Morgunblaðið - 01.04.1966, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐID
Fostudagur I. aprfl 1966
Þrjú íslandsmet
sett í sundi í gær
Boðsundið með þeim gömlu
var skemmtilegasta greinin
ÞRJÚ íslandsmet, drengjamet og
sveinamet vru sett á sundmóti
lR í gærkveldi. Hrafnhildur
Guðmundsdóttir ÍR setti tvö met:
í 100 m baksundi kvenna þar
sem hún sigraði á 1:16.2, en eldra
metið var 1:17.7 og í 100 m flug-
sundi þar sem hún sigraði á
1:13.7 en átti sjálf eldra metið
1:13.9. Þá setti sveit Ármanns ísl.
met í 4x50 m f jórsundi kvenna á
2:27.8 en eldra met Ármanns
var 2:30.8.
Skíðoferðir
um helginu
og púskanu
BÍLFERÐIR frá Umferðamið-
stöðinni í skíðaskála Reykjavík-
urfélaganna verða sem hér segir:
Laugardaginn 2. apríl kl. 2 og
kl. 6.
Sunnudaginn 3. apríl kl. 10 f.h.
Akstur um hátíðina verður
sem hér segir:
Miðvikudaginn 6. apríl kl. 6
og kl. 8.
Skírdagur 7. apríl kl. 10 f.h.
Föstudagurinn langi 8. apríl
kl. 1 e.h.
Laugardagurinn 9. apríl kl. 10
f.h., kl. 2 og kl. 6 e.h.
Sunnudagurinn 10. apríl páska
dagur kl. 10 f.h.
Mánudagurinn 11. apríl kl.
1 e.h.
Eirikur Baldursson Æ setti
sveinamet í 200 m skriðsundi
karla á 2:34.7 og drengjasveit
Ægis setti drengjamet í 8x50 m
boðsundi.
Karlaboðsundið 8x50 metrar
var skemmtilegasta grein kvölds
ins og öllum viðstöddum til mik-
illar skemmtunar og ánægju.
Hörkukeppni var milli sveitanna.
Ægir tók gott forskot í upphafi
en Ármann og ÍR sigldu saman.
Er á leið sóttu síðarnefndu sveit-
irnar mjög á og á endasprettin-
um varð mikil keppni milli Ara,
sem hafði nokkuð forskot, Péturs
Kristjánsson og Guðm. Gíslason-
ar sem hafði mest upp að vinna.
Svo fór að sveit Ægis og Ár-
manns fengu sama tíma en sveit
Ægis var dæmd á undan en ÍR
sveitin var 1.3 sek. á eftir.
Sigurvegarar í einstökum
greinum voru Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir ÍR í 100 m baksundi
1:16.2 (Met), sama í 100 m flug-
sundi 1:13.7 (Met) og sama í 200
m bringusundi á 1:25.4. Davíð
Valgarðsson sigraði í 200 m skrið
sundi á 2:10.2. Erlingur Jóhann-
esson KR sigraði í 100 m bringu
sundi á 1:16.5. Guðm. Gíslason
ÍR í 100 m flugsundi á 1:04.4,
sveit Ægis í 8x50 m skriðsundi
á 3:53.3 og sveit Ármanns í fjór-
sundi kvenna 2:27.8 (Met), Sig-
rún Siggeirsdóttir Á í 100 m
bringusundi telpna á 1:30.3,
Pétur Einarssn SH í 50 m flugs.
drengja á 33.1, Gísli Torfason
ÍBK í 50 me bringus. sveina á
47.4, Björgvin Björgvinsson Æ í
50 m skriðsundi sveina á 35.0.
Stjórn Skíðasambandsins, talið frá vinstri:
son, Þórir Lárusson og Þórir Jónsson.
