Morgunblaðið - 09.03.1966, Síða 19
Miðvikudagur 9. marz 1966
MORCUNBLAÐIÐ
19
F. 20. marz 1885. D. 14. des. 1965
INGIBJÖRG Hróbjartsdóttir var
fædd 20. marz 1885 að Oddgeirs
hólaausturkoti í Hraungerðis-
Ihreppi. Foreldrar hennar voru
Hróbjartur Jónsson, bóndi þar
og kona 'hans Elín Jónsdóttir.
Voru þau merkishjón og orðlögð
fyrir dugnað og hjólpsemi. Bœði
ættuð úr Árnessýslu. Hróhjartur
niðji Guðrúnar Jónsdóttur frá
Óseyrarnesi ,sem mikill ættbálk
ur er kóminn frá, en langamma
Elínar var móðursystir Bjarna
riddara Sivertsen. Þau Elín og
Hróbjartur eignuðust 13 börn og
eru nú aðeins eftir á lífi, Guð-
mann, vélstjóri, búisettur hér í
borg. Þennan bamahóp létu þau
sér ekki nægja, því af nágranna
sínum tóku þau til fósturs eitt
barn, Kristrúnu Kristjánsdóttur,
nú húsfreyju að Þórissöðum í
Grímsnesi. Hjó þeim ólst Krist
rún upp, þar til Hróbjartur varð
að bregða búi vegna heilsubrests.
Tók þá Ingibjörg Kristrúnu að
sér og var hún með henni næstu
tíu árin.
Ingibjörg ólst upp hjá foreldr-
um sínum til fullorðinsára.
Nærri má geta, að foreldrar
hennar hafa ekki mátt liggja
á liði sínu til að geta séð svo
stórum barnahóp fyrir lífsnauð-
synjum. Börnin urðu þvi svo
fljótt sem þau gátu að hjálpa
foreldrum við búverkin og heim-
SMsstörf. Vafallaust hefur það
verið þeim hollur reynsluskóli,
því mér er kunnugt um að vegna
dugnaðar síns og mannkosta
nutu þau ávallt trausts og virð-
ingar allra þeirra, sem kynnt-
ust þeim. Síðustu árin bjuggu
foreldrar Ingibjargar að Odd-
geirshólum, þar til þau urðu að
hætta búskap.
Árið 1910 giftist Ingibjörg Guð
mundi Guðjónssyni frá Reykja-
nesi í Grímsnesi, orðlögðum
dugnaðarmanni. Þau hófu bú-
skap að Reykjanesi, sem þá var
í þjóðleið, þvi að ferja yfir Brú-
ará var á þeim tíma um Reykja
nes. Þar var þá mannmargt í
heimili og gestakomur miklar,
en búið stórt og rekið af mikl-
uim myndarbrag.
Árið 1919 hættu þau búskap i
Reykjanesi og flutti til Reykja-
víkur og náku þar um táma gisti-
hús og matsölu að Laugavegi 70.
Guðmundur kunni ekki við bæjar
lífið og keypti fljótlega Lauga-
land við Þvottalaugarnar og tók
einnig Gufunesið á leigu. Rak
hann búskap á báðum stöðunum.
Ingibjörg sá um búið að Lauga-
landi og hafði hún börnin í sinni
umsjá. Uppp úr þessu Umróti
slitu þau samvistum.
Þau Ingibjörg og Guðmundur
eignuðust 7 böm, en misstu eitt
þeirra, svo að börnin voru sex,
þegar þau skildu. Samkvæmt
landslögum þá, var móðurréttur
inn aðeins að einum þriðja hluta
á móti föðurnum. Ingiibjörg tók
því 2 börnin með sér, en faðirinn
Hróbjarts-
Minning
hafði hin fjögur og var það
yngsta á öðru árinu. Það gefur
að skilja, að það hafa verið þung
spor, er Ingibjörg steig þá, þeg-
ar hún skildi við barnahópinn
sinn.
