Morgunblaðið - 02.03.1966, Page 22

Morgunblaðið - 02.03.1966, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 2. marz 1966 Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum, símtölum og skeytum á áttræðisafmæli mínu hinn 23. febrúar. Guð blessi ykkur öll! Árni Jónsson, Laufási, Eskifirði. Iðnaðarhúsnæði er til sölu í Austurbænum ca. 45 ferm. Húsið er vel einangrað steinhús, með vatnslögn og hita. Lögfræðiskrifstofa Á KA JAKOBSSONAR Austurstræti 12 — Sími 15939. Eiginkona mín, KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR andaðist á heimili mínu Skjólbraut 4 Kópavogi, sunnu- daginn 27. febrúar. Ólafur Guðmundsson frá Dröngum. Bróðir okkar BALDVIN BJÖRNSSON andaðist í Landsspítalanum 27. febrúar. Jarðað verður að Eydölum. Gísli Björnsson, Hóseas Björnsson. Bróðir okkar ARINBJÖRN JÓNSSON stórkaupmaður, andaðist að heimili sínu 26. febrúar. Systkinin. Móðurbróðir minn SVEINN JÓNSSON frá Skáleyjum, andaðist mánudaginn 28. febrúar að elliheimilinu Grund. Kveðjuathöfn fer fram í Fossvogskirkju laugar- daginn 5. marz kl. 10,30 árdegis. Jarðarförin auglýst síðar. F. h. vandamanna. Guðmundur Guðmundsson. JOCHUM MAGNÚS EGGERTSSON rithöfundur, verður jarðsungirm frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. marz kl. 10,30. — Athöfninni verður útvarpað. Vandamenn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, fjær og nær, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa ÞORVALDS INGVARSSONAR frá Raufarfelli. Guð blessi ykkur öll. Guðbjörg Sigurðardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Innilega þakka ég öllum fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður míns GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR Skeggjagötu 16. Björn Guðmundsson. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur vináttu og samúð við andlát og jarðarför konu minnar MARÍU ÓLAFSDÓTTUR Akurgerði 8, Akranesi. Guðjón Hallgrímsson, börn, tengdabörn og systkini hinnar látnu. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför KRISTÍNAR VIGFÚSDÓTTUR Gullberastöðum. Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunar- liði Akranesspítala fyrir góða aðhlynningu í veikindum hennar. Ennfremur þökkum við kvenfélagi Limddæla fyrir sérstaka aðstoð við útförina. . Þorsteinn Kristleifsson. fósturdætur og fjölskyldur þeirra. Stefán H. Stefánsson Minningarorð I dag er gerð útför Stefáns H. Stefánssonar, sem um áratugi starfaði í Manntalsskrifstofu Reykjavíkurborgar. Hann and- aðist í Landakotsspítala þann 21. f.m., en hann hafði þjáðst af hjartasjúkdómi undanfarna mán uði. Stefán Helgi Stefánsson, en svo hét hann fullu nafni, fædist 27. september 1201 í Reykjavik og var hann næstelztur sex syst- kina en foreldrar hans voru þau heiðurshjónin Arnfríður Ólafs- dóttir og Stefán Runólfsson prentari, sem einnig var Reyk- víkingum góðu kunnur af leik- starfsemi sinni hjá Leikfélagi Reykjavíkur um langt árabil eftir að þau hjón fluttu frá ísa- firði þar sem Stefán starfaði í prentsmiðju Skúla Thoroddsen og vegna tengsla Stefáns eldra við Leikfélagið gerðist hann starfsmaður þess þegar aldur hans leyfði og var hann í mörg ár farðari hjá Leikfélaginu og útbjó gerfi á leikarana. Ungur að aldri réðist Stefán Helgi til verzlunarstarfa við Skóverzlun Lárusar G. Lúðvígs- sonar og var þar