Morgunblaðið - 02.03.1966, Side 21

Morgunblaðið - 02.03.1966, Side 21
; Miðvikudagur 2. marz 1966 MORGUNBLAÐIÐ 21 Kristmann Guðmundssons NÍJAR BÆKUR FRA DANSKA GYLDENDAL DEN NY POESI. En antologi, ved Xorben .Broström. Þetta er önnur útgáfa af kvæðasafni ungra ljóðskálda. Sú fyrsta kom 1962, og birtist nú lítilsháttar breytt og aukin. Torben Bro- ström segir í formála að fyrstu útgáfunni, að hin sjálfsagða ástæða til útkomu þessa safns sé sú, að ný kynslóð ljóðskálda hafi nú birt verk sín „með et andet oplevelsesmönster og andre udtryksformer end hos den der oplevede krigen í voks- en alder.“ Kveðst útgefandinn hafa lagt áherzlu á „at lade de digtere repræsenteere, der tegn- ede det ny billede op, ligesom jeg indenfor deres produktion fortrinsvis har valgt det mest markante, det der mindst peger bagud mod forgængerne." Óneitanlega er þetta eitthvert skemmtilegasta og sérstæðasta safn, er út hefur komið af ný- tízkuljóðum á Norðurlöndum. Flestum mun nú vera orðið ljóst, að ekki er hægt að ganga þegj- andi framhjá þeim ljóðskáldum, er valið hafa sér abstrakt eða „atóm“ að kennimerki, til þess eru þau of mörg, og hreyfingin of víðtæk, þótt ekki væri ann- að, því kalla má að hið sama hafi gerzt í lýrikinni og málara- listinni, að „allt er orðið breytt, og ólíkt því sem var í fyrri daga.“ Sá er þó munurinn á lýrik og imálaralist, að málararnir hafa, þrátt fyrir róttæka umbyltingu á starfsviði sínu, og margar leið- inlegar undantekningar, náð at- hygli og hlotið aðdáun fólksins í flestum hinna frjálsu frjálsu ianda, á meðan að lýrikin nýja á sér fáa aðdáendur meðal al- mennings. Hvort þetta er að kenna skáldunum eða almenn- ingi skal ekki dæmt um hér, en erfitt er að sjá fyrir hvort hin lýrisku skáld muni í náinni framtíð ná eyrum hlustenda og athygli lesenda, enda þótt það væri óneitanlega æskilegt. Segja má að í póesíunni hafi breyting- arnar orðið fullsnöggar, og þró- unin nánast stökkbreyting, gagn stætt því sem gerðist á sviði málaralistarinnar, þar sem rekja má aðdraganda nútíma- tízku í meira en hálfa öld. Að vísu er að finna meira og minna „abstrakt“ ljóð í heimsbók- menntunum allt frá fyrstu tíð. Við íslendingar áttum t.d. okk- ar Æra-Tobba. Forsvarsmenn nýjustu ljóð- listar telja raunar sumir að um samskonar þróun sé að ræða í báðum þessum listgreinum. Tor- ben Broström kemst svo að orði um grundvallaratriði mýtízku Ijóðagerðar: „Poesien bliver en bearbejdning af den splittelse i tilværelsen, sem digteren ogsá finder i sit eget indre. Man kan se det som fölge af oplysnings- tidens religionskritik, den voks- ende historiske bevisthed og selvrefleksion, sem forsög pá at erkende dualismen eller reparere pá den, nemlig den tiltagende splittelse mellem fölelse og in- tellekt." Hann segir ennfremur: „Skönt poeterne ofte indtager en klart antiborgerlig holdning, er der ingen tvil om, at mod- ernismen er en frugt af en borgerlig-individualistisk kulbur, og at den derved er et af de tydeligste udtryk for dennes selv opgör, hvad der kan være en grund til dens manglende popu- laritet.“ Þá segir hann enn: „Et samfund har den digtning det fortjener.