Morgunblaðið - 19.04.1966, Side 4

Morgunblaðið - 19.04.1966, Side 4
4 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 19. apríl 1966 BÍLALEIGAN FERÐ SÍMI 34406 SENDUM LITLA bílaleigan Ingólfsstræti 11. Volkswagen 1200 og 1300. Sími 14970 BILA LEIGA MAGMUSAR 5KIPHOITI21 SÍMAR 21190 eftir lokun simi 40381 Volkswagen 1965 og '66. BIFREIÐALEtGAItt VECFERÐ Grettisgötu 10. Simi 14113. OSRAM háfjallasólii og gigtarlampar. RAFMACN HF. Vesturgötu 10. Sími 14005. Magnús Thorlacius hæstaréttarlögmaður. Málflutningsskrifstofa. Aðaistræti 9. — Sími 1-1875. BOSCH Þurrkumótorar 6 volt 12 volt 24 volt / Brœðurnir Ormsson Lágmúla 9- — Skni 38820. Loftrifflar eru stór- hættuleg leikföng. Ásmundur Brekkan, læknir, skrifar Velvakanda: „f blöðum nágrannaþjóða okkar má árlega lesa um fjölda slysa af völdum voðaskota úr svonefndum loftbyssum. Oftast eru þessi slys þess eðlis, að skot eða píla (ör) rýkur í augu og veldur mikilli lemstrun eða algjörri blindu. Hér höfum við fram að þessu verið blessunarlega laus við þessa tegund kæruleysisslysa, enda af nógu öðru að taka, en nú síðustu vikurnar bregður svo við, að fjöldi unglinga sést skjótandi með loftrifflum milli húsa og jafnvel út úr dyragætt um, þar sem börn eru að leik. Það er gaman fyrir unglinga að eiga loftbyssu og spennandi; ég get talað af nokkurra daga eigin reynslu, og þá einnig um það, að ég verð enn í dag hrelldur, er ég hugsa til þess, hve litlu munaði, að ég skadd- aði stórlega augu leikfélaga míns. Byssan mín var þó svo lítil og ómerkileg, að hún þyldi engan samanburð við þau tæki, sem nú eru hér til sölu. Skotvopn og skotsport eiga fullan rétt á sér á réttum vett- vangi og með ábyrgð og þekk- ingu, en leikur með loftriffla á húsasvölum og í húsasund- um uppfyllir ekki þau skilyrði. Enginn veit fyrirfram, hvenær slysin verða, en slys af þessum sökum eru sorglegri en mörg önnur, því að þeim veldur ein ungis vítavert kæruleysi for- ráðamanna þeirra óvita, sem loftbyssu hafa undir höndum. Ég vil skora á þá kaupmenn, sem hafa, e.t.v. í góðum til- gangi flutt inn þessa loftriffla, að stöðva sölu á þeim; nóg er til þess að hagnast á samt; og enn fremur vil ég alvarlega beina þessum orðum til þeirra foreldra, sem leyft hafa börn- um sínum að kaupa loftriffla: Ábyrgð ykkar er persónuleg á því tjóni, er börn ykkra kunna að valda, en hún er léttvæg samanborið við þær þjáningar og lemstur, er þau kunna að valda sjálfum sér og öðrum. Reykjavík, 14.4. 1966, Ásmundur Brekkan, læknir. Þótt Velvakandi sé andvígur hvers konar bönnum, virðist honum samt full ástæða til þess að banna sölu á svokölluðum loftskotvopnum til barna og unglinga. Hann sá sjálfur fyrir nokkrum dögum örskeyti úr loftbyssu þjóta svo nálægt barnavagni inni á Hverfisgötu að hjartað seig í öllum áhorf- andi. Fullorðinn vegfarandi á vítaði drenginn, sem skaut úr loftrifflinum ,en hann miðaði byssu sinni á gamla manninn, hló og spurði: „Ertu hræddur, manni?" Sýning á myndum Jóns biskups Helga- sonar o. fl. Guðmundur Sigurðsson skrif- aði Velvakanda þetta bréf á annan dag páska: „Kæri Velvakandi. í aðgerðarleysi helgarinnar og í tilefni viðburða hennar hefur mér dottið eftirfarandi í hug. 1. Vegna sýningar á mynd- um úr Minjasafni Reykjavíkur borgar, varð mér ljóst, hversu geysimerk tómstundaiðja Jóns Helgasonar, biskups, hefur orð ið, — hversu umfangsmikið og fjölbreytt, gagnlegt og óbrot- gjarnt ævistarf hans var. Þar eð myndir þær, sem á sýning unni eru, eru ekki nema brot af Reykjavíkurmyndum bisk- upsins og öðrum myndum hans (t.d. eru myndir hans af öllum kirkjum landsins engu