Næstu árin vann hún fyrir sér
með annað barnið, en hinu kom
hún í fóstur. Börn þeirra Ingi-
bjargar og Guðmundar eru:
Bergþór, bóndi að Eystra-Sálu-
nesi, Borgarfirði, giftur Vilborgu
Helgadóttur, Hjáimar, kennari
í Reykjavík, Guðjón, trésmiður,
giftur Elínu Gísladóttur, Guðrún
gift Jóni Kristjánssyni, trésmíða
meistara, Erlingur, bóndi að Mel
um í Borgarfirði og Haukur,
sjómaður.
Síðar kynntist Ingiþjörg Jó-
hanni Magnússyni frá Hliði á
Álftanesi, sem þá var bústjóri
hjá Sveini Hjartarsyni, bakara-
meistara og kona hans Steinunni
Sigurðardóttur, en þau hjón
ráku búskap bæði að Breiðabóli
og Laugalandi hér í Reykjaví'k.
Með Jóhanni eignaðist Ingibjörg
einn son, Frímann, giftur Guð-
rúnu Þórhallsdóttur. Frímann
er verzlunarstjóri hjá Vatnsvirkj
anum.
Árið 1950 andaðist Jóhann og
bjó Ingibjörg eftir það með börn
um sínum, Hjálmari og Guð-
rúnu. Ingibjörg var alla tíð dug-
leg og kjarkmikil kona og kom
það bezt í ljós, þegar þess var
mest þörf. Þrotlaust starf til að
sjá sér og sínum farborða var
hlutskipti hennar á þeim árum,
sem erfiðara var en nú að afla
sér og sínum lífsnauðsynja, en
móðurumihyggjan gaf henni þrek
og kjark til að sigra erfiðleik-
ana. Það hlaut því svo að fara,
að h-ún yrði aðnjótandi þeirrar
lífsgleði, sem sigursæl barátta
hennar fyrir velferð barna sinna
gaf ástæðu til. Ég sem þessi
minningarorð skrifa, kom oft á
heimili Ingibjargar síðasta ára-
tuginn, sem hún lifði. Hún bjó
þá með Hjálmari syni sínum að
Gnoðavogi 48. Ég og kona mín
áttum margar skemmtilegar
stundir á því heimili, þvi Ingi-
björg var glaðlynd kona og
gestrisin. Góðgirni hennar og hlý
hugur í okkar garð gleymist
ekki.
Nú er Ingibjörg horfin til æðri
heimkynna. Hún andaðist 14. des
sl. og var jarðsett þann 20. s.m.
að viðstöddu miklu fjölmenni.
Öllum ástvinum hennar sendi
ég hugheilar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Axel Þórðarson.
Guðlaug R. Guðmunds-
dóttir — Minning
Frá Hattaverziun Soffíu Pálma
LAUGAVEGI 12.
Stórkostleg útsala
í tilefni 30 ára afmæli verzlunarinnar.
AÐEINS NOKKRA DAGA.
HATTAVERZLUN SOFFÍU PÁLMA
Laugavegi 12.
Clœsileg íbúð
Höfum til sölu mjög skemmtilega 5 herb. íbúð í
háhýsi. íbúðin er teppalögð og öll hin vandaðasta.
Harðviðarinnréttingar og flísar á baði og eldhúsi.
Eignarhlutdeild í húsvarðaríbúð og samkomusaL
Fullkomið vélaþvottahús. Glæsilegt útsýni í 3 áttir.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu vorri.