innanbúðarmað ur í fjölda af árum eða þar til að hann stofaði bókaverzlunina Bókhlaðan" hér í borg, sem hann rak í nokkur ár en seldi svo árið 1936 þegar hann gerð- ist starfsmaður í Manntalsskrif- stofunni þar sem hann starfaði til dauðadags. í Góðtemplarareglunni var Stefán frá unga aldri og gæzlu- maður í barnastúkunni „Æskan“ í fjölda nt'irg ár og lét hann sér mjög annt um bömin sem þar voru féilagar enda var hann barn góður svo af bar. Hann var fé- lagi í sjikunni „Verðandi" og einn af stofnendum stúkunnar „Andvari og voru honum falin margskonar trúnaðarstörf fyrir regluna, sem hann leysti af hendi með samvizkusemi og trúnaði, en Stefáni vom málefni Góð- templarareglunnar mjög hjart- fólgin og hefur félagsskapur þessi nú misst liðsmann sem Einkamál Lífsglaður, reglusamur maður um fertugt í góðri atvinnu, er byggingameistari hér í borg, sem getur boðið upp & fjár- hagslegt öryggi, óskar að kynnast myndarlegri konu eða ekkju. Hef fullan áhuga á að taka þátt í heimilishaildi, full alvara fylgir þessum línum. Tilboð með upplýsingum ásamt mynd (ekki skilyrði), nafn, heimili og símanúmer, sem endursendist, óskast send- ar afgr. Mbl. fýrir 13. marz. Tilboð merkt: „50+50 8386“. Þagmælsku heitið. þeir félagar hans í reglurini munu lengi mixmast. Ein var sú íþrótt sem Stefán stundaði fyrr á árum, en það voru hjólreiðar og ferðaðist hann víða um landið á hjólhesti áður en að núverandi bifreiðaöld rann hér upp og óbyggðum hér á landi þar sem Stefán ekki hafði ferðast um og skoðað. Stefán var mjög hlédrægur maður og lét lítið á sér bera á opinberum vettvangi en hann hafði sjálfstæða skoðun á mál- efnum lands og þjóðar og ég veit að honum var lítt gefið um, að eftirmæli um hann væru rit- uð að honum látnum en ég vildi þó aðeins með þessum fán lín- um votta eftirlifandi systkinum hans og dóttur samúð mina og biðja honum góðrar ferðar yfir landamærin um leið og ég þakka honum samstarfið á hðnum ár- um. J. Hallgr. Míinnlng: Jórunn Biörnsdóttír Fædd 14. desember 1904. Dáin 2. febrúar 1966. „Skín við sólu Skagaf jörður, skrauti búinn fagur gjörður“ HVERJUM þeim er kemur að vestan um Vatnsskarð í björtu veðri og nemur staðar hjá Arnar- stapa hlýtur að verða snortinn af þeirri náttúrufegurð, sem þá blasir við augum. Víðáttumikið láglendi í hjúpi þeirrar árstíðar, er þá ríkir; vötnin liðast í hlykkjum og bugðum um breiðar lendurnar út til hafsins í öldu- sogið, sem aldrei þverr né þagnar við sendna ströndina, er hafið og vötnin hafa skapað. Fjöllin fag- urlega mótuð með dölum, skörð- um og gljúfrum, freiðandi ám og fossandi lækjum. Hér eru marg- breytilegar myndir, litir og línur ótæmandi. Er skyggnzt er um vegferð sögunnar hafa nær á hverjum bæ gjörzt miklir atburðir, raunhæfir, dulrænir fæstir í letur færðir. En eitt er víst hér hafa gjörzt mikil tíðindi í þjóðbraut kynslóð- anna. 1 einum af hvömmunum, sem skerast inn undir hlíðar Glóða- feykis stendur bærinn Hjalta- staðir. Þar ólst hún upp konan, sem verður minnzt. Hún var 7 ára, er hún kom til nöfnu sinnar Jórunnar húsfreyju á Hjaltastöð- um. Hér sleit hún barnsskónum, hér lærði hún fyrstu greinar at- atvinnulífsins. Á þeim árum unnu eldri sem yngri að störfum heimilisins, á veturna mest við tóvinnu og á sumrum vanri hún við að gæta lambfjárins og setja kvíærnar. Þessi