ómerkari), legg ég eindregið til.að hafiz.t verði handa um sýningu á sýnilegu ævistarfi Jóns Helgasonar biskups. Ég veit, að ekki vinnst tími til þess fyrir aldarafmæli hans 21. júní næstkomandi, en gagn legt, að úr því gæti orðið ein- hvern tíma á þessu ári. 2. Ég ætlaði að sækja fyrr- nefnda sýningu og sýningu á Kjarvalsmyndum á föstudaginn langa, en kom að lokuðum dyr um. Vera má, að það sé brot á helgihaldi að hafa málverka- sýningar þennan dag, en er þá ekki kominn tími til, að lögum um þetta efni verði breytt? Ég heyrði í útvarpinu ,að íslend- ingar hefðu tapað einhverjum „landsboltaleik" í Danmörku þennan sama dag. Erum við trúaðri Dönum eða skin- heilagri? Við megum vita það, að séu settar hömlur á fólk í Reykjavík í kyrru vikunni og á páskadag ,er lífið að sama skapi hressilegra í skíðaskál- um og á öræfum. 3. Þegar ég gekk frá lokuð- um sýningardyrum (þeim, sem ég áður gat um), rak ég aug- un í fána Oddfellowreglunnar, þar sem hann hékk í hálfa stöng á húsi hennar. Nú spyr ég: Skal svo vera eður ei? 4. Mjög erfitt er að fylgjast með dagskrá útvarpsins eftir kynningu blaðanna á henni. Dagskrárefnið er kynnt sem t.d. en'durtekið efni, um helgina o.s.frv. Er maður þá tilneydd- ur til að hlusta meira á út- varp en gott er í von um gott efni. Er þetta rétt? Spurnin til blaðanna: eru það samtök ykkar að birta ekki dagskrá sunnudaga í laugardagsblöðum ykkar? 5. Vegna viðtals við formann Rithöfundasambandsins í kvöld frétum og tilkynningar um, að nú skuli skattgreiðendur látnir borga fyrir bókaútlán, auk þess sem þeir skuli borga bækurnar, vil ég segja þetta: Látið nú bókasöfnin vera gagnrýnin og kaupa ekki nema góðar bæk- ur. Ég hef sótt almenningsbóka söfn víða, bæði hér á landi og annars staðar. Hvergi eru gæði útlánsbókanna verri en hér, enda virðist algjörlega farið eftir kröfum lánþeganna, og hinar verstu bækur keyptar, jafnvel í mörgum eintökum, til að anna eftirspurninni. Þetta er einkum átakanlegt í barna- bókalánum. Látum greiðslurn- ar verða okkur til góðs með því að pína út úr rithöfundunum góðar bækur, sem keyptar séu handa almenningi. — Guðm. Sigurðsson“. Um helgidagahald og fánadaga á ísl. o.fl. Velvakandi þakkar bréfið og svarar því þannig: 1. Sýning á myndum Jóns biskups Helgasonar gæti orðið mjög fróðleg, því að biskup hafði næmt auga fyrir sérkenn um liðins tíma og líðandi stund ar, og vissi, að sumt var með öllu glatað, yrði það ekki þeg- ar fest á mynd. Hann var og fjölhæfur, enda varð Vest- ur-íslendingi einum að orði, eftir að hafa talað við biskup: Nú veit ég, hvað Danir eiga við með orðinu „kultiveret". 2. Vel má vera, að það sé hræsni nú á dögum að hafa lokaðar dyr á mesta sorgardegi kristninnar, en meðan kirkja vor heitir þjóðkirkja og ríkið heldur henni uppi með fé, væri annað óviðeigandi. Stundum er býsnazt yfir helgidagahaldi okkar fslendinga og talað um, að fækka beri helgi- og frídög- um. Hvers vegna? Er ekki allt af verið að berjast fyrir styttri og styttri vinnutíma? Flestir mundu heldur kjósa heilan, al- mennilegan frídag en nokkurra mínútna vinnustyttingu dag hvern. Frídagarnir veita lífinu tilbreytingu, og hægt er að nota þá á margan hátt til gagns og eða gamans. Langt fram á 19. öld mun hafa verið haldið heil- agt hér á þriðja í páskum, hvítasunnu og jólum. Væri gott ef svo væri enn, því að allir þurfa á nokkurra daga frii að halda annað veifið, ekki sízt þessir duglegu nútíma-íslend- ingar, sem vilja helzt alltaf vera að vinna (sérstaklega ef vinnan er ekki gefin upp til skatts). Kyrra vikan (dymbil- vikan) er bezta vika ársins í margra augum; sumir