FASTEIGNA
SKRIFSTOFAN
AUSTURSTRÆTI 17. 4. HÆÐ SlMI 17466
Bezt ú auglýsa í Morgunblaiíinu
.......... N
F. 18. 3. 1921. D. 27. 2. 1966.
TÖKUM við alla jafna eftir því,
að litbrigði tilverunnar eru því
háð með hverjum þú gengur,
við hvern þú hjalar um gleði
þína eða sorg? Sumir dýpka lit-
brigðin, kalla jafnvel fram í þín-
um eigin barmi, heima, sem þú
hafði ekki hugmynd um að
þar væru. Aðrir gera tilveru
þína tilbreytingalitla og jafna,
gera hamarinn að sléttu —
sléttuna að hamri. Sumir flétta
þér blómsveig úr ljósi frá
gleðiheimum og breyta þannig
göngu þinni, hvar sem hún er
hafin, í sumarferð. Aðrir kalla
rökkrið fram á veg þinn, þó svo
þú hafir hafið ferð þína í skæru
ljósi. Oftast mun það þó, að þú
hittir í honum vegbróður þín-
um þetta hvorttveggja. Lauf
trésins ber bæði í sér þrótt ljóss-
ins og grænku lífsins og hrörn-
un haustsins og gulan lit dauð-
ans. En tekur þú eftir því hvorn
heiminn hann ber hann vinur,
fyrr en skóhljóð hans þagnar við
hlið þér á veginum? Allt í einu
hættir hann að gefa svar við
orðum þínum, og þú finnur, að
annað er ei eftir af honum en
myndin hans, sem hefir greipzt
í þinn eigin barm, myndin sem
hefir samofizt þinni og verður
aldrei frá henni s'kilin? Svo fór
mér að minnsta kosti. Ég gerði
mér þess ekki fulla grein, hvern
fjársjóð tengdamóðir mín, hún
Guðlaug, bar á veginn, fyrr en
nú, er hún er hætt að gefa svar
við orðum mínum. Nú finn ég,
að hennar líf hefir ofizt og líf
okkar beggja heldur í mót fram
tíðinni í dótturbörnum hennar,
börnunum minum. Og á greftr-
unardegi hennar nú, þá er mér
þakklætið efst í huga, þakklætið
fyrir það, að hún leyfði mér að
njóta móðurhlýju sinnar, tók við
mér í barnahópinn sinn og gaf
mér með þeim af þeim fjársjóð-
um, er hún átti bezta. Ég man
er hún þurrkaði út ótta minn,
þá ég kom á heimili hennar
fyrsta sinn, þurrkaði hann út og
gaf mér í staðinn tilfinninguna
um það, að þennan stað, sem ég
var gestur á, bæri mér að skoða
framvegis sem annað heimili
mitt. Ég man, er hún gaf okkur
börnum sínum, innsýn í æsku-
drauma sína, er við vorum á ferð
um æskustöðvar hennar. Þá var
gaman að vera ungur, gaman að
fá notið leiðsagnar hennar. En
kærastar eru mér komur hennar
á mitt eigið heimili og hjal henn
ar við dótturbörnin þrjú. Þau
væru svo ósegjanlega kát þegar
þau áttu von á „Lullu mömmu“,
sælgætinu feennar í munninn,
yljaði kærleikshönd hennar á
vangann. Fyrir þessar gleði-
stundir í lífi barnanna ber mér
að þakka, því að þær færðu
þeim ljósheim á veg.
Já, hún er horfin af braut
þessa heims, skóhljóð hennar
þagnað. Við vinir hennar eigum
margs að minnast, dugnaðarins,
orðheldninnar, hlýjunnar, já,
margs, sem við geymum með
okkur hvert og eitt. En þó við
heyrum ekki orð hennar lengur,
þá berum við með okkur gjafir
hennar, þær gjafir, sem hafa
samofizt okkar lífi. Og í barna-
börnunum sá ég hana ganga á
vit framtíðarinnar, sá hana
ganga í mót ljósinu. Ég færi
henni þakkir mínar og heimilis
míns, þakkir fyrir allt og allt.
Drottinn gaf — drottinn tók.
Guð blessi þig móðir og leiði
þig í dýrðarheima.
ASalsteinn Guðniundsson.
Málflutningsskrifstofa
Vagn E. Jónsson
Gunnar M. Guðmundsson
hæstaréttarlögmenn
Austurstræti 9
Simar 21410 og 14400.
SAMKOMUR
Almennar samkomur
Boðun fagnaðarerinidisins
að Hörgsihlíð 12, Reykjavík
í kvöld kl. 8 (miðvikudag).
Sf
Kornvörumar frá General Mills fáið þérí
hverri verzlun. Ljuffeng og bœtiefnarík
fieða fyrir alla fjölskylduna.
ð
HEILDSÖLUBIRGOIR
V