Morgunblaðið - 02.03.1966, Page 25

Morgunblaðið - 02.03.1966, Page 25
Miðvikuctagur 2. marz 1968 MORCU NBLAÐIÐ 25 — Iðnaður Framhald af bls. 11. fengið gert við þau, ef á þarf að halda.“ Xollamálin I>á ræddum við um tollamál- in og samkeppnisaðstöðu Belgja- gerðarinnar á erlendum markaði í því sambandi. „Við greiðum yfirleitt 65% toll af hráefnum í framlelðsluvörur okkar og á einstökum vöruteg- lundum fer það raunar upp í 100%. Þá borgum við 25% toll af vélum. Af innflutningi okk- ar til Norðurlanda verður að greiða 25% toll en þess ber að gæta að við fáum hráefnistoll- ana endurgreidda, þegar við flytjum út Framleiðendur á Norðurlöndum þurfa hins vegar engan toll að greiða af sínum hráefnisvörum. Það gefur því auga leið, að við þurfum á meira fjármagni að halda en keppi- nautar okkar á Norðurlöndum og skapar það okkur auðvitað vissa erfiðleika. Annars sjáum við ekkert at- hugavert við það að lækka tolla hér á landi en teljum hins vegar nauðsynlegt að sá tollamismun- ur, sem er á hráefni og fullunni vöru haldist en hann er nú inn- an við 25%.“ Þróttmikið fyrirtæki Það fer ekki milli mála, að Belgjagerðin er þróttmikið fyr- irtæki, sem hefur brugðizt við breyttum aðstæðum af dugnaði og djörfung. Fyrirtækið hefur byggt mikið stórhýsi við Bolholt og hefur starfsemi sína þar á 2000 ferm. en auk þess eru mörg önnur fyrirtæki starfrækt í húsa Ikynnum Belgjagerðarinnar. Hjá fyrirtækinu starfa nú 90 manns. Árni Jónsson sagði að lokum, að forráðamenn Belgjagerðar- xnnár væru bjartsýnir á framtíð íslenzks iðnaðar og væru þeirr- ar skoðunar að nauðsynlegt væri að hlú að honum, en erfiðasti þröskuldurinn í vegi hans nú væri skortur á rekstursfé. — Það hefur oft komið fyrir nú upp á síðkastið að ég hef kom ið að yður sofandi við skrifborð yðar, sagði skrifetofustjórinn við undirmann sinn, en það er ef til vill vegna þess að þér eruð að verða gamall maður. — Já, það er mjög sennilegt, því að áður fyrr vaknaði ég alltaf við umganginn þegar þér bomuð. — Ég vil fá verjanda, sagði aflbrotamaðurinn. —• Þér getið það auðvitað, en Ihvað ætti verjandinn, svo sem að geta sagt, þegar tveir lög- reglumenn stóðu yður að verki þar sem þér voruð með hendina í vasa annars manns. — Það er einmitt það sem mig langar svo mikið til þess að vita. — Nú, svo þú átt trompetin- um að þakka að þú átt alltaf nóga vasapeninga. Leikur þú í hljóm- sveit? — Nei, pabtoi borgar mér alltaf 100 krónur á viku fyrir að sþila ekki á hann. — Það verður gaman að heyra hvað þú hefur þér nú til afsök- unar fyrir að koma of seint heim. — Minníng Framlhald á bls 2i2 Jórunn unni mjög öllum gróðri og hafði við hús sitt fallegan trjá og blómagarð, vel hirtan og skipulagðan, enda var það einn af hennar ríku eðlisþáttum að skipuleggja starf sitt vel. Ber slíkt fyrir sjónir í hibýlum þeirra. Margir komu á Þjórsárgötu 3 og oft var þar margt um mann inn, en aldrei svo að gesti fynd ist sér ofaukið. IÞau hjónin eignuðust fimm börn: Maríu, Björn, Ásthildi gifta Páli Þorlákssyni rafvirkja , meistara; Jón Birgi, kvæntan I' Birnu Karlsdóttur, og Stefaníu, Sá er þetta ritar, kynntist frú Jórunni ekki fyrr en nú um 10 ára skeið. Enginn gekk þess dul- ; inn, er hann ræddi við hana að hér var til viðræðna óvenjulega greind kona, mikill hugsuður með raunsæar skoðanir á mál- efnum og í skáldskap, list og við horfi til lífsins og tilgangi þess. Hef ég ekki rætt við konu, sem var jafn óháð og sjálfstæð í skoð unum gagnvart gömlum erfða- venjum. Hún las mikið, virtist ekki þurfa að hafa mikið fyrir því að tileinka sér kjarnann úr því riti, er hún las. Bækur hennar voru einkum skáldrit og þjóðleg fræði. Jórunn var sú er þráði og vildi finna sannleikann í