, að ríkið sé þar aðili — og er þá farið úr ösk- unni í eldinn, eins og sumir vilja nú gera varðandi Áburð arverksmiðjuna. Mikil þörf væri á því, að hér risi upp öflug fjárfestingarstofnun, sem frumkvæði hefði að því að stofna heilbrigð fyrirtæki í eigu fjöldans, en tæki jafn- framt til skoðunar tillögur framsýnna athafnamanna og gerðist aðili að stofnun fyrir- tækja, bæði með framlagi á- hættufjár og lánsfjár. En þar sem slík stofnun er ekki til, yrði ríkið að leita til forustu atvinnuveganna um framgang máls eins og þess, sem hér er rætt um, ef póli- tískur vilji er fyrir hendi til að hrinda því í framkvæmd, sem ekki ætti að þurfa að efa, því að stefna Sjálfstæðis- flokksins er skýr í því efni að æskja fremur einkareksturs en opinbers reksturs. Alþýðu- blaðið hefur tekið undir þá hugmynd að reyna eigi hér á landi almenningshlutafélög, og naumast ættu samvinnu- raenn að vera andvígir stofn- un slíkra fjöldafélaga, þar sem eignaraðildinni er dreift mjög mikið. Kommúnistar yrðu auðvitað á móti þessu, og andstaða þeirra væri sem fyrr bezta sönnunin fyrir nyt semd málsins. ÁLYKTUN FRYSTI- HÚSAEIGENDA Deynt hefur verið að blása 1 upp ályktun, sem nokkr- ir frystihúsaeigendur gerðu fyrir helgina varðandi vinnu- afl og þenslu á vinnumark- aði, og er tilefnið þó lítið. Stjórn Sölumiðstöðvar hrað frystihúsanna hafði boðað til aukafundar samtakanna til að ræða þessi mál, en ekki var áhuginn þó meiri en svo, að fundurinn varð ólögmætur, þar sem ekki mætti helming- ur fulltrúa, þrátt fyrir mik- inn bægslagang stjórnarand- stæðinga, sem eru nokkrir í þessari atvirinugrein, þótt ó- trúlegt sé. Höfðu þeir gert margítrekaðar tilraunir til að knýja fram samþykktir um andstöðu við stóriðjufram- kvæmdir, og stórvirkjun við Búrfell, en ekkert komizt á- leiðis, því að athafnamenn á sviði útvegs og fiskiðnaðar eru auðvitað ekki síður áhuga samir um það að efla ís- lenzka atvinnuvegi en aðrir. Hitt er auðvitað ekki óeðli- legt að atvinnurekendur ræði vandkvæði þau, sem eru á út- vegun vinnuafls, og skiljan- leg sú ályktun, sem frysti- húsaeigendurnir orðuðu þannig: Sinjavsky nýtur útivistarinnar í skóglendi og freðmýrum Norður-Rússiands. — Á meðfylgjandi ' mynd er hann að tilreiða sér hádegisverð yfir opnum eldi. Náttúrudýrkandinn Sinjavsky SOVÉZKI rithöfundurinn Andrei Sinjavsky, sem fyrir skömmu var dæmdur í sjö ára fangelsi og fimm ára útlegð, er kominn af óbreyttu bændafólki, sem kynslóðum saman hefur búið í skóglendi og freðmýrum Norður-Rúss- lands. I því umhverfi er Andrei Sinjavsky sjálfur fæddur og uppalinn og þang- að liggja rætur skáldskapar hans — persónuleiki hans er þar mótaður, trú hans vakin á eitthvert afl mönnum æðra, trúin og ástin á náttúrunni og aðdáun á hinu árstíðabundna lífi, starfi, hugsunarhætti og einstaklingshyggju bænd- anna. En alla þessa eiginleika telur Sinjavsky að hið komm- úníska þjóðfélagskerfi troði fótum, sovézku þjóðinni til miska og vansæmdar. Sinjavsky hefur, að sagt er, alla tíð verið mikill náttúru- dýrkandi og notið þess að fara einförum — reika um víð lenda skóga eða sigla um stór- fljótin rússnesku. Hinn sovézki rithöfundur- inn, Yuri Daniel, sem hlaut fimm ára fangelsisdóm og þriggja ára útlegð, mun fæddur og uppalinn í svipuðu umhverfi og Sinjavsky og ein- staklingseðli beggja hefur gert uppreisn gegn hinu kommúníska þjóðskipulagi, þar sem einstaklingurinn skiptir engu máli nema sem verkfæri í þágu heildarinnar. Þeir Sinjavsky og Daniel voru báðir góðvinir Boris Framh. á bls. 14 Sinjavsky ber kistu Pasternaks. Hér siglir Sinjavsky, ásamt konu sinni og hundi þeirra hjónanna, eftir fljótinu Ossip sem renn- ur um ættarslóðir hans. „Mikilvægt er að stórfram- kvæmdum á ýmsum sviðum verði hagað með þeim hætti, að ekki verði aukið á spennu vinnumarkaðsins, eða efnt til óeðlilegrar samkeppni við sjávarútveg og fiskiðnað um íslenzkt vinnuafl, og er ein- dregið hvatt til þess að gerð- ar verði ráðstafanir til að af- stýra slíkri þróun og forða þar með fyrirsjáanlegum vandræðum í útflutnings- framleiðslu af þeim sökum“. Frystihúsaeigendurnir á- rétta þannig einmitt það, sem ríkisstjórnin hefur lagt á- herzlu á, að framkvæmdir verði skipulagðar þannig, að þenslan verði sem minnst. Að vísu veit enginn nú, hvernig umhorfs verður á vinnumark aðnum sumarið 1968, þegar framkvæmdirnar við Búrfell verða í hámarki. Samt hafa verið gerðar víðtækar athug- anir á vinnuaflsþörf, og verða framkvæmdir einmitt skipulagðar með hliðsjón af framangreindum sjónarmið- um frystihúsaeigendanna og annarra atvinnuvega. HÆSTI DÓMUR Dins og skýrt var frá í blað- ^ inu í gær, hefur ábyrgð- armaður sorpblaðsins Frjálsr ar þjóðar verið dæmdur í hæstu bætur, sem um getur, vegna skrifa um Lárus Jó- hannesson, fyrrv. Hæstarétt- ardómara. Nema þær 75 þús- und krónum, auk 7.500 króna sektar og 20 þúsund króna kostnaðar. Er þetta aðeins eitt af átta málum, sem Lárus höfðar gegn blaðinu. Fram að þessu hefur meið- yrðalöggjöfin ekki veitt mikla vernd hér á landi, en sýnilegt er nú að dómstólar skilja betur en áður, að þessi löggjöf á að vernda æru manna, og má vera að þessi dómur verði til þess að sorp- blöðin fari sér hægar héðan í frá en hingað til.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.