Gísli Kristjánsson, Ólafur Nílsson, Stefán Kristjáns
Skíðasambandið minnist
500. fundar síns
f GÆR boðaði Skíðasamlband
íslands fréttamenn á sinn fund
í tiletfni af því, að þá var hald-
inn 500. fundur samibandsins.
Formaður Skíðasambands ís-
lands Stefán Kristjánsson flutti
ítarlegt ávarp í upplhatfi um
stofnun og starfsemi Skíðasam-
bandsins voru þarna mættir for
seti Í.S.Í. Gísli Halldórsson og
framkvæmdastjóri þess Her-
mann Guðmundsson, og auk þess
voru mættir 3 aif stotfnendum
sambandsins, þeir Einar B. Páis-
son, Sveinn Sveinsson og Ketill
Ólatfsson.
Forgöngumenn að stotfnun
Skíðasambandsins voru þeir
Steinþór heitinn Sigurðsson og
Einar B. Pálsson.
Formaðurinn sagði að öðru
leyti þetta:
Það var hinn 23. dag júní-
mánaðar 1946, að stotfntfundur
Skíðasambands íslands var hald
Ungl.landsliö á Norðurlandamótum
(NGLINGALANDSLIÐ pilta og
.úlkna í handknattleik fóru utan
1 Norðuriandamóta í gærmorg-
n. Fóru bæði liðin með sömu
ugvél Loftleiða. Piltarnir keppa
Norðurlandamóti í Helsinki og
ga þeir að mæta Dönum í kvöid
(föstudag) leika við Norðmenn
og Svía á laugardag og við Finna
á sunnudaginn. Stúlkurnar keppa
á Norðurlandamóti sem fram fer
í Gautaborg og nágrenni. Leika
þær gegn dönsku stúlkunum í
kvöld (föstudag), á laugardag
við Svía og á sunnudag við
Norðmenn.
Myndin er tekin við afgreiðslu
Loftleiða áður en iagt var af
stað.
inn í Atvinnudeild Háskólans.
Fulltrúar á" fundinum voru 6
frá þrem skíðaráðum. Frá skíða-
ráði Reykjavíkur voru Steinþór
Sigurðsson og Einar B. Fálsson,
frá skíðaráði Akureyrar Her-
mann Stefánsson og Bjarni Hall
dórsson og tfrá skíðaráði Siglu-
fjarðar Ketill Ólafsson og Sveinn
Sveinsson.
Forgöngu um stofnun Skiða-
sambands íslands höfðu þeir
Steinþór Sigurðsson og Einar B.
Pálsson. Allmörgum árum áður
'höfðu þeir skrifað stjórn íþrótta
sambands fslands og bent á nauð
syn þess að stofnað yrði sérsam
'band innan ÍSÍ, sem fari með
sérgreinarmálefni skíðaílþróttar-
innar. Þessi hugmyhd hlaut ekki
góðar undirtektir og þurftu mörg
ár að líða þar til nógu mörgum
yrði ljóst hver þörf var á stofn-
un sérsambanda fyrir hinar
ýmsu greinar íþróttanna.
>ó kom þar, að lögum ÍSÍ
var breytt og hinn 23. júní 1946
heimilar stjórn ÍSÍ að stofna
megi sérsamband sem fari í um
boði ÍSÍ með málefni skíðaíiþrótt
arinnar. Sama dag boða þeir
Steinþór og Einar til stofnfund-
ar Skiðasambands íslands.
Skíðasamband íslands er því
elzta sérsambandið, þeirra sem
stofnuð voru innan vébanda ÍSÍ.
Vel höfðu iþeir félagar undir-
búið stofnfundinn og lögðu fram
frumvarp að lögum sam'bandsins,
sem samþykkt var á fundinum
og er enn í gildi lítið breytt.
Steinþór Sigurðsson var kos-
inn fyrsti formaður samfoands-
ins, 'og Einar B. Pálsson tók við
stjórn þess árið eftir eins og
síðar mun frá sagt.