liggja heima, borða góðan mat, drekka öl og vín, lesa bækur (Sturlunga er t.d. góð páska- lesning), leika sér við börnin, sem þeir mega annars varla vera að, horfa á sjónvarpið, hlusta á Bach og Handel og Purcell og Boccherini og Jean- Baptiste Lulli og Domenico Cimarosa og Vívaldi og aðra yndislega tónsmíði; aðrir klifra upp á fjöll með skíði, sólgler- augu, dósamat, harðfisk og sól- arolíu og koma brúnir og hress ir og nýtrúlofaðir með harð- sperrur til baka. Einhver stakk upp á því í þessum dálkum um daginn að sameina sumardag- inn fyrsta og 1. maí; flytja sumardaginn fyrsta til verka- lýðsdagsins. Þetta er vond til- daga, — sumardagurinn fyrsti er þjóðlegur helgidagur, sem ber alltaf upp á fimmtudag, og væri öllu tímatali og rim- reglum ruglað, ef fleygja ætti þessum fagnaðardegi í fangið á einhverjum „alþjóðlegum" skrúðgöngudegí. 3. Rétt er að draga fána í hálfa stöng á íöstudaginn langa. Svo segir í forsetaúrskurði um fánadaga og fleira, nr. 44 frá 1944, 1. grein: „Draga skal fána á stöng é húsum opinberra stofnana, sem eru í umsjá valdsmanna eða sérstakra forstöðumanna ríkis- ins, eftirtalda daga: 1. Fæðingardag forseta Islands. 2. Nýársdag. 3. Föstudaginn langa. 4. Páskadag. 5. Sumardaginn fyrsta. 6. 1. maí. 7. Hvítasunnudag. 8. 17. júní. 9. 1. desember. 10. Jóladag. Alla ofangreinda daga skal draga fána að húni, nema föstu daginn langa, þá í hálfa stöng“. Þessi úrskurður á við um opinbera aðila, en telja verður, að þeir einkaaðilar, sem flagga vilja á tyllidögum, verði að hlíta honum. 4. Velvakandi er sammála því, að blöðin eigi að birta full komnar útvarpsdagskrár. Auð- vitað eiga þau að prenta hana óstytta, en ekki draga hana saman, svo að hún verði lítt nothæf. Morgunblaðið hefur staðið sig nokkuð vel að þessu leyti upp á síðkastið og birtir t.d. langoftast sunnudagadag- skrána á sunnudögum og mánu dagadagskrána líka. Blöðin stóðu sig flest illa um páska- helgina. Morgunblaðið birti þó fullkomna dagskrá til laugar- dags (og með honum), en sleppti páskadögunum, og tóta margur eftir því. -A Bækur og tennur. 5. Hvað eru „góðar bækur“?, Velvakanda er sagt, að rit- höfundasambandsmaðurinn hafi tekið sérstaklega fram, að auknar (og sjálfsagðar, að dómi Velvakanda) greiðslur til rithöfunda vegna bókaútlána kæmu ekki niður á almennum borgurum. Þetta getur ekki ver ið rétt. Hvar á að taka fé til aukinna greiðslna nema í aukn um sköttum, sem deilast þá niður á landsmenn alla? Sumir virðast halda, að ýmiss konar þjónusta ríkisins hljóti að vera „gratís", ef ekki er goldið sam stundis á staðnum, en vitan- lega verður einhvers staðar að taka fé til hennar. Þetta er eins og þegar kommúnistar eru að monta sig af því, að læknis- þjónusta sé ókeypis í Sovétríkj unum. Hvernig er læknunum þar borgað? Vitaskuld með því, að fólkið fær lægra kaup fyrir vinnu sína en því ber; skattarn- ir eru þar teknir fyrirfram, m.a. með því að höggva utan af launaumslaginu. Sumir vilja setja tannlæknaþpjónustu und- ir hatt sjúkrasamlags og al- mannatrygginga. Á að launa tannsóðana með því, að þeir, sem nenna að bursta og hirða tennurnar, greiði fyrir þá við gerðir á skemmdum og skít- ugum tönnum? í heild verður þetta dýrara, því að nú borgar hver maður „prívat" sínum tannlækni, en yrði þetta sett á ríkisjötuna, legðist við gífur legur skrifstofukostnaður I sambandi við spjaldskrárhald, vélritun o.s.írv., þannig að fleiri aurar rynnu samtals úr vösum skattborgaranna. Við- aukinn færi allur í nýjan af- leggjarapoka á ríkishítinni, sem er þó nógu síð fyrir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.