tilgangi lífs- ins og í þeirri leit fór hún til sögunnar, náttúrunnar, skáld- anna, spekinganna, vísindanna. Svörin voru henni ekki fullnægj andi. Því var hún oft í eldraun efans. Henni mun því hlotnast hlut- skiptið það, er postuli efans ng leitandinn hlaut, að stinga fin^:- um sínum í naglaförin og leggja höndina í síðusárið. Nú er tjaldið dregið fyrir. Við sjáum á bak mætri og merkri konu, er skilur eftir sig litauðg- ar og góðar minningar meðal ætt ingja og vina. Engin okkar, sem eftir standa, efumst að áfram sé haldið á þroskans braut og þar liggi leiðir okkar saman. Því kveðjum við með þökk og blessun minningu Jórunnar Björnsdóttur. Guðbr. Benediktsson. SIGURÐAR SAGA FÓTS Teikningar: ARTHUR ÓLAFSSON 1. AF KNÚTI KONUNGI í S JÓLÖNDUM OG SIGNÝJU DÓTTUB HANS ÞAÐ er upphaf einnar lítillar sögu, þeirri er skrifuð fannst á steinveggnum í Kolni, að Knútur hefir konungur heitið, sá er réð fyrir Sjólöndum. Hann var ágætur JAMES BOND -þf- konungur að vænleik og mannfjölda, heiðri og höfðingskap, hreysti og harð- drægni og að öllum þeim höfðingskap, sem fríða mátti einn heiðarlegan herra, og hniginn nokkuð í aldur þann tíma, er þessi ævintýr byrjast. Hann átti ágæta drottningu, dóttur kon- ungsins af Flæmingjalandi, og átti við henni eina dóttur barna, hver er Signý hét. Hún var bæði vitur og ráðvönd, fög- ur og fríð, kvint og kurteis, stolt og stillt vel, blíð og lítillát. Éftir IAN FLEMING James Bond BY IAN FLEMING DRAWING BY JOHN McLUSKY ? After some í DISTAHCE. THE SHAFT. ' TURHS ATA RlGHT ANGLE. R/S/NG VERT/CAL/y HAVE TO INCH MY WAY UP, FEET ANP SHOULDERS PRESSING AGAINST THE SIDES. BUT CAM I HOLD OUT OVER DISTANCE? MUST BE A GOOD FIFTY YARDS / Æ Eftir nokkra vegalengd verður beygja á pípunni og nú rís hún lóðrétt upp. Verð að þumlunga mig upp, þrýsta fót- um og öxlum að hliðunum. En kemst ég alla leið? Hlýtur að vera um 45 metrar. Á dimmri ströndinni er Honey bundin í vegi fyrir landkröbbunum .... Vertu sæl elskan! ..Þeir koma bráðum — og það J0MBÖ -X— eru banhungraðar skepnur! — James .... James.Hvað hefur kom- ið fyrir þig.? Teiknari: J. M O R A — Það heppnaðist, hrópaði Júmbó glað- ur, við höfum náð hinum nauðstöddu um borð. Komið, við skulum lieilsa upp á þá. Spori, sem hafði enn ekki jafnað sig eftir sjóveikina og riðuna, reyndi að látast vera glaður. — Ég kem með þér, sagði hann, ef ég get það þá. Júmbó var heldur stöðugri á fótunum, svo að hann fór á undan til þess að heilsa upp á aumingja mennina, sem skjálfandi af kulda biðu eftir því að fá eitthvað heitt að drekka. — Veikomnir, hrópaði Júmbó, velkomn- ir um borð. Ég vona, að það hafi allii bjargazt. KVIKSJÁ -X- Fróðleiksmolar til gagns og gamans Jazz er enn í dag lifandi, sí- breytileg hljómlist. — Síðan eftir lok annars heimsstríðs hafa jazzleikarar og tónskáld sótt fram á nýjum vígstöðvum undir forustu manna eins og Thelonius Monk. Þannig er til- hneiging jazzins nú til vand- legrar, næstum stærðfræðilegr- ar nákvæmni í leik, þótt enn sé hann „improviseraður“ að miklu leyti. miklu leyti. Fá þjóðlönd finnast þar sem jazz- inn hefur aldrei unnið hugi manna. í Englandi er jazz- klúbbar, þar sem meðlimirnir hlusta á jazzlög, sem mörg eru samin á Bretlandseyjum. í öll- um borgum Evrópu er hægt að hlusta á jazz, sem þar hefur verið saminn. Jafnvel innan járntjaldsins getur maður heyrt jazz, þótt ríkisstjórnin liti hann óhýru auga. Enginn getur sagt um hvaða stefnu jazz muni taka í fram- tíðinni. Sumir jazzleikarar leita til fortíöarinnar að hinum upp- runalega jazz en aðrir taka stef úr verkum sígildra tónskálda og „jazza“ þau. Eitt er víst, að úr nógu er að velja. ENDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.