störf voru ungl- ingunum áreynsla, en samskiptin við skepnumar og náttúruna voru þeim lærdómsríkur skóli, er þau nutu góðs af á vegferð sinnL Við arinn nöfnu sinnar nam Jórunn sögu kynslóðanna og þarna höfðu gjörzt stórir við- burðir, er drógu langan slóða á eftir sér. Á næsta bæ Flugumýri, þar sem hamingjusamir elskend- ur með bjartar vonir og glæsileg fyrirheit gengu til sængur á brúðkaupsnóttina, en stóðu að morgni yfir föllnum ástvinum, brunnum híbýlum, horfnum von- um, glötuðum fyrirheitum. Hún fékk einnig að heyra um dug og drengskap í röðum kynslóðanna, því hér var sagan auðug af skráðum atburðum, myndauðg- um fyrir frjótt ímyndunarafl. Er Jórunn var 17 ára, fór hún að heiman til náms í Kvenna- skólann á Blönduósi, þar sem hún dvaldist einn vetur. Næsta vetur var hún í Kennaraskólan- um í Reykjavík og náði afburða námsárangri. Dvalar sinnar við þann skóla minntist hún oft og taldi sér mikinn ávinning af. Um þær mundir kynntist hún röskum, tápmiklum bóndasyni Pétri Jónssyni úr Stafholtstung- um í Borgarfirði og felldu þau hugi saman. Og nú breyttist við- horfið til framtíðarinnar. Björt framtíð og fagrar hyll- ingar, kennaralærðrar og gáfaðr- ar stúlku á framabraut, gekk að baki þess Mælifells, er skyldan við börn og maka og sjálfan sig kalla okkur til. Efnin voru lítil, tekjurnar milli hnífs og skeiðar, því atvinnu- möguleikarnir voru ekki miklir í Reykjavík á þessum tímum. Varð því að leita fanga er líkleg- ast þótti. Á þeim árum var Siglu- fjörður nefndur „Klondyke" ís- lands, lögðu margir leiðina þang- að um síldveiðitímann til tekju- öflunar. Þau Jórunn og Pétur freistuðu nú hamingjunnar í þvl happdrætti, því efnin voru of lít- il til að stofna heimili. Fyrstu dvalarár sín í Reykja- vík voru þau í leiguíbúð, en um 1030 festu þau sér eignarlóð suð- ur í Skerjafirði, þar sem þau byggðu sér íbúðarhús, er þau bjuggu ávallt í en það er að Þjórsárgötu 3. Foreldrar Jórunnar voru þau hjónin Björn Bjarnason og seinni kona hans, Stefánía Ól- afsdóttir, og eru ættir þeirra af sterkum stofnum um Skaga- fjörð og Eyjafjörð. Bæði voru þau prýðilega gefin, greind og vel hagmælt. Stefanía, sem er á níræðis- aldri og dvelst á Hofi hjá Sig- urlínu dóttur sinni og tengda- syni, Jóni bónda Jónssyni. Hún er ern í hugsun Og starfi, minn- ug á atvik og atburði liðinnar, langrar* margbreytilegrar ævi. Jórunn dóttir hennar sýndl mér það traust og vinsemd að lesa bréf til hennar frá móður sinni. Eftir lestur þess var mér tvennt efst í huga, orðfærið og stíllinn, mættu hinir lærðu gæta sín á þeim vettvangi. Við Jórunni sagði ég, — þjóðin þarf ekki að óttast framtíð sína, meðais hún á slíkar mæður. Systkini Jórunnar voru: hálf- systkyni: Andrés Björnsson leik ari og þjóðkunnur hagyrðingur, látinn fyrir mörgum árum; Sigur- björg húsfeyja í Deildartungu 1 Borgarfirði. Alsystkini: Kristín, húsfrú í Lundi í Fossvogi, Sigur- laug og Margrét húsfrúr í Reykjá vík; Anna, húsfrú í Borgarnesi; Sigurlína, húsfreyja á Hofi á Höfðaströnd og Andrés lektor við Háskóla Islands, fyrrveranli dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins. Fyrstu dvalarárin í Skerjafirðl höfðu þau Jórunn og Pétur bú- skap, sauðfé, kýr og garðrækt og hænsnabú ráku þau einnig. Fraimihaid á bls. 26

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.