“ Vera má að svo sé, en ekki tel ég að manneskjurnar í dag hafi tekið þeim breyting- um, í hugsunarhætti og sálarlífi, er svari til róttækustu breytinga í ljóðaskáldskapnum. Hræddur er ég um að þarna sé, að ein- hverju leyti, um sjúklegt fyrir- bæri að ræða, hjá þeim sem lengst ganga í nýtízkulegri lýr- ik — og ekki síður í prósanum. En það sem fyrst og fremst er um að ræða, er auðvitað þörf nýrra kynslóða til að tjá sig á sinn eigin hátt, og brjóta niður form feðra sinna. Hitt er svo nokkurn veginn víst, að það er engin hætta á að þetta nýtízku- æði verði form framtíðarinnar. Allmörg nútímaskáld hafa reynt að „myrða fegurðina", eins og nokkur þeirra hafa beinlínis komizt að orði — kannski sök- um þess að hún hafði birzt í í fullsmeðjulegu formi hjá sum- um hinna eldri ljóðasmiða. En fegurðin verður aldrei myrt, hvorki á einn eða annan hátt. í lengdinni mun hún ávalt ráða ríkjum, þótt fáeinar kynslóðir kunni að hafa velkt hana í blönd un af sýrópi og laxerolíu, og aðrar í skít og svítalykt. Nýir ættliðir manna munu ævinlega reyna að finna sitt eigið form, en að lokum munu þær leita upprunans, þess sem frá byrjun til enda ákveður þrá manneskj- unnar, hvort sem ungum braut- ryðjendum líkar betur eða verr. Fjölmörg nýtízkuleg ljóð eru skemmtileg aflestrar þeim sem kunna skil á lýrik aldanna, en hitt er alveg víst að einungis það, sem á einhvern hátt höndl- ar fegurð og sannleika, mun lifa og geymast framtíðinni. Þau ungu skáld, er berjast í þeim tilgangi að „slá tavlet overende", munu hlíta þeim örlögum er meistari Ómar spáði „þeim spek- ingum og spámönnum hér á fold, er spreyta sig á þrasi um anda of hold.“ En jafnframt ber að hafa í huga, að Okkur eldri sam- tímamönnum hinna ungu er skylt að gefa gaum að verkum þeirra með fullri samúð og vak- andi athygli, því að vel má vera að okkur kunni að skjátlast eitthvað í alvizku okkar gagn- vart bókmenntalegri tjáningu kynslóðanna. Hið tízkulega form í málaralist hefur unnið glæst- an sigur, og ekki er útilokað að barátttumenn nýtízku ljóðlistar eigi eftir að finna form, sem verður jafnauðskilið venjulegu fólki. En því verður tæpast mót- mælt, að sú list, er enginn fær skilið eða notið, á harla lítinn tilverurétt. Ljóðasafn þetta er að vonum mjög misjafnt að gæðum, en þó vafalaust ein markverðasta til- raun, sem gerð hefur verið á Norðurlöndum, til að sýna fram á kost hins nýja skáldskapar. Bók þessi er nægt efni í langa ritgerð, en þar eð mjög margar bækur berast nú til umsagnar mun ég ekki gera henni frekari skil að sinni. Uden retur, smásögur eftir Karl Bjarnhof, er ein betza bók þessa merka höfundar, síðan „Ljósið góða“ kom út. f henni eru birtar fimm sögur, allstórar, af smásögum að vera, og fjalla þær allar um viðbrögð manna, er ýmist örðugar kringumstæður eða sjálfskaparvíti hafa þröngv- að inn á hættulegar leiðir, sem alloft enda í ógöngum. „Skolekammerater" er sál- fræðileg rannsókn á viðbrögðum barna við örðugum tilburðum, meistaralega gerð og sannfær- andi, snilldarlegar persónulýs- ingar tveggja drengja, öllu sam- anþjappað í einfalda og rólega frásögn. „Uden retur" er hjónabands- saga, gerð af hóglátri snilld og kunnáttu, en sýnir þó aðeins dökku hliðarnar í sambúð karls og konu, og endar í harmleik. „To brödre" er saga um fá- vita og bróður hans, sem er bóndi. Aðalefni hennar er sam- skipti fávitans og nokkurra barna, sem plága hann og pína, svo að hann að síðustu myrðir eitt þeirra, litla telpu. Sagan er að vonum soxgleg, og lýsir trufl- uðu sálarlífi, en höfundinum tekst að gera frásögnina sann- færandi og lifandi, og vekja samúð lesandans með fávitan- um, sem vissulega er hart leik- inn. „Maler og model“ er saga um málara, sem krossfestir fyrirsætu sína, hálfvaxinn dreng. Hún er vel gerð, í stuttrí og snöggri frásögn, en hvorki falleg né upp örvandi. „I en forstad" fjallar um litla stúlku og fullorðinn mann, sem flekar hana. Þetta er lengsta sagan, og skilur þó minnst eft- ir í huga lesandans. Hún er nokkuð langdregin, og bláþræð- ir á