Nú skal minnst formanna
Skíðasambandsins þessi tæp 20
ár, sem það hefur starfað:
Steinþór Sigurðsson var for-
maður 1946—1947, er hann fórst
við vísindastörtf við Heklu í
nóvember það ár. Steinþór var
fyrstu árin, sem regluleg skíða-
mót voru haldin á íslandi langt
umfram aðra menn um kunn-
áttu í lagningu brauta, ’ skipulagi
og framkvæmd skíðamóta. Hann
var hið mesta ljúrfmenni og
drengur góður, hans er gott að
minnast.
Við fráfall Steinþórs tók Ein-
ar B. Pálsson við stjórn Skíða-
sambandsins og stýrði því í
fyrstu lotu ti'l ársins 1950. Hann
hafði þá um langt skeið starfað
með Steiniþóri að máletfnum
skíðailþróttarinnar. Saman sömdu
þeir Skiðahandbókina, sem út
kom 1940 og endurbættu hana
1946.
Þriðji formaður S.K.f. var
Einar Kristjánsson forstjóri.
Hann var eldlegur áhugamaður
um skíðamál. Mun hafa komist
í kynni við skiðaíþróttína á
Siglufirði og var forystumaður i
skíðamálum Siglfirðinga meðan
meðan hann bjó þar. Þegar hér
var komið sögu var hann búsett-
ur á Akureyri og flutti nú
Skíðasambandið bækistöðvar
sínar til Akureyrar og var stjórn
þess á Akureyri í 10 ár. Einar
er nú látinn.
1956 tók Hermann Stefánsson
íþróttakennari á Akureyri við
formennsku í Skíðasambandinu
og var formaður í fjögur ár.
Aftur tók Einar B. Pálsson við
stjórn Sambandsins 1960 — 1964,
en síðan núverandi formaður
Stefán Kristján Kristjánsson.
Aðrir í stjórn eru: Þórir Jóns
son, Reykjavik, varaformaður,
Gísli B. Kristjánsson, Kópavogi,
ritari, Ólafur Nílsson, Reykjavík,
gjaldkeri Þórir Lárusson, Reykja
vík, meðstjórnandi, Einar B.
Ingvarsson, ísafirði, meðstjórn-
andi, Guðmundur Arnarson,
Siglufirði, meðstjórnandi, Þórar
inn Guðmundsson, Akreyri, með
stjórnandi, Ófeigur Einarsson,
Neskaupstað, meðstjórnandi.
S.l. ár hefur verið óvenju við-
burðaríkt hjá skíðamönnum. Á
vetrinum fór í fyrsta skipti fram
Unglingameistaramót íslands á
skíðum, tekin voru upp svoköll-
uð opin mót, þ. e. mót sem öllum
meðlimum S.K.f. er boðin þátt-
taka í og aðkomumönnum veitt
ókeypis uppihald á mótstaðnum
meðan mótið stendur yfir. Mót
þessi eru á fjórum helztu skíða-
stöðum landsins þ. e. Akureyri,
ísafirði, Reykjavík og Siglufirði.
Óvenju margir íslenzkir skíða-
menn hafa keppt á erlendum
mótum og náð þar í sumum
greinum mjög athyglisverðum ár
angri. íþróttasamband íslands
hefur ákveðið að í Hlíðarfjalli
við Akureyri skuli vera miðstöð
fyrir vetraríþróttir og lagt fram
mjög mikilsverða aðstoð til þess
að flýta fyrir uppbyggingu stað-
arins.
Eftir viku hefst skíðamót á fsa
firði. Verður það jafnframt liður
í hátíðahöldum ísafjarðarkaup-
staðar, sem í ár minnist 100 ára
Framhald á bls. 31
Steinþórsmótinu
frestuð
AF ófyrirsjáamlegum ástæðum
verður Steinþórsmóti, sem átti
að halda næsta sunnudag frestað.
Mótið verður auglýst síðar.