Morgunblaðið - 07.04.1966, Qupperneq 28
MORGU NBLAÐIÐ
Fimmtudagur 7. apríl 1966
28
TYRKLAND
ÞAR ER ÖRKIN HANS NÓA
FÁ LÖND eiga nú jafn vaxandi
vinsældum að fagna, sem ferða
mannland og Tyrkland og ber
þar margt til. Landslag þykir
mjög fagurt, veðursæld mikil
og Tyrkir eru mjög gestrisnir.
Tyrkland er að langmestu
leyti í Litlu-Asíu, en nokkur
hluti landsins er í Evrópu, milli
Grikklands og Búlgaríu. Sæ-
viðarsund (Bosporus) skilur
landshlutana að. H
Tyrkland er lýðveldi og eru
íbúarnir um 28 milljónir tals-
ins, en landið er rúmlega 300
þúsund fermílur að stærð. Höf-
uðborgin er Ankara, sem er all
langt inni í Litlu-Asíu.
þar eru um 650 þúsund.
Þekktasta borgin í landinu sm.
er líklegast Istanbul, sem stend '"•'Si'
ur við Sæviðarsund, og var köll ||
uð Mikligarður á íslandi hér
áður fyrr. Flugfar frá Reykja-
vík til Istanbul fram og til baka »
kostar um 21 þúsund krónur. §»£■
íbúar í Istanbul eru •— 1 K
milljón.
Að sjálfsögðu er einnig unnt ||j
að sigla til Istanbul og það gera
margir, enda þykir siglinga-
leiðin um Eyjahaf og Marmara-
haf sérlega skemmtileg og fög-
ur. Skemmtiferðaskipin koma
gjarnan við í hinni fornu og
frægu borg Izmir, sem talin er
góður fulltrúi Litlu-Asíu.
Flestir ferðamenn leggja leið
sína meðfram ströndr landsins
við Eyjahafið, enda eru þar WjfL
víða baðstrendur og margt að
sjá. Ferðalög um Litlu-Asíu eru
hins vegar nokkuð erfiðar, en
sumir fara þó alla leið til Arar-
at-fjalls, skammt frá þeim stað
er landamæri Tyrklands, írans
og Rússlands mætast. Það hef
ur verið trú manna um aldir,
að Örkina hans Nóa sé að finna
á Ararat og hafa margir leið
angrar verið gerðir þangað til
að leita hennar.
Höfuðborgin Ankara þykir
ekki sérlega „spennandi" fyrir
ferðamenn, enda er borgin ung
og einkennist af stjórnarbygg-
ingum og skrifstofubyggingum.
Þeim, sem fara þangað, er ráð-
lagt að sjá sólarlagið við Akk-
ale, skoða forsetahöllina í Can-
kaya, fara í tyrkneska þjóðleik
húsið, snæða í Karpic og skoða
grafhýsi Kemal Atatúrks.
í Istanbul er margt að sjá. —
Sofíukirkjan er af arkitektum
talin' vera eitt af sjö undrum
veraldar, en hún er þúsund ár-
um eldri en St. Péturskirkjan
í Róm. í borginni eru um 400
moskur, sem allar þykja
skemmtilegar að skoða og þá
ekki sízt moska Ahmets sold-
áns, sem kölluð er Bláa mosk-
an. Þá þykir sjálfsagt að allir
dvelji einn dag í Topkapi
höllinni, en þar hefur kvenna-
búrið verið opnað til sýnis fyr-
ir ferðamenn.
Stór og mikill bazar er í Ist-
anbul og er hann yfirbyggður.
Þar er unnt að fá alla þá hluti,
sem ferðamenn langar til að
hafa með sér heim, skartgripi,
Sofíukirkjan í Istanbul. Jústiníanus lét byggja hana og var hún vígð árið 537.
koparvörur, vefnað og hvers
konar handunna hluti. Á baz-
arnum er prúttið í heiðri haft
og enginn skyldi borga umyrða-
laust fyrstu upphæðina, sem
nefnd er, jafnvel þótt ferða-
manninum þyki hann gera góð
kaup.
Ellefu eða tólf kílómetra lang
ur fjörður, sem kallast Gullna
hornið, gengur inn í landið, þar
sem Istanbul stendur. Þykir þar
mjög fagurt og keppast hótel og
alþjóðleg fyrirtæki við að
byggja við fjörðinn. Það sem
þykir mest einkennandi fyrir
Istanbul er Gullna hornið, mín-
aretturnar og hvolfþökin.
Frá Istanbul er hægt að fara
með ferju til heilsuræktarstað-
arins Yalova og til Bursa, sem
er við rætur Olymps-fjalls. í
Tyrklandi eru margar minjar
úr sögu kristninnar. Sagt er að
María mey hafi síðast átt heima
2 Efesos, en þangað er stutt
ferð frá Izmir. Og Páll páfi
var fæddur í Tarsus.
í Tyrklandi mætist nýi og
gamli tíminn, hið austurlenzka
og hið evrópska. Ferðamaður-
inn nýtur þar allra þæginda nú-
tímans og verðlag er lágt. Að
sjálfsögðu er verð alls staðar
svipað, þegar dvalizt er á al-
þjóðlegum hótelum eins og Ist
anbul Hilton, en unnt er að búa
á ódýrari hótelum, sem eru
hreinleg og þægileg.
Tyrkir eiga sér marga góm-
sæta þjóðarrétti, sem sjálfsagt
er fyrir ferðamanninn að bragða
á. Þeir framleiða einnig ágæt-
an bjór, sem líkist þýzkum.
Þjóðardrykkurinn er raki, en
Tyrkir eiga einnig ágæt rauð og
hvít vín og vodkað er talið sér:
staklega gott.
Gjaldmiðill Tyrkja er lira,
sem skiptist í 100 kursus. Ferða
menn þurfa ekki vegabréfsárit-
un, Enska og franska skilst
víða.
BlLLINN SEM BYGGÐUR ER FYRIR (SLAND.
Hann sameinar styrkleika, mýkf og aksturshæfni
befur en nokkurt annað fararfæki sem flutzt hefur
til landsins. Lótið reynzlu annarra verða yðar
reynzlu.
BROIVCO
LANDBÚNAÐARBIFREIÐIN
MEÐ DRIFI Á ÖLLUM HJÓLUM
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SlMI 22466
Steypuhrœrivélar
Fjölvirkjun Kópavogi.
Símar 40-450 og 40-770.
Nýjasta nýtt í kaffilögun
FILTROPA kaffisíur
Mjög hagstætt verð.
Heildverzfunin Amsterdam
Sími 31-0-23.
"■W ,l