stöku stað, en umhverfis- lýsingarnar mjög snjallar. Telp- unni er vel lýst, svo og nokkr- um nágrönnum hennar, en höf- undurinn nær aldrei verulegum tökum á hinum fullorðna manni, sem girnist telpuna; persónulýs- ing hans er alltaf þokukennd. Stíll og málsmeðferð er alls staðar góð í bókinni, og víða meistaraleg. „Den gale mand“, eftir Leif Panduro, er nýtízkuleg skáld- saga, vel gerð og forvitnileg. Aðalpersónan, brjálaði maður- inn, er bankastjóri sem Morn- er nefnist. Hann hefur gert sig sekan um skolli sérkennilegt at- hæfi, nefnilega það, að sprengja í loft upp dómkirkju Kaup- mannahafnar, ásamt frægri myndastyttu o. fl. Nú er hann undir geðrannsókn á hæli einu, og rekur þar æfiferil sinn. Þetta er saga ósköp venjulegs borg- ara, sem lengi hefur verið fyrir- mynd annara manna um góða siði og óaðfinnanlegt hátterni. Já, hann er svo óaðfinnanlegur, að persónuleiki hans er nálega útþurrkaður, á yfirborðinu að minnsta kosti, sjálfvirkt vél- menni, og auðvitað óþolandi í sambúð, enda þótt ekkert sé út á hann að setja — eða kannski einmitt þess vegna — en nýtur fulls trausts og virðingar á vinnustað. Konur dást sjaldan að slíkum mönnum, enda fer það svo að bankastjórafrúin tekur framhjá honum með greindum menntamanni, sem hefur klumbu fót — það atriði sögunnar er reyndar ekki nema í meðallagi sannfærandi. Árin líða, og frúin heldur uppteknum hætti, en þar kemur þó að eiginmanninn fer að gruna sitt af hverju, og upp- götvar hann loks, með aðstoð leynilögreglumanns, hvernig í málinu liggur. Þá setur hann konunni kosti: hætta við elsk- hugann, eða skilnað að öðrum kosti. Frúin er praktisk, hún elsk ar allsnægtir — og börnin, sem hún á með friðli sínum, en sem eiginmanninum yrðu dæmd ef í hart færi, og er hún hefur hugsað málið vandlega, velur hún eiginmanninn, en elskhuginn drepur sig. Allt þetta hefur valdið því fáti í huga hins óaðfinnanlega banka stjóra, að hitt og þetta tekur að gerast innra með honum. í stuttu máli: persóna hans klofn- ar, og hans annað ég gerist býsna athafnasamt. Þessari þróun yfir í sálsýkina er vel og skilmerki- lega lýst, og enda þótt þetta sé mikill harmleikur, kemur hið góðfræga skopskyn höfundarins alls staðar fram í frásögn og lýsingum .Sagan er forláta vel byggð, og persónulýsingar með ágætum, málsmeðferðin víðast góð, en einstöku sálfræðilegar athuganir nokkuð á huldu. Að öllu saman lögðu góð og skemmtileg bók. „Hanegal", eftir Poul Örum, er hnitmiðuð, sálfræðileg rannsókn á þeim áhrifum, sem viðburðir bernskunnar geta haft á fullorð- insárum. Um um leið er þetta spennandi sakamálasaga, vel byggð og vel skrifuð. — Á af- skekktum stað í Kaupmannahöfn finnst lík af manni, sem hefur verið myrtur, og ungur blaða- maður fer á staðinn í fréttaleit. Hann býr þar skammt frá, og hefur verið á gangi hjá morð- staðnum kvöldið áður. En svo er mál með vexti, að eitt sinn, þeg- ar hann var drengur, hafði hann og félagar hans fundið lík í skóg- inum, 'af manni sem þeim var eitthvað í nöp við, og þagað um fund sinn, af ótta við að þeim yrði kennt morðið. Sá atburður verður honum nú á ný ljós fyr- ir hugskotssjónum, og veldur þeim ósköpum að lögreglan grun ar hann um hlutdeild í glæpnum. Hann er fluttur á lögreglustöð- ina og yfirheyrður, og á í þeim brösum meirihluta næturinnar, en sleppur að lokum, undir morg uninn — um það leyti sem han- arnir byrja að gala. En það er sú stund er makt myrkranna missir tök sín á sálum mann- anna, eins og höfundurinn orð- ar það. Kona blaðamannsins og einn af starfsfélögum hans koma einn ig mjög við sögu, og eru þeir þræðir snilldarlega spunnir af hendi skáldsins. Sagan gerist á einni nóttu, og samruna atburða hennar og bernskuminningarinn- ar er gerður af listrænni kunn- áttu. Persónulýsingar eru all- góðar, þótt stundum sé teflt á tæpt vað í lýsingu aukapersón- anna, og atburðalýsingar yfirleitt snjallar. Aðalstyrkur bókarinn- ar liggur þó í birtingu sálarlífs hins unga blaðamanns, og hversu vel höfundinum tekst að sýna öryggisleysi hanes gagnvart veru leikanum, og af hverju sá veik- leiki stafar. Sagan er tæknilega mjög vel gerð, og heldur athygli lesandans óskiptri frá upphafi til enda. Poul Örum hefur áður skrifað margar bækur, og er einn af kunnari yngri rithöfimdum Dana. „Sort ekstase“, eftir Jörgen Bitsch, er skemmmtilegt safn ferðaþátta eftir þennan kunna og læsilega höfund. í henni segir frá ýmsu athyglisverðu úr mörg mn ferðalögum hans, m.a. um eyðimörkina Sahara, og ýms lönd Afríku, er sum hver munu almenningi lítið kunn. Höfund- urinn leggur áherzlu á að lýsa frumstæðu fólki, sem enn lifir í nánu samfélagi við náttúruna, en stendur þó í sífelldu stíma- braki við hana og þá illu anda sem það telur búa í henni. Um þessar manneskjur segir hann svo, í formála: „Hinir frumstæðu negrar eiga enn nokkra af beztu kostum villimannanná, þeir geta setið í ró og notið lífsins hálfan daginn í skugga trjákrónu, og þeir geta elt veiðidýr sín dög- um saman án þess að þreytast.“ Og enn segir hann: „Mér þykir vænt um þetta frumstæða fólk, og dáist að mörgum og góðum skapgerðareiginleikum þess, og þreki þess í baráttunni við hina voldugu náttúru. Ef tU vill geta lýsingar mínar á langri dvöl minni meðal þess — þótt jég ræði ekki um stjórnmálin í bók- inni — aukið skilning lesenda á þeim stórkostlegu erfiðleikum er hljóta að skapast þegar hinir svörtu menn í Afríku verða að breyta þjóðfélagsháttum sínum, breyta hundruðum ættflokka, sem alloft hata og fyrirlíta hver annan, í fáeinar þjóðir sem eiga að ástunda frið, velferð og demókratí." Ekki skal hér rakið efni bók- arinnar, sem er margþætt og ævintýralegt. Margar fagrar lit- myndir prýða hana, og gera þær lesandanum frásögnina ljósari og ríkari. Þær sýna m.a. að þessi dökkleitu sólskinsbörn eru gædd bæði sérstæðri fegurð og mikilli lífsgleði, sem ljómar af andlit- um þeirra. Og vissulega gefur bókin góða hugmynd um líf og siði í hinum frumstæðari héruð- um Afríku. „Menneskelinien" heitir ný bók eftir Albert Dam, sem hefur margt til síns ágætis. Höfund- urinn tekur sér fyrir hendur að lýsa forfeðrum mannanna, bæði áður en hægt var að kalla þá manneskjur, og meðan þeir eru að verða það. Og enda þótt máls- meðferð og setningaskipun, notk- un lestrarmerkja, og ýmislegt fleira, komi lesandanum alloft skringilega fyrir sjónir, er frá- sögnin og lýsingarnar víðast bráðlifandi, og einatt mjög frum legar, ferskar og safaríkar. Dam hefur vakið mikla athygli með bókum sínum ,enda mjög eftir- tektarverður rithöfundur. — „Sá kom det ny brödkorn" er ef til vill bezt þeirra; ný útgáfa af henni kom nýlega, en allar hafa þær eitthvað að færa, sem les- endur minnast með ánægju. „Mennerskelinien" skiptist í 11 þætti, er höf. kallar „Skilderi- er.“ Hver þeirra er stutt, en Framhald á bls. 23 BAHCO SILENT \Wg£l vif! an ■ ija \ ■ I henta stacfé sem V r alls ir þar ;rafizt er og hij< loftræs drar 3<Jrar tingar. illi »» _ „ ,i - , a „ 1 J"T" "1 " 1 GOTT || - vel | - hrei LOFT ícían ínlæti ípjj §p 1 HEIM. !jl VINNU Audveld ing:iödré I íhornog Aog á STAÐ. uppsetn- ít.íárétt, írúdu !! 1111» 11,. FÖh SUÐURC IIXi SÖTU 10

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.